Vísir - 12.04.1969, Blaðsíða 12
r
Í2
V í SIR . Laugardagur 12. april 1969.
EFTIR C. S. FORESTER
7 daga. cr
Kf l"=r
á sófattoing
a« btiogÍa’ “
leigatt
^átSwr*
t>or
500.00
þurfi*
aöeius
og
Og
iiílom1
v\6 afhenduw
víurhil^-
BllALEIGANHUIIR!
car rental service ®
>vi aö stundum þegar dimmt var
orðið, var barið laust á útidyrnar,
og þá för hann og opnaöi fyrir Marg
uerite Collins. Og hún kom inn
yndisleg og þroskuö, og þá gleymdi
herra Marble alltaf vandamálum
sínum um stund.
Hann haföi ekki jafnmikið dálæti
og hún á léttum vinum, en hann sá
um. aö alltaf væri til nög af víni
fyrir hana. Hann var sjálfur ánægð-
ur, ef hann hafói viski fyrir sjálf-
an sig, og timinn leiö eldingarhratt.
Þegar kvöldiö var liðið skipti lítill
seðlavöndull um hendur — það var
-pbætt að treysta þvf, að Marble
notaði ávísanir eins Iítiö og hægt
var undir þessum kringumstæðum
— og Marguerite læddist út eins
hljóðlega og hún hafði komið.
Sum kvöldin voru undarleg, eins
og hálfgeröur draumur og hálfgerð
martröö. Hugsanir hans tóku ein-
kennilega stefnu. Herra Marble
fann skyndilega, að honum leiö
einkennilega vel í húsinu meö út-
sýni yfir bakgarðinn og Marguerite
við hlið sér. Hann gat gleymt sér
gersamlega i hlýju hennar og hvít-
um örmum. Augu hennar glóöu af
ástrfðu, og ástarandvörp hennar
knúðu hann áfram og áfram. Frá
Marguerite fékk hann að minnsta
kosti fullt verðgildi peninga sinna.
Það var jafnvel ekki eins voða-
legt og halda mætti að vakna næsta
morgun rauðeygður og með óbragð
í munni. Að minnsta kosti var hann
einn, og herra Marble var þakklát-
ur fyrir að fá að vera einn, nema
ef Marguerite var hjá honum. Eigin-
konan var ekki til staöar með kvíöa
glampa í augum til aö plaga hann.
Hann gat reikað um húsið og geng-
ið úr skugga um það i þúsundasta
skipti, að enginn hefði hreyft við
bakgarðinum. Hann gat klætt sig
hægt og rölega og farið út, án þess
að þurfa að standa i því aö kveðja
kóng eöa prest.
Hann kom venjulega hálftima of
seint eins og við var aö búast, en
þaö geröi ekki til. Hann vissi aö
hann yrði óhjákvæmilega rekinn af
skrifstofunni en honum stóð á
sama.
Á hverjum degi gat hanu séö i
augum eigandans, sem hafði boðiö
honum fimm hundruð pund á ári,
vaxandi óánægju vfir hiröuleysis-
legu útliti hans og óstundvisi.
Auövitaö hafði hann ekkert gert
til að vinna fyrir kaupinu, sem
hann fékk. Hann aöstoöaöi fyrirtæk
iö ekki viö aö gera annan eins viö-
skiptabúhnykk og hann haföi áður
gert í sína eigin þágu. Þaö — hann
hafði allta-f vitaö þaö — var j hæsta
máta öliklegt, þegar hann fann ekki
lengur fyrir knýjandi nauðsyn.
En honum var sama þótt hann
yröi rekinn frá fyrirtækinu. í arð
af eignum sinum fékk hann tólf
hundruð pund á ári, svo að honum
var sama um fyrirtækiö. Og í vinn-
una fór hann rauðeygður, órakaöur
og meö skjálfandi hendur. HiÖ
rauða þunna hár hans var aö verða
grátt.
Aðrir meölimir Marble-fjölskyld-
unnar skemmtu sér eftir beztú'
getu. Sumum heppnaðist það að
nokkru leyti. Þessi þrenning haföi
vakiö kátinu rueöal annarra hótel-
gesta. Frú Marble var svo illa
klædd, og svo var hún augljóslega
skelkuð viö buröarmennina og þjón
ana. Winnie haföi kveikt áhuga í
nokkrum brjóstum. Hún var ung
— það gátu allir séö — en enginn
þeirra gat gizkað á hversu ung.
Allt i fari hennar vakti athygli,
fötin og allar athafnir. Andlit henn-
ar var ataö i púðri og hún hafði
tekið upp á því, aö líta út undan
sér á menn, sem hún gekk fram
hjá. Þessi blanda af æsku og sak-
leysi, og það hversu augljóslega
hún gaf i skvn, aö hún væri til
í tuskið, vakti einkennilega löngun
f brjöstum nokkurra aldraðra
manna, sem veittu henni athygli.
Hinir slægu nálguðust móðurina i
fyrst. Samræður byrjuöú út af
engu í fordyri hótelsins, og þaö
kom frú Marble skemmtilega á ö-
vart aö hafa alltaf i kringum sig
gráhæröa og kurteisa herramenn,
sem umgengust hana af eins mik-
illi umhyggjusemi og væri hún her-
togaynja.
Hún var ánægð og vissi. varla
hvaö hún átti af sér aö gera, en
það var afskaplega gaman aö vera
innan um þessa finu herramenn.
Einn eða tveir þeirra gerðu henni
þá ánægju að snæða viö borð
hennar meö henni og döttur henn-
ar, og stundum fór einhver með þær
í feröir til nærliggjandi staða.
Winnie skemmti sér konunglega.
Svo voru það lika einn eða tveir
ungir menn, sem sóttust eftir að
komast i kunningsskap við þær.
Einn gaf þær þó fljótlega upp á
bátinn, þegar hann heyrði, að frú
Marble ætti litiö af demantsskart-
gripum, og hefði í rauninni engan
áhuga á skartgripum, en hinir
héldu áfram að umgangast þær.
Þeir dönsuðu við Winnie á
kvöldin og fóru aö gamni sinu meö
hana í leikhúsið á staönum. Þeim
gramdist það næstum, þegar frú
Marble gekk aö því sem sjálfsögð-
um hlut, aö hún værj í för með
þeim. Henni datt ekki annaö i hug
en hún væri velkomin. Hún gat alls
ekki ímyndaö sér, aö nokkur vildi
fremur vera aleinn með .döttur
hennar heldur en hafa hana líka
með.
En mennirnir ungir og gamlir
komust að þvi, að það var auðveld
aðferð til að fá aö vera einn í fé-
lagsskap Winníar. Leiðin var sú
aö koma frú Marble þægilega fyrir
viö hljómsveitarpallinn og fara
siðan með Winnie í gönguferð.
Frú Marble var harðánægð, þeg-
ar hún fann hversu mikið menn-
irnir hugsuðu um, að hún hefði allt
við höndina, sem hún þurftj og
það færi vel um hana. Þetta var
skemmtileg tilbreyting frá sautján
ára hjúskaparlifi með William Mar-
ble. Og þaö var furðulegt, hversu
oft Winnie svaraði, þegar móðir
hennar spuröi: „Hvaö ættum við
að gera i kvö1d?“ meö svarinu:
„Ó, við skulum koma og hlusta
á hljómsveitina, mamnm-“
En mitt i öllum þessum skemmt-
unum leið John ekki sem bezt. Þaö
var enginn staður í Grand Pavilion
Hotel, þar sem hann gæti setiö
i næði og lesiö, og það var of
mannmargt á ströndinni til að það
væri hægt þar. Hann hafði raunar
alltaf mótorhjölið, en hann langaði
ekki alltaf til að vera á þvi.
Áhugi á mótorhjölum, jafnvel
mótorhjólum af beztu tegand,
dvínar litið eitt, eftir að hafa ékki
um annað hugsað í þrjár vikur.
Og það komu þeir tímar, þegar
John hreint og beint hundleiddist. ■
Hanh var búinn að fá leiö á bótel-
fæði, hötelkunningjum og hötel-
herbergjum. Hann hætti að hafa
gaman af því, þótt hljómsveit léki
á meöan hann var að borða.
Mennirnir sem voru á höttunum
eftir Winnie voru plága i hans aug-
um og þeir litu á hann, sem plágu
og reyndu ekki að leyna þeirri
skoöun sinni. Og Winnie var á
sama málj og reyndi heldur ekki
að leyna því.
Hann gat jafnvel ekki talaö um
mötorhjöl við neinn, því að hann
rakst aldrei á neinn, sem hafði átt
slíkt tæki.
peningana
Gerið sjálf viö bilinn
FagmaSur aðstoðar.
NÝJA BILAÞJÖNUSTAN
Sími 42530.
Hreinn bill. — Fallegur biH
Þvottur, bönun, ryksugun.
NÝJA BÍLAÞJÓNUSTAN
Sími 42530.
Rafgeymaþjónusta
Rafgeymar í alla bíla.
NVJA BÍLAÞJÓNUSTAN
Simi 42530.
Varahluti. í bilinn
Piatínur. kerti, háspennu-
kefli, Ijósasamlokur, perur,
frostlögur, bremsuvökvi,
olíur o. fl. o. fl.
NÝJA BÍLAÞJÓNUSTAN
Hafnarbraut 17.
Simi 42530.
Ég er konritm í enda ganganna. 2g hef fundið litganginn, ea hann er Mannæturnar!
lokaður- Hjálpið mér að ýta.
«!-—- >- — ■■nt
4*. ^aarAzsaHiam