Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 5
Hallur Símonarson skrifar um ensku knattspyrnuna:
Fimm jafnteílisleikir í 1. deildinni
og sjö krossar á getraunaseðlinum
— Helming leikjanna á Englandi var frestað
■ Vetur konungur réð ríkjum á Bretlandseyjum á laugar-
daginn og hafði í för með sér, að helming leikjanna á
Englandi var frestað eða 23 og auk þess II á Skotlandi.
Ef einum leik til viðbðtar hefði verið frestað hefði orðið að
láta dómstól sérfræðinga, sem settur var á fót einn harð-
indaveturinn fyrir nokkrum árum, ákvarða úrslit í frestuðu
leikjunum fyrir brezku getraunirnar. Til þess kom ekki, en
litlu munaði. Hins vegar voru aðeins fimm leikir, sem voru
á íslenzka getraunaseðlinum háðir, og hér var því gripið til
teninganna eins og svo oft áður. Þau furðulegu úrslit urðu
í leikjunum fimm, sem leiknir voru I I. deild, að öllum lauk
með jafntefli — og teningarnir bættu við tveimur jafnteflum
á seöilinn. Á íslenzka seðlinum eru því sjö jafntefli — fjórir
heimasigrar og einn útisigur og ætti það að hafa í för með
sér, að jafnvel 10 réttir gætu gefið vinning nú. Og einhver
heppinn með 11 rétta, svo ekki sé talað um 12, gæti fengið
„pottinn“ einn í hlut.
En áður en lengra er haldið
skulum við líta á fslenzka get-
raunaseðilinn, úrslitin í leikjun-
um fimm, og tákn getraunanna:
Burnley—Derby 1-1
Chelsea —Liverpool 1
Coventry—Sunderland x
Everton —Arsenal 2-2
Manch. Utd.—C. -Palace 1-1
Newcastle—West Ham 1
Nottm. For. — Ipswich 2
Sheff. Wed.—Man. City 1
Stoke — Wolves 1-1
Tottenham—Leeds 1-1
W.B.A.—Southampton 1
Middiesbro — Sheff. Utd. x
Leeds hefur alltaf gengið i-lla
gegn Tottenham i London og
það var engin undantekning á
laugardaginn nema hvað Leeds
CHARLIE GEORGE — skoraöi
fyrra mark Arsenal, talinn efni-
legasti leikmaður, sem fram hef-
ur komið hjá Arsenal um langa
árabil.
hlaut annað stigið í vióureign
sinni við hið „nýja“ Tottenham-
Iið að þessu sinni og það voru
ekki veröleikar sem því réðu,
heldur einstök heppni. Totten-
ham var betra iiðið allan leikinn
og tvívegis tókst varnarleik-
mönnum Leeds að bjarga á
marklinu á síðustu stundu.
Nær allan fyrri hálfleikinn
var stöðug sókn á Leeds-markið,
en Tottenham tókst ekki að
skora fyrr en rétt fyrir hlé og
það var hálfgert klúðursmark,
Dennis Bond tók þá aukaspyrnu
við vítateiginn, spymti knett-
inum á markið og hann fór beint
í Terry Cooper, bakvörð, og í
netið. Leeds tókst að jafna á
6. mín. í síðari hálfleik. Peter
Lorrimer átti þá eitt af sínum
frægu þrumuskotum — a la
Bobby Charlton — utan vítateigs
og knötturinn hafnaði í netinu,
án þess Pat Jennings næði aö
lyfta höndum. Lorrimer, sem
komst í skozka landsliðið á sfð-
asta ári, er frá Dundee, en réðst
til Leeds um fermingu og er
yngstj maður, sem leikið hefur
í aðalliöi Leeds — var aðeins
fimmtán ára gamall. En áfram
hélt leikurinn og sóknarlotur
framherja Tottenham voru mjög
hættulegar, þótt lánið léki ekki
við leikmennina, þegar að mark-
inu kom. Alan Clarke var settur
úr Leeds-liöinu að þessu sinni
og framkvæmdastjóri Don
Revie notaði aðeins „vinnu-
þræla“ sína á hinum erfiða
velli, þar sem skiptust á snjóa-
lög og frostbungur. En hvort
seni um er að kenna vellinum
eða fjarveru Clarke, þá sýndi
Leeds ekkj þá knattspyrnu, sem
liðið hefur sýnt að undanförnu.
Tottenham á marga aðdáendur
hér á landi, enda eitt frægasta
lið Englands, og til gamans ætla
ég því að birta nöfn leikmanna
Tottenham gegn Leeds, en hið
nýja Tottenham-lið var þannig
skipað: Pat Jennings, Ray
Evans, Tony Want, Alan Mull-
ery, Mike England, Philip Beal,
Jimmy Pearce, John Pratt,
Martin Chivers, Dennis Bond og
Roger Morgan.
Liöið sýndi í heild ágæta
knattspyrnu, en leikurinn var
þó einkum mikill sigur fyrir
Martin Chivers, sem sýndi sinn
bezta leik siöan hann var keypt_
ur frá Southampton fyrir 125
þúsund pund. Nokkrum km. frá
White Hart Lane lék varalið
Tottenham á Highbury, leikvelli
Arsenal í London, og þar voru
landsliðsmennirnir Greaves,
Gilzean, Knowles og Kinnear i
broddi fylkingar og það gerði
að verkum, að 15 þúsund áhorf
endur sáu leikinn. Arsenal sigr
aði með 2—0, en í liöinu léku
meðal annars Jimmy Robertson,
sem neitaði að fara til Ipswich,
Terry Neill, Armstrong, Court
og Rice. Petta var enginn
skemmtileikur fyrir Jimmy
Greaves, mark var dæmt af hon
um og auk þess var hann bókað
ur. Robertson misnotaði víti fyr
ir Arsenal í leiknum. Önnur úr
slit varaliða, sem vöktu mikla
athyglj voru í .Central League.'
Urslit Leeds 0 —Nottm. Forest
7.
Og það voru fleiri lið en Tott
enham, sem „áttu‘‘ aö sigra á
heimavelli, einkum og sérílagi
þó Manch. Utd. Ágætar aðstæð
ur voru á hinum frábæra leik
vangi United, Old Trafford, og
55 þúsund áhorfendur komu til
að sjá „sex marka Gergie Best“,
sem ekki hefur skoraö á heima
velli síðan 18. október. Manch.
Utd. náði strax algerum yfir-
burðum gegn C. Palace og knött
urinn var nær allan leikinn á
vallarhelmingi og innj í vítateig
Palace. Og áhorfendur bjuggust
við markaregni, þegar Brian
Kidd skoraði eftir 15 mín., en
þeirn varð ekki að ósk sinni, og
leikmenn United sýndu svo
furðulegt kæruleysi í leiknum
að undrum'sætti. Tyift opinna
tækifæra rann út í sandinn og
við hliðarlínuna stóð liðsstjór-
inn Wilf McGuinness, hristi höf
uðið og tautaði að þetta hlyti að
fara ilia. Og það geröi það líka.
Seint í síðari hálfleiknum var
Ian. Ure með knöttinn og ætlaði
aö skalla til Stepney í rnark-
inu, en varð heldur betur á í
messunni og lagði knöttinn fyr
ir fætur Cliff Jackson, sem átti
greiða leið að markinu. Stepney
hljóp á móti honum, kastaði
sér og greip um fætur Jackson.
Vitaspyrna, sem fyrirliðí Palace,
John Sewell tók. Stepney varði,
en knötturinn hrökk aftur *il
Sewell, sem nú skoraði og leikn-
um lauk með jafntefli. Ef þetta
stig bjargar Palace frá falli,
geta aörir leikmenn fallliða á-
sakað leikmenn United. En þeir
eiga þó eina afsökun, bikarleik
urinn gegn Middlesbro næsta
laugardag er efst í huga þeirra.
Arsenal byrjaði mjög vel
gegn Everton og eftir aðeins
tvær mínútur lá knötturinn i
netinu hjá Gordon West. Tveir
19 ára piltar unnu að markinu.
Peter Marinello lék upp kant-
inn og á nokkra varnarmenn Ev
erton, gaf fyrir markið til
Charlie George, sem skallaðj i
mark. En „klassi" Everton kom
fljótt í ljós og á 19. mínútu
jafnaði Alan Whittle. Arsenal
náði þó óvænt forustu aftur. Á
35. mínútu lék Marinello upp
og gaf til John Radford, sern
spyrnti á mark og knötturinn
ALAN EVANS - mörk hans
komu Liverpool i sjöttu umferð.
lenti undir þverslá og í netiö.
Allan síðari hálfleikinn var
Everton £ nær stanzlausri sókn.
Alan Whittle jafnaði á 70. mín.,
og oft slapp mark Arsenal á
hinn furðulegasta hátt t. d.
tókst John Roberts að bjarga á
einhvern undraverðan hátt á
marklinu, þegar mark virtist ó-
umflýjanlegt. Everton er því
enn tveimur stigum á eftir
Leeds og rööurinn fer nú að
þyngjast, því Everton á eftir að
eins fjóra leiki á heimavelli, en
sjö á útivelli og það eru alltaf
erfiðari leikir.
Þá geta Ulfarnir verið ánægð
ir með aö hljóta annaö stigiö í
Stoke, því þeir voru „yfirspil-
aðir“ í leiknum, en Stoke tókst
ekki að nýta yfirburðina. Hugh
Curran skoraði fyrir Úlfana, en
Dennis Smith jafnaði fyrir
Stoke. Mjög ' erfiöur völlur i
Burnley gerði það að verkum,
aö leikur heimaliðsins gegn
Derby var lélegur. Casper skor
aði fyrir Burnley á 22. mín., en
mínútu síðar lafnaði John
OTIare fyrir Derby .Terry
Herinessey, 115 þús. punda varn
armaðurinn frá Nottm. Fórest,
lék með Derby og sagði þulur
BBC, að hann hafi skort hraöa
á við hina yngri félaga sína í
liðinu, og það bendir til þess,
að Hennessey hafi tekið stöðu
Dave McKay hjá Derby.
Á laugardaginn fer fram
sjötta umferö í bikarkeppninni
og eru eftir fjögur lið úr 1.
deild og fjögur lið úr 2. deild.
Svo einkennilega dróst til, að
1. deildarliðin leika öll á úti-
velli, en leikirnir eru þessir:
Q.P.R. — Chelsea
Middlesbro — Manch. Utd.
Watford — Liverpool
Swindon — Leeds Utd.
Liverpool tryggði sér áfram
hald i keppninni með þvi aö
sigra Leicester 2—0 sl. miðviku
dag. Fyrri leik liðanna í Liver-
pool lauk með jafntefli. Leicest-
er sótti mjög í leiknum á mið-
vikudag, en Tommy Lawrence
sýndj frábæran leik í markinu
hjá Liverpool og átti mestan
þátt í sigrinum ásamt Alan
Evans. Peter Thompson varö að
yfirgefa völlinn eftir aðeins 19
mín. og kom Evans í hans stað
og þessi leikmaður, sem kostaði
100 þús. pund, þegar hann var
keyptur frá Úlfunum fyrir rúmu
ári, skoraði tvö mörk i síðari
hálfleik. Bæði mörkin voru
skoruð úr snöggum sóknarlot-
um eftir mikla „pressu"
Leicester — hið síðara á síðustu
mínútunni, þegar allir leikmenn
Leicester voru komnir í sókn til
að reyna að ná jafnteflinu.
Þetta er í sjöunda sinn, sem
þessi lið leika saman í bikar-
keppninni síðan 1962. Leicester
hefur fimm sinnum sigraö — en
Liverpoo! aðeins tvisvar. Fyrra
skiptið var 1965 og Liverpool
varð þá bikarmeistari.
fþröttir —
:y 4. Síðu.
sig sama sagan og þegar Clay vann
Sonny Liston 1964.
Cassius Clay horfði á keppnina
í kvikmyndahúsi í Philadelpiu —
og hann hefur að undanförnu marg-
lýst þvi yfir, að hann muni ekki
keppa framar. Margir geta þó ekki
hugsað sér annan heimsmeistara
en Clay — hann tápaði aldrei titl-
inum, en var sviptur honum á há-
tindi frægöar sinna. Og spurningin
er: Berjast þeir Frazier og Clay? —
og margir eru á því, að Clay
,,kjafti“ sig aftur inn í hringinn, og
þegar í nótt sagði hann: „Ég get
unnið þennan labbakút hvenær sem
er“, en hann bætti við: „Ég berst
ekki við hann. Það kemur aldrei
framar hnefaleikari fram á borð
við mig, sem gat dansað í 15 lotur
og ort ljöð, meöan ég afgreiddi
mótherjana.“ -hsím.
LYSTADÚN
LISTADÚNDÝNUR með skápúð
um fyrir svefnsófa .Þannig fáiö
bér ódýrasta svefnsófann.
Halldór Jónsson hf.
Hafnarstræti 18, sími 22170