Vísir


Vísir - 07.11.1969, Qupperneq 13

Vísir - 07.11.1969, Qupperneq 13
V1 S IR . Föstudagur 7. nóvember 1969. !■■■■■■! .'■-■-.".V.-.v.-.-.-.-.-.-.v „MikM skortur sjúkrarúma og endurhæfingarstöðva" Geðverndarfélag Islands 20 ára • Það háir mjög allri starf- semi Geðverndarfélagsins, hve geigvænlegur skortur er á sjúkrarúmum og endurhæf- ingarstöðvum fyrir geðræna sjúkdóma, sagði Tómas Telga son, dr. med., sem er ritari félagsins, í viðtali við Vísi á Reykjalundi, en félagið hefur reist þar 3 vistmahnahús sem tekin voru í notkun í ágúst s.l. Er bygging þessara húsa einn liðurinn í samstarfi SÍBS og Geðverndarfélags- ins. Húsin eru um 75 fermetr ar að flatarmáli og ætluð Frá Reykjalundi, þar sem Geðverndarfélagið hefur reist myndarleg hús fyrir endurhæfingarstarfiö. i ■■■■■■■ I I I ■■■■■■■ l f jórum vistmönnum hvert um sig. Beinn peningakostnaður fé- lagsins viö húsin þrjú var 4,8 milljónir, naut félagið einstakr ar velvildar í sambandi við bygg ingu þeirra. „Meðal annars feng um við lánað mótatimbur og fjöimargar gjafir bárust einnig“, sagði Tómas. „Ætlunin er að byggja fjórða húsið, en það hef ur bara ekkert verið ákveðið um hvernig það eigi að vera. Ætlun in er hins vegar að byggja nýja álmu fyrir u.þ.b. tuttugu vistm. að Reykjalundi. Þessari sam- vinnu er þannig háttað, að Geð verndarfélagið byggir, en Reykjalundur sér um rekstur“. Stjórn Geðverndarfélagsins og Oddur Ólafsson, létu í Ijós á- '.V.V,W.W/W.VrfWWbW nægju með samstarfið, en Oddur hefur á Reykjalundi, hvers hlut verk nú orðið er endurhæfing, hvers kyns sjúklinga, haft náin kynni af fólki með geðræn vanda mál, þar eð langvinnir sjúkdóm ar valda oft röskun á geöheil- brigði sjúklingsins. Þrátt fyrir að þörfin í þessum málum sé mikil í þjóðfélaginu er athyglisvert, hve miklura mun minna hefur ráðstafazt til þessa þáttar heilbrigðismála, af hálfu hins opinbera, en til líkamlegra sjúkdóma og líkamsræktar. Til dæmis eru daggjöld á Kleppsspítalanum 650 krónur en 1800 á Landspítalanum og Borg arspítalanum og á Reykjalundi eru þau aðeins 500 krónur, en mættu helzt ekki að vera lægri en 1000 krónur, að því er Oddur Ólafsson yfirlæknir tjáði blaöa- manni Vísis. Væri hægt að nýta starfsemi stofnananna miklu betur, ef dag gjöld hækkuðu, þar sem að þá reyndist unnt að bæta við starfs kröftum, og á allan hátt að bæta þjónustuna frá því sem nú væri. En daggjöldin eru ákveöin sam kvæmt rekstrarreikningi og okk ur fyrirlagt að spara, þannig að við erum bundnir í báða skó, sagði Tómas Helgason, að lok- Mkfcl&lGoúi FJÖREGG ÖKUMANNSINS SVERRIR Þ0R0DDSS0N & CO Tryggvagötu 10 Rvík — sími 23290 Hver maður hefur sín sérstöku aðferð til a koma bílnum sínum gang, en stundum nægi jafnvel sú aðferð ekki. Við viljum benda á ein aðferð, sem verkar. Bætt STP í olíuna. Sumir stíga sjö sinnur á bensínið og vona þa bezta, aðrir rífa sig upp ú rúminu klukkan tvö a nóttu, til að setja í gan smástund, sumir telja up; að tuttugu á milli þes; sem þeir reyna aö start og aðrir banka í tré og segja sjö níu þrettán áö- ur en þeir fara út á morgn ana. En jafnvel þetta get- ur brugöizt. Það er þannig með olí- una, að hún rennur niður af vélinni, niður í pönn- una, þar sem hún svo stirðnar í kulda. Þegar þú svo snýrð lykl inum er ekki alltaf næg smurning á mikilvægustu vélarhlutum, til að vélin snúist léttilega. Og þvl meira sem þú reynir, því meira ofreynir þú geyminn. STP aftur. á móti situr kyrrt á slitflötum vélarinn ar, hvað lengi sem hún stendur og hvað mikill sem kuldinn verður. Þann- ig hefur vélin þá smurn- ingu, sem hún þarf, strax Þess vegna er STP aö- frá byrjun. ferðin stöðugt að breiðast út. Hún verkar nefnilega. Kaupið STP á næstu bensínstöð og bætiö á vél ina eða látið bæta STP í olíuna, þegar bíllinn er smurðui* næst. Klám-messa í Kaupinhavn JFurðuleg. kláni-messa eða klámsýning hefur staðið yfir í Kaupmannahöfn, og yirölst ár- angur aöstandenda sýningarinn- ar hafa verið með afbrigðum góður, því slíkur fjörkippur hljóp í sölu klámrita og sam- farakvikmynda, að útflutningur Dana á þessu sviði er farinn fram úr smjörinu, að upphæð til. Þó hafa Danir verið taldir frægir fyrir sinn smjörútflutn- ing, þó sú frægð verði nú að þoka mjög fyrir annarri frægð i útflutningi. Það eru aðallega kaupmenn og „áhuga“-menn frá löndum eins og Þýzkalandi sem eru aðal viðskiptavinir Dana í þessari ný blómguðu atvinnugrein. En það eru ströng boð og bönn þar í landi vegna meðferðar og dreif ingar á klámi. Hin dönsku klám rit.og filmur eru þvi orðin eins konar eftirsóttur smyglvarning- ur. Slíkar fréttir af athafnasemi frænda okkar Dana, á sviði út flutnings, verka nánast furðu- Iega á mann. Manni verður á að hugsa til þess ef slíkt og þvílíkt mundi gerast með okkar þjóð. Klámmessa í Reykjavík og hótel yfirfull vegna erlendra kaupahéðna, sem vildu kaupa klámmyndir og klámblöð í tvö falt stærra upplagi en Morg- unblaðið. Nýtt guliæði rynni á landslýðinn, sem ekki ættl sér hliðstæðu, síðan síldin hætti að veiðast við Austurland. Mynd- um við taka slíku ástandi með jafnaðargeði, þó um væri aö ræða útflutningsgrein, sem myndi jafnast á við þorskflaka- útflutning til Bandaríkjanna að upnhæðinni til? Myndi ekki mörgum finnast íslenzkt stolt og menningarleg erfð hafa beð ið nokkum hnekki. Ég held, að það hljóti að vera. En hvað með hróður Dana í þessum efnum? Eða verður að- eins litið á þennan menningar- lega skerf Dana sem skemmti- lega tilbreytingu í siöferði- legri lognmollu nútúnans? Mörg um finnst sem eins konar sam keppni hafi upprisið milli Svía og Dana og vilji þeir ganga hvor fram af öðrum á siðferðis- sviðinu. Þó hömlur séu afleitar og æskilegast sé að létta af sem flestum hömlum en í þess stað að rækta með hverri þjóð sem bezta eiginleika, ekki sízt á hinu siðferðalega sviði, eru takmörk fyrir því hvort leyfa á að rækta bókstaflega hið sið- spillandi í fari þjóðar. Nú hefur verið gengið svo langt í þessu efni, að iafnvel er ýtt undir af- brigðilegar tilfinningar í fari fólks, en slíkt hlýtur að grafa undan heilbrigðu hugarfari. Það var á tímabili mikið um það rætt að það væri þjóðar- skömm að því, að hérlendis fæddist fjórða hvert barn utan hjónabands, en margt þeirra barna fæddist á meðan ungt fólk var ekki gift, þó það síð- ar gengi i hjónaband. í þessu tilviki átti skattalöggjöfin nokkra sök í máli. Margir þeir sem siðastrangir voru, töldu þetta mikinn blett á þjóð- inni. Mér er sem ég heyri tón- inn f öllu því fólki, ef nokkuð likt og það sem nú ríöur yfir Danmörku, ætti eftir að dynja yfir okkur líér uppi á fslandi. Margir sem Iesa og heyra um klámmessur i Kaupmannahöfn, munu segja sem svo, hvað kem ur okkur við, hvað þeir gera þarna úti? En málið er ekki svo einfalt, því Danir eru sú þjóð, sem við höfum einna mest sam- neyti við, svo að óbreytt ástand þar mun óhjákvæmilega sna*- breyta okkar viðhorfi á næstu tveimur árum, eða jafnvel mik- ið fyrr. Þrándur i Götu. Bezt oð auglýsa í VÍSI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.