Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 9
y V1SIR . Þriðjudagur 17. febrúar 1970. 9 „USS, ÞCTTA CR CKKCRT. MADUR' Ólæknandi bjartsýni eða hrein fávizka. Það er erfitt að gera það upp við sig hvora einkunnina á að nota á þann aragrúa af fólki, sem á sunnudag lagði upp í fjalla- ferðir á smábílum, keðjulaus- um og jafnvel á sumardekkj- um. — „Uss, þetta er ekkert maður, sögðu þeir bjartsýnu, þegar lögreglan sneri þeim til baka við mikil mótmæli eftir hádegi á sunnudag, en þá var búið að spá kolvit- lausu veðri. — Hinir „plöt- uðu“ lögregluna og þóttust heldur betur „kaldir karlar“. Við ætlum hérna rétt upp fyrir sögðu þeir við lögreglu- þjónana við vegatálmanirnar, en síðan „stungu þeir af“ upp til fjalla, sennilega við mik- inn fögnuð fjölskyldunnar. — Það var lægra risið, þegar komið var til baka. Það er alveg dæmalaust, hvað fólk lætur alla viðvörun sem vind um eyru þjóta, sögðu allir þeir, sem stóðu í bjöj-gunarað- p gerðunum í gær. — Það er minnsta krafa, sem hægt er að gera til fólks, að það hlusti eftir því, sem er að gerast í kringum það, leggi sitt eigið persónulega mat á kringumstæð ur og breyti síðan eftir því, sagöi Amkell Einarsson, sem stjórnaði snjómokstrinum í ná- s grenni Reykjavíkur í gær. — Aðrir tóku í sama streng. Höfuðlaus her Fólk geröi okkur mikinn ó- leik í gær með því að trúa hreinlega ekki þeim upplýsing- um og aðvörunum, sem við vorum búnir að senda út, sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn sem stjórnaði aðgerðum til að halda fólki innan borgarmark- anna. — En allir þessir aðilar kvörtuðu um annað meira. í björgunaraðgerðunum í dag hef- ur nær því vantað alla skipu- lagöa samræmingu á milli aðila, sem staðið hafa í björgunarað- geroum. Hér vantar hreinlega alla sam ræmingu milli stofnana og fé- laga, sem að þessum málum vinna, sagöi Arnkell Einarsson hjá Vegagerðinni. — Eina sam- vinnan, sem á milli aðilanna er stafar af kunningsskap ein- stakra manna í stofnunum og félögum. Önnur samvinna er ekki fyrir hendi. Það er þvi mikil hætta á að mikið starf fari til spillis og að aðgerðirn- ar séu ekki eins markvissar og þær gætu verið. — Hannes Haf- stein hjá Slysavarnafélaginu og raunar allir aðrir tóku í sama streng. — Sem dæmi um sam- vinnuskortinn, sagði Hannes, að þeir hefðu að fyrra bragði þurft að bjóða fram aðstoð sína i gærmorgun, þó að öllum ætti að vera það fullljóst, að þeir hefðu mjög hentugan bíl t. d. til sjúkraflutninga í ófærð. Það stóð ekki á því að aðstoð þeirra væri þegin í gærmorgun, en það var heldur ekki fyrr en liöið var á morguninn, að bifreiðin var komin í gagnið. Gufunesradíó eitt sam- ræmdi aðgerðimar Gufunesradíó er eina stofn- unin, sem fær góða einkunn fyrir gott starf í samræmingu allra aðgeröanna, enda er það til ómetanlegs gagns, þegar erfiðleikar á borð við þessa skapast, hvað margar bifreiðir eru útbúnar talstöðvum. Meö aðstoð Gufunesradíós var allan tímann hægt að gera sér grein fyrir, hvar skórinn kreppti aö á hverjum tíma og unnt að hafa samband við fólk, sem var lokað inni í sköflum. Þetta ástand eins og það hef- ur verið undanfarinn sólarhring, sýnir ljóslega, hvað nauðsynlegt það er orðið að koma upp einni allsherjarmiðstöð, sagði Óskar Ólason. Það þarf að vera mið- stöð, þar sem stjórnendur allra stofnana og félaga koma saman á og sömuleiðis þarf fólk að vita hvert það á aö snúa sér til að fá hjálp. — Slíka aðstöðu er nú verið að skapa í nýju lög- reglustöðinni, þar sem eitt her- bergið verður sérstaklega útbúið i þessu skyni. Gptt og óeigingjarnt, starf uj Þeir eru margir, sem hafa lagt hönd á plóginn og unniö óeigingjarnt starf í sjálfboðaliðs vinnu. Þar má t. d. nefna Hjálp- arsveit skáta, Slysavamadeild- ina Ingóif og Flugbjörgunarsveit ina, en það er ekki nóg að allir þessir aðilar leggi fram vinnu sfna ókeypis, heldur bera þeir einnig ýmsan kostnað sem þessu starfi fylgir eins og t. d. bensín- kostnað-og annað. — Aðrir hafa einnig unnið gott starf. Starfs- menn Vegagerðarinnar og lög- reglan hafa lagt á sig mikið erfiði til að bjarga fólki, sem hefur verið lokað inni f bílum sínum og langferðabifreiöum hér og þar i nágrenni Reykjavík- ur. — Þá hafa Guðmundur Jónasson, fjallagarpur og menn hans staðið í strömgu við að bjarga fólki úr bílum, jafnvel börnum og gamalmennum. — Vegna dugnaðar og harðfylgi þessara aöila, hefur allt björgun arstarfiö gengið mjög vel, jafn- vel þótt alla samræmingu hafi skort á milli þeirra. í gærmorgun var áberandi hvaö Reykvíkingar eru almennt „bjartsýnir" menn. Hvarvetna mátti sjá ",(ofurhugana“ gang- setja bifreiðir sfnar og aka þeim 1 af' stað til þess eins að festa þær í næsta skafli. Þetta varð til þess, aö miklir erfiöleikar sköpuðust í umferð þeirra bif- reiða, sem útbúnar eru til þess að aka í ófærð og varð einnig til þess að seinka fyrir hreinsun gatnakerfisins. Snjómoksturinn kostar borgina 600 þús. á dag Alla undanfarna daga hefur gatnamáladeild borgarinnar haft öll tiltæk tæki í gangi við snjómoksturinn, bæði eigin tæki borgarinnar og vélar, sem leigð- ar hafa verið hjá ýmsum verk- tökum. Að því er Ingi O. Magn- ússon, gatnamálastjóri, sagði Vísi, voru um 30 tæki alls i snjómokstrinum í gær, en stöð- ugur snjómokstur hefur verið 1 borginni síöan fyrir helgi. — Vaktaskipti eru höfð á tækjun- um, þannig að þau hafa verið i notkun allan sólarhringinn, en þaö mun kosta borgina hátt i 600.000 krónur á dag. Fyrir utan þetta er svo Vega- gerðin aö sjálfsögðu einnig með sfn tæki í gangi, en láta mun nærri að um 20 tæki frá henni hafi verið í gangi í nágrenni Reykjavfkur í gær, auk vinnu- véla hjá nágrannasveitarfélög- unum og bæjum. Það er vart við því að búast, að „neyðarástand“ eins og í nótt skapist aftur fljótlega, þó að spáin hafi verið svört fyrir nóttina í nótt (a. m. k. má búast við að ekki gani jafnmargir út | f óveðrið), en það gæti verið rj fróölegt fyrir Almannavarnir aö H vera viöbúiö næst til að kanna, hvemig kerfi almannavarna á Islandi er á vegi statt. — Það kann einnig að vera, að meiri nauösyn verði á almannavöm- um þá. í því sambandi má t. d. benda á aö komi númjögskyndi leg hláka er alveg ljóst, að mikil flóö veröa á Suðvestur- landi. -vj- • •••. . ■ .......................................................................................................................................................................................................................... ' W ................................... ,Raunsæismaður“ á leið til vinnu í morgun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.