Vísir - 06.10.1969, Síða 3

Vísir - 06.10.1969, Síða 3
VlSIR - Mánudagur 6. október 1969. Landsliðið missti „örugga44 forystu og náði aðeins jöfnu Q Ekki lagfærðu lands- liðsmenn okkar álit okkar á úthaldi íslenzkra handknattleiksmanna nú á haustnóttum, þegar Evr- ópubikarkeppni, landsleik- ir og heimsmeistarakeppni standa fyrir dyrum. Lands- liðið féll í sömu gryfju og fyrri mótherjar sænsku meistaranna frá Hellas, höfðu örugga forystu, en misstu hana og máttu raun ar þakka fyrir jafnteflið að lokum. Reyndar áttu Hell- asmenn mun lakari leik í gærkvöldi en í fyrri leikj- um sínum, en það er önn- ur saga. Svíar skoruðu fyrsta markið úr víti, en eftir 21 mínútu leik haföi landsliðið yfir 3:1. Fimm mín. síð- ar var staðan á ljósatöflunni orð- in 5:2 fyrir landann og hálfleiks- staðan 6:3. Strax í upphafi seinni hálfleiks jöfnuðu Svíar með 3 mörkum í röð. Einar Magnússon skoraði 7:6 og heldur lagaöist útlitið aftur, því um miðjan seinni hálfleik var stað- an 11:8 fyrir landsliðið. En þá kom aftur 3 marka skorpa, 11:11 var þá staðan en Island hélt frum kvæðinu, það koma 12:12 og 13:13 og loks 14:13 eftir laglegan leik Geirs, en þegar 53 sek. voru eftir missa íslendingar boltann og Sví- arnir bruna fram og jafna 14:14. Þau urðu úrslit leiksins. Einar Magnússon var vel nýtt- ur í þessum leik. Það eru stórtíð- indi því eins og oft hefur verið bent á, hefur hann allt til að bera til að skora mörg mörk í hverjum leik, — en til þess þarf hann sér- staka menn til að leika á sig réttu stöðunni hverju sinni. Hann skoraði 5 mðrk, eða eins mörg og Geir. Ol afur Jónsson skoraði 2 og Vlðar og Björgvin sitt hvort. Áhorfendur voru márgir i gær- kvöldi og greinilegt er að áhuginn f ár ætlar að verða meö meira móti. En þá veröa landsliðsmenn, — og handknattleiksmenn yfirleitt, að koma til móts við þetta áhugasama fólk. Og það veröur gert með því móti einu að æfa betur en verið hefur. Þannig mun árangurinn koma, og fyrr ekki. FH sprakk eftir 45 mín. og Hellas silgdi framúr og sigrabi 21:17 — Metabsókn að leik FH og Hellas á laugardaginn — 2500 manns Björgvin Björgvinsson skorar fyrir landsliðið í leiknum í gær. FH hafði lítið að segja í Hellas með sína 6 sænsku landsliðsmenn á laugardag inn. Um 2500 manns höfðu mætt í Laugardalnum, það var engu líkara en að lands leikur ætti að fara fram, enda neru Þróttarar hönd- unum saman af ánægju, því heimsókninni var vel borgið fjárhagslega úr þessu. í stuttu máli var leiksagan sú, að FH og Hellas börðust hníf- jafnri baráttu og hafði FH öllu betur, því í hálfleik var staðan FH jákvæð um eitt mark. Seinni hálfleikurinn var öllu meiri sorgarsaga. Ragnar Jónsson hafði verið stjörnumaöur FH í fyrri Sjálsmark lokaði endanlega leið Kópavogs í 1. deildina Akureyri vann i spennandi leik með 3:2 i gær • Eftir frækilega baráttu verða hinir komungu Kópa- vogsmenn með eina 6 leik- menn úr 2. aldursflokki að iáta sér lynda 2. deildina aft- ur á næsta ári. Akureyri mun halda 1. deildarsætinu áfram en sannarlega urðu norðan- menn að taka á öllu sínu til að halda því. I gærdag var ástandið ekki meira en svo tryggt á heimaveiii Akureyr- inga, þar sem hundruð manna hvöttu lið sitt gegn ungling- unum úr Kópavogi. Á 43. mfn. hálfleiks munaði aðeins sentimetrum að Kópavog ur jafnaði og fengi framlengd- an leikinn. Tveir Kópavogsmenn sluppu inn fyrir, en skot Guð- mundar Þórðarsonar, eins bezta manns leiksins í gær, geigaði, og fór framhjá markinu. Þetta at- vik úr leiknum verður eflaust flestum minnisstæðast, því þarna fór von Kópavogsmanna, sem höfðu sótt markvörð sinn alla leið austur fyrir járntjaldið fræga. Kópavogsmenn voru mun frískari í fyrri hálfleik og eftir 3 mínútur voru þeir þúnir að skora sitt fyrra mark. Þór Hreiö arsson skoraði eftir varnar- rugling Akureyringa. Á 14. mfn- útu skora þeir enn, en þá var réttilega dæmd rangstaða. Á 26. mín. skorar Eyjólfur Ágústsson, bezti maður Akur- eyrar ásamt Skúla bróður sín- um, Sævar gaf boltann fyrir og Eyjólfur var ekki lengi að nota sér frið og ró sem gafst í nokkr- ar sekúndur. Á 30. mín. náði Kópavogur enn forystunni. Þetta var falleg- asta mark leiksins. Einar Þór- hallsson skoraði þarna glæsilega með skalla í bláhomið. Fyrstu mínútur seinni hálf- leiks gerðu aftur á móti út um þennan úrslitaleik. Á 3. mín. skorar Magnús Jónatansson af vítateig eftir homspymu. Mikið var deilt um þetta mark. Logi hafði stokkið upp og Eyjólfur sótt að honum. Allavega lenti boltinn í fingurgóma Loga og hrökk út á teiginn. Logi hélt þvf fram eftir leikinn að Eyjólf- ur hefði ólöglega unniö að sér í Ioftinu og þvf hefði hann ekki getað höndlað boltann. Á 7. mínútu var gert út um leikinn, — og það á örlagaþrung inn hátt. Kópavogsmenn settu nefnilega sjálfir markið, sem varð til þess að loka þeim end- anlega leiðina í 1. deild í ár. Fast skot Akureyringa að mark- inu lenti í Kópavogsmanni, bolt inn fór í boga upp í loftið og yfir Loga markvörð, sem var framarlega í markinu, 3:2 fyrir Akureyri. Tækifæri vom mörg f leikn- um, Akureyringar sóttu tvíveg- is það fast að Kópavogsmenn björguðu naumlega á línunni. Og i þrjú skipti komust Kópa- vogsmenn einir inn fyrir vöm Akureyrar, tvfvegis bjargaði Samúel með tímabæru úthlaupi, og f þriðja skiptið, 2 mín. fyrir leikslok, lenti boitinn örskammt utan hjá. Þar með var útilokað fyrir Kópavog að verða meðal 1. deild arliðanna að sinni, en eflaust sjá Kópavogsmenn fram á bjartari daga. hálfleik. Hann skoraði fimm sinn um úr 8 skotum, en öllu lakari varð nýtingin hjá Geir Hallsteinssyni að þessu sinni. Hellas sýndi í seinni hálfleik yf- irburði sfna, þeir höfðu kraftinn og úthaldið, sem þarf til að vinna leik, það hafði FH ekki. Greinilegt er að okkar lið eru ekki í góðri æf- ingu, enda þótt margir vilji láta menn halda að svo sé. Skammt und ar em stórir leikir f HM, — og á þeim vikum sem eftir eru, verðum við að ná upp því „fórmi“, sem þarf til að sigra í okkar riðli. FH komst í 5:2. Geir skoraði fyrst síöan Svíar tvívégis, þá Birgir og ■loks Ragnar þrjú í röð. í hálfleik var staðan 11:9 fyrir FH, og það var ekki fyrr en undir miðjan hálf leik að Svíar jafna 14:14 og eftir það reyndu FH-menn að hamla á móti, tókst að jafna 15:15, en misstu síðan algjörlega af mótherjunum sem komust í 20:15 og unnu 21:17. Hraðinn, þetta vopn FH, virtist al gjörlega úr sögunni upp úr miðj- um seinni hálfleik og margir leik- manna liösins virtust alls ekki hafa „púst“ nema í helming leiksins. — Kemur þetta nokkuö á óvart, því búið var að fræða fólk á því að æfingar yröu í allt sumar, og stefnt að því að menn kæmu til keppni meö haustinu f betri æfingu en dæmi væru til áður. Þetta er sem sé ékki raunin. Ragnar Jónson var langbeztur Hafnfirðinganna og Erickson hjá Svíunum. Grótta vann Hauka!, Úrslit í Reykjanesmótinu í hand knattleik um helgina: FH — Keflavík 50:18 Grótta — Haukar 24:23 Úrslit síðamefnda leiksins komu mjög á óvart, en Grótta var tvíveg is með 5 mörk yfir og var mikil harka í leiknum, og undir lokin léku Haukar maður gegn manni. íþróttir einnig á bls. 5 ,Sparkaðí4 eftir 10 ára gifturík störf • Eftir 10 ára starf í Hand knattleikssambandi íslands var Axel Sigurössyni, einum vinsæiasta stjómarmanni HSÍ og nokkurs konar „hægri hönd“ formannsins, Axels Einarssonar, hreinlega „spark að„ úr stjórninni án þess að nokkur gagnrýni hefði komið fram á störf hans. enda munu flestir á einu máli um gott starf hans fyrir sambandið á liðnum árum, en hann hefur gegnt mikilvægu starfi, verið blaðafulltrúi og annazt bréfa skriftir sambandsins, sem er ekki lítið starf. 1 stað Axels Sigurðssonar var kjörinn Hafnfirðingur, Gissur Kristjánsson, og er það auðvitað vonandi að hann fylli skarð Ax- els í stjórninni og vel það, sem er þó engan veginn vandalaust. Axel Einarsson, formaður HSl var fjarverandi frá ársþinginu, vegna veikinda, en skýrsla hans og stjórnar hans vitna um viðburðaríkt ár. Samskiptin við útlönd voru meiri en oftast áð- ur, — og þau leiddu einnig til þess að allverulegur halli varð á rekstrarreikningi sambandsins um 350 þús. krónur, en þrjár landsliösheimsóknir færöu aö- eins um 300 þús. krónur í aðra hönd. Alls léku landsliðin okkar 15 leiki á árinu við erlend lands liö, þar af 8 A-landsleiki, 6 heima og 2 erlendis. Unglinga- liðin léku 7 leiki, alla utanlands. Stjórn HSÍ var öll endurkjör- in, utan Axel Sigurðsson. Varð talsverður úlfaþytur vegna þessa á þinginu, en framboð Gissurar var borið uppi af Ak- urriesingum, og stutt af mörg- um Reykjavíkurfélögunum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.