Vísir - 06.10.1969, Page 9
V1SIR . Mánudagur 6. október 1969.
Vísismenn ræða við Garðhreppinga um bensínstöðina:
Eldhætta og ankinn umferðarþys
0 GARÐHREPPINGAR heyja baráttu þessa dagana og vonast eftir
sigri. Olíu- og bensínstöð í hverfinu hefur vakið reiði þeirra og
mótmæli. Eins hefur sveitarstjóri þeirra tekið málaleitan þeirra vel og
forstjóri fyrirtækisins, sem þarna á í hlut, hefur sagt, að þama hafi að-
eins verið um þjónustu að ræða. Vísir ræddi við íbúana í nokkrum nær-
liggjandi húsum og spurði:
ARNI JOHANNSSON,
kennari v/ð
Vélskóla Islands
„Vegna umferðarinnar, sem
mun aukast gífurlega við þetta.
Þetta mun einnig skapa aukna
slysahættu, auk þess mun fylgja
þessu argasti sóðaskapur, sem
fylgja mun smurstöð og þvotta-
p1ani.“
JOHANNA
KRISTJÁNSDÓTTIR,
húsmóðir
„Vegna mikillar eldhættu.
Mér finnst líka nóg að hafa
eina sjoppu hér í nágrenninu, þó
að önnur bætist ekki við. Ég
hlakka ekkert til að vita böm
in hangandi þama kannski
fram eftir öllum kvöldum. Ég
tel einnig að verðgildi húsanna
minnki vemlega, þar sem hér
verður ekki jafn eftirsóknarvert
að búa og áður.“
Ekki von á nýju Bjargi
— en þörfin fyrir hendi
• „Þessi mál eru auðvitað
alltaf til umræðu og at-
hugunar hjá okkur,“ sagði
Björn Björnsson, prófessor og
framkvæmdastj. barnavemd-
arnefndar í viðtali við blaðið.
„En að komið verði upp
stúlknaheimili með svipuðu
fyrirkomulagi og Bjargi hefur
ekki komið til tals. Að sjálf-
sögðu lokum við ekki augum
okkar fyrir því, að Bjarg, sem
stúlknaheimili, var stofnað
vegna þess að brýn nauðsyn
var á slíku heimili, og sú
nauðsyn, sem þá var fyrir
hendi er því miður enn á sín-
um stað.“
Það er bara meö þetta vanda-
mál, sem og önnur þjóðfélags
legs efnis að hér vantar sér-
menntað fólk til aðstoðar við
ungar stúlkur á glapstigum, sem
og aðra einstaklinga þjóðfélags
ins. sem ei hafa ratað lífsveg
inn þrönga. enda eru samskipti
einstaklingsins orðin það flókið
fyrirbrigði í nútímaþjóðfélagi,
að engin vanþörf er á faglegri
aðstoð sérmenntaðs félagsráð-
gjafa á því sviði.
Hér er það einmitt hlutverk fé-
lagsráðgjafa að grípa inn í, því
segja má, að hlutverk þeirra sé
x raun og veru þríþætt: Aðstoö
við einstaklinginn, bæði persónu
leg og félagsleg, f öðru lagi
hópmeðferð og í þriðja lagi
að starfa að skipulagningu
og samræmingu þeirrar fé-
lagslegu aðstoðar sem þjóðfé-
lagið hefur upp á að bjóða og að
sjálfsögðu að benda á nýjar leið-
ir til úrbóta.
Félagsráðgjöf er tiltölulega
ný starfsgrein á íslandi og enn
sem komið er aðeins 10 konur
fullnuma í þessari grein. Hingað
til hafa eingöngu konur sótt eft
ir starfi þessu, líklega vegna
launakjaranna. Hefur verið horf
ið til þess ráðs, að hafa svo-
kallaða „tilsjónarmenn", sem
eru þá sem nokkurs konar vin-
ir og félagar utanveltufólks í
þjóðfélaginu, eru því til trausts
og halds á ýmsa lund. „Tilsjón
armenn” þessir hafa enga sér-
menntun, en starfa í samráði
við Félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar og sérmenntað
starfsfólk hennar.
Hins vegar hefur komið fram
frá okkur ákveðin tillaga um,
að nauðsynlegt virðist að koma
upp nokkurs konar mæðraheim-
ili. Könnun, sem framkvæmd
var í vetur á Heilsuvemdarstöð'
inni á félagslegri aðstöðu, ungra
ógiftra mæðra sýndi, að meiri
hluti þeirra eru mjög ungar
stúlkur, sem eru í erfiðri félags
legri aöstöðu, lítt sem ekkert
menntaðar og frá fátækum
heimilum. Oft eiga þessar stúlk-
ur eiginlega hvergi skjól né að
stoð að finna. Einnig höfum við
haft lengi til umræðu og at-
hugunar eins og til dæmis kyn-
lífsfræðslu í skólum og höfum
við góða von um, að úr þeim
málum rætist bráðlega, þar sem
undirtektir allra sem að málinu
standa hafa verið mjög góðar,
enda varla verjandi lengur fyrir
þjóðfélagið að sjá ungu fólki
ekki fyrir nokkurri einustu
fræðslu um mikilvægustu starf
semi mannslíkamans. Má eigin
lega segja, að hér sé komið að
kjama orsakanna í öllum þeim
glundroða, sem hér ríkir í sam
bandi við lausaleiksböm og
ungu ógiftu mæðumar, sem sé
hinum mjög sláandi skorti á
fræðslu í skólum um þessi mál.
HALLDORA
JÓHANNSDÓTTIR,
húsmóðir
„Einkum vegna barnanna. —
Hér mun skapast mikil slysa-
hætta vegna aukinnar umferðar
sem af þessu leiðir. En hingað
til hafa böm héma verið frjáls,
sem í sveit væru.“
Hvers
vegna viltu
ekki hafa
bensín- .
stöðina
barna ?
BRAGI NÍELSSON, læknir
„Ég vil bara leggja fyrir ykk
ur eina spumingu á móti: —
Hversu langt vilduð þaö hafa
frá svefnherbergisglugganum
yfir í næstu sjoppu? Það skapar
vissa eldhættu að hafa bensín-
stöð á næstu grösum við íbúða-
hverfi ásamt pappaverksmiðju.
Þetta skemmir fegurð heildar-
skipulags hverfisins, sem ég tel
afar fallegt. Hér múh 'ivo' éf-
laust rísa sjoppa og henni
mun þá væntanlega fylgja hópur
ungs fólks, sem gjarnan mun
dvelja þar fram eftir síökvöld-
um með tilheyrandi hávaöa og
tilburöum, sem er jú eðlilegt
er það ekki, unglingar eru og
verða ætfð unglingar, og þeim
fylgir þróttur og fjör, en því
fylgir svo aftur óhjákvæmilega
hávaði.“
JOHANNA ÞORBJÖRNSDÓTTIR, húsmóðir
„Ég vil nú bara fyrst taka það
fram, að ég er alveg miður mín
að hafa ekki komizt til að vera
viðstödd mótmælaaögerðirar, en
ég er nýbúin að gangast undir
fótaaðgerð og má ekkert reyna
á mig, helzt hefði ég samt viljað
láta flytja mig niður eftir í
sjúkrabíl. Ég er búin að búa
hér f 7 ár og hér hefur verið
svo friðsælt og dásamlegt. Ég
á fjögur böm, en ég hef getað
látið þau leika sér héma úti og
aldrei þurft að óttast um þau.
Sá draumur yrði búinn með þess
um aögeröum, þar sem slysa-
hætta mundi aukast gífurlega
vegna mikillar umferðar. Hér
mundi koma sjoppa, sem bömin
mundu hanga í á kvöldin. —
Hávaði og ófriður mundi fylgja
þessu fyrir fbúa hverfisins. Hér
kemur þvottaplan, og ég tel
vatnsveituna sízt of góða hérna
í Silfurtúninu, þó að við færum
ekki að missa vatn líka í þvotta
plan.“
’lit
?ík;
rr
BJARG — stúlknaheimilið umdeilda. — Þörfin fyrir slíkt
heimili er enn fyrir hendi, — en þjálfaða starfskrafta vantar.
^jaawa-TaCTewats:.!
wma• **
JvO ,