Vísir - 12.04.1969, Síða 10
w
V í S I R . Laugardagur 12. apríl 1969.
Qrval úr dagskrá næstu viku
IÍTVARP $
Sunnudagur 13. apríl
10.25 Háskólaspjall. Jón Hnefill
Aðalsteinsson fil. lic. ræðir
við Þorstein Gylfason.
11.00 Messa í Lágafellskirkju.
Prestui: Séra Guðmurtdur
Óskar Ólafsson. Organleik-
ari: Hjalti Þóröarson.
20.35 Selfossvaka. Jón R. Hjálm-
arsson skólastjóri hefur
safnað efni til dagskrárinn
ar, flytur inngangsorð og
kynnir ásamt Eydísi Ey-
þórsdöttur. Rætt við Helga
Ágústsson fyrrum hrepp
stjóra, Kristin Vigfússon
byggingameistara og Jón I.
Guömundsson yfiriögreglu-
þjön. Karlakór Selfoss
syngur. Söngstjóri: Pálmar
Eyjólfsson. Lúðrasveit Sel-
foss Ieikur. Stjórnandi:
Ásgeir Sigurðss. Kór Gagn
fræðaskóians á elfossi syng
ur. Söngstjóri: Jón Ingi Sig
urmundsson. Helga Þórðar-
dóttir kennari flytur frá-
sögu: Á ferð í flóöinu
mikla. Óli Þ. Guöbjarts-
son kennari les kvæði Hann
esar Hafsteins frá vígslu
Ölfusárbrúar.
Máuudagur 14. apríl
19.30 Um dagi .1 >g veginn.
Eiríkur Sigurösson fyrrver-
andi skóiastjóri á Akureyri
talar.
21.00 „Bónorðiö" eftir Artur
SJÚNVARP #
Sunnudagur 13. apríl
1S.00 Helgistund. Séra Magnús
Runölfsson, Árnesi.
18.15 Stundin okkar. Þar sem
þetta er 100. þátturinn af
Stundinni, er brugðið upp
myndum úr eldri þáttum,
og Rannveig og krummi
koma í heimsókn. — Um-
sjón: Svanhildur Kaaber og
Birgir G. Albertsson.
20.20 Myndsjá. Meðal efnis að
þessu sinni eru tvær inn-
lendar tízkusýningar. Um
sjón Ásdís Hannesdóttir.
20.45 íslenzkir tónlistarmenn. —
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Gunnar Egilson og Gunnar
Kvaran leika tríó fyrir
píanó, klarinett og celió í
B-dúr op. 11 eftir Beethov-
en.
21.05 Sirkku. Leikrit eftir Ari
Koskinen um vandamál
ungrar stúlku og samband
hennar við foreldra og af-
skipti yfirvalda af uppeldi
hennar. — Aðalhlutverk:
Petra Prey, Hillevi Lager-
stan og Tapio Hámáláien.
Mánudagur 14. apríl
20.20 Denni dæmalausi. Krakka-
klúbburinn.
20.55 Uppreisn. Þaö er hundur,
sem gerir uppreisn gegn
húsbónda sínum og hefur
síöan baráttu fyrir því að
bjarga mannkyninu, sem
hann telur vera á villigöt-
um. Frásögn myndarinnar
er lögð hundinum í munn.
21.35 Miðaldir Rakin saga
Evrópu á miðöldum,, allt frá
hruni Rómaveldis til landa
kmdanna miklu.
Omre. Karl Guðmundsson
leikari les smásögu vikunn
ar i þýðingu Stefáns Jóns-
sonar.
22.35 Hljómplötusafnið i umsjá
Gunnars Guðmundssonar.
Þriöjudagur 15. apríl
20.50 Afreksmaður í iþróttum.
Örn Eiðsson flytur fjórða
þátt sinn um tékkneska
hiauparann Emil Zatopek.
21.15 Nýjar aðferðir í rannsókn-
um og meðferð hjartasjúk-
dóma. Árni Kristjánsson
laeknir talar.
22.45 Á hijóðbergi. Leikrit eftir
Peter Weiss: „Ofsóknin og
morðið á Jean-Paul Marat“,
leikið af vistmönnum geð-
veikrahælisins í Charenton
undir stjórn markgreifans
de Sade, — siðari hluti. —
Með helztu hlutverk fara:
Ian Richardson, Patrick
Magee og Glenda Jackson.
Leikstjóri: Peter Brook.
Miðvikudagur 16. apríl
20.20 Kvöldvaka. a. Lestur forn-
rita. Kristinn Kristmunds-
son cand mag. les niðurlag
Gylfaginningar (7). — b.
Kvæðalög. Jóhann Jónsson
á Sauöárkróki kveður vís-
ur eftir Ólínu Jónasdóttur.
c. Felustaður frúarinnar á
Hóium. Frásöguþáttur eftir
Þormóö Sveinsson á Akur-
eyri. Hjörtur Pálsson flyt-
ur. d. Sönglög eftir Pétur
Sigurðsson frá Sauðárkróki
Svala Nielsen og Friðbjörn
Þriðjudagur 15. apríl
20.30 í brennidepli. Umsjón Har-
aldur J. Hamar.
21.10 Hollywood og stjörnurnar.
Frægir ieikstjórar.
21.35 Á flótta. — Skollaleikur.
22.25 Frá Norður-Víetnam. —
Daglegt iif og lífsbarátta
fólks í skugga styrjaldar.
Svipmyndir frá höfuöborg-
inni, Hanoi, og frá Iífi fiski
manna á eyjum undan
strönd landsins. — Magnús
Kjartansson, ritstjóri, seg-
ir frá.
Miðvikudagur 16. apríl
20.30 Þorp, fjörður og fimm
kvæði. Efni þessarar mynd-
ar, sem sjónvarpið lét gera
á Patreksfirði nýlega, er
feilt að kvæðum úr ljóða-
flokknum „Þorpinu" eftir
Jón úr Vör.
20.50 Virginíumaðurinn. — Grá-
lyndir feðgar.
22.00 Millistríðsárin (25. þáttur).
Árið 1933 höfðu í Sovét-
ríkjunum orðið stórstígar
framfarir í iðnaði, en þar
höfðu þrjár milljónir
manna soltið í hel. — 1
Bandaríkjunum rikti geig-
vænlegt ástand i efnahags
málum. — í Þýzkalandi
veitti þingið hinum nýja
þjóðarleiðtoga, Adolf Hiti-
er, alræðisvald.
Föstudagur 18. apríl
20.35 Flóttamannahjálp. Samein-
uðu þjóðirnar og fleiri sam
tök hafa aðstoðað flótta-
menn frá Súdan við að
koma sér fyrir í M’Boki í
Mið-Afriku. Þorpi þessu,
þar sem áður bjuggu nokk
ur hundruð manna, er ætl-
að að taka við 27 þúsund
flóttamönnum tii framtiö-
ardvalar.
21.05 Apakettir.
Jónsson syngja við undir-
leik Guðrúnar Kristinsdótt-
ur. 1. Blundaöu, ástin mín,
2. Lindin. 3. Erla. 4. Nætur
ljóð 5. Vængjatök. 6 Una.
e. I hendingum. Sigurður
Jónsson frá Haukagili flyt
ur vísnaþátt.
21.45 Reykingar og lungnasjúk-
dómar. Hrafnkell Helgason
læknir flytur erindi.
Fimmtudagur 17. apríl
20.50 Um seii og selveiðar. Árni
Waag ræðir við Þorgrím
Maríusson frá Húsavík.
21.35 Tvö heilbrigðismálaerindi.
a. Nikulás Sigfússon lækn-
ir talar um mataræöi og
kransæöasjúkdóma.
b. Vigdís Jónsdóttir skóla-
stjóri talar um fæðuval.
22.15 Vangefin börn. Maria
Eiríksdóttir kennari flytur
erindi, þýtt og endursagt.
Föstudagur 18. apríl
20.30 Höfum við lifað áður? Ævar
R. Kvaran flytur erindi.
21.15 Ný viðhorf í heimilislækn-
ingum. Örn Bjarnason lækn
ir flvtur erindi.
Laugardagur 19. apríl
20.30 Leikrit: „Gefiö upp staðar-
ákvörðun!" eftir Lars Björk
man. Þýðandi: Jökull Jak-
obsson. Leikstjóri: Bene-
dikt Árnason.
21.20 Taktur og tregi. Ríkharöur
Pálsson kynnir blues-lög.
21.30 Harðjaxiinn. — Stefnumót
við Doris.
22.20 Erlend málefni.
Laugardagur 19. apríl
16.30 Endurtekið efni. — Saga
Forsyteættarinnar — John
Galsworthy — lokaþáttur.
Svanasöngur.
17.25 „Þaö er svo margt“ Kvik-
myndaþáttur Magnúsar Jó-
hannssonar.
17.50 íþróttir.
20.25 Rödd eyðimerkurinnar. —
í Sinora-eyðimörkinni í
Arizona bjó um árabil rit-
höfundur og náttúruskoð-
ari, Joseph Krutch. Mynd
þessi segir frá kynnum
hans af dýrum og jurtum,
er aðlagazt hafa þurru lofts
lagi og vatnsskorti merk-
urinnar og lifa þar góðu
lífi.
21.15 Skemmtiþáttur Sammy
Davis.
21.40 Moby Dick. Bandarísk kvik
mynd frá árinu 1956
byggð á skáldsögu eftir
Joseph Conrad. Leikstjóri
John Huston. Aðalhlutverk
Gregory Peck, Richard
Basehart, Leo Genn og
James Robertson Justice.
Kennaraskóla-
nemar sýna í
Austurbæjarbíoi
Kennaraskólancmar veröa á fjöl-
unum í Austurbæjarbíói í kvöld
meö gamalkunnan gamanleik,
Spanskfluguna eftir Arnold og
Bach. Leikurinn var upphaflega
sýndur á árshátíð nemenda 31.
marz og ætlunin er meö þessari
sýningu aö veita almenningi tæki-
færi til þess aö sjá hana. Leikstj.
er Steindór Hjörleifsson. Sýningin
hefst kl. 11.30. en aðgöngumiöa-
salan stendur frá kl. 16.
in wrmm borgin
SJÚNVARP
Laugardagur 12. apríl.
16.30 Endurtekió efni, Munir og
minjar. „Hafði gull á hvítu trýni“.
í þættinum er fjallað um ýmsa
minjagripi, sem tengdir eru minn-
ingu þekktra íslendinga og at-
buröum í sögu þjóðarinnar. Um-
sjónarmaður Þór Magnússon, þjóð
minjavörður. 17j)0 Eigum við að
dansa? Heiðar Ástvaldsson og
nemendur úr dansskóla hans sýna
nokkra dansa. 17.20 Iðnaðarbær-
inn Akureyri. Brugðið upp mynd-
um frá nokkrum iðnfyrirtækjum
þar. Umsjónarmaður Magnús
Bjarnfreösson. 17.50 íþróttir. Hlé.
20.00 Fréttir. 20.25 Lúörasveitin
Svanur leikur. Á efnisskrá er
m.a. lagasyrpa úr söngleiknum
„Heilo Dolly“. Kynnir Borgar
Garðarsson. Stjórnandi Jón Sig-
urðsson. 20.50 Lucy Ball. Bama-
boð hf.. 21.15 Lífið í mýrinni.
Norðarlega í Lapplandi, Svíþjóð-
armegin, er friðað svæði, sern
heitir Sjaunja. Þar eiga margar
sjaldgæfar fuglategundir öruggt
hæli. Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson. 21.40 Skemmtiþátt
ur Sammy Davis (fyrri hluti).
Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.05
Tilbrigði um ást. (Une vie).
Frönsk kvikmynd um sögu eftir
Guy de Maupassant gerð árið
1958 af Alexandre Astruc. Aðal-
hiutverk: Maria Schefl, Christian
Marquand og Antonella Lualdi.
23.30 Dagskrárlok.
Skemmtiþáttur Sammy
Davis
21.40
í kvöld er skemmtiþáttur Sammy
Davis, fyrri hluti. Þýðandi er
Kristmann Eiðsson og segir hann
eftirfarandi um þáttinn.
— Þessi þáttur er ekki alveg
nýr, sennilega nokkurra ára. Nafn
þáttarins er eiginlega: „Sammy
skemmtir Bretum“ og er hann
tekinn upp í London. Þættinum er
skipt í tvennt og verður seinni
hlutanum sjónvarpað næsta laug
ardag. 1 þessum þætti syngur
Sammy Davis mörg vinsæl lög
eftir þekkt tónskáld, aðallega
gamalkunn lög, auk þess setur
hann á svið tvær aukasenur. Ger
ist önnur f brezkum skemmti-
garði og syngur hann og dansar
með nokkrum börnum, hin senan
gerist í brezkri herrafataverzlun
þar sem Sammy ætlar að klæða
sig upp að brezkum sið. 1 næsta
þætti hermir Sammy Davis eft-
ir röddum margra, frægra söngv
ara t.d. Nat King Cole, Louis
Armstrong. Sá þáttur er jafnvel
skemmtilegri hjá þessum geysi
lega, fjölhæfa skemmtikrafti.
Gísli AKreðsson.
1ÍTVARP
Laugardagur 12. apríl.
12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Óska-
lög sjúklinga. Kristín Sveinbjörns
dóttir kynnir. 14.30 Pósthólf 120.
Guömundur Jónsson les bréf frá
hlustendum og svarar þeim. 15.00
Fréttir — og tónleikar. 15.20 Ald-
arhreimur. Björn Baldursson og
Þórður Gunnarsson tala viö Krist-
ján Guölaugsson um þjóðfélags-
mál, anarkisma o. fl. 15.50 Harm-
onikuspil. 16.15 Veðurfregnir. Á
nótum æskunnar. Dóra Ingvadótt
ir og Pétur Steingrímsson kynna
nýjustu dægurlögin. 17.00 Fréttir.
Tómstundaþáttur barna og ungl
inga í umsjá Jóns Pálssonar. 17.30
Þættir úr sögu fornaldar. Heimir
Þorleifsson menntaskólakennari
talar um Indland. 17.50 Söngvar
í léttum tón. 18.20 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynn-
ingar. 19.30 Daglegt lif. Árni
Gunnarsson fréttamaður stjórnar
þættinum. 20.00 Tveir heimskunn
ir söngvarar, Erna Sack og Rich-
ard Tauber, syngja nokkur lög
hvort um sig. 20.20 Leikrit:
,,Sómafólk“, gamanleikur eftir
Peter Coke. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson. Leikstjóri Gísli Alfreðs-
son. 22.00 Fréttir. 22.15 Veður-
fregnir. Danslög. 23.55 Fréttir í
stuttu máli. Dagskrárlok.
20.20
í kvöld er leikritið „Sómafólk",
gamanletkur eftir Peter Coke.
Gísli Alfreðsson er leikstjóri og
segir m.a. þetta um leikritið: —
Ég setti þetta upp fyrir 4—5 ár- •
um hjá Leikfélagi Kópavogs. Þá
kölluðum við leikritið „Fínt fólk“,
en það heitir á ensku „Breath of
Spring“, svo nafnið í þýðingu er
raunverulega búið til og heitir nú
„Sómafólk“ hjá okkur og finnst
mér það betra heiti.
Fyrir einum fimm árum var
sýnd kvikmynd í Háskólabíói
undir nafninu „Pelsaþjófamir”,
sem er byggt á þessu leikriti eftir
Peter Coke. Þetta er gaman-
„thriller" og í stuttu máli er sögu
þráðurinn á þá leið, að persón-
urnar, sem eru allt saman eldra
fólk og leigir saman hjá húsráð-
andanum Beatrice eru mjög leiðar
á lífinu. Þá kemur til skjalanna
þjónustustúlka, sem Beatrice ræð
ur ti! sín og er nýkomin úr fang-
elsi, og stelur hún pelsi til að
gefa húsmóður sinni í þakklætis-
skyni. Fyrir þennan stuld á hún
aftur fangelsið yfir höfði sér en
þá grípa leigjendurnir í taumana
með ýmsum aðgerðum. Þær verða
svo mikil upplyfting í lífi þeirra,
að þetta gamla fólk stofnar með
sér bófaflokk, sem stelur pelsum.
— Er ekki mikill munur á því að
stjórna útvarpsleikriti og því að
sviðsetja leikrit?
— Otvarpsleikrit krefst þess,
að allt sé skapað fyrir eyrað og
engir sviðsmunir eru tíl að hjálpa
manni, það krefst ekki minni ein
beitingar á því augnabliki, sem
það fer fram en sviðsverk. Þá er
einnig ætlazt til þess að undirbúa
ingurinn að útvarpsleikriti sé
miklu minni en sviðsverks einn-
ig kemur aldrei neitt ’upp sem
heitir rútína á verkinu, sem er
stór liður í leikhúsverki. Það má
því segja, að það sé erfiðara að
koma verki til skila í útvárpi að
mörgu leyti.
í lokin segir Gísli frá sínum
störfum núna. Ég er í tveim
hlutverkum sem stendur, í Cand-
idu og í bamaleikritinu. Svo er cg
að þýða leikrit sjálfur, sem ég
reyni að koma á markað.