Vísir - 30.04.1969, Page 4
.. 15 Þ ús. Þjóðverjar bíða
enn dóms fyrir strí
æpi
Dr. Barnard
krefst launa-
jafnréttis
hvítra og
svartra i'
Christian Barnard hefur ráðizt
á launamisréttið í landi sínu,
Suður-Afríku. Ríkisstjórnin og yf
irstjórn heilbrigðismála urðu fyrir
skeytum hins heimsfræga hjarta
skurðlæknis. Margir hafa ekki
sloppið of vel, eftir slíkt athæfi
þar í landi, og sumir segja, aö
prófessorinn hætti beinlínis lífi
sínu.
Bamard lét frá sér fara frétta
tilkynningu til blaða, innlendra
og erlendra. Hann hvetur þar til
algers jafnréttis í kynþáttamál-
um, og segir fyrsta skrefið eiga
að vera launajafnréttí lækna,
hvítra og svartra.
„Jafnframt bið ég alla lækna
landsins að gera ekki verkfall til
að knýja fram jafnrétti. Stundiö
vinnu ykkar sem fyrr og athug
ið, hvort skynsemin sigrar ekki
og ríkisstjómin jafnar launin",
segir prófessorinn.
Nær 150 þeldökkir Leknar í
Durban og Pietmaritzburg hafa
lagt niðiír vinnu og krafizt sömu
launá og- hvitir hafa. Viðræður
hafa farið út um þúfur.
„Það eru mikil mistök, að rík-
isstjómin skuli greiða þeldökkum
læknum með sömu menntun
lægri laun, en hvítir hafa. Ég
skora á stjómina að breyta
þessu.“
Rfkisstjórnin hefúr ekkert að-
hafzt enn. Dr. Barnard gerði sið-
asta hjartaflutning sinn á þeldökk
um sjúklingi.
FVrrum fangar í fangabúðum
nasista halda því fram, að um
50 nasistaböðlar úr Neugamme-
búðunum leiki láusum hala og
hittist reglulega í Hamborg í
viku hverri. Þetta er þó aðeins
lítið brot allra þeirra Þjóðverja,
sem annað hvort er lý'st eftir eða^
málsókn hafin gegn.
Næstu árin eiga að vera rétt-
arhöld í málum 15.000 Þjóöverja,
sem sakaöir eru um striðsglæpi.
Mörg ár munu líða, áður en rétt
arhöldunum verður áð fullu lok-
ið. Yfirvöld í Vestur-Þýzkalandi
hafa byrjaö mörg mál nú, til
þess að þau fyrnist ekki. í mörg-
um þýzkum borgum hefur fjöldi
saksóknara tekið til starfa, þann-
ig eru 26 í Hamborg einni, sem
helga sig stríösglæpamálum.
110.000 dæmdir.
Meira en 110 þúsund hafa hlot
ið dóm síðan styrjöldinnj lauk.
Fyrst voru það Bandaríkjamenn,
Bretar, Frakkar, Rússar og aðrir
„bandamenn“, sem gengust fyrir
réttarhöldunum. Margir. hlutu
dóm og voru teknir af lífi.
Pólverjar dæmdu 16.000 Þjóð-
verja fyrir stríðsglæpi, Rússar
13.000, Bandaríkjamenn 1641,
Bretar 1085, Frakkar 2107 og
Tékkar 16.000. Danir dæmdu tíu.
Þjóðverjar gátu ekki. sjálfir
byrjað málsókn i slikum málum
fyrr en árið 1951. Síðan þá hafa
63.000 .yetiö leiddir.^fetrife-fétt
og 7.000 hlotið fangélsfsdðma, all
margir lífstíðarfangelsi. Dáuða sé drepið á hina fimm helztu, sem Hans Eisele, læknir frá Buchen-
refsing er ekki í Vestur-Þýzka-
landi.
Leitað að fimm.
Ekki er unnt að ljúka svo
spjalli um stríðsglæpi, aö ekki
leitað er. Þeir ■ eru:
Martin Bormann, hinn alræmdi,
Heinrich Múller, Gestapoforingi,
Josef Mengele, læknir frá Ausch
witz-fangabúðunum, Walter
Rauff, SS-foringi (býr í Chile) og
walde-búðunum frægu (býr í
Egyptalandi). „Læknarnir tveir
eru sagðir hafa þjónað „Foringjan
um“ af hollustu og miskunnar-
leysi.
S
Bandaríkjamenn hópast
til að sjá „Eg
er forvitin^
„Ég er forvitin" — gul og blá
— var sýnd hér i fyrra við mikla
aðsókn og ekki mótmælalaust af
öllum. Það rná teljastnokkur„bylt
ing“ í Bandaríkjunum, að svo
„opinská“ kvikmynd skuli vera
sýnd þar í landi. Enda hópast
fólk til að sjá þessa mynd.
Kvikmyndin er. meðal annars
sýnd í húsi við 57. götu í New
York, fáeinum skrefum frá Carn
egie Hall. Fyrstu vikuna komu
inn 7 milljónir króna. Miðinn kost
ar þrjá dali, nærri 27,Q , krónur,
sem hér þætti ekkert" smáræði.
i i IiL-M—
l'ramleiðendur:
Vefarinn !if.
llltíma hf.
Alafoss
Teppi hf.
Hagkvcem og góð þjðiiusta
Knnfremur nælonteppi og
önnur erlend teppi í
úrvali
Christian Barnard, hjartalæknir-
inn, reitir til reiði ‘forráðamenn
Suður-Afríku.
Suðurlanclshraut 10
Shni 83570
1
/
10
ÞAÐ ER LEIÐIN
Vantl y8ur gólfteppi þá er „AXMINSTER“ svarið. Til 22. apríl bjóðum við yður að eign
ast teppi á fbúðina með aðeins 1/10 útborgun og kr. 1.500.00 mánaðargreiðslum
AXMINSTER
ANNAÐ EKKl
Þetta gerist ekkj aðeins í New
York.
í höfuðborginni Washington
hófust sýningar í tveimur húsum,
er „fínna fólkið" sækir að stað
aldri. Eigandinn segir, að aðsókn
in sé meiri en um getur í sögunni.
Annar áhugamaður fullyrðir, að
hann „gæti grætt 200 milljónir",
fengi hann að sýna hana í Texas.
Kvikmyndir og leiksýningar ger
ast æ „opinskárri" í Bandaríkjun-
um. Fyrir einum fimm árum hefði
veriö talið ógerlegt, að sýna slíka
mynd, nema þá „í heimahúsum".
Grensásvegl 8
Sími 30676
• ••••••• • • • ••••••■■••••.••■•••••••••••••••
*
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
1. maí.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Það getur tekið þig nokkra um
hugsun að henda reiður á hlut-
unum í dag. Gættu þess áð taka
ekki neinar mikilvægar ákvarð-
anir fyrr en þú finnur að þú
hefur áttað þig á aðstæðum.
Nautið, 21. apríl—21. maí.
Leggöu þig allan fram við hvað
eina, sem þú tekur þér fyrir
hendur. Eins við skyldustörfin.
Það litur út fyrir að fylgzt sé
með afköstum þínum, einhverra
hluta vegna.
Tvíburamir, 22. maí—21. júní.
Þetta verður að mörgu leyti góð
ur dagur, en þó virðist eitthvað
bogið viö fjölskyldumálin, sem
þó mun auðvelt að kippa í lag,
ef taláð er saman í fullri hrein-
skilni.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí.
Góöur dagur, ef þú kappkostar
að gera þér sem ljósasta grein
fyrir öllum aðstæðum og vega
þær og meta, og taka svo þínar
ákvarðanir samkvæmt því.
Faröu gætilega í peningamálum.
Ljónið, £4. júlí—23. ágúst.
Taktu þaö ekki nærri þér, þótt
einhver kunningi þinn rjúki upp
á nef sér — það er sennilega
fyrir misskilning, sem leiðréttist
von bráðara, og vináttan verður
nánari en áður.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.
Það er ekki ólíklegt að eitthvað
komi þér þægilega á óvart í
dag. en sennilega ekki í sam-
bandi við peningamálin. Öllu
heldur eitthvað, sem verður til
að treysta vináttubönditi.
Vogin, 24. sept. —23. okt.
Góður dagur þegar upp er stað-
iö, en veltur þó á ýmsu. Vertu
fljótur að átta þig á hlutunum,
en hugsaðu samt vel allar á-
kvarðanir. Láttu hugboð ráða,
ef svo ber undir.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.
Góður dagur, og mun gagn-
stæða kynið eiga ánægjulegan
þátt í því. Maður, þér nákom-
inn, kemur þér ánægjulega á ó-
vart. Kvöldið getur orðið einkar
skemmtilegt, þegar á líður.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.
Farðu eftir leiðbeiningum og
ráðleggingum þinna nánustu,
jafnvel þótt þér falli það ekki í
bili. Það er eins og dómgreind
þín sé ekki sem skörpust eins
og á stendur.
Steingeitin, 22. des.-20. jan.
Gættyi þín á gagnstæða kyninu
i dag( ef þú ert óbundin — ann
ars er og líka hætta á einhverj
um örðugleikum í sambúðinni,
en það lagast innan skamms.
Hitt getur orðið langærra.
Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr.
Þú átt góðan leik á borði, og
ættir að notfæra þér hann til
hlítar. Gagnstæða kynið kemur
nokkuð við sögu í dag, ef til vill
ekki á jákvæöan hátt frá þínu
sjónarmiði.
Fiskarnir, 20. febr.--2Ö. marz.
Góður dagur, ekki útilokað að
þú verðir fyrir einhverju happi í
peningamálum, sem komið get-
ur sér mjög vel fyrir þig ems og
á stendur. Talaðu sem minnst
um fyrirætlanir þivsar í bili.
*