Vísir - 05.05.1969, Side 2
Hvítir vasaklútar oft á lofti
— Arsenal vann oð v/su 3:1, — 'islenzka //ð/ð
var sannfærandi um góðo og bjarta framtið
■ Það var sannkallaður sigur, sem íslenzka lands-
liðið hlaut að launum fyrir erfiði sitt á Laugardals-
velli í gærdag. Þar horfðu 11200 manns á liðið leika
ágætan leik gegn því heimsfræga atvinnuliði Ars-
enal í steikjandi sólskini og ágætis veðri. Arsenal
vann, 3:1, — en frammistaðan gegn þessu ágæta
liði hlýtur að gefa góð fyrirheit fyrir sumarið.
Það er óhætt að segja að sjald
an hafa áhorfendur yfirgefiö
völlinn elns ánægðir og einmitt
nú. Sumarið er að byrja fyrir
okkar menn, en keppnistfmabil-
ið að enda fyrir Arsenal, — að-
stöðumunur því erlenda liðinu
í hag.
Fyrri hálfleikurinn veröur ef
laust mörgum minnisstæður,
ekki sfzt fyrir góða frammi-
stöðu okkar manna. Það var
hátíðarstemning í loftinu, lúðra
sveit lék, þar var sólskin og hiti
og þegar liðin hlupu loks inn
á völlinn, var veifað hvítum
vasaklútum. Eftir leikinn sagði
Þórólfur Beck: „Maður gat loks
fundið að þetta var heimavöll-
ur okkar, við fundum hvemig
áhorfendur hylltu okkur meðan
staðan var 1:1“.
En síðan skeði ekkert frekara
þ.e.a.s. af hálfu áhorfenda. ís-
lenzkir áhorfendur virðast ekki
síður þurfa æfingu en landsliðs
mennirnir, þar er nefnilega stað-
reynd aö þeir eru gulls ígildi
ef þeir standa sig, annars harla
lítils virði.
En vfkjum að leiknum. Á 3.
mínútu setti áhorfendur hljóða,
Graham átti skot að marki, en
Sigurður Dagsson varði, en
missti boltarm frá sér. Það var
Gould, sem kom og fylgdi eftir
og skoraði 1:0.
Ekki liðu nema 12 mfn. þang-
að til jafnað var. Það var eftir
að Þórólfur gaf góða sendingu
inn að vítateig, að Hermann not-
færði sér til hins ítrasta, skaut
og skoraði eftir að leika á vam-
armann á vítateig. Skotið var
stórglæsilegt, lenti efst upp með
þverslá og inn.
Við þetta mark vora sannar-
lega margir hvítir vasaklútar á
lofti og fagnað betur en nokkru
sinni, enda markið stórkostlega
fallegt.
Ingvar Elísson var ekki fjarri
þvf að færa fslenzka liðinu for-
ystu á 26. mín., en það tókst
þó ekki. Arsenal átti hörkuskot
yfir markið rétt á eftir, var Arm
strong þar að verki, en rétt á
eftir var Robertsson einnig að
verki með skot yfir markið. Þá
varði Sigurður Dagsson vel. —
Þegar aðeins voru eftir 4 mín.
af hálfleik varði Sigurður stór-
kostlega, kom úr öndveröu
homi og varði þegar Radford
virtist búinn að skora með
skalla, en Sigurður Iyfti yfir,
og gerði lítið úr þessari at-
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.
lögu Radfords, sem og áður við
tilraunir ýmissa heimsstjama.
Á 42. mfn virtist einna helzt
liggja við sjálfsmarki hjá Arsen-
al, svo varð þó ekki, boltinn
hrökk í horn. Hins vegar skoraði
Robertsson á síðustu mínútu
hálfleiksins 2:1. Boltinn hrökk
til hans í galopnu færí og hann
notfærði sér það eins og vera
ber og skoraði.
1 seinni hálfleik kom Páll
Pálmason f mark íslenzka
liðsins og Ásgeir Elíass., sem út
herji, en Arsenal gerði og breyt
ingar.
Það lið sem Arsenal sendi
virtist yngra og hreyfanlegra á
köflum og náði vissulega betri
árangri að mörgu leyti en í
fyrri hálfleik. Á 10. mín. skor-
aði Arsenal lokamarkið og var
þar glæsilegur skalli Radfords
eftir að Robertsson skállaði fyr-
ir. Lágu þeir Ellert og Radford
eftir þennan skalla og vissu um
stund hvorki í þennan heim né
annan. Heilsaðist þeim þó brátt
vel.
Áður virtist þö íslenzka liðið
eiga vítaspyrnu. en fékk óbeina
spymu innan vítateigs. Her-
mann átti þá gott skot, en rétt
framhjá.
Smám saman tókst Arsenal að
ná yfirhöndinni og virtust lík-
legir til að skora fleiri mörk. Oft
stóð markvörðurinn sig vel, en
vömin var á verði fyrir öllum
W-+ 3. síða.
Ingvar Elísson var sannarlega nærri því að skora hér fram hjá
Vilson, markverði.
(Wf
GREAS EATER
Fitueyðir
.Fitueyðir hreírrsar véiar,
vlnnuföt bflskúrsgölf o- fl.,
betur en flest önnur hreinslefnl-
Leiðarvísir fylgir.
,r ANDRI H.F-, HAFNARSTRÆTl 19, SÍMj, 23955