Vísir - 08.01.1970, Page 1
RÚÐUBRJÓTARNIR TEKNIR
Hafnfirðingar anda nú léttara
siðan lögrf an hafði hendur í hári
manna, er valdir voru aö tíðum
rúðubrotum i íbúðarhúsum og fyr
irtækjum þar, í kringum hátíðam-
ar.
Kvað all rammt að þessum rúðu-
brotum á tímabili og margar nætur
í röð voru brotnar rúður, sumar
allstórar og verðmætar, ýmist í
<é>--------------------------------
ibúðarhúsum, eða hjá fyrirtækjum
og stofnunum, eins og hjá skatt-
stjóra. Lógreglunni var tilkynnt
um rúöubrot á einum 9 stöðum í
bænum og þrisvar sinnum var rúða
brotin hjá skattstjóranum.
Grunur féll á nokkra menn, sem
tíöum voru á ferli að næturlagi,
og hafa þeir nú játað á sig þessa
rúðuskaða. Tveir menn höfðu þann
háttinn á, að annar ók bifreið um
bæinn, en nam staöar við eitt-
hvert húsið, meðan félagi hans
kastaöi ölflösku i stofuglugga, og
endurtóku þeir þetta nokkrar næt-
ur. Aðrir tveir menn voru hins
vegar valdir að rúðubrotum í fyrir
tækjum, og var þar um allstórar
rúður að ræða fjsumum tilvikum,
en þeir beittu fyrir sig grjóti.
B Boðfeldi í 27
stiga HBTA!
Ungur Islendingur var staddur
í Ameriku í sumarleyfi sínu.
Hann var fenginn til aö gerast
ljósmyndafyrirsæta um borð í
risaþotu, — klæddist loöfeldi
enda þótt 27 stiga hiti væri og
eignaðist „hlýlegar" endurminn-
ingar frá Ameríku. Myndimar
af honum birtust nýlega í ame-
ríska tízkublaðinu VOGUE.
Sjá bls. 9.
Hvað er Biippíi?
Eftir morðið á kvikmyndaleik-
konunni Sharon Tate hefur álit
almennings á hippíunum minnk-
að mjög og jafnvel hafa þeir
orðið fyrir miklu aðkasti. En var
Charles Manson og klíka hans
hippíar? Hvað er sannur hippíi?
heitir grein í blaðinu í dag. Þar
er sagt frá þessu þjóðfélagsfyrir-
bæri.
Sjá bls. 8.
Korríorríó...
Fréttamaður Vísis var staddur
í Háskólabíói f fyrrakvöld, en
þar var huldufólki, draugum,
jólasveinum og fleiru slíku fólki
helguð kvöldstund með þjóölaga-
söng, lestri draugasagna og
huldufólkssagna. — Frá þessu
segir nánar í blaöinu f dag.
Sjá bls. 13.
Kaldasta nótt vetraríns
— Frostið upp i 21 stig á Akureyri
□ Þá höfum við lifað
köldustu nótt vetrar-
ins (til þessa), en í morgun
var heimskautaveður á
Norðurlandi með allt upp
í 23 stiga frosti í byggð.
Mest var það á Grímsstöð-
Sakaður
um mök
við
kindur
Sýslumannsembættið í Hafn-
arfirði hefur til meðferðar furðu-
legt mál, þar sem grunur hefur
fallið á mann nokkum um að
hafa haft kynmök við sauðkind
í kindakofa suður í Njarðvíkum.
Uppvíst varð um þetta atferli
mannsins, þegar hann hafði tek-
ið sér ferð á hendur með leigubíl
út fyrir þéttbýlið, en slepptj síð-
an leigubílnum fjarri öllum
mannabyggðum, hílstjóranum til
mikillar furðu. Vakti hann at-
hygli lögreglunnar á ferðum
mannsins. þar eð hann óttaöist
að maðurinn hefði í huga
kannski að fyrirfara sér.
Þegar svipazt var um eftir
manninum, var komið aö honum
í kindakofa og aðstæður allar
vöktu grun manna um, að mað-
urinn hefði þar svalað sér á
einni kindinni,. sem var særð.
Var málið fengið sýslumanni til
meðferðar, sem síðan hefur haft
manninn til yfirheyrslu og rann-
sóknar.
um á Fjöllum, en 22 stig
voru á Staðarhóli og Ak-
ureyringar máttu dúða sig
rækilega í morgun því þar
komst frostið upp í 21 stig.
Þrátt fyrir þennan mikla kulda
hefur ekkert orðið vart við hafís
enn þá, en veður hefur að vísu
ekki verið gott til ísathugana. 1
morgun snjóaði til dæmis á svæð-
inu frá Siglunesi og austur að
Langanesi, en annars staðar á land
inu var bjartviðri.
Þetta er jafnmesta kuldakast
sem komið hefur í vetur. Frostið
var yfirleitt um 15 stig vestan-
lands og norðan og þó öllu meira
víða nyrðra, en minnst frost var í
Vestnv’-maeyjum, 5 stig. Sjóinn
leggur nú langt út eftir fjörðum
nyrðra, svo manngengt verður yf-
ir dýpstu ála.
Ekki bætti það úr skák fyrir
Vesturbæingum f kuldanum í gær
að hitaveitan fór að mestu af
nokkrum húsum í kringum HoltS-
götu og sátu íbúar þar skjálfandi
á beinunum næturlangt, vafðir voð-
um og teppum og yljandi sér á
rafmagnsofnum, en stífla kom í
endaleiðsluna þarna, eins og oft
vill verða þar sem allur skíturinn
safnast saman í endaleiðslunni. Til
þess að gera við þetta þarf að
taka hitaveituna af nokkuð mörg-
um húsum og biður hitaveitan þess
að frostinu linni. — En því miður
spá veöurfræðingar bægfara breyt
ingum á næstunni.
I 6 ára drengur
shsast illa
Sex ára gamall drengur slasað-. ætlaði yfir götuna, en varð þá fyr-
ist alvarlega, þegar hann varð fyrir ir bifreið, sem ók þar hjá i sömu
bifreið á Bústaöavegi, austan andránni. Auk opins fótbrots hlaut
Grensásvegar, klukkan rúmlega drengurinn áverka á höfði og fleiri
; þrjú í gærdag. Drengurinn hafði I meiðsli.
hlaupið aftur fyrir strætlsvagn og
Þrefölduðu kaupið
sitt emn
mu
— Góður hagnaður af bónuskerfi við fiskpókkun hjá h.f. Keflavik
Við getum rciknað með að kom-
ast í svona 600 króna bónus í
dag, en við höfuin mest komizt
upp í 900 kr. bónus á einum
degi frá morgni til klukkan sex,
sagði Gunnþórunn Gunnarsdótt
ir, sem á sennilega pökkunar-
met í Keflavík og þótt víðar
væri leitað, en Vísir hitti hana
að máli í frystihúsi H.f. Kefla-
víkur í gær, þar sem unnið var
fram á kvöld í fiskvinnslu.
Hjá H.f. Keflavík hefur um
alllangt skeið verið unnið við
hreinsun og pökkun á fiski sam-
kvæmt bónuskerfi. Konurnar
eru tvær við hvert borð og
hverja vigt, önnur hreinsar fisk-
inn, hin vigtar og pakkar. —
Félagi Gunnþórunnar er
Helga Egilsdóttir, en þær hafa
sem sagt komizt nálægt því að
þrefalda tímakaupiö sitt meö
því að vinna sér inn 900 krónur
í bónus yfir daginn, en slíkt
mun æði fágætt og raunar eins-
dæmi. Yfirleitt komast konurn-
ar mest í 5—700 króna bónus,
þegar bezt lætur og fiskurinn
er stór og góður.
Kristinn Pétursson, verkstjóri
hjá H.f. Keflavík, sagði, að þetta
bónuskerfi heföi gefizt mjög
vel. Mun auðveldara væri að fá
duglegt fólk til starfa með þessu
móti og afköstin yrðu allt önn-
ur en í venjulegri tímavinnu.
Þeir sem vinna í pökkunarsaln-
um við ýmiss konar tilfærslu á
fiskinum að og frá fá einnig
Gunnþórunn Gunnarsdóttir
hefur hraðar hendur við pökk
unina, en hennar borð á met-
ið í pökkuninni í hraðfrysti-
húsinu H.f. Keflavík og sjálf-
sagt víðar, en þar var mynd-
in tekin í gær.
bónus, sem er meðaltal af bón-
us pökkunarstúlknanna.
Um fimmtíu manns unnu í
hraðfrystihúsinu í gær, en ó-
venjumikill afli kom á land mið-
að við þennan tíma. Meðal ann-
ars fékk einn bátanna, sem
landar hjá frystihúsinu, Manni,
12,9 lestir, sem þykir afbragðs
afli svona í byrjun vertíðar.