Vísir - 19.01.1970, Síða 7
V 1 S I R . Mánudagur 1«. janúar 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Nýir bardagar Kínverja og Rússa
Kínverskar og sovézkar
hersveitir hafa háð bar-
daga að nýju við landa-
mæri ríkjanna, að sögn
Hongkong-blaðsins Ming I títt orðið átök, en þó var
Pao í morgun. Þama hafa | ekki vitað um bardaga, frá
því að viðræður hófust
milli rikjanna í haust.
Blaðið gaf ekki dagsetningu. en
sagði, „að ekki væri langt síðan“
þama var barizt.
Aðrar heimildir í Hongkong
herma, að miðlungi sterkar her-
sveitir hafi barizt við landamæri
Kína og Mongólíu um miðjan des-
ember.
Hvorug ríkisstjórnin hefur nefnt
slíka bardaga frá byrjun viðræðna
hinn 20. nóvember, en stærsta blaö
kommúnista í Hongkong, Te Kung
Pao, hefur ákært Rússa nm brot
á samkomulagi um frið við landa-
mærin.
^ W.svsis-íív.'ivXÍÍ
„Megi páfi
brenna í bel"
Eitthvað á þá leið voru hrcp
Nígeríumanna, eftir að páfi
hafði lýst ótta sínum, að þeir
mundu fremja þjóðarmorð í Bí-
afra. Nú hefur páfi aftur á móti
sagzt „vongóður“ um horfur í
málefnum Nígeríu, og er þá ó-
séð, hvort hann verður hyllt-
ur á götum Lagos næstu daga.,
44
„Ástandið skárra í Nígeríu
Fréttamenn fil Biafra — 5 flutningavélar til
Ntgeríu og brezk hjálparsveit
; ERLENDIR fréttamenn fengu í gær
að fara tfl Bíafra, f fyrsta sinn frá
því að bardögum lmnti. Margir
' telja horfur f fandrnu skárri en
ætlað var í fyrstu.
Páll páfí sjöttí sagði í gær, að
. „horfur færu batnandi í Nfgeríu".
Aðeins fáir dagar hafa liðið, síðan
páfi lét í Ijós ótta um þjóðarmorð
á Bíaframönnum, og leiddi það td
mikilla mótmælaaðgerða gegn páfa
í Lagos.
Einar fhnm flutningavélar eru
. væntanlegar til Lagos í dag með
matvæli og lyf. Koma þær frá Bret-
landi og Sviss. Þá hafa fyrstu hjálp
arsveitirnar komið til landsins frá
Bretlandi. Tveir læknar og ein
hjúkrunarkona lögðu af stað í gær-
kvöldi. Alls eru í þessum sveitum
25 læknar og 35 hjúkrunarkonur.:
Alþjóða Rauöi krossinn hefur
fengið samþykktar tvær flugferöir
tli landsins, og er sú seinni vænt-
anleg frá Sviss síðar í dag með lyf.
Brezkur lávarður er kominn úr
ferð um Bíafra, sem nú er kallað
Austur-Nígería. Hann segir, að á-
standið „sé hvergi nærri eins slæmt
og hann haföi óttazt.“
Margir af embættismönnum Bí-
afrastjórnar eru nú landflótta í rik
inu Gabon, meðal þeirra yfirmaður
landhersins og sjóhersins. Sumir
hafa þegar farið aftur á leið til
lands í í Evrópu og Ameríku.
Samkvæmt fréttum frá Moskvu
líta Nígeríumenn á Ojukwu hers-
höfðingja sem stríðsglæpamann, og
má liann eiga von á dauðadómi,
falli hann einhvern tíma í hendur
Nígeríumönnum.
Gowon, leiðtogi Nígeríu, er vænt
anlegur í opinbera heimsókn til
Egyptalands innan tíöar. Hefur
Nasser boðið honum heim.
Mótmæli á sýningu
,My Fair Lady“
55-
Ungur Belgíumaður fylgdi í gær
fordæmi norska stúdentsins Har
old Bristols frá f haust og
hlekkjaði sig við svalir í leikhúsi
í Moskvu, meðan hann dreifði
flugritum, þar sem þess var kraf
izt, að látnir yrðu lausir þeir
menntamenn, sem sitja í fang-
elsum í Sovétríkjunum fyrir
gagnrýni á stjórninni. Kastaði
hann þessum ritum niður yfir
áhorfendur.
Lögregluþjónar, borgaralega
klæddir, losuðu handjámin og
fjarlægðu Belgíunianninn.
Veriö var að sýna „My Fair
Lady“. Belgíumaðurinn stökk á
fætur, þegar ljós var kveikt, og
hrópaði: „Sleppið Grigorenko".
Nafn mannsins er Viktor van
Brantegem, og hann er frá
Ghent i Belgiu. Hann er fullírúi
flæmsku baráttunefndarhmar
fyrir Austur-Evrópu.
Daginn eftir höfðu tveir ítafir
gengizt fyrir svipuðum mótmæl-
um.
Ekki-árásarsamningur
1 uppsiglingu?
Beðið var með mikilli eftir-
væntingu blaðamannafund
arins, sem leiðtogi Austur-
Þýzkalands, Walter Ul-
brieht, heldur í dag. Þetta
verður í fyrsta sinn í meira
en níu ár, sem Ulbricht
ávarpar fulltrúa heimsblað
anna.
Búizt er við, að hann svari síð-
asta boöi Wiiiy Brandts, kanslara
Vestur-Þýzkalands, um gagnkvæm-
an ekki-árásarsamning. Brandt til-
kynnti í fyrri viku, að hann mundi
senda tiiboð um slíkan samning til
foreætisráðherra Austur-Þýzka-
lands, Wiliy Stoph. Ulbricbt hefur
þó ekki beðið eftir þessu, og hef-
ur sú afstaða komið fréttamönnum
á óvart.
Fréttastofa Austur-Þýzkalands til
kynni í gærkvöldi, að Ulbricht
mundi ræða um gagnkvæman samn
ing þýzku ríkjanna, sem hefði al-
þjóðlegt gildi.
Svo virðist, að gagnkvæmur ekki
-árásarsamningur sé hið eina, sem
rfkin eru sammála um. Nýja stjórn
in I Bonn hefur vísað á bug öðrum
kröfum Austur-Þjóðverja. Þessar
kröfur eru til dæmis um fulla við-
urkenningu á Austur-Þýzkalandi,
úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu
og . þjóðaratkvæði um það. Báðir
aðiiar hafa hins vegar lagt til, aö
gerður verði ekki-árásarsamningur,
sem þýðir, að Vestur-jóðverjar
’munu virða landamæri Austur-
Þýzkalands og öfugt.
Ulbricht — fyrsti blaðamanna-
fundur í níu ár.
ITT
SCHAUB-LORENZ
GELLIR sf.