Vísir - 12.04.1969, Blaðsíða 9

Vísir - 12.04.1969, Blaðsíða 9
VI S IR . Laugardagur 12. apríl 1969. s 9 4 veggj^m í vinnustofu Sigur &ana hanga teiKnmgar eftir hann og tvær aðrar höggmyndir «fnr hann standa þar inni. Þegar Sigurlinni sá, aö blaðamaður- inn virti fyrir sér myndirnar, varð honum að orði: „Ég er að hugsa um aö snúa mér bara að þessu og hætta að byggja". „Nú? heldurðu aö það hlaupi sama gróska í höggmyndir og verið hefur í málverkum und- anfarin ár?“ spurðum við Sig- urlinna. „Ekkert skal ég um það segja en það hefur enginn efni á því að kaupa hús, svo það þýðir ekk ert að byggja“. „Segðu okkur frá þessum teikningum þínum“, flýtti blaða Gripur, sem Sigurlinni skar út. hugmynd minni og fengum lán- aða hiööuna á bak við Fálkann, þar sem viö komum þessu ölíu fyrir. Peningaleysi háöi okkur og þetta tók allt sinn tíma, aö koma {tessu saman. • Eitt sinn fór ég á fund Thor Jensens og bauö honum aö leggja í púkk með okkur, svo við gætum búið til virkilega góöa vél, en hann var ótilleiðan- legur. Nú ég nuddaði í þessu sýknt og heilagt, gerð' nýjar teikn- ingar meö þeim breytingum, sem hugmyndin hafði tekið, og sendi teikningarnar til norskrar patentskrifstofu. Ég fékk einka- leyfi á hugmyndinni 11. febr. 1932, eftir miklar skriftir — I TILRAUNIR OG HUGMYNDIR Spjallað við Sigur- linna Pétursson, húsasmiðameistara, sem smiðaði sér sjálfur fiðlu, þegar fátæktin leyfði ekki fiðlukaup — sem átti hugmyndina, er 'óll súgþurrkun byggist á — sem fyrstur hóf tilraun- ir með ,plötusteypt' hús ■ Tilraunir í húsagerð maðurinn sér að segja, sem leið ist allt tal um pólitík. ,,Ég lærði teikningu hjá Rík- arði“, sagði Sigurlinni, eftir að hafa útskýrt teikningarnar á veggnum. „Var það hjá völundinum Ríkarði Jónssyni?" „Já ég byrjaði 1922. Þá var ég búinn að læra trésmíði vest- ur á Isafirði. Ég er fæddur i með öðru auganu, en hlær með hinu. — Teikning eftir Sigurlinna. Skáladal vestur í Aðalvík. en fluttist þaðan til ísafjarðar og svo fluttist ég 1921 til Hafnarfj. — Þá var mikil eymd í Hafn- arfirði. Einn og einn kofi hér og þar, ein gata, ef götu skyldi kalla, því að hún -var algert for- að. — En sem sagt ég læröi teikningu hjá Ríkarði og annað hvert kvölu gekk ég til hans í tima til Reykjavíkur. Það þætti líklega langur gangur í skóla í dag að ganga til Reykjavikur — tvo tíma hvora leið.“ ■ Smíðaði fiðlur, sem hurfu á dularfullan hátt „Þú hefur þá trúlega skorið út einhverja gripi?“ ,,Já, ég hef smíðað marga gripi en þeir flestir farnir eitt- hvað eins og t.d. fiðlurnar.“ Það verður að játast aö blaða manninum var Sigurlinni lítt kunnur enda varð Sigurlinni að útskýra nánar þetta um fiölurn- ar hans. „Það er nú heil saga að segja frá því“, byrjaði Sigurlinni í hefðbundnum sögumannastíl. fiaaw reitK hressilega í nef- KJ tyirti sér og hóf svo máls. „Þannig var, að mig langaði eitt sinh til að læra á fiölu. Það var stuttu eftir að ég fluttist hingað suður en þá var hér staddur danskur fiðluleikari sem vakti mikla hrifningu manna og þá mína líka. En ég hafði bara ekkj efni á að kaupa mér fiðlu, svo mér datt í hug að smíða mér eina. 1916 hafði rekið hval á Sand- víkurfjörur á Reykjanesi Þetta var risaskepna og beinin lágu í fjörunni og fór orð af þeim víða. 1921, þegar ég var kom- inn hingað suður, frétti ég af þessum beinum og það datt í mig að kaupa þau. Ég fór til Ólafs bónda Ketils sonar i Sandvík og keypti af honum beinin fyrir 100 krónur sem var mikiil peningur þá, enda þótti mörgum ég vera skrýtinn að eyða svona miklu fé í beinin. Það fylgdi kaupun- um, að Ólafur sagaði þau i meterslanga búta fyrir mig og flytti þau til mín. — Ég man að kjálkabeinið var 7 metrar á lengd. Úr þessum beinum smíðaði ég fiölu. Reyndar hafði ég um- gjörðina milli lokanna úr silfri og ég man, að ég var mánuð að vinna mér fyrir silfrinu Það geröi ég með smíöum og út- skurði". „Það hlýtur aö hafa verið ná- kvæmnis- og vandaverk, að smíða fiðluna?" „Tja, já. Mér þótti mestur vandinn að tylla iokunum sam an, en ég leystj þann vanda með því að nota beinskrúfur, sem ég skrúfaði í gegnum lokin aftan frá. Ljósrit af einkaleyfi Sigur- iinna á súgþurrkun heys. — En aldrei lærði ég á fiðl- una. Hins vegar smíðaði ég aðra fiðlu og hún var úr gamla menntaskólanum að efninu til. Ég komst þar f vinnu við inn- réttingar og við breytinguna gekk töluvert af gamla viðnum úr skólanum, sem ég fékk að hirða í fiðluna. Það var nú meiri viöurinn Hann var svo þurr oröinn, enda gamall, að þegar maður tók spænina og nuddaði þeim á milli lófanna, urðu þeir að dufti.“ „Hvað varð um þessar fiðlur?" „Þær hurfu“. „Hurfu hvernig?“ „Ég sendi þær út á fyrri heimssýninguna 1937, en þær komu aldrei aftur og .íginn kannaðist við, hvað orðið hafði af þeim, þegar grennslazt var fyrir um þær“. „Það hefur verið tilfinnanlegt tjón fyrir þig“. „Ég tryggði þær, áður en ég sendi þær og úr tryggingunum fékk ég þrjú þúsund krónur.“ „Var það sannvirði?“ „Sannviröi? Nei. Ég skal segja þér, að hingað kom 90 manna hljómsveit frá Þýzkalandi einu sinni Hún vakti mikla lukku og hlaut líka góðar móttökur Að höfðingja sið vildu menn leysa hana úr garði með rausn- arlegri gjöf og Benedikt Waage og fleiri vildu gefa þeim bein- fiðluna. Ég setti upp 5000 krón- ur fyrir hana og það vár háfizf handa um söfnun, en þá var oröið liðið á heimsókn hljóm- sveitarinnar og hún fór, áður en safnazt hafði nóg, og ekkert varð af þessu.“ „En menntaskólafiðlan?" ,,Ég mat hana aldrei til fjár, því ég ætlaði að gefa mennta- skólanum fiöluna en hún kom aldrei aftur. Um aðra gripi veit ég ekkert hvað hefur orðið." Bl Alltaf að gera tilraunir Það, sem átti að vera stutt heimsó' - dróst á langinn, því Sigurlinni er sögubrunnur, sem hiefur alltaf frá einhverju nýju að segja . .. „Ég skal segja þér,“ sagði Sig urlinni, þegar við höfðum skraf að lengi og ágætis kynni höfðu tekizt með okkur „að ég á ekki fimm aura“. „Hvað, byggingarmeistari, sem á ekki fimm aura?“ sagði ég fullur efasemda „Já, það er alveg sama. Það fer ailt jafnóðum hjá mér í einhverja vitleysu. Ég er alltaf að gera tilraunir með eitthvaö. Já, ég þarf alitaf að vera að prófa eitthvað nýtt“, Og Sigurlinni sagði mér frá til raunum sínum 1931 og 1932 til þess að súgþurrka hey. Á hug- mynd hans er byggð súgburrkun bænda í Evrópu nú til dags „Sumariö 1930 fór ég upp i Bor»arfiörð og vann þar við smíðar á prestsetrinu, en þar stóð náttúrlega yfir heyskapur, og þá fór ég að velta þessu fyrir mér hvernig mætti gera út- búnaö sem gerði bændur óháð- ari veðrum og vindi. Ég braut sífellt heilann um þetta og um haustið kvnntist ég Magnúsi Jónssyni trésmið og Jakobi Jakobssyni f menntaskól anum og fékk þá í lið með mér. Við smíðuðum útbúnað eftir bréf á bréf ofan og svo svar- bréf. Þá var einhver nefnd starf- andi, sem ég man ekki ler.gur, hvað hét, en í henni áttu sæti Geir Zoéga, vegamálastjóri, og Emil Jónsson, verkfræðingur og einhver þriðji maður. Ég -endi þeim teikningar af þurrkunar- vélinni og leitaði álits þeirra á því, hvort eitthvert vit væri í þessu. Þeir grandskoöuðu þetta og töldu allt vera í lagi. Svo hafðist það í gegn, að landbúnaðarráðuneytið ákvað að láta smíöa eina vél eftir þessari hugmynd hjá Landsmiðjunni og ég fylgdis1 með verkinu. Vélin var tilbúin um haustið 1933. — Svo átti nú að prófa apparatiö. Ég fékk lánaða dráttarvél til ráðsmaðurinn á Kleppsbýlinu lagöi til hráefnið — trénaöa hafra, 70 til 80 cm háa orðna. Hugmyndin byggðist á þvi, að grasið var fyrst sett í pressu, sem sprengdi safann úr strá- unum, en síðan var heitt loft látið leika um heyið og hrífur sneru því og þvættu fram og til baka. Þegar tilraunin var gerð með hafrana, skilaði vélin þeim hálfblautum, eins og vonlegt var því höfrunum var dembt í hana og hún keyrð á fullu. Menn ætluðust svo til þess að vélin skilaði fullkomnum árangri Því líkt og annað eins! En mér fannst árangurinn vera eftir vonum. Fleiri tilraunir voru víst ekki gerðar meö hana í alvöru. Það vantaöi einangrunarefni, því að einangra þurfti heitaloftsleiösl- urnar, og annað eftir því, og hún stóð óhreyfð um árin.“ „En þú fékkst einkaleyfið og eaztu ekki hagnazt eitthvað á því?“ „Guð hjálpi bér maður! Svo bjartsýnn skyldi enginn vera á íslandi, að halda að hér hagnist menn á uppfinningum sínum.“ „En þú varst fyrstur manna til þess að hefja tilraunir við að steyp hús í hlutum og setja svo saman?“ „Já, hann Guðjón heitinn Samúelsson, húsasmíðameistari, gekkst inn á það að leyfa mér að prófa þetta á bakhlið nokk- urra bílskúra við Vífiisstaði 1946. Guðjón heitinn var eiginlega eini maðurinn, sem ég vann lengi hjá. Ég kunni lagiö á hon- um og hann kunni lagið á mér, og leyfði mér að vera nokkurn veginn sjálfráða viö verkin. Ég fikraði mig síðan áfram við þessa byggingaraðferö og var kominn svo langt, aö ég gat steypt heila hæö í einu, þegar danski yfirverkfræðingurinn, Malmström, kon. hingaö til á vegum Sameinuöu þjóöanna og kom hingað til þess að kynna sér húsbyggingar Islendinga. Hann kom og skoðaði þetta hjá mér og sagði mér, aö þeir væru byrjaðir á þessu sama í Danmörku. en þeir væru bara ekki komnir lengra en þaö, að þeir gætu steypt hálfa hæð í einu. Enda var ég þá búinn að vera 10 árum lengur við þetta en þeir. Seinna veitti danska ríkið milljónum króna í þessar til- raunir sínar og lán og það tók hjá þeim örum framförum. Malmström sendi síðan iðn- aðarráöi skýrslu um athugun sína á tilraunum mínum og sú skýrsla hlýtur aö vera til hjá iðnaðarmálastofnuninni, en hún var aldrei birt." „Síðan hefur þú byggt mikið af húsum með þessari aðferð?" „Já, íbúðarhús, fjáriiús oe alls konar hús. Það standa ein 20 hús á Flötunum hérna í Garðahreppi sem ég hef smíðað með þessari aðferð, einingar- hús hefur hún verið kölluð." Á árunum 1938 til 1939 vann »-> 7. síða. þess að knýja vélina okkar og lands 1958. Hann vann eitthvað -V ~f 1 #‘í l\f T K'ff' « . t i ’ ■ Sigurlinni á sínum yngri árum með fiðiurnar sínar tvær, sem hurfu svo á dularfuiian hátt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.