Vísir - 13.05.1969, Síða 13
VERKTAKAR - VINNUVÉLALEIGA
Lollpressur - Skurðjjröiur
hrauar
AXMINSTER „A1
á öll gólf.
AXMINSTER „ROGGVA'
eru teppi hinna
vandlótu.
AXMINSTER býSur
kjör við allra
hœfi.
GRENSÁSVEGI 8 - SÍMI 30676.
VI S IR . Þriðjudagur 13. maí 1969.
Fíestir haía áhuga á spikinT! J|itté#íGöúi
Virk þátttaka eldra fólks i félagslifi Tónabæjar
ll/Targir litu viö á Miklubrautinni
viö Lönguhlíð s.l. miðvikudag
litlu fyrir nón. Þar gaf á að líta
fjölda virðulegra eldri íbúa borg-
arinnar á hraðri leið í skemmtistað
unga fólksins Tónabæ. Þama vom
á ferð væntanlegir þátttakendur í
starfi því sem þar er að hefjast
fyrir unga fólkið af eldri kynsíóð-
inni.
Þegar inn í anddyri Tónabæjar
kom barst mót gestum margradda
kliður þegar hópur viðmótsþýðra
kvenna tók á móti fólkinu og ekki
sfzt þegar gamlir málkunningjar,
sveitungar og vinir fundust á ný.
Samkomusalurinn var óðum að
fyllast. Plötusnúðurinn sem ómiss-
andi er í skemmtistað unga fólksins
sat í bás sinum og sendi þýöa tóna
um salinn.
Vísir leitaði frétta af starfsem-
inni hjá Eggerti Ásgeirssyni sem
er f nefndinni, sem sér um undir-
búning starfseminnar.
— Starfsemin er mun betur sótt
en við bjuggumst við. Þátttakend-
umir hafa tekið starfseminni mjög
vel, andrúmsloftið er fullt af bjart-
:Jni og allir vænta sér mikils af
því sem þama mun fara fram.
Fyrstu þrjú skiptin era nánast
'kynning með skemmtidagskrá. Þá
fer fram skoðanakönnun á óskum
og áhugamálum þátttakendanna.
Nú er úrvinnsla könnunarinnar í
gangi. Mjög margir hafa svarað,
virðast flestir hafa áhuga á spilum,
en einnig hafa margir óskað að
taka þátt í ýmsum föndurgreinum,
námshópum og smáferðalögum.
— Hópur sjálfboðaliöa hefur að-
stoðað við skemmtanirnar, einkum
úr safnaöarfélögum, Rauða kross-
inum og samtökum eldri skáta.
Hafa> þeir h'att' mikla ánægju af
starfjnu og hefur þaö orðið til
þessjaö enn aðrir hafa boðiö fram
hjálpT t.d. 40 nemendur úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð sem
flytja . niunu. skemmtiefni á mið-
vikudaginn.
— Helena Halldórsdóttir hefur
verið ráðin til að stjórna áfram-
haldandi starfi. Má segja að það
sé mjög vandasamt að koma þessu
öllu heim og saman margar eru ósk
irnar sem samræma þarf og mikill
'fjöldi fólks þarf að leggja hönd á
plóginn, t.d. sem leiðbeinendur ef
takast á að koma til móts við sem
flestra öskir.
— Stemmningin hefur verið
mjög góð og fer batnandi. Menn
'lesa blöðin sem liggja frammi, aðrir
rabba saman. Þaö gladdi okkur
mjög hve margir sátu allt til loka
á miðvikudaginn var.
— Ég held aö reynslan verði
sú sama hér og í grannlöndum
okkar að nánari kynni af áhuga-
málum eldra fólks kollvarpi ríkj-
andi hugmyndum um hugsunarhátt
þess og áhugamál. Eldra fólk hefur
ekki meiri áhuga á þjóöháttum og
rímnakveðskap almennt, en viö
sem nokkru yngri erum. Það hefur
mjög svipuð áhugamál og afkom-
endur þess og yngra frændfólk, það
leitast margt við að hafa þau til
að bilið milli þess og þeirra, sem
yngri eru gliðni ekki.
— En ýmsir af þeim eldri hafa
við erfiöleika að stríða, því það eru
mikil viðbrigði og erfiður tími þeg-
ar fólk hættir sínu ævistarfi og fer
á eftiriaun. Það þyrfti að búa
fólk betur undir þau þáttaskil í
lífinu.
— Næsta skemmtun verður á
morgun (miövikudag) og mun þá
m. a. Guðmundur G. Hagalín tala
og hópur nemenda úr Menntaskól-
anum f Hamrahlfð skemmta eins og
áður sagði. — Aðgöngumiðar verða
afhentir aö Frfkirkjuvegi 11 frá
kl. 2—8.
Maðurinn sem annars
aldrei les auglýsingar
YOKOHANÁ
Skaðvaldiirinn mikli
Ohugnanleg ásjóna á auglýs-
ingamynd í einu dagblaðanna
vakti athygli margra, en ásjóna
þessi var ímýnd reykingamanns
ins. Þetta er kápumynd á
fræðsluriti eftir Biama Bjama-
son lækni og formann Krabba-
meinsfélags íslands. Ritið heitir
„Heilsa þín og sígarettumar“.
Ritinu á að dreifa í skóium til
fræðslu og til að vekja athygli
á hinni miklu og voveiflegu
hættu, sem stafar af mikilli
notkun tóbaks.
Með þessari viðvöran gengur
læknir fram fyrir skjöldu og
bendir á hina miklu héiisufars-
iegu hættu, en það ættu fleiri
læknar að gera. Vonandi eiga
fleiri læknar eftir að iáta til sín
heyra í baráttunni gegn tóbak-
inu.
Það er iðulega bent á, að
neyzla feitmetis og sykurs geti
verið skaðleg, og því vilja Iækn-
ar fá fólk til að þreyta ýmsum
neyzluvenjum. En því eru marg-
ir þeirra þá svo hægfara f bar-
áttu sinni gegn tóbaki? Er það
af því að þeir geta ekki hætt að
reykja sjáífir?
Tóbaksreykingar eru ekki
neitt nýtt fyrirbæri, en hitt er
nýrra, að mjög ungt fólk, jafn-
vel niður fyrir -fermingaraldur
byrji tóbaksnotkun. í því iigg-
ur mesta hættan, því mjög ung
börn era auðvitað næmari fyrir
skaðsemi eitursins.
Hið lúmska við tóbakið er, að
skaðsemin á heilsuna kemur
ekki fram fyrr en löngu seinna,
en. þá venjulega sem ósigrandi
sjúkdómúr. Það er þetta sem er
kannski það hættuiegasta, að á-
hrifanna gætir ekki strax, þvi
annars mundu hinir ungu neyt-
endur gera sér betur grein fýrir
illum afleiðingum strax.
Heilbrigðisyfirvöld ættu að
taka röskari afstöðu til tóbaks-
ins. Þau ættu að kanna helztu
niðurstöður varðandi rannsókw-
ir á skaðsemi tóbaks og trtrta
niðurstöður. Það er nefnilega of
boðsieg andstæða fólgin f því,
þegar milljónum er varið til
sjúkrahúsabygginga og heiisu-
gæziu, þegar fólk svo í dagleg-
um lifnaðarvenjum almennt
stuðlar að því að eyðileggja
heilsu sína. Það þarf að leggja
meiri drög að því, að sem fæst-
ir þurfi á sjúkrahúsum að halda.
Það þurfa fleiri aö taka undir
með Bjama lækni gegn tóbak-
inu, þar sem gera verður ráð fyr
ir að niðurstöður rannsókna
sem birtar hafa verið séu réttar.
Til dæmis ætti okkar, að mörgu
leyti ágæta sjónvarp, að sýna að
nýju fræðslukvikmynd um skað-
semi tóbaks, sem sýnd var á
fyrstu mánuðum sjónvarpsins.
Það var áhrifamikil mynd, sem
kynni að gera gagn. Einnig þarf
að afla nýrra mynda, því víða
er fariö að framleiða slíkar
fræðslumyndir af illri nauðsyn.
Kannski er einnig tímabært, að
okkar ungu kvikmyndamenn,
sem margir sýna sig að vera
ágætir, fái að spreyta sig á að
gera kvikmynd um skaðsemi
reykinga. Styrkir til kvikmynda
gerðar gætu verið veittir með til
liti til að framleidd yrði slík
mynd.
Það er mjög þýðingarmikið
að læknar taki opinbera og al-
menna afstöðu til slíks vanda-
máls, og einnig er nauðsynlegt
að áhrifamikill fjölmiðlari eins
og sjónvarpið ieggi sitt af mörk-
um.
Þrándur í Götu.
fökum að okkur hvers konar mokstui
og sprengivinnu i húsgrunnuin og ræs-
um. Leigjum ít loftpressui og víbra-
úeða. — Vélaleiga Steindórs Sighvats-
sonai Álfabrekku við Suðurlands-
-iraut simi 30435
Tðicum að okkur alls konar
framkvœmdir
bœði í tíma-og ákvœðisvinnu
Mikil reynsia í sprengingum
LOFTORKA SF.
SÍMAR: 214 50 & 30190
LIV PANTI-HOSE
LIV-sokkabuxurnar eru ótrúlega
endingargóðar, þær fást víða
í tízkulit, og þremur
stærðum.
Reynið þessa tegund.
LlV-sokkabuxur kosta
aðeins kr. 112/70
Heildsala
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO H/F
Sími 18700
mm þa
mmiáro
■ B
AÐALSTOÐIN KEFLAViK