Vísir - 08.01.1970, Síða 7
V í SIR . Fimmtudagur 8. janúar 197®.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
TVö vitni segja að Mary
Jo hefði getað lifað
ef Kennedy hefdi tilkynnt slysið strax
Loft var i farangursgeymslu og liklega iika i
bilnum, segja Farrar og Ahlbom. — „Ég verð
hreinbveginn", segir Kennedy
Viö réttarhöldin í Kenn-
edymálinu hefur kafarinn
John Farrar haldið fast við
fyrri framburð sinn, að
Mary Jo Kopechne kynni
að hafa lifað, ef Kennedy
hefði tilkynnt slysið þegar
í stað. Fékk hann stuðning
við þessa staðhæfingu frá
þeim manni, sem dró
svörtu Oldsmobilebifreið-
ina úr vatninu næsta dag,
hinum 25 ára John Ahl-
bom, sem rekur litla bens-
ínstöð í Edgartown.
Ahlbom segir í viðtali við blaöiö
■ New York Post, að farangurs-
Báaframenn tcskn
þrjú þorp
• í hörðum bardögum í Bíafra
hafa hersveitir Bíafrastjórnar náð
aftur þremur þorpum, sem Nígeriu-
' menn höfðu áður tekið. Þorpin eru
skammt suðvestur af borginni
’ Owerri.
geymslS bifreiðarinnar hafi verið
rök þegar biliinn var dreginn upp,
en hins vegar hafi verið þar lítið
vatn. Segir hann þetta styðja stað-
hæfingu Farrars, að myndazt hafi
loftrúm í bílnum, sem hefði getað
gert Mary Jo það kieift að halda
lífi í nokkurn tíma, eftir að bif-
reiöin sökk.
Billinn lenti á þakinu, og lá lík
stúlkunnar þannig í aftursætinu,
þegar hún fannst, að höfuðið sneri
að farangursgeymslunni. Skilin
milli aftursætisins og farangurs-
gevmslunnar eru hvorki vatnsþétt
eða loftþétt. Báðir telja þeir Farr-
ar og Ahlbom, að sennilega hafi
verið loft í bílnum, úr því að loft
var enn í farangursgeymslunni.
Tilgangur réttarhaidanna er að
komast að raun um, hvort um hafi
veriö að ræöa glæpsamlega van-
rækslu af hálfu Kennedys. Reynist
svo, kemur til greina, að mál verði
höfðað gegn Edward Kennedy.
Kennedy hefur áður skýrt svo
frá, að hann hafi beðið tvo vini sína
að aðstoða sig við að kafa eftir
ungfrú Kopechne. Þegar þeir fundu
hana ekki, sneru þeir aftur til
sumarbústaöarins, og Kennedy
synti yfir sundið til meginlandsins.
Vinimir segja, að þeir hafi ekki
tilkynnt lögreglunni slysið, af því
að Kennedy hefði sjálfur sagzt ætla
að gera það. Það var ekki fvrr en
daginn eftir, að þeir komust að
raun um, að Kennedy hafði alls
REYNT AÐ
MYRÐA DAYAN
• ísraelsmenn hafa handtekið sex
Araba í Tel Aviv og ákært þá
, fvrir að hafa skipulagt morð á
Moshe Dayan, varnarmálaráð-
herra. — Hugðust Arabarnir
sprengja í loft upp veitingastofu
þar sem Dayan kemur oft.
Þrír Arabanna eru frá ísrael, en
hinir frá Gazasvæðinu, sem ísra
elsmenn hertóku í júnístríöinu.
Hatur Arabanna á Gyðingum óx
mjög við þaö kænskubragð, er
ísraelsmenn sigldu fimm fallbyssu
bátum frá Frakklandi til heima-
lands síns. Auk þess stálu þeir
heilli sovézkri stöð íyrir framan
nefið á Egyptum. Moshe Dayan er
í augum Araba tákn hinnar hörðu
stefnu. — Hér sjást þrir bátanna
frægu.
ekki tilkynnt slysið fyrr en tíu iw
klukkustundum seinna.
Búizt er við, að rannsókn þessari
ljúki í dag eða á morgun. Hins veg-
ar skal, samkvæmt úrskurði frá
hæstarétti Massachusettsfylkis,
ekki skýra frá neinum niðurstöð-
um, fyrr en útséð er, hvort til frek-
ari réttarrannsóknar komi og mál
verði höfðað eða ekki. Geta því lið-
ið vikur ef ekki mánuöir, segja
fréttamenn, áður en það verði gert.
Kennedy sagði í gær, að bezt væri
að vitnisburðir yrðu birtir strax og
unnt væri, heizt innan fárra daga.
„Ég reikna með því að verða al-
gerlega hreinþveginn, þegar fram-
burður vitna veröur birtur, og ég
hef fengið tækifæri til að svara öll-
um spurningum," segir Kennedy.
Þar sem ekki er jafnóðum skýrt
frá framburði vitna við þessi rétt-
arhöld, reyna fréttamenn að ná
tali af sérhverju vitni og fá það til
að skýra frá framburði sínum,
beint eða óbeint. Síðan verða frétta
menn að vinna úr þessum gögn-
um til að skapa sér heildarmynd af
gangi málanna.
Kennedy í erfiöri brekku, ,
Kennedy glímir nú við erfiða raun, þar sem eru réttarhöldin í í
Kopechnemálinu. Fréttamenn segja þó, að hann hafi verið með '
glaðasta bragði síðustu dagana. Um áramótin bjó Kennedy sig '
undir þolraunir ársins með þvi að renna sér á skíðum í fjöllum 1
Kolombíufylkis.
60 af hundraði svertingja-
barna í Bandaríkjunum enn í
aðskildum skólum
UM þrír fimmtu af börnum svert- . þáttanna er mestur í Suðurríkjun-
ingja f Bandaríkjunum eru enn í um, þar sem tæpur helmingur
skólum, sem ætlaðir eru svertingj- hinna 6,2 milljóna svertingja Iands-
um einum. Þessi aðskilnaður kyn- I ins býr. Erfiöastar eru aðstæðurnar
Þingmadur sakar foringja
námumanna um
Yablonskimorðin
0 Mesta leit að morðingjum,
frá því að Martin Luther
King var myrtur í hittiðfyrra, er
hafin í Bandaríkjunum vegna
morðsins á verkalýðsleiðtoganum
Yablonski, konu hans og dóttur.
Formaður sambands námumanna,
Tony Boyle, er meöal þeirra, sem
kvaddir verða til yfirheyrslu.
Lögreglan telur, að morðingjarn
ír hafi verið tveir. Hafi Yablonski
orðið þeirra var og reynt að grípa
til haglabyssu sinnar, en verið
skotinn, áður en það tókst. Segír
lögreglan, að þarna hafi leigumorð
ingjar verið að verki.
Ken Techler, þingmaður frá Vest
ur-Virginíu, fullyrðir að andstæð-
ingar Yablonskis í baráttunni um
forystu í sambandi námumanna
hafi gripið til hreinnar glæpa-
mennsku.
Hafin er rannsókn á starfsemi
sambands námumanna, en Ya-
blonski hafði ákaft deilt á spillingu
meðal fo urnanna þess.
í ríkjunum Alabama, Louisiana,
Missisippi og Suður-Karólinu. Engu
siður er greinilegur aðskilnaður
einnig í Norðurríkjunum. — Þetta
kemur fram í rannsókn, sem
menntamálaráðuneytið hefur gert.
Bö.rn svertingja eru 14,5% af öll-
um skólabörnum í landinu, 9,5% í
Norðurríkjunum og 17,1% í rikjum
á mörkum norðurs og suðurs sam-
kvæmt þessari skiptingu og 26,6%
í Suðurríkjunum sem heild.
Um fimmtungur svertingjabarna ‘
í Suðurríkjunum er þó nú í blönd-,
uðum skölum sem er talsverð breyt
ing á því, sém var fyrir nokkrum
árum.
Eira
Flugvél rænt með
leikfangabyssu
— en mistókst
HINUM 18 ára Mariano God-
ruguez varð ekki kápan úr því
klæðinu að ræna flugvél frá Ib-
eríaflugfélaginu í gær. Godru-
guez, sem er spænskur stúdent,
réðist inn í farþegavélina með
byssu á lofti og tók hana her-
skildi. Skipaði hann flugmönn-
um að fljúga þegar í stað til
Kúbu.
Var honurn skýrt frá því, að
ekki væri nóg eldsneyti til slíkr-
ar langferðar, og yrði að lenda
á leiðinni. Þegar lent var i Zara-
gossa, voru ljós slökkt á vellin-
um og lögreglan umkringdi vél-
ina. Godruguez reyndi lengi aö
halda velli og ógnaði farþegum,
en var að lokum handtekinn.
Kom þá í Ijós, að byssan, sem
hann hafði notað, var leikfanga-
byssa!