Vísir - 30.04.1969, Síða 8
ts
V í S I n. . MiðviKudagur 30. apríl 1969.
VÍSIR
Otgefandi: ReyKjaprent h.t. \\
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjó’.fsson //
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson \\
Aöstoðarritstjór): Axel Thorsteinson II
Fréttastjóri; Jón Birgir Pétursson \\
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson (I
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 )i
Afgreiðsla AOaístræti 8. Sími 11660 (í
Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) )
Áskriftargjald kr. 145.00 * mánuöi innanlands \
I lausasöiu kr. 10.00 eintakiö /
prent3nvöja Visis — Edda h.f____________________________ V
1. maí og lífskjörin
JJátíðisdagur verkamanna er á morgun. Raunar er \
1. maí ekki lengur aðeins dagur verkamanna, heldur \
launþega almennt. Á þessum degi eru lífskjörin í (
sviðsljósinu, því að höfuðviðfangsefni samtaka laun- /i
þega er að afla launþegum kjarabóta. í þetta sinn ein- /
kennir lífskjarabaráttan hátíðisdaginn í meira mæli )
en öll undanfarin ár, þvi að nú standa einmitt yfir \
einhverjar hinar lengstu og erfiðustu samningavið- \
ræður um langt árabil.
1. maí og samningaviðræðurnar standa í skugga )
h'fskjaraskerðingar síðustu missera. Á tveimur árum \
hafa orðið mikil umskipti til hins verra. Þá ríkti al- (
menn velsæld í landinu en nú reynist mörgum erfitt (
að láta endana ná saman. Höfuðáhugamál launþega /
á þessum hátíðisdegi hlýtur því að vera að finna leiðir )
til að snúa þessari öfugþróun við. )
Flestir telja kauphækkanir leiðina til að bæta lífs- \
kjörin. En hvað segir reynslan um það? Hafa mestu (
kauphækkanirnar reynzt haldbeztar á undanförtiunr (
árum? Nei, alls ekki. í gamla daga var það svo, en /
það var áður en jafnvægi náðist milli hlutar laun- )
þega og hlutar fyrirtækja af verðmætaframleiðslu at- \
vinnuveganna. Síðan það jafnvægi náðist fyrir nokkr- \
um áratugum, hafa kauphækkanir yfirleitt ekki leitt (
til kjarabóta, heldur til verðbólgu, sem étur skjótt (
upp allar kauphækkanir. I
Menn verða að líta á þetta skilningsaugum nútíma- ))
mannsins. Staðreyndin er sú, að það er frekar veikt \i
samband milli kauphækkana og kjarabóta. En hvað \
er þá hægt að gera til þess að bæta kjörin? Svarið er (
raunar einfalt og augljóst: Með því að auka framleiðni /
atvinnuveganna, það er að segja með því að auka þá /
verðmætasköpun, sem liggur að baki hvers launþega. I
Þessari aukningu geta launþegar og fyrirtæki síðan /
skipt með sér í mesta bróðerni. Þá koma til sögunnar /
kauphækkanir, sem leiða til kjarabóta. Þá er byrjað )
á réttum enda, á verðmætasköpuninni sjálfri. Viður- \
kenna ekki allir þetta með sjálfum sér? \
Við lifum á blómaskeiði þekkingar og vísinda. Sam- ('
skipti vinnuveitenda og launþega eiga að taka mið /
af því. Gömlu og úreltu slagorðunum á að varpa fyrir /
borð. Þau hafa of lengi spillt fyrir því, að hægt væri )
að koma á skynsamlegu samstarfi þessara aðila um \
raunverulegar og varanlegar lífskjarabætur. Hið skyn- \
samlega í málinu er, að fulltrúar launþega og vinnu- (
veitenda í hverri atvinnugrein setjist niður í róleg- //
heitum og finni leiðir til að auka framleiðnina í sinni /
grein. Árangrinum á síðan að skipta niður milli laun- )
þega og fyrirtækja í fyrirfram ákveðnu hlutfalli. \
Ef friður og samstarf kemur í stað ófriðar og sundr- \
ungar, er enginn efi á því, að þróttur atvinnulífsins (
mun stóraukast og lífskjörin batna eftir því. Það er /
ekkí hægt að hugsa sér betri ósk launþegum til handa /
á þessum hátíðisdegi, en að þessaf nýju hugmyndir )
nái fram að ganga. )
„Dawn Patrol" á Miðiarðarhafi
.
Um 120 herskip eru nú á Miðjarðarhafi — vestrænna þjóða og Rússa, og halíast ekki á, því
að þau munu álíka mörg eða 60 á hvora hlið. Norður-Atlantshafsbandalagið hefur þarna 60
herskip, brezk, bandarísk, vestur-þýzk, ítölsk, tyrknesk og grísk — og 300 flugvélar. Þau
eru þarna að æfingum, sem nefnast „Dawn Patrol“. Sovétríkin hafa haft þama um 40 skip,
en um það bil og flotaæfingarnar hófust var þeim fjölgað, og er nú styrkleiklnn hnffjafn.
Sigia hin sovézku í kjölfar hinna jafnan og njósna af kappi.
Áhyggjur vegna stjórnar-
ppunnar í LÍ6AN0N
• Eins og kunnugt er kom
til alvarlegra átaka fyrir
skemmstu í Libanon, Arabalandi
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Þau urðu milli Palestinu-
Araba og stuðningsmanna þeirra
annars vegar og annarra Araba
hins vegar, flestra kristinna,
sem eru mótfallnir því, að E1
Fatah fái þjálfunar- og bæki-
stöðvar í Libanon undir skæru-
hernað í ísrael. Kom til svo
alvarlegra átaka, að stjórn
Raschids Karamis, sem er sam-
steypustjóm, neyddist til þess
að biðjast lausnar, en þegar
hann myndaði st-'órn nokkru þar
áður var búin vera stjórnar-
kreppa og vaxanui erfiöleikar á
samstarfi i landinu.
Karami er reyndasti stjóm-
málamaður Libanons og oft
hefir hann verið til kvaddur,
þegar aðrir hafa' gengið frá.
Varð hann nú að fyrirskipa rót-
tækar aðgerðir, m. a. útgöngu-
bann, eftir að til blóðugra átaka
kom, og 17 menn höfðu falliö,
og hátt á annað hundrað særzt,
og varð svo að biðjast lausnar,
og er nú að reyna að mynda
stjórn á ný er þetta er skrifaö.
Dr. Richard Beck hefir hlotið
þakkarskjal frá 150 ára afmælis
nefnd Illinoisríkis fyrir ritgerö
sína um íslendinga þar í ríkinu,
er samin var í tilefni af um-
ræddu merkisafmæli þess 1968.
Var grein þessi rituð að sérstakri
beiöni dr. Árna heitins Helga-
sonar, aðalræðismanns íslands i
Chicago, og í náinni samvinnu
við hann.
í meðfylgjandi bréfi frá hr.
Stanlev Balzekas, Jr., formanni
Sesouicentennial Ethnic Comm-
ittee, er þess getið, að frumrit
Karami segist sjálfur hafa
samúð með skæruliðum Araba,
en þó mun hann hikandi við að
veita þeim sérstök hlunnindi,
þar sem helmingur þjóðarinnar
er kristinn, landið nýtur góðs
af hlutleysinu, og má þar til
nefna, að Libanon er vinsælt
ferðamannaland, en fljótt myndi
taka fyrir feröamannastraum-
inn, ef ástandiö yrði fljótlega
eins og í Jórdaníu, þar sem
margar ísraelskar flugvélax og
herflokkar hafa farið tíðum til
hefniárása, vegna árása skæru-
liða. Og minnugir munu Liban-
onmenn þess, er Israelskar her-
þotur gerðu árás á alþjóöaflug-
völlinn í Beirut, en hún var
farin í hefndarskyni fyrir árás
á Israelska flugvél á erlendum
flugvelli.
í fréttum frá Washington
segir, að bandarískir stjóm-
málamenn hafi vaxandi áhyggj-
ur af horfunum I Libanon, en
áður ólu menn nokkrar áhyggj-
ur út af óstyrkri stöðu ýmissa
arabískra ríkisstjóma, og er
þetta einnig sagt valda sovét-
leiðtogum áhyggjum, en ekkert
bendir til að þessj þróun leiði
allra ritgerðanna um hin ýmsu
þjóöarbrot innan ríkisins, og
bréf þar að lútandi, verði geymd
í skjalasafni „The Balzekas Mu-
seum of Lithuanian Culture” í
Chicago, en afrit af fyrmefnd-
um ritgerðum og bréfum verði
varöveitt í bókasafni Sögufélags
ríkisins (Illinois State Historical
Library) í Springfield, Illinois og
í Sögufélagi Chicagoborgar, svo
að fræðimenn eigi með þeim
hætti aðgang að þessum sögu-
legu gögnum. (Lögb.-Heimskr.)
til, að unnt verði að hraða sam-
komulagsumleitunum fjórveld-
anna á vettvangi Sameinuða
þjóöanna um leiðir tfl sátta'
mi'lli ísraels og Araba-
ríkja. Og ekki batna horfumar
við það, að de Gaulle er farinn
af forsetastóli, sá vestræni
leiðtogi sem Arabaþjóðimar
treystu bezt og litu upp tiL
Ekki er unnt að segja neitt
um horfumar, eins og er, á því
hvort Karami tekst að leysa
vandann.
Fjórveldin öll era nú sögð
á eitt sátt um það, að nauðsyn-
legt sé að aðilar hætti átökum,
meöan reynt sé að semja um
vopnahlé, en horfur í þessu efni
kunna aö skýrast þá og þegar.
Karami.
Dr. Richurd Beck ofhent þnkkarskjnl