Vísir - 13.05.1969, Blaðsíða 1
Skakbátur með 28 tonn
Þótt miklar sögur hafi farið af
netaaflanum í vetur, hafa sumir
bátar þó haldið sig við annan
veiðiskap alla vertíðina, línu eða
troll. Þeir munu þó fáir, sem
hafa stundað handfæraveiðar í
allan vetur eins og þeir á Hauki,
67 tonna Reykjavíkurbáti.
A 'inn hefur raunar verið
tregur hjá þeim Iengst af, en
núna á laugardaginn ráku þeir
þó í góða veiði og komu inn til
Reykjavíkur með 28 tonn eftir
þriggja daga útivist. Aflinn var
aö vísu ufsablandinn, en þetta
er samt það liflegasta sem vitað
er um á skakinu tii þessa. —
Þessi 28 tonn munu vera drjúgur
hluti af vertíðaraflanum til
þessa.
Trillubátar eru nokkrir byrj-
aðir á skaki og hafa oftast verið
í tregfiski.
Skipverjar landa handfæra-
aflanum í Reykjavík ►
Til Kanada að kaupa skuttogara
Atvinnumálanefnd Reykjavikur sendir menn vestur
til að athuga kaup á 2-4 ára skipum
Þrír sérfræðingar eru nú
á leið til Kanada á vegum
Atvinnumálanefndar borg-
arinnar til þess að athuga
bar hugsanleg kaup á tog-
urum fyrir Reykjavík. At-
vinnumálanefnd Reykja-
víkur stendur til boða að
kaupa sjö kanadíska skut-
togara, 2—4 ára gamla.
Sigfinnur Sigurðsson, hagfræð-
ingur, fulltrúi Atvinnunefndar,
sagði í viðtali við Vísi í morgun,
að verð á þessum skipum væri
mjög hagstætt. Hins vegar væri
engan veginn víst af þeim upp-
lýsingum, sem fyrir lægju, að þessi
skip svöruðu kröfum okkar. Engin
ákvörðun verður því tekin um kaup
á þessum skipum, fyrr en þau hafa
verið athuguð.
Sigfinnur sagöi, að horfið hefði
verið frá því ráði að láta gera upp
gömlu Kletts-togarana, sem liggja
f Reykjavíkurhöfn, þar sem athug
Ásgeir Ásgeirsson 75 árn
0 Ásgeir Ásgeirsson fyrrverandi forseti íslands er 75 ára í dag, .
en hann fæddist 13. maí árið 1894 að Kóranesi í Mýrasýslu. .
• Á 9. síðu í Vísi í dag er birt viðtal við hann í tilefni afmælisins, '
þar sem hann rifjar upp ýmsar minningar frá liðnum árum.
anir hefðu leitt í ljós að slíkt myndi
ekki borga sig.
Sagði hann aö enn hefðu ekki ver
ið teknar neinar ákvarðanir um ráð
stöfun á þeim 26 milljónum króna
sem atvinnumálanefndin hefði til
ráðstöfunar varðandi eflingu sjávar
útvegs í Reykjavik, en ýmsar at-
huganir eru í gangi, bæði varðandi
eflingu smábátaflotans og eins um
hugsanleg togarakaup svo sem fyrr
er lýst.
Það eru þeir Þórður Guðmunds-
son, vélaverkfræðingur og Þórður
IHermannsson, skipstjóri og Mart-
einn Jónsson, einn af framkvæmda
stjórum Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur, sem fóru út á vegum nefndar-
innar til þess að athuga kanadísku
skipin og eru þeir væntanlegir aft-
ur innan viku.
580 krámir ber á milli
„komnir nokkuð langt", segir Björgvin
„leysir litinn vanda", segir Hannibal
„Með tilboði okkar erum við
komnir nokkuð langt, ef til vill
lengra en við þolum,“ sagði
Björgvin Sigurðsson, framkvstj.
Vinnuveitendasambandsins í
morgun um tilboð vinnuveitenda
um 900 króna grunnkaupshækk-
un. Hannibal Valdimarsson for-
seti ASÍ sagði hins vegar, að
þetta tilboð atvinnurekenda
„leysti lítinn vanda“.
Báðir voru þeir sammála um, að
það væri „jákvætt“, þegar fast-
mótuð tilboð hefðu komiö fram
frá báðum aðilum. Björgvin taldi
líkur til, að þetta „færi nú eitthvað
að liökast". Verkalýösfélögin hafa
Tvísýnar rektors-
kosningar við
Háskólann
• Á morgun, 14. maí, fer fram
rektorskjör við Háskóla íslands. —
Alls mun 61 maður hafa þar kosn-
ingarétt, þar af eru 10 úr hópi
stúdenta.
Gildandi reglur um kosningar
ar eru þær, að tveir þriðju atkvæð
isbærra manna þurfa að neyta at-
kvæðisréttar síns.
Nái enginn hreinum meirihluta
við fyrstu atkvæðagreiðslu, er kos
ið aftur um tvo efstu menn, og
nægir þá einfaldur meirihluti.
Ekki munu allir prófessorar Há-
skólans hafa verið fúsir til að gefa
kost á sér til embættisins, og ekki
er auðvelt að segja til um, hver
sé sigurstranglegastur. En blaða-
maður Vísis, sem reyndi að kanna
hljóðið í mönnum varðandi rektors-
kjörið, heyröi einna nftast nefnd
nöfnin, prófessor Hreinn Benedikts
son, prófessor Magnús Magnússon
og prófessor Magnús Már Lárus-
son.
gert boð um 1480 kr. grunnkaups-
hækkun, eða 580 krónum meira en
tilboð vinnuveitenda gerir ráð fyrir.
3.6% hækkun verðlags, yrði kaup
hækkað um 1480 kr.
Hannibal sagði, að þessi kaup-
hækkun, eða 14,8% af 10.000 kr.
kaupi væri þannig út reiknuð :—
Verölag hefði hækkað um 10,8%
fram til 1. marz. Hagstofan spáir
2,25% hækkun verölags frá 1. marz
til 1. júní næstkomandi. og svo
1,75% hækkun þess frá 1. júní til
• Fjárhagsafkoma fyrirtækja
almennt virðist hafa verið mjög
bágborin á árinu 1968, ef hægt
er að taka vanskilalista ríkis-
ábyrgðarsjóð til viðmiðunar. Yf-
ir 200 aðilar eru nú í vanskilum
við sjóðinn og hafa vanskil
flestra aukizt verulega frá árinu
áður.
Þannig er Flugfélag íslands nú
komið í rúml. 55 milljón króna van-
skil og er þaö langstærsti aöilinn.
Skuldin hefur aukizt um 100% eöa
úr 27 milljónum, en þessi skulda-
söfnun mun stafa af erfiöleikum fé-
lagsins við að standa í skilum með
afborganir af þotunni. Ríkisábyrgð-
arsjóður þurfti að greiöa 79 millj-
ónir vegna þotunnar á árinu, en
Flugfélagið endurgreiddi 53 millj.
Heildarvanskilaskuldin allra aðil-
'1. ágúst. Þetta gerir samtals nálægt
14,8%. Þá hefur ASÍ boðið, aö vísi-
talan verði „stöðvuð" fram að 1.
ágúst. Yrði 1480 króna grunnkaups
hækkun samþykkt, er spáð að verð-
lag mundi hækka vegna þeirrar
kauphækkunar um 3,6% fram til 1.
ágúst. Sagöi Hannibal, að með þv£
að bjóöa stöðvun vísitölunnar,
tæki verkafólk á sig þessa verö-
hækkun. Bæturnar fyrir það væru
lífeyrissjóöurinn.
Þessir tveir forystumenn aðila í
vinnudeilunni vildu ekkert full-
yrða, hvort samningar færu nú aö
takast. Þótt þeir teldu allmikið hafa
miðað, væri enn mikið bil óbrúað
milli deiluaðila.
anna við ríkisábyrgðarsjóð hafði
aukizt í 197 milljónir um síðustu
áramót frá áramótunum áður, þeg-
ar heildarskuldin var 134 milljónir
króna.
En það eru ekki allir, sem eru
skuldfærðir fyrir ýkja stórvægileg-
um skuldum. Þannig er Vestmanna-
eyjakaupstaöur t. d. skuldfærður
fyrir 41 eyri og Ylur h.f., Sauðár-
króki, fyrir 28 aurum. í þessum til-
vikum hefur auðvitað aðeins staðið
klaufalega á, þegar ávísanir hafa
veriö sendar. En það eru allmargir,
sem aðeins skulda nokkur hundruð
þúsund, en þeim ætti ekki að vera
skotaskuld að losa sig af „synda-
registrinu.
Sjá skuldalistann á bls. 6
Langur vanskilalisti rikisábyrgðarsjóðs:
Flugfélagið skuldar
55 millj. en Vest-
mannaeyjar 41 eyri