Vísir - 14.05.1969, Page 4
Flækingseyra
Alec Graham, fertugur, týndi
eyranu í áflogum í bjórkrá, en
það fannst svo aftur og var saum
að á sinn stað — eftir nokkurt
þóf þó.
Þannig var, að eyrað var rif-
ið af honum í slagsmálum í bjór-
stofunni í Hálfmána-hótelinu í út
hverfi Lundúnaborgar. „Það var
ekkert alvarlegt — bara smá-
tusk“. sagði hótelstjórinn. „Annar
náði haustaki á hinum og áður en
nokkur vissi af, lá eyrað í ryk-
inu á gólfinu. — Nú ég hirti þaö
upp og sagði: Þú gætir reynt að
fá það saumað fast á sinn stað.
En Alec Graham hló bara og
fleygði eyranu út i hom. Hótel-
stjóranum þótti ilia farið með —
annars ágætis eyra, og sótti það
og geymdi, ef ske kynni að Gra-
ham sæi sig um hönd.
Þegar komiö var með eyrað
heim til Grahams, fieygði hann
því óðara í öskutunnuna, en kona
hans fékk talið hann á aö fara
á slysavarðstofuna. Seinna sótti
lögreglan eyrað í öskutunnuna og
var bað saumað á sinn stað.
BETRI STÝRISEIGINLEIKARí
BETRI STÖÐUGLEIKI í BEYGJii.M!
BETRI HEMLUN 5
BETRI ENDING ‘
Veitið yður meiri þaegindi
og öryggi í akstri — notið
GOODYEAR G8,
sem býður yðurfleiri kosti
fyrir sama verð.
1 * S'
IHEKLA HF.
Hefur Liz Taylor leikið
sitt síðasta hlutverk?
Liggur jbungt haldin á sfíkrahúsi / Kaliforniu
Elizabeth Taylor hefur verið
lögð inn á sjúkrahús í Los Angel
es, þar sem hún liggur nú svo
þungt haldin, að móðir hennar
og bömin víkja ekki af sjúkra-
húsinu eitt andartak.
„Ég er hræddur um, að þetta
tákni, að Liz verði að segja skil-
ið við kvikmyndaleik“, segir eigin
maður hennar, Richard Burton.
Þessi dáða og heimsfræga leik-
kona hefur fengið alvarlegan sjúk
döm í bakið — jafnvel lömun.
Fréttin um veikindi hennar hef
ur vakið feikilega athygli og
margir velta vöngum yfir því,
hvað að leikkonunni gangi, en
það hefur ekki verið upplýst. —
Amerísk blöð telja, að sjúkdóm-
urinn sé krabbamein, og franskt
blað skrifar, að svo slæm sé leik-
konan orðin í baki, að hún verði
að liggja í sérstökum spelkum.
Enginn vafi er á því, að eitt-
hvað er það alvarlegt, því fjöl-
skylda hennar víkur ekki frá
sjúkrabeði hennar. Lögfræðingur
hennar hefur einnig verið kvaddur
á hennar fund til þess að ganga
frá erfðaskránni. Richard Burton
hefur vísað á bug öllum getgátum
um, að Liz sé haldin krabbameini.
Elizabeth Taylor, sem hóf ieik-
konuferil sinn aðeins 9 ára gömul
og er í dag líklega hæstlaunaða
leikkona í heimi, hefur oftsinn-
is á lífsbraut sinni orðið fyrir
erfiðum veikindum.
Meðan á töku myndarinnar
Kleópötru stóð fékk hún lífshættu
legan lungnasjúkdóm og seinkaði
töku myndarinnar svo, að kvik-
myndafélagiö tapaði tugum millj-
óna króna.
••••••••■••••••••••••••
Þyrlur slökkva
skógarelda
Þetta, sem hangir neðan í þyril
ýængjunni á myndinni, er ker
fullt af vatni, sem ætlazt er til,
að skvett verði á skógarelda og
þeir nota, skógarverðirnir í Ore-
gon í Bandaríkjunum.
Þessi útbúnaður hefur reynzt
þeim svo vei, að annars staðar,
þar sem menn eru sífellt þjakaðir
af ótta við skógarelda. hafa menn
Bú i huga að verða sér úti um
svipuð áhöld.
Gjósi upp eldur í skóginum ein
hvers staðar, þar sem erfitt er
að komast að honum með slökkvi
tæki, er þyrlan send á staðinn.
Flugmaðurinn lætur hana sveima
yfir eldinum og með sérstökum
útbúnaði getur hann tæmt inni-
hald kersins yfir eldinn. Kerið
tekur um 450 gallon.
Síðan flýgur hann þyrlunni til
næsta vatns, dýfir kerinu niður
og fyllir það aftur. Á með-
an eru aðrar þyrlur að losa inni-
hald sinna kerja og skvetta á eld-
inn.
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
15. maí.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Farðu gætilega í orði einkum
heima fyrir, annars er hætt við
einhverju ósamkomulagi, sem
haft getur áhrif á störf þín.
Farðu gætilega og verzlaðu sem
minnst.
Nautið, 21. apríl—21. maí.
Leitaðu ekki um of skemmtana,
einbeittu þér því meir að vinnu
þinni. Þrátt fyrir ískyggilegt út-
lit áttu góð tækifæri, ef þú læt
ur ekki annarleg sjónarmið villa
um fyrir þér.
Tvíburamir, 22. maí—21. júní.
Kannski gerir einhver sennilega
sem þú þekkir ekki nema lítið
eitt, þér góðan greiða í dag.
Eða éitthvað gengur mun betur
en þú gerðir ráð fyrir, eða
þorðir að vona.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí.
Hrós þykir flestum gott, en at-
hugaðu hvort þar kunna ekki
önnur sjónarmið að ráða, og
Iáttu slíkt ekki verða til þess
að þú semjir af þér í sam-
bandi viö starf þitt eöa við
skipti.
Ljónið, 24. júlí—23. ágúst.
Það lítur út fyrir að þú hafir
meira en nóg í að snúast og
margt að hugsa, einkum seinni
hluta dagsins. En láttu það
samt ekki verða til þess, að
þú hugsir ekki vel um allar
ákvarðanir.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.
Það er ekki víst að þú hittir
vel á i sambandi við mann, sem
þú þarft að ræða við mikil-
vægt mál. Aö öllum líkindum
••••••••••••••••••••••
yrði betra fyrir þig að draga •
það þangað til á morgun. •
Vogin, 24. sept.—23. okt. J
Stirðlyndi einhvers, sem er þér •
nákominn, eða þú kemst ekki •
hjá aö umgangast getur orðið til •
þess að þú afkastir ekki eins •
miklu og þú geröir ráð fyrir. J
■Við því virðist ekkert að gera. S
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.
Þú hefur í mörgu að snúast í •
dag, og ef til vill er nokkur J
hætta á að þú hugsir ekki á- •
kvarðanir þínar nógu vel. Var- •
astu alla fljótfærni í peningamál J
um, einkum ef þú kaupir eitt- •
hvað. •
Bogmaöurinn, 23. nóv,—21. des. •
Dagurinn getur orðið dálítið •
undarlegur, það sem þú hélzt J
auövelt, reynist illframkvæman- •
legt, annað, sem þú gerir þér *
litlar vonir um, tekst mun betur •
en þú bjóst viö. •
Steingeitb •; 22. des,—20. jan. •
Annríkisdagur, en hætt við að •
árangurinn verði ekki að sama a
skapi. Gagnstæöa kynið virðist •
geta valdið þér einhverjum á- •
hyggjum, það er eins og þú vit- *
ir ekki hvað segja skal. •
Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr. ®
Það lítur út fyrir að einhver J
frestur sé úrunninn fyrr en var- •
ir, og þú hafir nauman tíma. *
Láttu það samt ekki verða til •
þess að þú takir mikilvægar á- •
kvarðanir í fljótfærni. •
Fiskarnir, 20. febr,—20. marz. •
Það lítur út fyrir að þér gangi *
illa að halda samkomulagi við •
einhverja aðila, sem þú átt eitt •
hvað til að sækja í sambandi J
við störf þín. H-iItu samt fast •
fram þínum málsíað. •