Vísir - 08.01.1970, Page 3
VlSIR . Fimmtudagur 8. janúar 1970.
3
Hópferð
byggingamanna
• Sunna ráðgerir að fara með
hóp byggingatæknimanna á sýn
ingn í Hannover 22. janúar. Er
alþjóðleg sýning haldin í borg
inni Constructa og er sú sýning
haldin á 3ja ára fresti. Farar-
stjóri og leiösögumaður verður
Leifur Blumenstein, bygginga-
fræðingur. Sýning þessi mun
vera hin stærsta sinnar tegund
ar os koma fjölmargar tækni
nýjungar fram á hverri sýningu.
Verð feröarinnar er 26.360 krón
ur og tekur hún 11 daga.
Fí flytur í Glasgow
• Fjölmargir íslendingar kann
ast viö númer 33 á torgi heilags =
Enoks í Glasgow, ekki sfzt frá
þeim tfmum, þegar Islendingar
fjöJmenntu til Skotlands og Eng
lands f innkaupaferðir. Þá var
þessi afgreiðsla Flugfélagsins
mikill griðastaður í búöarápinu.
Nú hefur Flugfélagið lagt niður
skrifstofu á þessum stað og
flutt f staðinn að Queens Street
94. Þarna eru bjartar og rúmgóö
ar söluskrifstofur að sögn Flug
félagsmanna og skrifstofan rétt
steinsnar frá verzlunargötunum
Buchanan Street og Argyle
Street. í kjallara er salur, sem
nota má til kvikmyndasýninga
og fyrirlestrahalds.
Iðnfyrirtæki til sölu
Lítil prjónastofa, með góöum vélakosti, leiguhúsnæði
getur fylgt. Til greina kemur aö selja að hluta. — Til-
boð merkt „H-IS” sendist augld. Vísis fyrir föstu-
dagskvöld.
lengu ööru happdrætti héríendis eru
jafnmiklar líkur á aö f á vinning á
miðannsinn Meira en fjórði hver
miöi hlýtur vinning
Ungu folki eru flestar leiðir færar ef það ereinbeitt og djarft, en oft verður
það að leggja í nokkra áhættu til þess að komast áfram. -Margt er meiri
áhætta en að kaupa miða í happdrætti SÍBS.
Ðunar d vegum
er draumabilt þýtur.
Öryggis, þreginda
chillinn nýtur.
JAGUAR um malbik, sem
mölina liöur
mjukur og þýöur
JAGUAR XJ6 er aukavinningur í
SÍBS 1970.
happdrætti
% ? |
Aukadagur í júní!
Þessa dagana berst blöðunutn
talsvert af dagatölum fyrirtækja
vasabókum og ööru, sem búast
má vfð að auðveldi mönnum
störfin á komandi ári, 1970.
Offsetprent hefur t.d. senít á
markaðlnn myndarlegar bækur,
Dagbók viðskiptanna og Alman
aksbókina 1970 i vasabroti en sú
fyrrnefnda er í stærra broti. —
Góðar upplýsingar um hvaðeina
er að fá í bókum þessum, en
einn galla rákumst við á í vasa-
bókinni og teljum skyldu okkar
að benda væntanlegum eigend-
um á.
Dagatal er fyrir árin 1969,
1970 og 71. í júnímánuði 1971
hefur læðzt inn aukadagur, sá
31. en það ruglar um einn dag
þeim sex mánuðum, sem eftir
fara.
Bætt þjónusta
í Brciðholti
• Breiöhyltingar fögnuöu
nýrri og stóibættri þjónustu
rétt fyrir jól en bá opnaði ný
kjöibúö dyr sínar fyrir viö-
sidptavinum, en þeir eru orðnir
fjötaargír og á eftir að fjölga
mjög á næstunni. Það er Jón B.
Þórðarson, kairpmaöur Heima-
kjörs, sem hefur verziaö
þar í bráðabirgðahúsnæ® fil
Ferðalögin í sumar
• Enn er alllangt til sumars,
þykir víst flestum, en engu að
síður undirbúa sumir aöilar sig
af kappi fyrir sumarið. Meðal
þeirra er Ferðafélag íslands,
sem hefur nú sent frá sér
skrána yfir sumarleyfis og
skemmtiferöir félagsins. Alls
eru áætlaðar 148 ferðir á vegum
félagsins þær lengstu standa í
14 daga, en m^rgar aðeins einn
dag. Feröafélagið á nú 13 sælu
hús víða um land, þar af eru
3 séreign Feröafélags Akureyr
ar. Alls rúma skálar þessir allt
aö 650 manna og eru þetta lík-
lega ódýrustu hótelin, — gist-
ing kostar 40 kr. fyrir félaga,
60 fyrir utanféiagsmenn. Skrá
yfir ferðimar fæst afhent hjá
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Árásarmenn náðust
• Eins og skýrt var frá í frétt
wn Vfsis í fyrsta blaði þessa árs.
varð maður nokkur fyrir árás
við Laugaveg 3 á nýársnótt —
Rannsóknarlögreglan hafði
hendur I hári árásarmannanna.
Þeir voru 17 og 23 ára og hafa
viðurkennt árásina og að hafa
rænt gullúri, kveikjara og veski
frá manninum. Mesta mildi er
að maðurinn skyldi ekki hljóta
verra af, því hann iá meirihluta
nætur í kuldanum í húsaporti
Happdrættin hafa nðg á sinni könnu þessa dagana, einkum Happdrætti Háskólans og Happ-
drætti SÍBS, sem eru að hefja ný happdrættisár, bæði með fleiri miðum, fleiri og stærri
vinningum en áður. Þessi mynd var tekin í aðalumboði SÍBS, þegar viðskiptavinir happdrætt-
isins komu til aö endumýja fyrir dráttinn í desember.
Ekki hika