Vísir - 13.05.1969, Page 4

Vísir - 13.05.1969, Page 4
 Hárið er bundið saman og burst að vandlega meö stálvírbursta. Yandamál sköllóttra leyst! — Hárið saumað Nú hafa hinir sköllóttu fengið nýja von. Þeir geta aftur fengið hár á höfuðið. Eðlilegt hár, sem ekki þarf að hafa áhyggjur af að fjúki burt í golunni. Svo er spunninn mjór þráður ... á sársaukalaust Hárið er einfaldlega saumað fast. Þessi nýja aðferð kallast á enska tungu „Perma-Hair“ meö því að það er varanlegt. Það eina '.sem þörf er á að gera, er að snyrta hið eiginlega hár einu sinni i mánuði. Þetta er mjög einfalt og ails ekki sársaukafullt. — En þetta er ákaflega dýrt. Gervihárið er saumað fast í það háv, sem eftir er á höfðinu, og því minna hár sem eftir er þeim mun dýrari er aðgerðin, en með alverð myndi vera um 45 þúsund krónur. Fyrsta fyrirtækið, sem fæst ein göngu við að gera menn hárprúða á þennan hátt hefur veriö stofn- að á Wilshire Boulev. í Beverly-^ hæðum i Kalifomíu. .... sem síðan er saumaður við hár viðskiptavinarins ... ... og árangurinn kemur í ljós. MEÐ ÁVÖLUM „BANA“ BETRI STÝRISEIGINLEIKAR BETRI STÖÐUGLEIKI í BEYGJUM BETRI HEMLUN BETRI ENDING Veitið yður meiri þaegindi og öryggi í akstri — notið GOODYEAR G8, sem býðuryðurfleiri kosti fyrirsama verð. HEKLA HF. STAL- jr m m ■ ■ ■ ■■ HUSGOGN Viðgerðir og bólstrun, áklæði í litaúrvali. Mjög hagstætt verð. Sækjum — sendum yður að kostnaðar- lausu. SÍMI: 92-2412. I > HARÐVIÐARSALAN ÞORSGOTU 14 SÍMAR: 11931 og 13670. Þegar konur afla aukatekna Gift kona og fjögurra barna móðir er nú fyrir rétti í Dan- mörku fyrir að hafa svikið út rúm lega fimm miiliónir króna. Hún fé fletti alls ellefu menn, sem gáfu henni peninga í þeirri trú, að hún ætlaöi að giftast þeim. Konan er 44 ára gömul og byrj aði þessa starfsemi sína árið 1963 til þess að drýgja tekjurnar. Hún .............i......../.............. hafði einstaklega gott lag á ást- mönnum sínum, sendi þeim gaml ar myndir af sér og orti til þeirra hugþekk ástarljóð, um leið og hún fór hógværlega fram á, að þeir sendu henni peninga. Ef konan verður sek fundin, er í mesta lagi hægt að dæma hana í átta ára fangelsi, fyrir að hafa svikið út þessar fimm milljónir. qjimim * * * ^ * *spa Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 14. maí. Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Þetta verður að öllum líkindum góður dagur, og þú skalt reyna að notfærá þér það, einkum hvaö snertir peninga og viö- skipti. Gagnstæða kynið veldur þó ef til vill nokkrum áhyggj- um. Nautið, 21. apríl—21. maí. Eitthvað er það, sem þú hefur í undirbúningi, og talsvert velt- ur á, en láttu það samt ekki vitnast um of, þú getur átt allt undir því, áð þú þurfir ekki að treysta á þagmælsku annarra. Tvfburamir, 22. maí til 21. júní. Peningamálin veröa vafah'tiö of arlega á baugi og valda þér nokkrum áhyggjum. Reyndu samt að ná samningum viö skuldunaut þinn, þá yrði allt auðveldara við að fást á eftir. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí. Það verða aö öllum líkindum einhver átök í námunda við þig, sem snerta þig að vísu ekki beint, en hafa þó einhver áhrif á aðstöðu þína og ef til vill sam- búðina við þína nánustu. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst. Gagnstæða kyniö veldur nokkr um áhyggjum í dag að þvi er virðist, en taktu það ekki of al varlega. Einbeittu huganum að tækifærum, sem þér kunna að bjóðast á öðrum sviðum. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept. Það litur út fyrir að þetta verði góður dagur, og ættirðu aö taka hann snemma og notfæra þér það eftir beztu getu. Farðu samt gætilega ,í peningamálum og samningum, sem snerta þau. Vogin, 24. sept til 23. okt. Notadrjúgur dagur, og ekki ó- sennilegt aö þú fáir fréttir, sem gera þig öruggari í ákvörðun- um. Þegar líður á daginn er sennilegt að gagnstæöa kynið valdi einhverjum erfiðleikum í bili. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv. Gættu þess aö annarlegar sveifl ur í skapgerö þinni valdi þér ekki erfiðleikum í umgengtd við aðra. Segðu ekki allt, sem þig langar til að láta fjúka, það gæti komið sér illa eins og er. Bogmaöurinn, 23. nóv. til 21. des Þú kvíðir einhverju, að þvf er virðist, en þó mun það að miklu leyti að ástæðulausu. Dagurinn ætti aö verða þér notadrjúgur, einkum hvað peningamál og at- vinnu snertir. Steingeitin, 22. des. til 20. jan. Það er ekki ólíklegt, að þér finnist heldur lítiö tillit tekið til þín, en í rauninni ættirðu að fagna því, þá gefst þér betra næði til að koma áhugamálum þínum í framkvæmd. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr. Lausnin á einhverju, sem þú ert að glíma við, er nærtækari en þú heldur, og ef þú gefur þér tóm til að svipast um, fer varla hjá því að þú komir auga á hana. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz. Það getur öllum yfirsézt, og eng in ástæða til að láta hugfallast þótt eitthvað smávægilegt hefði mátt betur fara. Geröu þér hlut- lausa grein fyrir öllum aðstæð- um, þá sérðu það.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.