Vísir - 25.04.1969, Qupperneq 4
Frjósemislyfin bættu úr barnleysinu
- og fjórburarnir fæddust
Fjórar handfyllir af vandræöum Randall-fjölskyldunni brezku,
... og gleði. Þannig er ástatt hjá sem vildi eignast erfingja og beið
í löng fjögur ár. Þá leituðu þau
til læknis, og frjósemislyfin báru
skjótan árangur og ávöxt. Fjór-
burarnir eru taldir eitt skýrasta
dæmi í heiminum um áhrif þess-
ara lyfja.
150 sinnum þarf að skipta um
bleyjur, 84 sinnum um föt og 28
sinnum er skipt á rúmi í viku
hverri. Þau hjónakornin, Ken og
Ann, eru ein um allt erfiðið.
„Hendurnar verða svo sárar af
þvotti, að ég get ekki borið gift-
ingarhringinn“, segir Ann. Hún
hrósar happi, geti hún sofið í
fjórar klukkustundir á nóttu, en
yfirleitt eru þær aöeins tvær.
Svo eru það að auki öll Iætin
í kringum fjórburana. Fólk kemur
úr öllum áttum til að skoða. Þau
eru samt ósköp fegin, blessuð
hjónakornin eftir allt erfiðið.
Roland, Robert, Sonya og Karina.
Hjarta nýfædda
barnsins sprakk
Sænskum læknum tókst nýlega
að bjarga nýfæddu barni frá fjör-
tjóni, eftir að gat kom á hjarta
þess. Áður voru kunn tvö slík
tilfelli er hjartaveggur ungbama
var of þunnur og „sprakk". Bæði
þau börn létust. Nú tókst að
sauma Saman, og barnið lifir enn,
átta mánuðum eftir aðgerð þessa.
Hjarta Nínu litlu stöðvaðist al-
gjörlega i 20 minútur, en engin
skemmd hefur fundizt i heilanum,
þrátt fyrir það.
Eldhúshnífur í hjartastað.
Fyrsta kunna dæmið um, að
læknar hafa saumað saman gat á
hjarta, er frá 1896. Þýzki læknir-
inn Loúis Rehn gerði að sári, er
garðyrkjumaöur var í fylliríi
stunginn hnífi í hjartað. Rehn
braut fyrri boðorð og barg lífi
mannsins.
Elísabet keisaradrottning Aust-
urríkis var stungin til bana árið
1898. Nú er sagt, að hefðu læknar
hennar þorað að fara að fordæmi
Rehn, hefði mátt bjarga lífi
drottningarinnar.
í fjölmörgum dæmum er talið
að komast megi hjá dauða, verði
menn fyrir hnífstungu. Þá er sagt,
að eggvopnið skuli kyrrt látið í
sárinu, unz hinn særði liggur á
skurðarborði, tilbúinn til aðgerð-
ar. Þaö er ekki blóömissirinn, sem
skapar mestan háska, heldur
þrýstingurinn á hjartað. Blóðið
safnast fyrir og þrýstir á.
Læknavísindin hafa síðustu ár-
in tekið stórfelldum breytingum,
og stöðugt berast fréttir af nýjum
afrekum í hjartaaðgerðum.
mm
iö
*spa
Ungfrú heimur hætt við að lesa
ástarlífslýsingar inn á plötur
Reita Faria vann titilinn „Ung-
frú heimur" fyrir fáum árum. Ný-
lega varð yndisþokki hennar,
frægð og raddfegurð til þess, að
hún tök boöi um að lesa úr Kama
Sutra inn á hljómplötu. Bók
þessi er lýsing á tækni ástarlífs-
ins, fornt indverskt rit. Ungfrú
heimur átti að lesa ýmsar berorð-
ari lýsingamar, og skyldi tónlist
vera til áherzlu.
Þau tíðindi hafa nú orðið, að
ungfrúin lauk prófi í læknisfræði.
Með gráðuna uþp á vasann fór
hún að hugsa sinn gang. Platan
mátti heita fullgerð, og á plötu-
heftinu mátti líta Reita í ,,sari“
með naktar axlir. Með fylgdu vel
valin orð utn „iistina að elska“
og áminningar urn, að fólk kynnti
sér slíkt vfsindalega, keypti plöt-
una og hlýddi á í viðeigandi and-
rúmslofti. Þá hætti dr. Reita við
allt saman og komst á þá skoðun,
að slík framkoma væri ekki sam-
boöin stétt sinni.
Virðast menn því munu fara á
mis við þessa plötu og hún ekki
komast efst á vinsældalistann,
eins og búizt hafði verið við. Ef
til vill finnur upphafsmaður/
þessa tiltækis, herra Abdul Zamil
Mahmud, einhverja aðra fegurðar
drottningu í hlutverkið, áður en
lýkur.
Reita Faria hefur staðizt læknispróf og skipt um skoðun.
Spáin gildir fyrir laugardaginn
26. apríl.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Það litur út fyrir að þetta verði
tiltölulega rólegur laugardagur,
og ættirðu að haga þér sam-
kvæmt því og njóta góörar
hvíldar frá hversdagsstritinu.
Stutt ferðalag gæti orðið á-
nægjulegt.
Nautið, 21. apríl—21. mai.
Rólegur dagur yfirleitt, en þó
í ýmsu að snúast framan af.
Hvíldu þig vel, og eflaust get-
urðu gert ýmislegt til að undir
búa þau viðfangsefni, sem bíða
úrlausnar eftir helgina.
Tvíburarnir, 22. mai —21. júní.
Leitaðu ekki flókinna lausna á
þeim viðfangsefnum, sem þú
átt við að glíma, lausnin virðist
mun einfaldari og nærtækari en
þú heldur, en mestur vandinn
að koma auga á hana.
Krabbinn, 22. iúní—23. júlí.
Þetta gæti orðiö rófegur dagur,
en það lítur því miður út fyrir
að þú gerir þér hann erfiðari en
efni standa til fyrir eitthvert of
urkapp eða þrákelkni, sem bitn
ar þó mest á þér sjálfum.
Ljónið, 24. júlí—23. ágúst.
Rólegur dagur, sem þú ættir að
nota fyrst og fremst til hvíldar,
en einnig til aö athuga hugsan-
lega endurskipulagningu á störf
um þínum, eða vissum þáttum
þeirra, sem gera mætti einfald
ari.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.
Notadrjúgur dagur, ef þú geng-
ur hiklaust en þó rólega til
verks, og lætur aukaatriði ekki
glepja fyrir þér. Snúðu þér beint
og milliliðalaust til þeirra, sem • ;
þú átt eitthvert erindi við. • |
Vogin, 24. sept. —23. okt. •;
Rólegur og skemmtilegur dagur, • ,
að því er virðist, og ekki illa 2
fallinn til styttri ferðalaga eða • 1
þátttöku í mannfagnaði, ef svo • ;
ber undir. Taktu öllum fullyrð- J .
ingum með nokkurri varúð. • ,
Drekinn, 24. okt.—22. nóv. 2
Ef þú ráðgerðir ferðalag, ætt- • 1
irðu að leggja af staö heldur • /
fyrr en seinna. Ef þú tekur þátt 2 ,
í einhverjum mannfagnaði, ætt- •
irðu ekki að taka um of mark s 1
á þvi, sem blasir við allra aug- • /
um. •
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. 2
Rólegur dagur. Eflaust færðu •
tíma til að athuga ýmislegt í • 1
sambandi við störf þín og ætt- •'
irðu ekki að láta það undir höf • 1
uð leggjast. Taktu mark á hug 2 1
boði þinu. •1
Steingeitin, 22. des.—20. jan. 2'
Láttu þér ekki gremjast, þótt •'
einhver aðili sem í rauninni vill •
þér mjög vel, geri sig sekan um 2
nokkurn klaufaskap i því sam- •'
bandi. Skemmtu þér í hófi í a1
kvöld, ef svo ber undir. 2'
Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr. • ’,
Þetta virðist munu vera nokk- •
ur annríkisdagur, og auk þess 2
virðast sumir, sem þú umgengst • ,
náið, vera helzt til viðkvæmir 2
fyrir allri gagnrýni og ekki sem •
fúsastir til samstarfn. •
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. *
Skemmtilegur dagur að þvi er •
virðist. Samt sem áður getur 2
kvöldinu brugðið nokkuð til •
beggja vona. Taktu ekki þátt í •
neinu, sem ekki er þér aö skapi, 2
••••••••••••••••••••••••
i