Vísir - 08.01.1970, Síða 9

Vísir - 08.01.1970, Síða 9
VlSIR . Fimmtudagur 8. janúar 1970. Q iiiii LESENDUR HAFA /ákst ORÐIÐ □ Útvarpsráð og einvígið I bréfi sínu til útvarpsráðs segir Jón Hannesson (afrit sent Vísi) m. a.: „Ég undirritaður finn mig knúinn til að skrifa yður háttvirtir útvarpsráðsmenn bréf þetta vegna máls, sem upp kom í lok sl. árs og á ég þar við hinar þungu árásir Baldvins Þ. Kristjánssonar á Slysavama- félagið og forseta þess.“ Rekur síðan Jón viöskipti þau sem átt hafa sér stað f málinu, og endar bréf sitt þessum orðum: „Ég tel það næstum heilaga skyldu að gefa forséta Slysa- vamafélagsins sem bezt tæki- færi til að hreinsa sig og félag ið í eitt skipti fyrir öll af þess- um ásökunum. Slysavarnafélag- ið skipar þann sess í hjörtum landsmanna, að hið sanna verð- ur að koma í ljós. Ef þetta verö- ur ekkj leyft, verða ætíð fyrir hendi leiðinlegar, neikvæðar og að öllu leyti mjög óheillavæn- legar gmnsemdir I garð félags- ins, og er slíkt að öllu leyti óvið unandi, þvf hafa verður í huga, að þetta er ekkert einkamál þeirra Baldvins og forsetans héldur mál allra þeirra sem láta sig velferð félagsins skipta og þar með slysavarnir í land- inu. Ég vil því að endingu eindreg ið skora á yður að þér leyfið viðtalið sem allra fyrst, og það helzt í sjónvarpinu." □ „Blessaður sfminn í Landsbankanum“ „Mikið er hann góöur, bless- aður síminn í Landsbankanum f Austurstræti. Þarna hef ég stað ið ósjaldan og hlustað á unga menn hringja í vinstúlkur sínar og biðjast afsökunar á kennderíi og fleim, og allt fellur brátt í ljúfa löð. Heimboð eru gerð og samþykkt f þessum síma, sveita menn tilkynna komu sína, og er boöið f mat. Margt fleira hefur orðið mér til gamans, meðan ég beið þess að komast í þennan ágæta og ókeypis síma. Varla þarf að fjölyrða, hversu gott það er fyrir lúinn mann og blankan í dýrtíðinni að eiga aðgang að þessari þjónustu. Svo að ég ákvað nú að hringja til Vísis, svo að allir gætu skilið gildi símans í Landsbankanum." Góökunningi Landsbankans. □ Lögberg bara á Þingvöllum? Kona ein úr hópi lesenda Vís is hringdi skömmu eftir útkomu blaðsins í gærdag og sagði m.a.: „Mér finnst að þið ættuð að at- huga hvort þessi nafngift á nýja skíðalandinu sé rétt. Mér finnst. eins og fjöldamörgum öðram að kalla eigi staðinn Lækjar- botná eftir að bærinn Lögberg er horfinn. í rauninni ætti að- eins að vera eitt Lögberg, Lög berg á Þingvöllum." HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15 ■ ■ fflmmí Þessi mynd birtist i tízkutímaritinu Vogue, af Stefáni Ág. Magnússyni í loðfeldi, en í baksýn sést hin nýja risaþota Boeing 747, sem framleiðsla er nú að hefjast á. Setið fyrir Ijósmyndara í 27 stiga hita í loðfeldi „Hlýlegar" sumarminningar ungs Islendings i Ameriku Nú er tíminn, meðan frost ið og norðannæðingurinn ríkja utanhúss, sem menn halda sig innan dyra og oma sér við endurminningar og myndir frá sólardögum sum arleyfa sinna — en skyldi ekki 4 klukkustunda bið í þykkum Ioðfeldi úti á opnum flugvelli, undir ge5slaflðði sólar í 27 gráða hita og logni heyra til hlýlegri endurminn inga, sem menn eiga frá liðnu sumri. Ef menn ekki trúa slíku, geta þeir flett upp i nóvemberhefti tímaritsins Vogue, sem er eitt hvert þekktasta og virtasta tízkutímarit álfunnar, en þar geta þeií séö mynd, sem tekin var við ofannefnt tækifæri, og ef þeir ekki sannfærast við það, geta þeir spurt Stefá'n Ág. Magnússon, ungan pilt, sem er nemi f 3. bekk Kennaraskóla íslands, en það var hann, sem var í loðfeldinum. „Það hlýtur að hafa veriö meira en notalegt?" sagði blaða maður Vísis við Stefán, þegar hann hitti hinn síöamefnda að málj til þess að forvitnast um orsakir þess, að auglýsingamynd ir af einum sona gamla Fróns prýði síöur stórmagasíns eins og Vogue. Þaö kom í ljós, að þarna var um að ræða einn af þessum skemmtilegu útúrdúmm, sem stundum þróast upp úr sumar- leyfum „Ég var nánast teymdur út í þetta, án þess að það væri nokk um tíma ásetningur minn, en ég fór í byrjun júnf til Banda ríkjanna f sumarfríinu, en þar hafði ég áður verið um 3ja ára skeið, meðan faðir minn var þar við Iæknisnám“, byrjaði Stefán „Eins og gengur í ferðalögum kynnist maður ýmsu fólki, og eitt sinn í júlímánuði hitti ég mann f Seattle, sem rekur aug lýsingafyrirtæki. Þegar tekizt höfðu með okkur kynni og við vorum famir að spjalla um dag- inn og veginn, barst það í tal hvort ég mundj vilja reyna að sitja fyrir á ljósmyndum, og ég auðvitáð hló að því, eins og hverju öðm spaugi. Honum var þó ekkert grín í huga. en ég vísaöi því á bug, eins og hverri annarri firru, enda vanur þvf héðan að heiman að líta ekki á fyrirsætustarf sem verk, er hæfði fullfrískum karl- mönnum - og aldrei hafði hvarflað að mér neitt í þá átt. Ln þeir líta þetta öðrum augum þarna vestan hafs, og hann lét sig ekki. Einhvern veginn fékk hann talið mig á að láta taka af mér mynd f tilraunaskyni, svona til þess að sjá — og und ir því þvkir mest vera komið — hvort ég myndaðist sæmilega. Það þarf harða sölumenn í aug lýsingaviðskiptin þarna, og Roy Miller (svo hét maðurinn) hafði sjálfsagt góða æfingu f að fá fólk á sitt band. Fyrr en ég vissi, var búið að koma öllu í kring. Myndir vom teknar og þóttu gefa góðar vonir, og Mill er kynnti mig fyrir umboðs- manni — reyndar konu Lola Hallowell að nafnj — sem rak eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í norðvesturhluta álf- unnar og svo einn daginn stöö mér til boða vinna.“ „Og krefst ekki fvrirsætustarf skólagöngu og reynslu?“ „Jú, það skildist mér, að flestir hefðu, en ég var ekki krafinn um slík meömæli, enda hafði ég þau ekki til að bera. Mér datt þá í hug, að líklega væri minna framboð af karl- mönnum til starfsins, en kven- fólki sem sægur er af, og eins sóttust þéir ákaflega eftir Norð urlandabúum, því að flestir, sem völ var á, voru ákaflega suðrænir útlits — dökkir á brún og brá.“ „Og. fyrsta reynslan ... ???“ „Mér hraus nú svo hugur við henni, að nærri lá við, að ég hlypi frá og hætti viö allt sam- an, þvi að það var myndataka vegna náttfataauglýsingar. Mér var rétt búnt af náttfötum og beðinn að skrýðast þeím, en mér þótti ekki beinlínis viðkunnan- legt aö eiga að spóka mig á nátt fötum fyrir allra augum (og varð hugsað til kunningjanna heima), en lfklega hefur blessað fólkið séð hvemig mér leið, því að mér var sýnd einskær nær- gætni, og þetta gekk vel þolan- lega fyrir sig, enda fullnægði ljósmyndin ströngustu kröfum alls siðgæöis. — Reyndar fann ég þá, að mönnum veitti ekki af einhverri skólun í þessu starfi, því að um leið og mér vom feng in náttfötin var mér sagt, að á myndinni ætti ég aö vera hreykinn!!!... af náttfötunum mínum. Leikarareynslu hafði ég enga, en þeir gerðu sér mitt bezta að góðu.“ „Annars reyndist þessi vinna skemmtileg, þvf að henni fylgdu ferðalög til ýmissa staða, sem mér heföj vart annars gefizt kostur á að sjá, og mörgu fólki kynntist maður — bæöi skemmtilegum og einkennileg- um persónuleikum, sem seint munu lfða manni úr minni T.d. fór myndatakan, þar s^m ég stóð á flugvellinum f 27 gráða hita, fram hiá Boeing- verksmiðjunum í Evrett, og myndin var tekin, þar sem við stóðum framan við nýju risaþot una, 747, sem nú er í smíðum. Við 'pnt"rh í noi-kmm érfið'érk um við að komast þar inn, vegna spellvirkja, sem reynd voru þar um voriö, enda heyrði maður, að það gæti tekið allt upp f hálfan mánuð að verða sér útj um tilheyrandi inngöngu leyfi. En meira báknið var sú flugvél — 13 sætaraðir að mig minnir og á tveim hæðum.“ „Hvemig litist þér. að feng- inni þessari reynslu. á svona framtíðarstarf?" „Engan veginn. Þetta er í reyndinni fgripavinna, sem fólk begar mi|figöngumað uriru hefur hringt og látið vita“, sagði Stefán. „Nei þetta er eins og hvað annað. sem hendir menn á ferðalögum — reynsla til skemmtilegrar minningar.“ G. P. mm- „Hvernig er umgengni æskufólks, sem sækir Tónabæ?“ spurðum við nokkra starfsmenn Tónabæjar. Steinþór Ingvason, framkvstj. Tónabæjar: „Sæmileg. Að vísu veröur eftir hjá þeim sælgætis- pappír og rusl, en þau skemma ekki — þótt eölilega megi sjá slit á húsmunum eftir heimsókn ir 70.000 gesta á þessum 11 mán uðum.“ Reynir Karlsson, frkvstj. Æsku- lýðsráðs: „Mér finnst sem unga fólkið líti á húsið eins og sitt húsnæöi, og gangi um það í sam ræmi við það. Skemmdir á hús- búnaði eru hverfandi — en þvi miður fleygja þau hér á gólfið sælgætisumbúðum eins og þeim hættir til annars staðar.“ Sævar Sigurðsson smiður: „Hún er góð miðaö við, hve mikil um- gengni hefur verið hérna á þess- um 11 mánuðum." Guðjón Ágústsson húsgagna- smiður: „Hún hlýtur að vera þokkaleg eftir útliti innanstokks muna aö dæma.“ Hans Sætran, starfsmaður Tóna bæjar: „Mér finnst hún góð miö að við fjöldann, sem hingað legg ur leið sína — og með tilliti til þess, að í svo stórum hópi hljóti að vera mislitir sauðir.“ ■ras»arots«an3KiEE’_r: r_a, nwn

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.