Vísir - 10.01.1970, Blaðsíða 7
V í S IR . Laugardagur x«. janúar 1970.
ÍMORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖNb í MÖRGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Kínversk æska í þjálfun.
Allar kröfur unt
lausnargjald
voru blekking
Hvarf Muriel Mc Kay er lögreglunni
alger ráðgáta
Hvarf frú McKay heldur áfram
að vera ráðgáta, einkum eftir
að í Ijós hefur komið, að allar
símahringingar og bréf, þar sem
kcafizt hefur verið lausnar-
gjalds, eru blekking ein.
Eiginmaður hennar, blaðs-
stjórinn Alexander McKay, skír
skotaði í gær til allra þeirra,
sem einhverjar upplýsingar
gætu gefið í málinu, að láta frá
sér heyra. „Gefið mér bara ein-
hverja sönnun ’-ess, að Muriel
sé lifandi,“ sagði hinn örvingl-
aði eigxnmaður. „Ég skil ekki,
hvers vegna þeir, sem halda
Muriel fanginni, hafa ekki leit-
að til mín,‘< sagði hanni.
Nú eru tólf dagar frá því að
Muriel McKay hvarf, ásamt 100
þúsund króna verðmæti í skart-
gripum. Eiginmaður hennar
fékk nokkru seinna bréf með
rithönd frúarintw-, en ekkert
kom fram í því, sem skýrði
hvarf hennar.
Málið er í Bretlandi talið eitt-
hvert hið stærsta sakamál
seinni ára.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Liðhlaupi í rauða hernum
1945 — / stríðslok
— tiu ára fangelsi nú!
Sölumaður einn, fæddur í Rúss
landi en búsettur i London, var
handtekinn í Moskvu fyrir 16 mán-
uöum og hefur nú verið dæmdur í
10 ára fangelsi fyrir liðhlaup úr
Rauða hemum fyrir meira en tutt-
ugu árum.
Maður þessi heitir Scharegin, og
segja Rússar, að hann sé hinn sami
og Budulak nokkur, sem hljópst
yfir til Breta í striðskxk, eftir að
'Rússar höfðu sakað hann um þjófn
að. Fór Budulak úr herbúöum
Rússa í Ungverjaiandi yfir til
brezkra herbúða í Austurríki. .
Eiginkona hans, Tatjana, skýrði
frá því í gær, að nú hefði hún feng-
ið að heimsækja mann sinn í fyrsta
sinn, frá því að hann var handtek-
inn árið 1968. Alger leynd hefur
hvílt yfir málinu, unz nú að upp-
lýst er, að Scharegin hafi hlotið
dóm.
Blaðburðarbörn
óskast
í Skerjofírði
Dogblaðið VÍSIR
AfgreiÓslan simi 11660
„Kínverjur undirbúu úrús
11
— segja Rússar — Gagnásakanir Kinverja
um samningsrof
Sovézka fréttastofan
Tass sakaði í gær Kínverja
um að undirbúa styrjöld
gegn Sovétríkjunum. Seg-
ir þar, að Kínverjar efli
hernaðarmátt sinn stöð-
ugt. Samtímis bera Kín-
verjar Rússum á brýn
samningsrof og segja, að
þeir hafi svikizt um að
draga úr herafla sínum við
landamæri ríkjanna, eins
og um hafi verið samið.
Tass vitnar í grein f kínversku
blaði, þar sem segir, að stríð hafi
jafnan ákveöna ágalla, en samt
,,stuðli það að því að frelsa heim-
inn". Muni á þann hátt nást fullur
sigur fyrir hugsjónir Mao-Tse-
Tungs.
Sovétríkin gangast nú fyiir efl-
ingu héraðanna, sem liggja næst
Kína. Munu þau fá forréttindi um-
fram önnur héruð á þessu ári.
Eftir hina hörðu bardaga, sem
urðu viö Ussuri-fljót á landamær-
unum í marz í fyrrn, byrjuðu Rúss-
ar áróður fyrir þvf, að So-vétborg-
arar flyttu til þeasara héraða og
efldu þau.
Handritin heim
Þátttaka yðar
Serði Amagarð
að veruleika
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
70% byggingarkostnaðar
Árnagarðs, eða 42 milljónir króna, var greiddur með
ágóða af Happdrætti Háskóla íslands. Þannig hafa þeir,
sem eiga miða í Happdrætti Háskólans stuðlað að var-
anlegri geymslu fyrir dýrmætustu eign þjóðarinnar.
Kaupið miða í Happdrætti Háskóla íslands og takið þátt
í uppbyggingu íslenzkrar menntunar. Vinningar eru
hvergi stærri.
Þriðjungur þjóðarirmar
á nú kost á að hljóta
vinning — því er Happ-
drætti Háskólans glæsi-
legasta happdrætti
landsins. Verð miðanna
er óbreytt.