Vísir - 19.01.1970, Blaðsíða 5
5
V'ÍSI-R . Mánudagur 19. janúar 1970.
Þórðarson, formaður ÍBR, eftir
að hafa þurt að standa í nökrceð-
um við formann KSÍ fyrri dag
þingsins.
Þinghaldið var annars ef svo
mætti segja í spennitreyju
Bakkusar konungs. Það var hald-
ið í vínveitingahúsinu Sigtúni,
sem þurfti á veitingasölunum að
halda bæði kvöldin, og fyrri
daginn þurfti að hespa umræð-
um af, og vart tími til að af-
greiða í nefndir þau mál sem
fyrir lágu. Var það í senn spaugi-
legt og áhrifaríkt að sjá einn
stjómarmann KSÍ, sem jafn-
framt er einn aðalmaður Sig-
túns, tvístígandi og hvetjandi
menn til að vera fljóta að Ijúka
sér af enda voru gestir veit-
ingastaðarins þá farnir að mæta
til leiks.
Skýrsla stjömarinnar er upp á
136 síður, og hver síða segir
næstum sögu af mrklu starfi,
enda þótt það sé rétt að bókin
sé full mikil fyrirferðar eins og
Ellert Schram leyfði sér að
benda á réttilega. Reksturshalli
af starfseminni varö hins vegar
350 þús. krónur, tæpar, en eftir
er að fá uppgjör fyrir getraun-
imar á síðasta ári inn í dæmiö.
Gjöld KSÍ voru upp á rúmlega
1.8 millj. króna. Þess skal getið
að einn helztj tekjuliðurinn var
nokkuð óvæntur, tékki barst frá
UEFA, Evrópusambandinu, upp
á 306.748 krónur vegna Ungl-
ingamóts Norðurlanda 1968, en-
þetta er styrkur sambandsins til
okkar vegna þess mótshalds.
Stærsti kostnaðarliðurmn var
skrifstofukostnaður upp á 409
þús. krónur.
Fjármál sambandsins voru
rauöi þráðurinn í umræðum
þingsins, eins og vera ber, en
mjög skynsamlegt væri að önn-
ur stórmál, eins og þjálfara og
dómaramál verði rædd á sér-
þingum, þar sem nægur tfmi
gefst til að kryfja málm til
mergjar.
Margar tillögur vom sam-
þykktar í gær og verður þeirra
getið síðar.
— jbp -
VERÐUR
ALBERT
Oll stjórnin endurkj'órin á falsvert stormasömu
knattspyrnuk>ingi um helgina
Albert Guðmundsson
hlaut traust knatt-
spyrnuþings í gær-
kvöldi. Greinilegt var á
þingfulltrúum að þeir
kunnu að meta störf
hans fyrir knattspyrn-
una, því hann var klapp-
aður hraustlega í for-
mannssætið fyrir næsta
starfsár. Öll stjórn hans
var og endurkjörin á
sama hátt. Albert „verð-
ur“ því áfram, en haft
hefur verið í flimtingum
hvort hann „yrði“ eða
„yrði ekki“. Þingið var
annars talsvert storma-
samt, því mjög bar á
góma þau „heitu mál“,
sem til umræðu hafa ver
ið í knattspyrnuheimin-
um undanfarna mánuði.
í gær mættu engir heiðurs-
gestanna, af hverju svo sem það
stafaði, en engum vafa var
undirorpið að þeir voru gramir,
Gísli Halldórsson, Þorsteinn Ein-
arsson, fþróttafulltrúi og Úlfar
Ný endurkjörm stjórn KSI: Frá vinstri á myndinni eru Ragnar Lárusson, Helgi V. Jónsson, Ingvar N. Pálsson, Albert Guð-
mundsson, Sveinn Zoéga, Hafsteinn Guðmundsson og Jón Magnússon. (Ljósmynd Bjarnleifur).
Bútasala — Bútasala — Bútasala
Þér gerið góð kaup á BÚTASÖLUNNI hjá
AXMINSTER, Grensásvegi 8
Telpnakjólar
Táningakjólar
Jerseykjólar
Ullarkjólar
Kvöldkjólar
Síðir kjólar
VERÐLISTINN
ÚTSALA
i Breiðfirðingabúb (uppi)
25-60°]o AFSLÁTTUR
KÁPUR - DRAGTIR - ÚLPUR
VERÐLISTINN