Vísir - 05.05.1969, Blaðsíða 9
V í S I R . Mánudagur 5. maí 1969.
9
TÍSB m
— Teljið þér, að forustumenn
stjórnmálaflokka, stofnana,
fyrirtækja og hagsmunasam-
taka hafi brugðizt vonum yð-
ar þegar á heildina er litið?
Alexander Jóhannesson, af-
greiðslumaður: Ég hef aldrei bú-
izt við neinu betra af þeim.
Öm Steinsen, skrifstofumaður:
í sambandi við kjaramál er svar
mitt já. Einnig má reyndar svara
játandi á öörum sviðum.
Haldór Einarsson, heildsali:
Ég mundi segja, að þeir hafi að
vissu leyti brugöizt. Ég tel að
forustumennirnir verði að horf-
ast í augu viö þá staðreynd, að
iðnaöur sem er undirstaða vel-
farnaöar í hverju ríki, er næsta
óþekkjanlegt fyrirbrigði hér.
Sæmundur Pálsson, bygginga-
meistari: Nei, það vil ég ekki
meina. Við landsmenn höfum
brugðizt sjálfum okkur. Við höf-
um lifað um efni fram. Við verö-
um sjálfir að taka okkur á. Það
hefði engin stjórn ráðið við fjár-
munasóun landsmanna.
Þorvaldur Guðmundss.: Spurn-
ingin er allt of yfirgripsmikil.
Ef maður tekur einn samnefn-
ara þá eru þeir aJlir í sekt, en
auðvitað eru til heiðarlegar und-
antekningar eins og annars stað-
ar.
V'isir ræbir við fiskifræðinga um veiðihorfur „sildarflotans" i sumar
Síldveiðarnar hefjast í júníbyrjun
— segir Jakob Jakobsson
Verða engar síldveiðar í sumar? spyrja menn. Flestum
þykir mesta rómantíkin farin af síldveiðunum. Þær eru
ekki lengur jafneftirsóknarverðar og þær voru fyrrum. Nú er
ekki lengur beðið löndunar með drekkhlaðin skip og slangrað
um sólheita síldarbæi, heldur velzt um Noröur-íshafið sólar-
hringum saman án þess svo mikið sem að eygja land.
«*■ Mikill vafi leikur á því, hvað verður um okkar glæsilegu
„síldveiðiskip“ í sumar. Jakob Jakobsson, fiskifræðingur,
er hins vegar ekki í vafa um, hvar þeir skuli bera niður, en
hér fer á eftir spjall við hann og Hjálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðing, um veiðihorfur í sumar, síld og loðnu.
■yiö verðum að taka tillit ti)
þess, segir Jakob, að veiöi
hefur brugöizt meira og minna
þetta árið. Síldveiði okkar
brást í haust, Rússar fengu
miklu minni síld en áður og
vetrarsíldveiðar Norðmanna
brugðust algerlega. — Þess
vegna gerum við ráð fyrir að
síldarmagnið austur og norður
í hafi verði ekki minna en það
var í fyrra.
Síldarstofninn hefur aö vísu
minnkað mjög mikið síðan
hann var upp á sitt
bezta 1964 — 1966 Það ætti
engu að síður að vera hægt
að ná upp talsverðu síldar-
magni. Beztu líkumar fyrir veiði
eru fyrri hluta sumars. Þá er
síldin oftast í átu. — 1 fyrra
var síldin óviðráðanleg síðari
hluta sumars. Við kennum þar
um ástandi sjávarins.
Síldveiðar í
byrjun júní
Það er meðal annars vegna
þessa að Árni Friðriksson fer
austur í haf í síldarleit núna í
vikunni. Til þess sem sagt að
finna sildina tímanlega. Veiðarn-
ar byrjuðu í fyrra ekki fyrr en i
júnílok. Núna vonumst við til
að þær geti hafizt ekki síðar en
í júníbyrjun.
— Hvað hefur verið fylgzt
með síldargöngunum í vetur?
— Síldin hrygndi við Noreg
og Færeyjar og hélt þaðan norð
ur á bóginn um miöjan marz.
Núna um miðjan maí fer rúss-
neskur leitarfloti norður og við
fáum fréttir frá honum strax og
þeir verða síldar varir. Norð-
menn byrja hins vegar ekki sína
síldarleit fyrr en i júní. — Við
gerum ekki ráð fyrir að þær
breytingar verði í sjónum, að
síldin hagi göngu sinni mikið á
annan veg en hún hefur gert,
núna síðustu ár. Það má búast
við að hún nálgist Bjarnareyj-
arsvæðið, þegar kemur fram á
sumar. Hins vegar getur hugs-
azt aö hluti síldarinnar, sem
hrygnir við Færeyjar haldi
sig kannski sunnar og vest-
ar og það kæmi okkur þá til
góða, en ivð miðum okkar áætl-
anir viö að síldin haidi sig norð
ur frá á svipuðum slóðum og í
fyrra.
— Heldurðu að flotinn fáist
austur, ef svo langt verður að
sækja síldina?
— Mér finnst það hart, ef
síldin finnst í svipuðu magni og
í fyrra, aö ekki verði þá hægt
að salta verulegt magn. Um
miklar bræðslusíldarveiðar get-
ur vart orðið að ræða eins og
ástandí stofnsins er nú háttað.
Mér skilst að þaö sé mjög
mikilvægt að við höldum þess-
um saltsíldarmarkaði, sem við
höfum. Og okkur ætti ekki að
verða skotaskuld úr þvi að
veiða nægjanlegt magn. — í
fyrra fékkst líka dýrmæt
reynsla í söltun á hafi úti.
>•“ Skipta
/'lotanum
Við eigum nógu stóran flota
til þess arna. Og við verðum aö
skipta flotanum. Annar hluti
hans verður að fara á saltsíld-
veiðar og hinn hlutinn að afla
verksmiðjunum hráefnis.
— Verður loðnan þá ekki
helzti bræðslufiskurinn í sum-
ar?
— I marz fundum við mikið
magn af loðnu úti af Austfjörð-
um. Við teljum að þessi loðna
verði út af Norður- og Austur
landi í sumar. — Auk þess varð
vart við mikið magn af loðnu út
af Vestfjörðum í vetur, bæði í
fiski og eins fékkst hún i botn-
vörpu og bátarnir urðu varir
við hana á fiskileitartæki sín.
Þessi loðna hefur trúlega
komið úr hafinu milli Islands
og Grænlands, og mun senni-
lega halda sig út af landinu
N.V.-verðu í sumar. Þar hefur
jafnan orðið vart við loðnu yfir
sumartímann. Síldarleitarskipin
hafa til dæmis oft orðið vör viö
stór torfusvæði af loðnu f leið
angri sínum fyrir Norður- og
Norð-austurlandi.
Við höfum mikinn hug á að
athuga svæðið fyrir norðan
land, þegar ísinn fer að minnka
með sumrinu. Þá verður loðnan
líka væntanlega orðin feit og
vel fallin til bræðslu.
- Loðnan þegar
ísa leysir
Annars er það Hjálmar Vil-
hjálmsson, sem mest hefur feng-
izt við loðnurannsóknimar, og
við snerum okkur einnig til hans
en hann hefur sem kunnugt er
ásamt Jakobi stjómað síldveiði-
leiðöngrunum s.l. sumar.
Loðnan hefst við í köldum sjó,
segir Hjálmar, og lifir mikið á
pólsævarátunni, sem er náskyld
því æti, sem síldin hefur. Loðn-
an hefur fundizt allt noröur und-
ir Jan Mayen. Hins vegar er það
hugsanlegt að hún haldi sig jafn-
vel nær landi nú en venjulega,
þar sem sjórinn er svo kaldur.
Annars eru þrír loðnustofnar
til hér í Norður-Atlantshafi, við
Grænland, Island og Noreg.
— Og hefur hún ekkert verið
veidd á sumrin fyrr?
— Norðmenn veiddu jú eitt-
hvað af henni í fyrra norður
undir Bjarnarey. Þar voru þeir
meö eina 15—20 báta, sem fengu
þar talsverða veiði.
— Hvernig er helzt að veiða
loðnuna á sumrin, i nót eða
vörpu?
Jakob Jakobsson.
— Það þyrfti ef til vill dýpri
nætur en bátamir hafa notað við
loðnuveiöamar hér við suður-
ströndina á grunnmiðum. Loðn-
unni væri hins vegar upplagt að
ná í flotvörpu. Þaö er tvennt
ólíkt að veiða loðnu í vörpu eða
síld. Loönan er svo miklu rólegri
og seinni í hreyfingum. En þetta
þarf að kanna, Við teljum hent-
ugast að hefja veiöarnar þegar
kemur fram á sumarið. Þá er
hún feitari og verömætari. Þó
væri hugsanlegt að veiða hana
út af Austurlandi og annars stað
ar utan ísasvæöisins núna fvrri-
hlutann.
>*“ Reyna spærlings-
veiðar við Suðurland
— Nú, svo hefur verið talað
um aö veiða spærling i ræðslu,
veröur það eitthvað reynt f sum-
ar?
— Þaö eru tveir bátar að undir
búa spærlingsveiðar hér sunnan
lands. Það varð vart við hann
í vetur í þykkum torfum á Sel-
bogsbanka til dæmis og víðar.
Hafrún kastaði í fyrra á stórar
torfur, sem reyndust vera
spærlingur.
Og í septemer í fyrrahaust
varð vart við hann 80—100 mfl-
ur út af Reykjanesi. — Bátarnir
eru nú að bíða eftir sérstökum
vörpum frá Danmörku og ætla
að stunda tilraunaveiðar með
þeim í sumar.
Spærlingurinn er skyldur
þorskinum, það er að segja af
sama ættálki, en hann er mjög
smávaxinn 16—21 cm og veröur
varla eldri en fjögra ára eins
og loðnan. Hann heldur sig hins
vegar sunnan loðnusvæðanna í
hlýrri sjó.
** Þess sjást
merki
Og það væri kannski ekki úr
vegi að spyrja Jakob að lokum
um framtíö íslenzka síldarstofns
ins.
— Þess eru farin að sjást
merki, segir Jakob, að stofninn
er að byrja að ‘rétta við. Við
þökkum það friðuninni, sem nú
hefur staðið eitt og hálft ár.
En hún varö til þess að sóknin
í íslenzka síldarstofninn minnk
aði mjög mikið á síðastl. ári. I
þessari veiði er farið að gæta
nokkuö fjögurra ára síldar, en
ástandið var þannig þrjú ár í
röð að veiöin var nær eingöngu
þriggja ára síld, fjögurra ára síld
sást varla. — Það er sem sagt
farið að gæta tveggja árganga í
stofninúm. Eigi að síður á hann
langt í land með aö veröa eins
og hann var fram til 1964, þeg-
ar farið var að veiða smásíld
í stórum stíl viö Suðurland á
sumrin.