Vísir - 17.03.1969, Page 4

Vísir - 17.03.1969, Page 4
VELJUM (SLENZKT ÍSLENZKANIÐNAÐ SKJALA- OG LAGERSKÁFAR •:•:•:■: .V.'.V.V v.v.;. HOS JÓN LOFTSSON H/f hringbraut I2i.sími 10600 Knattspyrnumenn Dómaranámskeið verður haldið á vegum KDR dagana 24/3-30/3 1969. Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt til Guðmundar Haraldssonar, sími 12864 eða Sigurðar Sigurkarls- sonar, simi 17700, fyrir 20. þ. m. og veita þeir nánari upplýsingar um námskeiðið. KNATTSPYRNUDÓMARAFÉLAG REYKJAVlKöR Upp komast... um síölr Allt komst upp, þegar Mor- berto Avila Bonifax. höfuðsmaöur í næturverðinum í Mexfkó-borg, skrapp heiny af verðinum til þess aö ná í nokkur skjöl, sem hann hafði gleymt heima hjá sér. Hann kom að konu sinni, Ema, í örm- um nágrannans. Daginn eftir, þegar Ema hafði stungið af með elskhuga sínum og skilið mann sinn eftir einan með börnin, létti Morberto af hjarta sínu við félaga sinn í verðinum. Svo virtist sem Ema hefði geng ið í svefni í heilt ár, ekki bara innan heimilisins, heldur líka gengið út úr húsinu og yfir garð- inn með hendurnar teygðar fram á hinn venjulega svefngengilslega hátt. „Ég vildi aldrei vekja hana,“ sagði Morberto. „Þeir segja, að það geti verið hættulegt", en grunaði hann aldrei neitt mis- jafnt? „Auðvitaö ekki. Hún kom alltaf heim að tveim klukkustundum liðnum.“ Þetta er ungt og leikur sér Það orð fer af suðrænum þjóð- um, að fólk þar sé yfirleitt bráð- þroskaðra en' gerist hjá norræn- um. Eitthvað kann að vera til í þessu. því fyrir stuttu gengu í hjónaband, Giuseppe Greco, 21 árs gamall bílasmiður í Palermo, og Marcella Rosciglione, sem er aöeins 12 ára að aldri. Hjóna- band þeirra var blessað af for- eldrum beggja, eins og við á samkvæmt sikileyskri venju. Það verður þó að viðurkennast, að jafnvel þar syðra vakti hinn lági aldur brúðarinnar nokkra athygli, en það hvarf þó i skugga fréttarinnar um, að önnur tólf ára gömul brúður hefði í Spoleto eignazt tvíbura. Vivian Bellamy í hlutverki Benna flugmanns. ** Sögurnar um brezku drengjahetjuna Benjamín Bigglesworth, eöa Benna eins og hann hefur oftar veriö nefndur hafa lengi notið mikilla vinsælda, jafnt í útgáfu Norðra hér á landi sem erlendis, en bækurnar hafa verið þýdd ar á fjölda tungumála. Flugvélin, sem Benni flýgur, Sopwith Cameí. Þessi gamla gerð var notuð í fyrri heimsstyrjöíd- inni og hefur nú verið smíðuð nákvæm eftirlíking vegna kvikmyndarinnar. BENNI FLÝGUR Á NÝJAN LEIK Bennabækurnar kvikmyndaðar Nú stendur til að kvikmynda sögurnar um hetjudáðir þær, sem Benni drýgði í fyrri heimsstyrj- öldinni, og yrði það all drjúgur myndaflokkur, ef festar yrðu á filmu allar bækurnar, en Benni kom fram í 94 bókum alls. Benni var mikill flugkappi, eins og höfundurinn, W. E. Johns, kapteinn, og því hefur leikarinn Vivian Bellamy, sem fara mun með hlutverk Benna, orðið að leggja stund á flugnám. I loft- bardagaatriðum kvikmyndarinnar verður það þó reyndur tilrauna- fiugmaður, sem fara mun með stjórn orustuflugvélar Benna. Sú verður af gerðinni Sopwith Cam- el, og hefur verið smíðuð nákvæm eftirlíking af þessari gömlu or- ustuvél, sem notuö var í þá daga, og kostaði smíðin rúmar tvær milljónir króna. Hverjir leika munu félaga Benna, þá Áka, Kalla og Bertie, vitum við ekki. Kjötkveöjuhátiö í Melboume halda þeir núna Moomba-kjötkveðjuhátíöina og eins og er víst vani við slík tæki- færi, velja þeir sér kóng og drottningu. Kóngur að þessu sinni er Tito Gobbi, ítalski baritón- söngvarinn, og hér sjáum við drottninguna, Rhyll Harris, sem eitthvert sinn var kosin skíða- drottning Ástralíu, kyssa kóng sin í upphafi hátíðahaldanna. J. B.PÉTURSSON SF. ÆGISGÖTU 4-7 ^ 13125,13126

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.