Vísir - 08.01.1970, Page 13

Vísir - 08.01.1970, Page 13
V1 SIR . Fimmtudagur 8. janúar 1970. Fiðrildið — frábært tríó með fágaðan leik. I baksýn má greina „baðstofuna“. Sviðsmynd gerði Bjöm Björnsson, sjónvarpsmaður. Hiuti áhorfenda á þrettándagleðinni. (Ljósm. Ástþór). Moody og Sverrir. Moody var í Nútímabörnum á sínum tíma. okkar helztu Ijóðskálda, en þó á Hörður það til að hnoða sam an einum og einum texta sjálfur þegar vel liggur á honum og var eitt þeirra laga, sem hann söng á þrettándagleðinni með einum af þeim textum. 1 vor útskrifast Hörður vænt anlega frá leiklistarskóla Þjóð- leikhússins eftir þriggja ára nám en á þessum þrem árum hefur Hörður tekið þátt í nokkr um af leiksýningum Þjóðleik- hússins og þá oftast í statista- hlutverkum, en einnig hefur hann fengið stærri hlutverk og má þar meðal annars nefna „einn tengdasoninn" í Fiðlar- anum á þakinu. Þessa dagana fer Höröur svo með statista-hlut- verk í Brúökaupi Figarós. Þá ættu lesendur Pop-punkta að vera orðnir eilítið fróðari um þá þjóðlagasöngvara, sem skemmtu á þrettándagleðinni í Háskólabíói, en það voru fleiri en þeir sem þar skemmtu — hljómsveitin Trúbrot átti einnig stóran þátt í því hve vel skemmtunin tókst. Aðalframlag þeirra var flutningur laganna ,,Bouree“ (Jethro Tull) og „Whole Lotta Love“ Led Zepp- • elin). Það var greinilegt, að • „Bouree“ hafði ekki verið æft nægilega vel og fór það lag að mestu leyti í vaskinn. en Led (" Zeppelinlaginu komu þeir aftur á móti til skila með miklum o glæsibrag og var þeim óspart i * klappað lof í lófa fyrir það. í Trúbrot léku einnig lagið * „Lít ég böm að leika sér“ og ® er það í fyrsta sinn sem hljóm- <> sveitin leikur það lag á sviði, “ en það er eftir Gunnar brand- « ara Þórðarson og var á LJP.h 2 hljómplötu Trúbrots. Er hljóm- 'j sveitin lék lagið í Háskólabíói o lék Gunnar á flautu og Erimgur J Bjömsson umboðsmaöur hljóm • sveitarinnar lék á gítarinn á » meðan. Er þetta í fyrsta skipti, • sem Erlingur tekur sér gftar í o hönd sxöan Hljómar hættu og J vonandi á hann eftir að taka • til við hljóöfæraleik af fulhsm • krafti á nýjan leik. Þá veröur þetta látið nægja • að þessu sinni um pop-fólk, en J f næstu dálkum Pop-punkta • verður vikið að því, sem Tatar- • ar og Pops em að aöhaifast • þessa stundina. • Korríorríó... Þrettándagleði / Háskólabiói □ Huídufólkl, draugum og jólasveinum var helg uð kvöldstund í Háskólabíói sl. þriðjudagskvöld, en þar var þeirra minnzt með þjóðlagasöne 02 udd lestri drauga- og huldufólkssagna. Húsfyllir var á skemmtan þessari og gerður góður rómur að flutn ingi þeirra sem fram komu, en það voru Trúbrot, Útlagar, Fiðrildi, Ámi Johnsen, Hörður Torfason og Óskar Halldórsson cand. mag. Blm. Pop-punkta brá sér upp í Háskólabíó um kaffileytið dag- inn sem skemmtunin var haldin og hitti að máli þá sem þar voru að æfa sitt prógram fyrir kvöldið. Útlagar vom á sviðinu að reyna að venjast staðháttum og söngkerfi því sem þeir áttu að nota á skemmtuninni, en hin sátu úti í sal og sögðu þeim um jr.fnvægið í söng og spili. Árni Johnsen hafði komið sér vel fyrir á fyrsta bekk og taldi aðgöngumiöa þá, sem átti að setja í miðasölu bfósins og blm. vék sér að honum með spum- inguna um það hvenær hug- myndin að þessari þrettánda- gleði hefði fyrst komið fram. „Ég held ég megi segja að ég sé fæddur með þessa hugmynd í kollinum. Að minnsta kosti hefur hún lengi verið að brjót- ast um •' mér, en ég hef alla tíð haft mjög gaman af lestri sagna um huldar vættir og þvi um líkt. 1 upphafi átti að halda þessa gleði á gamlárskvöld, en fljótlega var horfið frá þeirri hug mynd af ýmsum ástæðum — það á heldur ekki síður við að halda hana f kvöld, þar eð það er á þrettándanum, sem síðasti jólasveinninn er sagður halda til sinna heimkynna ásamt huldufólki og púkum.“ Að svo mæltu byrjaði Ámi að telja mið ana upp á nýtt, og blm. varö að leita sér að nýju fórnarlambi fyrir spurningar sínar og varð Fiðrildið fyrir valinu eftir skamma Ieit. Þjóðlagatríóið Fiðrildið er skipað tveim háskólapiltum og ungri stúlku úr menntaskólan- um. Öll höfðu þau leikið og sungið þjóðlög opinberlega áður en þau fóru út í stofnun Fiðr- ildisins nú í haust. Helga Steins son hafði m.a. sungið með Flæk ingum, Snæbjörn Kristjánsson hafði sungið og kroppað í bassa með Nútímabörnum og Hannes Jón Hannesson hafði leikið í ýmsum beat-hljómsveitum í fjögur ár, þar á meðal Tónum og Næturgölum. „Hefur ykkur ekki verið boð- inn hljómp'ri+”samningur enn- þá?“ var fyrsta spumingin, sem blm. lagði fyrir Fiðrildið. „Jú“, var svarið, „— og við erum að reyna að gera upp við ' okkur hvað gera skuli í þeim málum. Okkur mundi helzt langa til að hafa sem flest þeirra laga sem við létum frá okkur á plötur vera eftir okkur f tríóinu og enn sem komið er höfum við ekki nóg prógram til þess.“ „Hafið þið fengizt viö aö semja eitthvað af lögum sjálf?“ „Það er ekkert sem orð er á gerandi, en hins vegar snúum við textunum við flest erlendu lögin yfir á ástkæra ylhýra mál ið okkar, íslenzkuna og mynd- umst við að útsetja þau eftir efnum og ástæðum." „Hvað er það sem þið stund- ið í Háskólanum?“ spyrjum við Snæbjörn og Hannes. „Snæbjöm er við heimspeki- deildina, en ég stúdera líffræði" svarar Hannes — og hann held- ur áfram: „Einnig hef ég lagt nokkra stund á vangaveltur yfir hugsanlegri Svíþjóðarferð Fiðr- ildisins. en þaö má segja.... ? ....að það sé eintóm ósk- hyggja — ennþá að minnsta kosti“, botnar Helga fyrir hann. „Hefur nokkuö veriö rætt um þátttöku ykkar í öðrum sjón- varpsþætti?“ „Já, við munum koma fram í næsta þætti af „Góðu tómi“, en sá þáttur verður tekinn upp í lok þessa mánaðar.“ Nú höfðu Útlagar lokið sér af á sviðinu og þá var Fiðrildið flogið, því það var næst á dag- skrá. Við snerum okkur því næst að Útlögunum með spum- ingar okkar og sú fyrsta sem við lögðum fyrir þá var: hvers vegna þeir hefðu valið sér nafn- ið Útlagar?? „Það var nú hann Ámi stór- vinur okkar Johnsen, sem stakk upp á þessu nafni, en þá var hann að verða of seinn með auglýsinguna um þrettánda gleöina í blööin og gat því ekki beðið lengur eftir því að við leituðum ’-kur að nafni.“ „Hvaö hafið þið æft lengi saman?“ „Eitthvað í kringum hálfan mánuö“, svarar Sverrir, en hann er Ólafsson og er iðnskólanemi. Hinn útlaginn er Moody Magn- ússon kennaraskólanemi og fyrr verandi meðlimur þjóðlagakvart ettsins „Árið 2000.“ „Hvers vegna hætti „2000“?“ „Þeim kvartett var aldrei ætl- að það hlutverk að marka djúpt spor í sögu íslenzkrar þjóölaga hljómlistar heldur var hann stofnaður af nokkrum spilur- um til gamans og átti aðeins að koma fram í eitt skipti — á fyrsta þjóðlagakvöldinu. Ég veit ekki fyrir víst hvað þau hin ætla að taka sér fyrir hendur i músíkmálunum núna, en mér skilst á öllu að Bima ætli að hætta opinberam söng og snúa sér þess f stað aö börnum sín- um eiginmanni og heimili. Einn ig hef ég heyrt því fleygt, að Sturla Már Jónsson, sem var með okkur í „Árinu“ sé að æfa einn á báti prógram, sem hann mun svo framflytja á næsta þjóö lagakvöldi Vikivaka.“ „Erað þið með lög eftir ykkur sjálfa á dagskránni í kvöld?“ „Við laumum svona einu og einu með. Það nýjasta var t.d. samið á æfingu í nótt — ég get bara ómögulega munað hvað það heitir." Nú bættist nýr þjóðlagasöngv ari í hópinn, það var Hörður Torfason, en vakti fyrst á sér athygli á títtnefndu þjóðlaga- kvöldi í Tónabæ í haust. Hann kvaðst aldrei hafa spil að með þjóðlagagrúppum, en hefði oft gripið til gítarsins f vinahópi og tekið lagið. Áhugi hans á þjóölögum vaknaði á þrettánda ári hans og síðan hef ur hann fylgzt vel með því, sem fram hefur komið af þjóð- lögum og þjóðlagasöngvöram. Sérstakt dálæti hefur hann á þeim kumpánum Tom Paxton og Bob Dylan og til þeirra sæk- ir hann mest af þeim erlendu lögum sem , hann syngur. Annars semur Hörður sjálfur mikinn hluta þeirra laga, sem hann hefur á prógrami sínu, þau log eru flest samin við Ijóö, sem hann finnur í Ijóðabókum

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.