Vísir - 12.04.1969, Side 5
Blönduð
munstur
Aöur fyrr var öhugsandi aö
blanda saman köflóttu, rós-
óttu og röndóttu. En núna er
þaö komiö í tizku. Á myndinni
sjáum vift köflöttan kjól og ef
þið eigið slikan getið þið verið
í sokkum við hann, sem eru
munstraðir langveginn, og einn-
ig haft við hann belti eða klút
meö persnesku munstri.
Þaö eina, sem þið þurfið aö
taka tillit til er að hafa litina
nolikurn veginn þá sömu, þá
myndar klæðnaðurinn „heild“.
Ymsar uppásfungur um
saumaskap fyrir vorið
Jþegar þió takið til í klæöa-
skápnum núna fyrir vorið
kunnið þið aö rekast á ýmsar
flíkur, sem hægt er að endur-
nýja. Hér á eftir koma nokkrar
uppástungur.
Ef kjóll litlu stúlkunnar hef-
ur hlaupið eða hún er vaxin upp
úr honum er ágætt að setja á
kjólinn breiðan kant, í passandi
lit, neðan á pilsfaldinn og við
ermarnar. Svo er lika hægt að
láta kjólinn vera eins og hann
er, ef til vill, klippa af honum
nokkra cm, ef þarf og nota hann
sem trekvart blússu við síð-
buxur.
Eigiö þið sjálfar erfitt meó að
h'itta á buxnasnið, sem klæðir
ykkur? Þá er gott að taka það til
bragðs að klippa í sundur gaml-
ar, slitnar síðbuxur, sem þið er-
uð hættar að nota, pressa stykk-
in og nota þau sem fyrirmynd
aö sniði. Venjulegar vinnubuxur
sitja yfirleitt vel og flestar hafa
eignazt vinnubuxur, sem hafa
passað. Þetta ráð er lika hægt
að nota, þegar um er að ræða
föt, sem manni hefur líkað af-
bragðs vel við, en sem eru orð-
in of slitin t. d. kjóla, blússur
eða barnaföt.
Eigið þið kápu, sem þið eruð
orðnar leiðar á? Sem e. t. v.
er oröin slitin að neðan? Hvers
vegna ekki að klippa af henni
þangaö til hún er í nýju jakka-
lengdinni? Jakkinn á að ná rétt
niöur fyrir mjaömir. Og þið fáiö
jakka, sem passar ykkur og er
gott að hafa við siðbuxur eða
pils hversdagslega.
Svo er þaö poplínkápan, sem
þiö eruð búnar að leggja til hlið-
ar. Ef þiö eigiö litla telpu, þá
væri upplagt að sauma á hana
kápu úr þessu efni sem er þeg-
ar fyrir hendi. Þið getið keypt
sniö til að fara eftir.
Lifur
gerir
flikina
nýja
Jþað er ekki beint skemmtilegt
að hafa fullar kommóðu-
skúffur af grágulum nærfatnaði
úr næloni eða bómull. Þaö er
samt engin ástæða til að fleygja
þeim Það er til ráð við þessu.
Það er hægt að lita nærfötin í
einhverjum skemmtilegum lit,
skærrauðum, grænbláum eða gul
um. Nú eru til hinir ýmsu litir,
sem eru ekki erfiðir í notkun og
sem lita ekki frá sér. Ein litar-
teaundin er Dvlon, þar sem lit-
urinn er soðinn inn i flíkina. l’að
er lfka til hvitur litur, sem ger-
ir flíkurnar hvítar s'tur.
5
Fermingargjöfin
sem veitir
ánægju
ff/acksi Decken
undraborvélin
Kostar aöeins kr.1280.-
Fæst i flestum verkfæraverzlunum
UPPGRÖFTUR
ÁMOKSTUR
HÍFINGAR
ranar
oKurð-
gröfur
Grafvélar
Vélaleigan
Simi 18459.
Gröfum húsgrunna
Önnumst jarðvegs-
skipti í hús-
grunnum og vega-
stæðum o. fl. jarö-
vinnu.
VÉLALEIGAN
Sími 18459