Mosfellsblaðið - 01.11.2000, Page 7
Stórfyrirtæki sameinast
SfCHhtivmqm á fcrd
Fyrirtækin Reykjagarður, Reykjabúið og Vallárbúin á Kjalarnesi hafa
sameinast. Nafn er ekki komið á fyrirtækið, sem verður það stærsta á
sínu sviði hér á landi. Reykjagarður hefur verið stærsti framleiðandi
hér á landi á kjúklingum, Reykjabúið stærst í kalkúnaframleiðslu og
Vallárbúin Stjörnuegg og Stjörnugrís umsvifamikil í fugla- og
svínakjötsframleiðslu, ásamt fyrirtækinu Ferskum Kjötvörum, sem
Hagkaup stofnaði en Gunnar á Vallá festi kaup á því á sínum tíma.
Nýja fyrirtækið verður með stofnrækt í kjúklingum, kalkúnum, eggjum,
öndum og framleitt verður kjöt frá þessum stofnum. Fyrirtækið mun
reka kjötvinnslu sérstaklega fyrir svínakjöt, nautakjöt og lambakjöt,
nýtt svínasláturhús er að Saltvík á Kjalarnesi og rekið er eigið
fuglasláturhús. Stórt svínabú Vallár er í byggingu á Melum í Melasveit
Hús Reykjagarðs í Borgamesi fylgir með í pakkanum og höfuðstöðvar
nýja fyrirtækisins verða trúlega í Mosfellsbæ, enda staðsetning þar afar
góð, í nálægð við höfuðborgina, örstutt austur og vestur.
Ljósmyndin er frá Reykjum í Mosfellsbæ.
Allt í platri
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi leikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson í
Bæjarleikhúsinu 21. október s.l. Leikritið er samið kring um persónur í Dýrunum
úr Hálsaskógi og Kardimommubænum
og hefur þetta tekist frábærlega í
leikstjórn Herdísar Þorgeirsdóttur, en
aðstoðarleikstjóri var Bóel
Hallgrímsdóttir. - Leikritið hefst á því
að Lína langsokkur kernur fram á
sviðið og kallar fram persónur úr
báðum þessum þekktu leikritum og úr
verður hin besta skemmtun, í raun ekki
síðri en “orginalarnir” voru. Línu
leikur af miklum krafti Rannveig Eir
Erlingsdóttir og með henni eru 14 aðrir
leikarar, sem eru afar samhentir urn að
skemmta leikhúsgestum konunglega
með þessu frumlega og bráðskemmti-
lega leikriti. - Leikritið hefur verið
afar vel sótt, uppselt á margar sýningar
og verður það sýnt á sunnudögum fram
Að lokinni frumsýningu, hér er Herdís Þorgeirsdóttir leikstjóri, (efst h.m.) með allan
hópinn sinn sem stóð sig frábærlega vel, en allir voru skíthræddir við Mikka ref og
nú er hann hræddur og reynir að fela sig bak við Herdísi. Ljónið gerði einnig lukku
meðal þeirra yngstu og leikhúsfólkinu vel fagnað í lok frumsýningar.
1 desember.
Sími í leikhúsinu er 5667788.
Gylft Guðjónsson.
Lögreglan hefur
upplýst 9 af 10
eldsvoðum í
Mosfellsbæ, en
þama var um
íkveikjur að ræða.
Kveikt hafði verið
5 sinnum í
strætisvagnaskýli
við Þverholt og
búið að skipta um
skýlið, kveikt í við
bílskúra, geymslu
hjá Kjarna,
gámum við
Nýbrauð, þaki
Varmárskóla og Bæjarleikhúsi. Ungur piltur mun hafa verið valdur að
þessum íkveikjum. Lögreglumenn kvarta yfir sinnuleysi hjá
almenningi að láta lögreglu vita um sitthvað sem miður fer í
bæjarfélaginu, þetta tefur að upplýsa mál. Lögreglan biður borgarana
um að sýna sér trúnað svo hægara verði að hafa hlutina í lagi.
fÓLAVAKA
Karlakórinn Stefnir og Barnakór Varmárskóla
halda sína árlegu jólavöku í Hlégarði 2.sunnud. í
aðventu 10.des.nk.kl.20:00
Eigum saman notalega stund eftir amstur
dagsins við kertaljós, ljúfa jólasöngva,
uppplestur, og ef til vill fl.
* Guðrún Helgadóttir les úr nýrri bók sinni.
* Munið hið alþekkta veisluborð Stefnanna.
* Miðar seldir við innganginn á kr.1000.-
* Frítt fyrir börn innan 12 ára.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu ?
Al-Anon
Fyrir ættingja og vini alkóhólista
í þessum samtökum getur þú:
Hitt aðra sem glíma við samskonar vandamál
Fræðst um alkóhólisma sem sjúkdóm
Öðlast von í stað örvæntingar
Bætt ástandið innan fjölskyldunnar
Byggt upp sjálfstraust þitt
Fundarstaður Lágafellskirkja
á mánudögum kl. 21.00
Minningarkort
Minningasjóðs
karlakórsins Stefnis fást
gegn heimsendingu
gíróseðils skrautritað er
á kortin og þau send
skrautrituð
Símar 587- 6768
898- 4721 566-7216
rxXXXXXXXXXX'XXXXXXXXXXXXXXXXXl
ðB Ma
Ný hárgreiðslustofa
Háholti 14
S:5868989
Full búð af vörum
Ritföng og gjafavörur SÍMI566-6620