Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 16
Þrjú ný póstútibú opnuð á næstunni MIKLAR umbætur á póstþjónust- unni standa fyrir dyrum, en nokk- ur ný útibú veróa tekin í notkun á næstunni. í þessum mánuði flytur útibúið Vttlf ofan í skurð við Nauthólsvík ® Bifreið, sem var á leið eftir Flugvailarvegi i gærdag kl. 18.30, ók út af veginum hjá Naut- hólsvík og valt niður í skurö. I sætinu hjá ökumanni sat farþegi honum til hægri handar og hand- leggsbrotnaöl hann i veltunni, en ökumann sakaði ekki. — GP — Gaf Hæstarétti milljón til bókakaupa að Laugavegi 176 í Búnaðarbanka- húsið á Laugavegi 120, þar sem Pósturinn hefur fengið inni í allri útbyggingu hússins. Þá stendur til að stofna útibú á Seltjarnarnesi og verður það til húsa í Mýrarhösa- skóla, þar sem gömlu bæjarskrif- stofumar voru. Veröur það útibú opnað upp úr næstu mánaðamót- um. Nýtt útibú veröur opnað við Hagatorg á horninu á Nesvegi og Hofsvallagötu, sennilega í maímán- uði. Fyrir skömmu auglýsti Pósturinn eftir húsnæði fyrir útibú í Árbæjar- Breiðholté- og Háaleitishverfi, en viðunandi tilboð bárust ekki nema fyrir Árbæjarhverfið og er það í athugun. — SB — Hékk aftan í og lenfi undir bílnum ® Tíu ára gamall drengur varð undir bifreið í Hóimgarði kl. 18.45 í gærdag. Hékk drengurinn aftan f bifreiðinni aö stráka hætti, en lenti uþdir henni, þegar öku- maður ók bifreiðinni afturábak til þess að komast hjá ófæru. Marðist drengurinn nokkuð og tognaði á öxl og var fluttur á slysavarðstof- una. — G.P. — í tilefni hálfrar aldar afmæiis Hæstaréttar afhenti Jóhann Haf- stein dómsmálaráöherra Hæsta- rétti eina milljón króna f. h. rík- isstjórnarinnar viö athöfn í hús-‘ næöi Hæstaréttar, þegar minnzt var afmælisins. Alþingi hafði samþykkt þessa gjöf, sem á að verja til efl- ingar bókakosti Hæstaréttar. Lögmannafélag ísiands gaf Hæsta rétti islenzka fánann, Dómarafélag íslands gaf þingboðsöxi og blóma- körfur bárust frá Lögfræðingafélag- inu, Félagi dómarafulltrúa og laga- deild Háskóla íslands. — vj — Flugið tíl Angmagssalik stöðvast vegna óveðurs Engan varning hefur enn ver- iS hægt að flytja til Ang- magssalik síðan fyrir helgi, þegar skíðaflugvél Flugfélags ins, Gljáfaxi, laskaðist í ó- veðrinu, sem gekk yfir Kulu- suk. Vélin fauk til á vellin- um þótt búið væri að binda hana rammlega við þrjár jarðýtur. Þegar flugmennim- ir komu út á sunnudagsmorg- un sáu þeir vélina ekki fyrr en eftir nokkra eftirgrennsl- an. Hún hafði fokið 70 metra, og út af brautinni. Vængend- ar voru laskaðir svo og jafn- vægisstýrið. I gær stóö til að senda aðra DC vél frá Flugfélaginu þangað vestur, Gunnfaxa, en hún er ekki með skíðabúnað. í morgun þegar átti að leggja upp meö vélina frá Reykjavík, bárust hins vegar þær fréttir, að um 40 cm þykkur snjór væri nú jafnfallinn i Angmagssalik og ógerningur að lenda þar nema á skíðavélum. Sólfaxi kom úr þriöju ferð sinni með vörur frá Kaupmanna höfn til Reykjavíkur snemma í morgun. Ætlunin var aö rýma vörum úr vélinni til þess að hægt yrði að koma fjórum mönnum vestur til þess að gera við vélina. Munu þeir trúlega leggja upp í dag, ef hann hvessir ekki aftur þar vestra, en því var spáð í morgun. —JH — Flugvélin, sem hlekktist á á laugardagskvöldið, var flutt til bæjarins á dráttarvagni í gær- dag. Við nauðlendinguna uppi á Sandskeiði hafði vélin laskazt nokkuð, eins og sjá má á væng- endanum og sjálfum skrokknum. Er ekfci Anastasia « • Nú eru öll sund lokuð fyrir frú Önnu Anderson-Mana- han, sem seglst vera Anastasia, eina lifandi bam Nikulásar Rússakeisara. Hæstiréttur f Vestur-Þýzkalandi vísaði frá í morgun síðustu áfrýjun frúar- innar. Staðfesti hæstiréttur þann úrskurð frá 1967, aö frúin sé alls ekki Anastasia. • Hin 67 ára Anna Anderson- Manahan hefur í 36 ár bar- izt fyrir viðurkenningu sem stórhertogaynja. Hefði hún unn- ið máli, gæti hún gert kröfu til hluta af arfi eftir kelsarann. Með úrskurði hæstaréttar veröur stórhertogaynjan af Mecklen- burg eini erfingi hlnna miklu auðæfa sem keisarinn lét eftir sig. Auðæfin eru geym í Berlín. Anna er gift bandarískurii milljónamæringi. — H.H. „VIÐ EIGUM AÐ SKAPA RAMMÍSLENZKA TÍZKU - segir Auður Sveinsdóttir húsfreyja á Gljúfra- steini, eiginkona Halldórs Laxness, en hún hlaut verðlaun i prjónasamkeppni Álafoss ■ „Ég hef alltaf haft ákaf- lega gaman af að fást við þjóðlega og skemmtilega handa- vinnu. Og þá á ég við ramm- íslenzka handavinnu, unna úr ísienzku hráefni eftir islenzkum og einkennandi munstyum. íslendingar gera of(mikið af því að .kópiera" Skandínavíu, til dæmis Svíþjóð og Danmörku. Viöhorfin eru nú samt að breyt- ast finnst mér sem betur fer. Fólk er farið að skilja það betur, aö ekki er nóg að fara bara i gömul tízkublöð og „kópiera“ þau eins og til dæmis „Alt for darnerne" Þú mátt gjarnan skrifað það að skotthúfan mln sé ekki úr „Alt for damerne", held- ur rammíslenzk, unnin úr fs- lenzkum lopa með skúfi og gullhólk, þæfð og kembdrétteins og í gamla daga. Þessi skott- húfubúningur hefur mér alltaf fundizt ákaflega fallegur og klæðilegur. Miklu fallegri heldur en þessar sundhettuhúfur, sem tizkukóngarnir hamast við að selja núna í París. Mér finnst við leita langt yfir skammt hérna á Islandi í sam- bandj við tízkuna og klæðnaðinn. Á Þjóðminjasafninu okkar eru nær óteljandi hugmvndir, sem við getum notfært okkur, og þá um leið skapaö okkur íslenzka tizku, rammíslenzka, nútíma lega og klæðilega. Við verðum bara að vera vakandi f þessum efnum og grípa þessar hug- myndir, sem eru hérna við bæj- ardymar hjá okkur, áður en einhver útlendingurinn verður á undan.“ Sú sem mælir á svo þjóðlegan hátt er engin önnur en Auður Sveinsdóttir, eiginkona nóbels- skáldsins Halldórs Laxness. Skotthúfan, sem Auður talar um vann þriðju verðlaun í ný- afstaðinni hekl- og prjónasam- keppni hjá Álafossi. Húfan hefur vakið verð- skuldaða athygli enda fallegur, klæðilegur og hlýr höfuðbúnað- ur og rammíslenzkur, og alveg jafnt fyrir þær ungu sem gömlu. Þær eru fljótprjónaðar og í hólkinn má hafa ódýrt efni, ef vill svo sem gyllt leöurlíki. — M.V.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.