Vísir - 26.09.1969, Blaðsíða 2

Vísir - 26.09.1969, Blaðsíða 2
VISIR . Föstudagur 26. september 1969. 'Eyleifur skoraði annað mark ís- lands í gær. ÍBR 25 ára Iþróttabandalag Reykjavíkur á 25 ára afmæli um þessar mund ir og var ætlunin að minnast með gestamóttöku í Sigtúni á iaugardag. Af ófyrirsjáanlegum orsökum verður að fresta af- mælishófi fram yfir miðjan október. Henlumunim vmtaði á ísl. sigur Franski markvörðurinn bjargaöi liði sinu frá stórtapi — stóðug islenzk sókn allan seinni hálfleikinn í 53. landsleik íslands, sem leikinn var í Parfs í gærkvöidi, með 3 mörkum gegn 2. Leikur- inn, sem leikinn var við flóð- ljós, var þó mjög góður af hálfu íslendinga og það var aðeins fyrir frábæra markvörzlu franska markmannsins, að Frakkar gengu með sigur af hólmi. Frakkar byrjuðu á því að skora, en Elmar Geirsson jafnaði skömmu síðar með föstu skoti eftir glæsileg an einleik frá miðju, staðan 1:1. Adam var þó ekki lengi í Para- dís því Frakkar skoruðu 2 mörk í viðbót fyrir hlé. íslenzka liðið kom mjög ákveðið til leiks í síðari hálfleik og ekki voru liðnar nema 10 mín, þegar Eyieifur Hafsteins- son skoraði 2. markið með glæsi- legu skoti eftir fallega fyrirgjöf Matthíasar Hallgrímssonar. Það sem eftir var leiksins sóttu íslend ingar stööugt og réðu frönsku leik- mennimir ekkert við hina harð- snúnu landa, en herzlumuninn vant aöi þó ávallt á að okkar mönnum tækist að skora mark. Þannig átti Eyleifur nokkur falleg skot á mark ið sem franski markvörðurinn varöi glæsilega. Ellert og Guðni voru al- gjörir ofjarlar frönsku framlínunn ar og vakti mikla hrifningu meðal áhorfendanna fyrir frábæran leik. Annars átti liöið í heild mjög góð- an leik, og baráttuandinn mjög mik ill, þótt ekki dygði til í þetta sinn. Liðið, sem lék var skipað þess- um mönnum: Þorbergur Atlason, Jóhannes Atlason, Einar Gunnars- son, Ellert Schram, Guðni Kjartans son, Matthías Hallgrímsson, Bjöm Lárusson, Eyleifur Hafsteinsson, Baldvin Baldvinsson, Sigurður Al- bertsson og Elmar Geirsson, en f síðari hálfleik komu Jón Ólafur Jónsson og Haraldur Sturlaugsson inn í stað Baldvins og Sigurðar. Haraldur Sturlaugsson lék nú sinn fyrsta landsleik og var ásamt Eliert bezti maður liðsins. Enn eitt tap í landsleik bætist nú í sekk inn hjá KSÍ, en í þetta skipti mátti ekki miklu muna og þó svo að ekki næðist sigur getum við veriö hreykin af piltunum, sem börðust eins og ljón og sýndu það að þrátt fyrir allt er íslenzk knatt- spyma að rétta úr kútnum og full ástæða er til þess að ætla að bjart ari dagar séu ekki langt undan. Bacardikeppnin á laugardag Næstkomandi laugardag, þann 27. sept., fer Bacardikeppnin fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á Graf arholtsvelli. Keppt er um forkunnar fagran farandbikar, en handhafi hans frá 1968 er frú Súsanna Möller. Keppn in hefst kl. 13.30 og er áskrifta- listi í Golfskálanum fyrir væntan- lega þátttakendur. Æfingar í júdó að hefjast Æfingar í japanskri glímu, júdó I hafa á að æfa f vetur, er bent á hefjast hjá Júdófélagi Reykjavík- að innritun er nú að hefjast og er ur 2. okt. n.k. — Þeim sem áhuga ] bezt að mæta á kvöldin milli kl. 7 og 9 á 5. hæð í Júpiter og Mars á Kirkjusandi, inngangur frá Lauga læk. Fyrst um sinn verður æfingum skipt þannig, að drengir 14 ára og yngri æfa einu sinni í viku kl. 5 — 6 sd. á þriðjudögum. Byrjendur eldri en 14 ára æfa á mánudögum og fimmtudögum kl. 8.30 til 9.30 á kvöldin. Almennar æfingar fyrir Iengra komna veröa á mánud., þriðjud., fimmtud., kl. 7 til 8.30 og á laug- ardögum kl. 2 til 4 e.h. Júdó er fyrst og fremst hörð íþrótt sem krefst strangra æfinga ef aö nokkur árangur á að nást, en alltaf eru margir, sem langar fyrst og fremst til þess að kynnast þess- ari glímu án þess að hafa keppni í huga og koma þar til ýmsar á- stæður. Þess vegna hefur verið ákveðið að hafa sérstaka æfinga- tíma milli kl. 6 og 7 sd. á þriðju- dögum og fimmtudögum. I þessum tíma verður aðallega lögð áherzla á almennar líkamsæfingar jafn- framt því, sem undirstöðuatriði í júdó verða kennd. Á þennan hátt reynir Júdófélag Reykjavfkur að koma til móts við óskir sem flestra. Fyrirhugað er, að halda fyrsta meistaramót félagsins f vetur og veröur væntanlega keppt sam- kvæmt alþjóöareglum í 5 þyngdar- flokkum og opnum flokki. Júdófélag Reykjavíkur hefur haldið uppi æfingum í allt sum- ar og nú í september hefur Syd Hoare, 4 dan, aðalþjálfari Budokwai í London dvalið hér og kennt hjá félaginu með mjög góðum árangri. SIATURSALAN HAflN SLÁTUR, MÖR, SVIÐ, HJÖRTU, LIFUR, NÝRU. ÓDÝR SVIÐ AF FULLORÐNU. OPIÐ 9—12 OG 1—6 NEMA LAUGARDAGA 9—12. LOKAÐ Á MÁNUDÖGUM. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Slátursalan Laugavegi 160, sími 25114 EUert Schram átti stórkostlegan leik Knattspyrnan um helgina Mikið er um að vera í knatt- spymunni um helgina, og verða nú ' m.a. leiknir fyrstu leikirnir í 16 liða ] úrslitum bikarkeppni KSI. Mesta athygli vekur leikur Akur' eyringa við B-lið Akraness, en f þvf! Iiði mun að finna marga frækna1 garpa fyrri ára. Akureyringar berj1 ast nú harðri baráttu fyrir tilverui sinni í 1. deild næsta ár og er óvíst I hvernig þeirri viðureign lyktar.! Leikimir verða sem hér segin I Laugardagur 27. sept. i Melavöllur — Miðsumarsm. 1. fl. i Ármann —Þróttur kl. 14. j Melavöllur — Haustmót 1. fl. —! KR-Fram kl. 16.45. j Akureyri — Bikarkeppni — ÍBA— . lAb kl. 16. Kópavogur — Landsmót 2. fl. —; Breiðablik—IBV kl. 14. ' Isafjöröur — Bikarkeppni — ' Vestri—Valur A kl 16. Sunnudagur 28 sept. Melavöllur — Orslit Reykjavíkur- mót 3. fl. Fram—KR kl. 10.30 Melavöllur — Bikarkeppni — Val-‘ ur B—Völsungar kl. 14 •; Framvöllur — Haustmót 3. fl. B.. Fram—Víkingur kl. 14. , Melavöllur — Haustmót 2. fl. A Víkingur—KR kl. 16. Myndin er af Alfreð Þorsteins- syni íþróttafréttaritara Tímans, en eins og sagt var frá f blaðinu í gær, hefur Aifreð nýlega ver- ,ð ráðinn ritstjóri íþróttablaðs- ins, sem nú kemur út eftir heig ina í breyttum búningi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.