Vísir - 06.10.1969, Side 2

Vísir - 06.10.1969, Side 2
V í SIR . Mánudagur 6. október 1969. Hallur Simonarson skrifar um ensku knattspyrnuna: Mikil ólga / WEST HAM og PETERS á sölulista — Sami dómari fær aftur lögregluvernd — nú i Wolverhampton • Þafl var mikll spenna í Austur-London á laugardaginn og á Ufton Park-leikvelli West Ham — fylgdust áhorfendur lítt meö leik heimaliðsins gegn Burnley, en alls staflar var rætt um sama manninn, Martin Peters — einhvern frábærasta lelkmann í enskri knattspymu. — Hann haföi verið settur úr liði WH, en þafl kom ekki að sök f leiknum, því West Ham sigraði meS 3—1 og Clyde Best frá Bermuda skoraðl tvö af mörkunum. En kemur það að sök í framtíðinni? — Peters, sem leikið hefur með West Ham í 10 ár, og er fæddur og uppal- inn spölkom frá Ufton Park, hefur óskað eftir því að verða seldur til allars félags, því hann eigi enga framtíð hjá WH lengur, þar sem samkomulag hans og framkvæmdastjórans, Ron Greenwood, hefur verið slæmt síðasta árið. Og orðrómur var á kreiki á ,pöbbum‘ og hverju götuhomi f Austur-London, að „erkióvinurinn“ í Norður-London, Tottenham, mundi í dag (mánudag) bjóða 200 þúsund pund í Peters. En Tottenham fær áreiðanlega harða samkeppni frá mörgum öðmm félögum — því leikmaður á borð við Martin Peters er ekki til sölu á Hinir frægu landsliðsmenn West Ham. Frá vinstri Martin Peters, Bobby More og Geoff Hurst. Leika þeir ekki framar saman með West Ham? hverjum degi. Martin Peters hefur aðeins misst fimm leiki með WH slð- ustu fjögur árin og ávallt verið annar markhæsti leikmaður liðs ins, þótt hann sé framvörður. Og hann hefur einnig lengi verið einn af máttarstólpum enska landsliðsins, leikið 29 leiki og skorað 11 mörk, og eitt þessara marka skoraði hann í úrslitaleik siðustu heimsmeistarakeppni, þegar England vann Vestur- Þýzkaiand 4:2. Á laugardaginn sagði sir Alf Ramsey, þjálfari Englands: „Það er sama hvaða knattleik Peters hefði lagt fyrir sig — hann hefði hvar sem er orðiö I fremstu röð. 1 knatt- spyrnu er hann snillingur — og verður einn þýðingarmesti leik- maður Englands í heimsmeistara keppninni í Mexíkó aö ári“. — Ramsey er fámáll maður og þessi ummæli hans um leikmann eru algjör undantekning. Það er því von, að félagar West Ham séu á nálum þessa dagana — því skarð Peters verð ur vandfyllt, en allt verður þó gert til þess að hann breyti á- kvörðun hinni. Ron Greenood — sem lék hér heima með Brent ford 1951 — sagði: „Peters hef- ur leikið illa að undanfömu. — Hann hefur leikið allt of mikið sfðustu árin — og þarfnast hvíldar, □ ÓVÆNT ÚRSLIT. Annars voru úrslit óvænt I mörgum leikj umá laugardakinn t.d. tapaði Arsenal heima og Newcastle van« sinn fyrsta úti- sigur. Og við skulum aðeins líta á tölurnar áður en lengra er haldið. 1. dcild. Arsenal—Coventry 0:1 C. Palace—Newcastle 0:3 Derby—Manch. Utd. 2:0 Ipswich—Sheff. Wed 1:0 Leeds —Stoke City 2:1 Liverpool—Nottm. For. 1:1 Manch. City-W.B.A. 2:1 Southampton—Tottenham 2:2 Sunderland—Chelsea 0:0 West Ham—Bumley 3:1 Wolves—Everton 2:3 2. deild. Aston Villa—Preston 0:0 Blackbum —Norwich 3:1 Blackpool—Cardiff 3:2 Bolton — Swindon Town 0:1 Briston C.—Birmingham 2:0 Carlisle—Huddersfield 0:2 Charlton—Portsmouth 2:2 , , Leicester—Watford 3:1 Oxford—Millvall 0:0 Q.P.R.— Middlesbro 4:0 Sheff. Utd.-Hull City 3:0 Ken Walker, dómarinn, sem dæmdi leik WBA—Liverpool fyrra laugardag, varð nú aftur að fá lögregluvemd, þegar á- horfendur I Woiverhampton ætl uðu að láta hendur skipta eftir leikinn við Everton Þetta Liver pool-lið, sem er I efsta sæti 1 1. deild, náði tveggja marka for- skoti I f.h. gegn Ulfunum. Royle skoraði úr vítaspymu og síðan Morrisey. Curran jafnaði stöð- una I 2:1 skömmu eftir hléð — en á 61 mln. var miðherji Ulf- anna, Irski landsliðsmaðurinn Derek Dougan, rekinn út af vegna þess að hann gerði at- hugasemd við llnuvörð. „Mér hefur aldrei fallið við Walker sem dómara, og brottrekstur Dougans var fráleitur" sagði þulur BBC. Þetta er óvenjulegt þvi þulir BBC gagnrýna sjald- an. Og áhorfendur vom á sömu skoðun, og mikið var púað á dómarann. það sem eftir var leiks. (Þeir hljóta þó aö elska hann I Liverpool!). Harway skoraði þriðja mark Everton, en Curran skoraði aftur fyrir UÍfana úr vítaspyrnu, og ekki að vita hver úrslit heföu orðið ef hinn snjalli Dougan hefði leikið allan leikinn. Ann- ars er þetta mál alvarlegt fyrir Norður-lra. Þeir eiga eftir að leika viö Sovétríkin I undan- keppni HM og hafa mikla mögu leika I riðlinum. Þetta er I annað skipti í haust, sem Dougan er rekinn út og gæti svo farið, að hann fengi sex vikna dóm. □ FRÁBÆR MARKVARZLA GREEN Hver einasti aðgöngumiði seld ist í Derby og leikurinn við Manch. Utd. var að mörgu leyti skemmtilegur United tapaði I fyrsta skipti I 10 leikjum — og það var vegna frábærrar mark- vörzlu Leslie Green hjá Derby. Manch. Utd. var betra liðið all an fyrri hálfleikinn, en þríveg- is bjargaði Green á ótrúlegan hátt. Á síðustu sek. hálfleiks- FLUGNEMAR Bóklegt námskeið fyrir einkaflugpróf hefst mánudag- inn 6. október í skólastofunni á flugvellinum. Námskeiö fyrir atvinnu og blindflugspróf hefjast eftir áramót. Væntanlegir nemendur hafi samband viö skólann sem fyrst. Flugskóli Helga Jónssonar, sími 10880. Hef opnab lækningastofu í Garðastræti 13, sími 16195. Viðtalstími í október verð ur mánudaga og fimmtudaga kl. 14—14.30. Frá 1. nóv. verður viðtalstími eftir beiðni eða klukkan 10—11 alla daga og miðvikudaga kl. 17.30—18. Símatími hálf klukkustund. fyrir viðtalstíma f stofusíma. ___ Bergþóra Sigurðardóttir, læknlr. Er knattspyrnuferli Nobby Stiles lokið? — Þessari spurningu velta nú margir fyrir sér, en Stiles meiddist í vor, þegar Manch. Utd. lék gegn Milan í undanúrslitum Evrópubikar- keppninnar og hefur ekki leikið síðan. Hann var skorinn í hné í sumar og heppnaðist sú aðgerð fullkomlega — en hann lagði of hart að sér við æfingar og hnéð er illa bólgið. Sérfræðingar standa ráðþrota, en Stiles er stöðugt undir handleiðslu þeirra. Nobby Stiles hefur verið einn svipmesti knattspyrnumaður heims undanfarin ár — og var beinlínis dýrkaður á Englandi eftir sfðustu heimsmeistarakeppni. Milljónir manns muna tannlaust bros hans á sjónvarpsskerminum og enginn lagði sig betur fram fyrir England í leikjunum á HM en hann. Hann var „stöðvari“ í sérflokki — sérfræðingur í að „taka leikmenn úr umferð“ eins og þeir vita, sem séð hafa hann leika gegn Euseblo. Ég hef nokkrum sinnum séð Nobby Stiles á leikvelli og alltaf hrifizt mjög af honum. Einkum þó á Old Trafford haustið 1967, þegar Manch. Utd. sigraði Tottenham 3:1 og Stiles hafði slík tök á Jimmy Greaves, að honum tókst aldrei að leika á Stiles, hvað þá koma spymu á markið. Á myndinni hér að ofan sést hið fræga bros Stiles — og Bobby Charlton horfir spozkur á hann. Það er ekki furða þó þeir séu glaðir Manch. Utd. hafði sigrað Benfica í úrslitaleik Evrópubikars- ins — og Stiles en einu sinni „tekið“ Eusebio úr umferð. ins fékk Derby hornspymu og Hector skoraði. Strax í byrjun s. h. skoraði Fitzpatrick sjálfs- mark og þannig urðu úrslit leiks ins. M. U. sótti þó mikið — Aston skoraði, en markið var dæmt af og I annað sinn bjarg aði markvörður Derby, Robson, á marklínu frá Aston. George Best var ekki upp á sitt bezta í þessum leik. Þaö leit lengi vel út fyrir, að Nottm. Forrest ætlaði aö endur taka sigurinn frá 1 fyrra gegn Liverpool. Liðið sýndi góða knattspymu I fyrri hálfleik og náði forustu með marki New ton. Og lengi vel leit út fyrir að þetta mark mundi nægja til sigurs — en svo varð þó ekki. Chapmann skoraði sjálfsmark og Liverpool hlaut annað stigið. Eitthvað meira en lítið virðist nú aö hjá Arsenal — og liðið tapaði nú heima fyrir Coventry, sem. hefur sýnt heldur slaka leiki aö undanfömu. Og fyrr 1 vikunni tapaði Arsenal á írlandi — fyrir Dundalk i Borgakeppni Evrópu — og tókst ekki frem ur að skora mark I þeim leik — en heldur þó áfram I þeirri keppni, þar sem heimaleikur- inn vannst með 3—0. Leeds Utd. sigraði Stoke og Johnny Giles skoraði bæði mörk Leeds úr vitaspyrnum. Neil Young og Colin Bell skomðu mörk Manch. City gegn WBA. 1 þeim leik var Krzywicki, welskum landsliðsmanni hjá WBA, vísað af leikvelli. Faðir hans er pólskur og settist að á Englandi á stríðsárunum. Sheff. Wed. keypti Tony Coleman' frá Manch. City I síöustu viku fyr- ir 30 þúsund pund og lék hann sinn fyrsta leik 1 Ipswich — en ekki hafði það mikil áhrif, því Sheff. Wed. tókst ekki að skora í leiknum. Þá má geta þess, að Barry Jones hjá Card iff fótbrotnaði í Blackpool, og er þetta mikið áfall fyrir Card- iff. Barry — bróðir hins fræga Cliff Jones, sem lengi var hjá Tottenham — hefur oft leikið I landsliöi Wales og var aðal- uppbyggjarinn hjá Cardiff. Staða efstu og neðstu liða I 1. deild er nú þannig: Everton 13 11 1 1 29-12 23 Derby 13 8 4 1 21-5 20 Liverpool 13 8 4 1 28-14 20 Leeds Utd. 12 6 5 1 22-13 17 Ipswich 13 3 3 7 12-19 9 Southampton 13 2 4 7 21-27 8 Bumley 13 1 6 6 11-20 8 Sheff. Wed. 13 3 2 8 12-23 8 Sunderland 13 2 4 7 9-23 8 I 2. deild er QPR efst með 19 stig og hefur stigi meira en Sheff. Utd. í 3 deild hefur Luton 21 stig og þremur stigum meira, en Bamsley, sem er I öðm sæti. I. 4. deild er Port Vale I efsta sæti með 19 stig — en Wrex- ham, Brentford og York hafa 18 stig. hsím.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.