Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 6

Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 6
6 V í SIR . Þriðjudagur 17. febrúar 1970. V J lifi Itlíillllilil V •' -'•' • '«*+< í{ v ”• xJs; X-, Sí Þegar góða veðrið kom í gaer- dag, bættist mönnum skapið ogJiér eru þeir félagar, Ómar ikagnarsson og Gunnar Borg, komnir í snjókast. „Hvað skal nú til ráða?“ — Hér hefur allt fariö 1 handaskolum og einir fjórir, fimm bflar siíja fastir í sköflum og ófærð, en þetta var engan veginn óalgeng sjón á götum og gatnamótum í Reykjavík í gærmorgun. Hjálparlausir gagn- vart náttúruöf lunum Vinsælustu borgararnir í Reykjavík í gær voru þeir, sem bjuggu svo vel að eiga skóflur til þess að Iána nágrönnum sínum, svo að þeir gætu mokað frá dyrunum, eins og dyra- vörðurinn hér á myndinni á Hlótel Sögu. Eðlileg umferð hófst svo aftur seint I gær, þegar götur höfðu verið mokaðar. „Það verður líklega ekki um annað að ræða en ýta honum bara — eða sjáið þið nokkum bíl koma?“ Þegar allt annað bregzt, þá er alltaf hægt að reiða sig á gamla góða verkfærið — sRótl- una! Og þó! Ekki í fyrrinótt eða gærmorgun.því að jafnóöum skóf í skóflufarið. En þegar veðrinu slotaði hins vegar, þá kom skóflan í góðar þarfir. atvinnulíf Iagðist i dróma, þar eö starfskraftar komust ekki frá heimilum sínum til vinnustaöa, þótt aðeins væri hálftíma gangur á milli. Það skilur líka eftir sig til- finningu um óhugnanlegt bjálp- arleysi gagnvart náttúruöflun- um, þrátt fyrir alla tæknina, sem maðurinn hefur á valdi sinu. Tjað er sagt, aö það sé ekkert eftirminnilegt viö ferðalag, sem gengur skakkafallalaust fyrir sig, og allir hrakningar í ferðalögum séu bara ævintýri, sem skemmtileg verði til upp- rifjunar síöar meir. En þegar svoleiðis ævintýri verða á ferðum milli húsa innan- bæjar, heyrir þaö undir hvim- Ieið óþægindi, sem kannski aör- ir, er álengdar standa, geta brosað aö, en er hreint ekkert gaman þeim sem f því lenda. Þess vegna fannst mönnum ekkert gaman, þegar þeir ný- vaknaðir komu út f kolvitlausan skafrenning, sem ekki var hægt aö horfa f, og stóðu upp farlaus- ir i gærmorgun. Hinum var heldur ekkert skemmt, sem seint voru.á ferli í nóft, svefnþurfi og þreyttir éftir langan dag, þegar þeir festú bíla sína í ófær- um og stóðu uppi bjargarlitlir. Menn geta oröiö álíka hjálpar- lausir inni á Suðurlandsbraut, eins og lengst uppi á öræfum. Enda var ástandiö sfzt til þess aö hafa gaman af því, þegar all- ar samgöngur heils landshluta, þar sem meir en helmingur þjóð- arinnar er saman kominn, lögð- ust niöur, og horfur á þvf að ó- veður og ófærö tæki fyrir allan aöflutning nauðsynja á þetta fjölbýlissvæði. Og nálega allt

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.