Vísir


Vísir - 29.05.1969, Qupperneq 1

Vísir - 29.05.1969, Qupperneq 1
„BÚA EKKI 1BRÖGGUM — segir Brian Holt um Astraliufarana „BRAGGARNIR f Ástralíu eru aðeins fyrir þá innflytjendur, -.em koma þangað blásnauðir og eiga ekki fyrir húsaleigu,“ sagði Brian Holt, aðalræðismaður Breta hér á landi við blaðið í morgun í tilefni af frétt í einu morgunblaðinu. „íslendingar, sem þangað flytja. fara nær aldrei án þess að hafa peninga fyrir húsaleigu um stuttan tíma.“ Brian Holt sagði að húsaleiga i Ástralíu væri lægri en hér eftir gengislækkunina. Ekki ættu aö vera erfiðleikar að fá húsnæöi, þótt vafalaust tæki tíma að koma sér fyrir og fá góða íbúð. Einn til tveir íslendingar koma dag hvern að meðaltali og sækja | umsóknareyðublöö um flutning til Kanada og Ástralíu. Ríkisstjóm Kanada hefur gagnstætt Ástralíu- stjóm, engin afskipti af innflytj- endum, eftir að þeir koma til lands- ins, „Jafnskjótt og þeir eru komnir inn fyrir landamærin, vérð^ þeir að sjá fyrir sér ?jálfir,“ sagði Brian Holt. Umsóknir um Ástralíuför eru síðan sendar sendiráði Breta í Stokkhólmi, og umsóknir um flutning til Kanada sendar sendi- ráði Breta í Kaupmannahöfn. Þess vegna hafði ræðismaðurinn ekki handbærar tölur um fólks- flutninga þessa, en taldi reynslu fyrir því, að um þriðjungur þeirra, sem sækia eyðublöðin, geri alvöm úr því að flytjast frá Islandi til þessara landa. Þessar ungu stúlkur tóku þátt Vísis, Á. M.). sjálfboðastarfinu á Þingvöllum í gærkvöldi. — (Ljósm. ySárín grædd' á Þingvöllum Hópur æskufólks vann verkið i sjálfboðavinnu — Gifurlegur fjöldi unglinga vildi taka þátt i verkinu, en aðeins hluti komst að ■ i gær f ór hópur ungl- inga á vegum Æ.S.Í. til Þingvalla til að reyna að bæta úr þeim spjöllum, sem þar voru framin um helgina af öðrum hópi æskufólks. Auglýst hafði verið eftir þátt- takendum í þessa ferð, og sjálf- boðaliðum ge'finn kostur á að láta skrá sig. Ragnar Kjartans- son formaður Æ.S.Í tjáði blaö- inu, að á þriðja hundraö manns hefðu viljaö gefa kost á sér tíl fararinnar, en skráningu þátt- takenda var hætt upp úr hádegi. Margir sem vildu fara vora of ungir, eða á aldrinum 10 til 15 ára, og sagði Ragnar, að þetta virtist benda til þess, að full áslæöa sé til aö skipuleggja einhverjar eftirmiðdagsferðir fyrir unglinga á þessum aldri, sem eru reiðubúnir að vinna að hreinsunarstörfum í sjálfboða- vinnu. Fólkiö kom til Þingvalla um sjö-leytiö og var unnið að því að hreinsa svæðiö, sem verst hafði orðið úti. Glerbrot og tómar flöskur voru úti um allt, og einnig var reynt að síétta úr hjólförum, sem tætt höfðu upp grassvörðinn. Unglingamir höfðu meðferðis grasfræ og á- burð til aö »bæta úr skemmdun- um. Um ellefu-leytið var lokið við að taka til á svæðinu, og ungÞ ingarnir héldu aftur í bæinn, eft- ir að hafa bætt fyrir spellvirki jafnaldra sinna. Hæm Virkjun fékk verðlaun fyrir fallega lóð BAÐ EKKI UM GEYMSLU Réttarrannsókn vegna andláts fangans i fangageymslunni i Keflavik RÉTTARRANNSÓKN hefur ver- ið Iátin fara fram á dauða unga piltsins, sem lögreglan kom áð látnum í fangaklefa lögreglu- stöðvarinnar í Keflavík. Rannsókninni er ekki lokiö, en langt komið. t'lytji í fangageymslur drukkna menn, en ekki til heimila þeirra, til ®-»- 10. síða. Nú er sá árstími, sem lóðaeigend- ur hugsa til fegrunar lóða sinna. Furðu margir eru þeir þó, sem ekki hafa minnsta áhuga á að hafa vinalegt í kringum hús sín. Ár eftir ár er hálfgert „styrjaldar- ástand" á lóðunum og á þetta ekki sfður við um lóðir fyrirtækja og st^fnana en híbýli manna. Þessi stofnun á Sauðárkróki er Þó undantekning, Gönguskarðsár- virkjun, eign Rafmagnsveitna rík- ''sins, vatn og dísilorkustöð á Sauð- árkróki, en stöðvarstjóri er Hákon Pálsson. Stjórn fegrunarsjóðs Sauðárkróks veitti viðurkenningu í fyrsta skiptj nú nýlega fyrir um- gengni og fegrun lóða í kaupstaðn- um og hlaut stofnunin verðlaunin. Komið hefur í ljós aö ástæðan fyrir geymslu piltsins í fangaklef- anum var ekki sú. að hann hefði að sjálfsdáðum beðið um gistingu, heldur hafði lögreglan tekið hann upp á arma sína, ósjálfbjarga á förn um vegi vegna ofnevzlu áfengis. Slíkt er ekki ótítt, að lögregla — en þrir aðilar sækja um leyfi til minkarækfar Atvinnumálaráðuneytinu ber- ast nú margar fyrirspurnir um loödýraræktarleyfi hér. — Nú liggja fyrir ráðuneytinu umsókn- ir fjögurra aðila um chinchilia- rækt: þeirra Skúla Skúlasonar, Kónavogi Karls Aspelund, ísa- firði, Hermanns Bridde, Reykja- vík, sem hafa endurnýjað sínar umsóknir og fjórða umsóknin er gömul og frá Sveinbirni Jóns- syni í Ofnasmiðjunni. t.Jmsóknir um minkarækt, sem liggja fyrir nú eða eru á leiðinni, eru frá Iioðfeldi á Sauðárkróki, Loödýrum hf., Rvík og Krist- jáni Andréssyni, Ásbyrgi, Garði. Lögin um loðdýrarækt hafa nú verið staðfegt af forseta Is- lands á ríkisráðsfundi í gær en þar voru 19 lög staðfest. Do you speok English? — Lesendur Visis i landsprófi — / dag er glimt við enskuprófin Svullferðir unglinganno — sjá bls. 9 Hvernig á ég að greiða konu ntínni laun? — spyr lesandi á bls. 9

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.