Vísir - 01.10.1969, Blaðsíða 4

Vísir - 01.10.1969, Blaðsíða 4
naSaNfiSR^Í A 1 f SI íð an ■ 1 r „Hvort fólkið hlæi, þegar ég kem fram í undin'ötunum svörtu? — Já, iá, cn það veröur líka dálítið vandræðalegt“, segir Preben Neer gaard. Leikur 12 ólík hlut- verk í einu og sama leikritinu Hann er fjölhæfur hann Preb- en Neergaard, og lætur sér ekki muna um það að skipta 12 sinn- um um persónu á sama kvöldinu, þar sem hann stendur á sviöinu í Boldhús ieikhúsinu, og skemmt- ir áhorfendum í ieikritinu „Arki- tektinn og keisarinn af Assiríu." Neergaard viðurkennir að vísu, að erfitt sé það, og að heilasell- urnar þurfi ekki að kvarta yfir að- gerðarleysi þar sem hlutverkin séu mjög óiík, m.a. kemur hann fram í svörtum kvenundirfötum i einu atriðinu. Hemingway lét eftir sig 23 kg af handritum, þegar hann lézt Nóbelsverðlaunahafinn og rit- höfundurinn, Emest Heming- way, sem dó 1961, hefur látið eftir sig 19.500 blaðsíður af óþekktum handritum. Er þetta fyrst núna að koma í ljós, átta árum eftir dauða hans. Það var ekkja hans, sem safn- aði handritunum saman, þar sem Hemingway, hafði geymt þau á börum og í bankahólfum. — Útbúin hefur verið skrá yfir þessi handrit, sem fyllir 137 síður og ínnibeldur 332 titia á sjálfstæðum hanaritum. Það athyglisverðasta í þessum fundi er skáldsagan „Jimmy Bree ne“. Hún segir frá ferðalagi ungs Ameríkana til Frakklands. Aðeins það bezta af þessum handritum verður gefið út, og verður það ekkja Henjinuways, sem sér um valiö. MENGUNí HEIMINUM Mengun andrúmsloftsins 'og náttúru jarðar er mikið og vax- andi vandamál. Þó að hér sé á ferð inni svo alvarlegt mál, sem raun ber vitni, er fjarri því, að almenn ingur geri sér yfirleitt ljóst, hvað hér er á ferðinni. Flestir vilja leiða hjá sér hugsunina um þaö, að ef til vill verður ógerlegt að finna nokkum stað á jörðinni á komandi öld, þar sem hægt verö ur að draga að sér andann í hreinu og ómenguðu andrúms- lofti. Á okkar tímum eru það aðal- lega læknar og vísindamenn, sem reyna að berjast gegn þessari stórhættulegu þróun, sem er afleiðing sívaxandi iðnvæðingar í heiminum. Því miður mæta þessir baráttufúsu menn sorglega litl- um s.kilningi hjá almenningi og forráðarmönnum bæjarfélaga sinna. Yfirlæknirinn í Thisted, Dan- mörku, Svend Kratholm, er gott dæmi um þessa fómfúsu menn. Siðan hann kom til bæjarins fyrir fjórum ámm hefur hann barizt fyrir því, án árangurs, að fá setta nokkurs konar síu á reýkháfa plastverksmiðju, sem er í útjaðri bæjarins. Það er haft eftir Kratholm í blaðaviðtali, að ef- hann hefði varið öllum þeim tíma, sem far- ið hefur i þetta mikla baráttumál hans til að skrifa doktorsritgerð sína væri hún löngu tilbúin. En það er svo sannarlega erfitt um vik fyrir hann að koma máli sínu í gegn, þar sem lögreglu- stjórinn á staðnum er forstjóri plastverksmiðjunnar og á einnig sæti í nefnd þeirri, sem fer með heilbrigðismál bæjarins. Því birtum við þetta hér á 4. síðu, að okkur fannst þetta eiga jafnt erindi til okkar hér á ís- landi. þar sem við hljótum þó að tilheyra jarðarkringlunni, og þar með getum við ekki lokað augun- um fyrir vandamálunum. Enda þurfa Reykvíkingar í það minnsta ekki að leita langt yfir skammt, allir hafa þeir fundið „ilminn“ frá Kletti. Og einhvern tíma heyrði 4. síðan minnzt á íslenzkan verkfræðing sem starfað hafði lengi í Bandaríkjunum við góðan oröstír, meðai annars vegna þess að hann fann upp nokkurs konar lyktar og sóteyöi, þessa uppfinn- ingu sína vildi hann nota á Kletti en það var bara ekki hlustað á hann heldur á erlendan sérfræð- ing, sem sagði, að byggja ætti skorsteininn hærri. Virðist þó það ráðiö ei hafa dugað, sem til var ætlazt, eða finna Reykvíkingar ekki „lyktina góðu“ enn? Nína og Frlð- rik. Þau eru dauðþreytt á því að vinna saman. Nina og Friörik heita þau, og hafa skemmt saman í 13 ár, og hlotið heimsfrægö að launum. Nú herma nýjustu fréttir af þeim, að samkomulagið sé ekki upp á það bezta. Friðrik er orðinn þreyttur á hljóroleikahaldi og vill helzt bara skrifa og semja músík öðrum til flutnings, en Nina er á allt ann- arri skoðun. Hún hefur gaman af því aö koma fram á sviði og vill Svend Krat- holm yfir- læknir með 37 kg af sóti, sem hann hreinsaði upp af þak- rennum verk- smiðjunnar, sem er í út- jaðri heima- bæjar hans, Thisted. Þeir sækjast eftir Nínu, en vilja ekki Friðrik & nmiMiuU} * * * * * SP‘d halda áfram, helzt vildi hún fá hlutverk f söngvamynd. Nina hefur fengið nokkur til- boð, sem hún hefur ekki sinnt enn þá, en gerir eflaust bráðlega. — Enginn hefur hins vegar viljað kaupa tónsmíðamar hans Friðriks þannig að ekki virðist hjá því komizt, að þau sem skemmtikraft ar séu búin að spila og syngja sitt síðasta vers Spáin gildir fyrir fimmtudag- inn 2. okt. Hrúturinn, 21. marz—20. apríl. Þú ættir aö varast að halda fast fram skoöunum þínum í deilum, jafnvel þótt þú vitir að þú haf- ir mikið til þíns máls. Þér mun, gefast betur aö beita lipurð og lagni. Nautið, 21. apríl—21. maí. Vandaðu þig vel við það verkefni sem þér hefur verið faiið, jafn- vel þótt þér þyki þaö ekki skemmtilegt, eða fyrir neöan þína virðingu. Þú verður dæmd ur eftir því, hvemig það tekst. Tvíburamir, 22. maí—21. júni Það lítur út fyrir að þér bjóðist gott tækifæri til að auka tekjur þínar nokkuð á næstunni, og skaltu ekki láta það ónotað. Þú færð ástæðu til að tortryggja einhvern, sem þú hefur haldiö vin þinn. Krabbinn, 22. júní—23. júli. Láttu þér ekki renna í skap þótt eitthvaö gangi seinna en þér likar. Dagurinn einkennist sennilega af töfum og vafstri, að minnsta kosti fram eftir, og verðurðu að taka þvi. Ljónið, 24. júlí—23. ágúst. Það lítur út fyrir að þú munir sæta verulegri gagnrýni, og skaltu ekki skirrast við að bera hönd yfir höfuð þér, ef þér finnst hún ganga of langt, eða verða um of persónuleg. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Það er ekki ólíklegt að einhverj ir af þínum nánustu reynist ó- sanngjarnir og hafi flest á horn um sér í dag. Láttu yfirleitt sem þú heyrir það ekki, andmæli munu litla þýðingu hafa. Vogin, 24. sept.—23. okt; Gættu þess að ekki verði haft af þér í viðskiptum. Réttast mundirðu gera að varast bæði kaup og sölu umfram það, sem nauösyn krefur. Kvöldið getur valdið þér nokkrum vonbrigðum Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Taktu hvert það verkefni föstum tökum, sem þú þarft að glíma við, og hikaðu ekki við að krefj ast fyllstu þóknunar fyrir. Þú ættir ekki aö gera neinar fastar áætlanir varðandi kvöldið. Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Varastu allir fljótfærnislegar á- kvarðanir, í dag þarftu einmitt að hugsa málin mun betur en ella, ef þú átt aö komast hjá að gera villur, sem gætu haft alvarlegar afleiðingar. Steingeitin, 22. des.—20. jan. Það er ekki ólíkt að þú lendir á öndverðum meiði við einþvern í dag, sem heldur fast fram sín- um sjónarmiðum. Þú ættir að sýna fulla einurð og festu og láta hvergi undan síga. Vatnsberinn, 21. jan. —19. febí. Reyndu eftir megni að slaka nokkuð á í dag, hvíla þig og taka lífinu með ró, þótt það kunni að reynast örðugt, eins og allt er í pottinn búið. Hvildu þig svo vel í kvöld. Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Sómasamlegur dagur til flestra hluta, nema beinna peningavið- skipta, þeim getur brugðið til beggja vona. Þú skalt að minnsta kosti gefa náinn gaum að því, að ekki verði haft af þér. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.