Vísir - 30.04.1969, Blaðsíða 16
VISIR
iviióvIkudagur 30. april 19b'9.
Munið^ ^Múlubuffi
nýjo xC h Sími
grillið 37737
BOLHOLTI 6 SlMI 82143
ÍNNRÉTTINGAR
SÍDUMÚLA 14 - SIMI 35646
Gerir alla ánægða
IVIINKURINN — sumir kalla hann skaðræðisskepnu, en aðrir
sjá gull í þessu litla dýri. Nú er það Alþingis að skera úr um
það, hvor hópurinn fær sitt fram.
SAMVINNA UM
DAGSKRÁNA 1. MAÍ
Aðalkröfurnar um vísitölubætur og fulla atvinnu
Alþjóðlegur hátíðardagur
verkalýðsins, 1. maí, er á
•riorgun og verður að vanda efnt
il útihátíðarhalda hér í Reykja-
■ ík o?> víðar um land. ÖIl verka-
'vðsfélögin í Reykjavík munu
-tanda að dagskrá hátíðarhald-
anna, en samvinna hefur nú tek-
'zt um dagskrána í allmörg ár.
Dagskráin hefst á því, að safn-
azt verður saman við Iðnó milli
kl. 1.30 og kl. 2 og þá lagt upp í
kröfugöngu. Gengið verður um
Vonarstræti, Suðurgötu, Aðal
stræti, Hafnarstræti, Hverfisgötu,
Frakkastlg, Laugaveg, Bankastræti
og niður á Lækjartorg.
Á Lækjartorgi verður haldinn úti
fundur og flytja ávörp þeir Guð-
mundur J. Guðmundsson, varafor-
maður Dagsbrúnar og Guðjón Sig-
urðsson, formaður Iðju. Fundar-
stjóri verður Óskar Hallgrímsson,
formaöur fulltrúaráös verkalýðsfé-
laganna.
Aðalkrafa dagsins verður um
fulla vísitölubætur og næga at-
vinnu. Sem dæmi um kröfuspjöld-
in má nefna: „Dagvinnutekjur til
menningarlífs. Gegn verðbólgu og
dýrtíð. Aldrei framar atvinnuleysi.
Við mótmælum kynþáttaofsókn-
um.“
Minkurinn vinnur
sífellt á í þinginu
□ Minkurinn vinnur á.
Efri deild Aiþingis sam-
þykkti frumvarp um loð-
dýrarækt í gær með 14
atkvæðum gegn 4. And-
ófsmenn höfðu áður
reynt að fá samþykkta
tillögu um að vísa mál-
inu til ríkisstjómarinnar
en hún var felld með 13
gegn 6. Málið fer nú til
neðri deildar, þar sem ó-
vissa ríkir um undirtekt-
ir.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að minkabú veröi leyfð að nýju
á íslandi, en strangar reglur
verði settar um útbúnað minka-
búranna og leyfi til loðdýra-
ræktar,
Landbúnaðarráðuneytið skuli
annast leyfaveitingar, I umsókn
skuli gerð grein fyrir gerð búr-
anna, dýrunum fjármálum og
öllum rekstri. Kunnáttumaður
með minnst eins árs reynslu
skuli veita þeim forstöðu. Ráðu-
neytið leiti umsagnar veiðistjóra.
í frumvarpinu segir, að loð-
dýrabúrin skuli hafa þrefalda
vöm, vírnetsbúr með hreiður-
kassa, dýrheldan skála á steypt-
um ramma og dýrhelda ytri
girðingu.
Flutningsmenn eru Jón Þor-
steinsson (A), Auður Auöuns
(S), Sveinn Guðmundsson (S),
Karl Guðjónsson (Ab) og Axel
Jónsson (S).
Konur gefa
100 þúsund
til fæðingar-
deildar
• Læknar Landspítalans fengu
óvænta og ánægjulega heimsókn
á föstudaginn þegar stjómar-
konur kvenfélags Hvítabandsins
komu í heimsókn með hundrað
þúsund krónur upp á vasann.
Þetta var gjöf frá félaginu og
skal henni varið til byggingar
fæðinga- og kvensjúkdómadeild-
ar Landspítalans.
Konur láta ekki sitia við orðin
tóm nú frekar en endranær, þegar
heilbrigðismálin eru annars vegar,
en ljóst er að mikill áhugi ríkir
nú meðal kvenna að koma þessum
málum í höfn.
Það voru frú Jóna Erlendsdótt-
ir formaður félagsins, frú Oddríður
Jóhannsdóttir, gjaldkeri og frú
Amdís Þórðardóttir, sem afhentu
gjöfina.
Slökkvilið þrívegis gabbað
að Menntaskólanum í apríl
— en aldrei hefur neitt slikt komið fyrir i
Miðbæjarbarnaskólanum, þar sem einnig er
sjálfvirkt viðvörunarkerfi
SÁ, sem gerir sér það að
leik að gabba slökkvi-
liðið, getiir lent í þeirri
óþægilegu aðstöðí. að
verða þrjátíu þúsundum
króna fátækari, ef til
hans næst.
Slökkviliðið var kallað út í
þriðja sinn í þessum mánuði I
gær að gamla Menntaskólanum
í Reykjavík vegna gabbs. Þar
er sjálfvirkt viðvörunarkerfi
sem er tengt upp í slökkvistöð
og ber slökkviliðinu að fara á
staðinn strax þegar viðvörun
berst. Við þetta sjálfvirka kerfi
eru einnig tengdir brunaboðar,
sem eru innan veggja skólans
og hefur einhver tekið í einn
hemilinn.
Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóri, sagði í viðtali við Vísi í
morgun að sams konar sjálf-
virkt viðvörunarkerfi væri
einnig í Miðbæjarskólanum. —
Þar hefur aldrei neitt komið
fyrir og litlu börnín virða þessi
tæki eins og vera ber. Þess
vegnn er þaö einkennilegt, að
þau böm sem meira vit eiga
að hafa hagi sér svona. Við fór-
um með nokkurt lið í gær út
af svona vitleysu, þó við værum
nokkuð öruggir aö um gabb
væri að ræða.
Þá sagði slökkviliðsstjóri aö
útkall slökkviliðsins gæti kost-
að allt upp í 30 þús. krónur, þótt
ekki hefði verið um svo mikla
upphæð að ræða í gær. — Ef
menn verða uppvísir að gabbi
verða þeir ábyrgir fyrir kostn-
aðinum við útkallið og um leið
er málið orðið lögreglumál.
Fyrsta
verk Sagan
sýnt í
Kópavogi
• Leiklistarlíf hefur staðið með
blóma venju fremur í Kópa-
vogi í vetur og nú í vor hefur
Leikfélagið þar verið með „Höll í
Svíþjóö“ eftir Francoise Sagan á
fjölunum. — Leikendur eru flestir
ungir og hér sjáum við tvö af aðal-
leikendunum, Sigrúnu Bjömsdóttur
og Sigurð Karlsson, en þau leika
eins konar gestaleik í Kópavogi, en
Sigurður hefur sem kunnugt er leik-
ið hjá Leikfélagi Reykjavíkur og
Grímu, og Sigrún er útskrifuð úr
skóla Þjóðleikhússins og kom með-
al annars fram með Leikflokki Litla
sviðsins I Lindarbæ.
í