Vísir - 21.02.1970, Síða 7

Vísir - 21.02.1970, Síða 7
7 V1SIR . Laugardagur 21. febrúar 1970. cTMenningarmál Stefán Edelstein skrifar um tónlist: HARPAN VON EÐA TÁLVON? ^gæt verkefnasamsetning ein- kenndi 11. tónleika Sin- fóníuhljómsveitar íslands sl. fimmtudag. Upphaf tónleikanna var tví- umskrifaður „Concerto grosso“ eftir Vivaldi. Fyrsta ummyndun verksins er engum öðrum að þakka en Bach sjálfum, sem samdi orgelverk úr tónsmíð Vivaldis. Vafalítið hefur orgel- hljómur Bachs svifið fyrir eyr- um D’Antalffy, sem umsamdi verkið í annað sinn fyrir stóra hljómsveit (1940). Það orkar oft tvímælis að „umskrifa" verk annarra höf- unda. Þó er ekki sama hvernig slíkt er gert, og er margt hag- anlega framkvæmt í þessari ,,út- gáfu“. Samt er ég ekki frá því, að orgel-útgáfa Bachs sé öllu áhrifameiri. Engu að síður, verkiö var vel flutt og litafletir rómantískrar sinfóníuhljómsveitar nutu sín dável í þessari barokk-tónsmíð. Ekki mundi saka að geta örfá- um orðum um einleikara kvölds- ins í efnisskrá þeirri, er Ríkisút- varpið gefur út. Það er góður og sjálfsagður siður, og ekki á- stæða til að sleppa þessum upp- lýsingum handa tónleikagestum, jafnvel þótt sagt hafi verið frá einleikaranum í dagblöðum. Franski píanóleikarinn ungfrú Evelyne Crochet, sem m. a. hef- ur verið nemandi hins fræga Rudolf Serkin, lék einleik með hljómsveitinni í píanókonsert Mozarts nr. 24 K 491. Þessi píanókonsert er merkis- verk — ákaflega ólfkur öðrum píanókonsertum Mozarts. Hann býr yfir Beethoven-einkennum hvað skapofsa og dramatík snertir, upphafsstef 1. þáttar leiðir okkur í nærri framandi heima — óvenju myrk dramatík samtvinnuð nærri rómantískum hljómfyrirbærum sýna okkur nýja hlið á Mozart. Ekki svo að skilja að sá mikli og e.t.v. mesti meistari búi ekki yfir dramatík f öðrum verkum — en sú drama- tík er oft „inn á við“ og ekki merkt hinum sjálfsögðu ytri einkennum. Píanókonsertinn er f heild ekki eins „aðgengilegur" og flestir aðrir píanókonsertar Mozarts. Því þakklátari getum við verið fvrir að fá að heyra hann ágætlega túlkaðan af ung- frú Crochet. Hún leikur mjög músíkalskt með mikilli tónfyll- ingu,- og túlkaði þennan konsert á þann „Beethoveniska" hátt sem ég nefndi áðan. Tækni hennar er mjög góð, og hún býr yf-ir mikilli breidd á „registr- um“: Hið draumkennda aðalstef hæga þáttarins (þeir sem þekkia 3. pfanókonsert Beethov- ens, hafa e.t.v. fundið andlegan skyldleika í hægum köflum þess ara verka?l. fer henni iafnvel úr hendi og ofsafengið stef 3. þátt- ar, heaar hað birtist í fortissimo f einu tilbrigðaforminu. Það eina sem ég gæti fundið aö leik ungfrú Crochet var, hve spar- samlega hún beitti vinstri hend- inni, „botninn" var stundum heldur veikur. Full ástæða er til að benda á vfirleitt ágætan leik hljómsveit- arinnar í þessu verki; hlutverk hennar er annað og meira en undirspil Mozart ætlar henni nærri því „jafningia-hlutverk". Áberandi er samtalsform blásara og einleikara í hæga þættinum og sumstaðar í 3. þætti. Var hér margt framúrskarandi vel leikið af blásurum. En einnig er full ástæða fyrir blásara að gæta enn betur að innbyrðis hrein- ieika. hér er þvi miður ekki allt í fullkomnu lagi enn. Eftir hlé var fiutt Symphonie Concertante eftir svissneska tónskáldið Frank Martin. Þetta er prýðilega vel samið ýerk, og tekst varla (þrátt fyrir nýstárlega hljóma) að fæla nokk urt .ihaldssamt eyra frá lengur. í eðli sínu tengd rómantík, en ákaflega persónulega mótuð, megnar þessi tónsmið að tala beint til hlustandans; þetta er lífi gædd tónlist í bezta skiln- ingi, og ekki gat ég annað heyrt en flest það sem máli skipti, kæmist ágætlega til skila hjá hljómsveitinni. Lokaverkiö var La Valse eftir Ravel, þar sem maður er ekki öruggur, hvort tónskáldið er að gera grfn að valsamenningu Vínarborgar (greinilegar tilvitn- anir í Strauss-valsa heyrast) eða hvort honum er alvara — og hann vilji segja samtíð sinni frá því að tónamál nútímans sé öðruvísi, tími Vínarvalsins sé liðinn. Ravel var meistari í með- höndlun hljómsveitar, honum tekst að spila á og nýta litaskala hinnar stóru rómantísku hljóm- sveitar út f æsar. I heild var La Valse sannfær- andi flutt af S.I., þó hefði mað- ur stundum óskað eftir bæði hreinni og fyllri fiölutón. En Bohdan Wodiczko tókst að raf- magna hljómsveitina og hljóm- sveitinni tókst að rafmagna á- heyrendur ^ það var augljóst, þegar lokaklappið og bravó- hróp dundu yfir. ^pvennt var áberandi þetta kvöld. Húsið var rúmlega hálfskipað. Ég vona, að hér sé eingöngu inflúensu og ófærð um aö kenna. Það er átakanlega að þurfa aö horfa upp á hálft hús, þegar S.í. er loks komin aftur til lífs, og okkur er boðið upp á prýðileg verk betur flutt en nokkru sinni síðan í haust. Hitt, sem vakti eftirtekt, var að harpa skreytti hið tilbreyt- ingalausa svið Háskólábíós. Skyldi sparnaðarstefna Ríkis- útvarpsins vera að breytast? Fáum við að njóta hörpunnar lengur? Eða er þetta bara tálvon, sem staðfestir þann grun, að enn sé ekkert raunhæft og stefnu- mótandi aðhafzt í sambandi við framtíöaruppbyggingu hljóm- sveitarinnar? Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35. 38. og 42. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1969 á húseigninni Álfaskeiði 58, Hafnarfirði, eign Þorkels Jóhannessonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóðs á eigninní sjálfri þriðjudaginn 24. 2. 1970 kl. 2.15 e.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35. 38. og 42. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1969 á fasteigninni Reykjavíkucvegur 45, Hafnarfirði, eign Bílaverkstæðis Hafnarfjarðar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóös og Guðlaugs Einarssonar, hrl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 25. 2. 1970. kl. 4.15 e.h Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð sem auglýst var í 35. 38. og 42. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1969 á húseigninni Barðaströnd 23, Seltjamamesi, eign Byggingarfélagsins „SÚД fer fram eftir kröfu Gjaldheimt unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. 2. 1970 kl. 3.15 e.h. Sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýsiu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 57. 58. og 60. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1969 á húseigninni Öldutúni 12, Hafnarfirði, talin eign HalÞ dórs Guðmundssonar hf. fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóös á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. 2. 1970 Kl. 4.30 e. h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nuuðungaruppboð sem auglýst var í 69. 71. og 72. tölublaði Löbgirtingablaðsins 1969 á húseigninni Holtsgötu 5, Hafnarfirði, eign Ragnars Þjóðólfssonar, fer fram eftir kröfu Sigurðar Helgasonar hdl, Iðnaðarbanka íslands hf., Hafsteins Árnasonar og bæjar- gjaldkerans í Hafnarfirði á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. 2. 1970 kl. 3.00 e.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði LEIGAN s.f. Vinnuvélar til leigu Víbratorar Stauraborar Slípirokkar Hitablásarar Litlar Steypuhrœrivélar Múrhamrar m. borum og fleygum Rafknúnir Steinborar Vatnsdœlur (rafmagn, benzfn ) Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki HDFDATUNI 44 - SÍMI 234480 fer frá Reykjavík um miðja næstu viku til ísafjarðar. Vörumóttaka á þriðjudag 24. þ.m. í A-skála. Hf. Eimskipafélag íslands

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.