Vísir - 21.02.1970, Side 8
V1SIR . Laugardagur 21. febrúar 1970.
Utgefandi. KeyKjaprent u..
Framkvæmdastióri: Sveinn R. Eyjóltsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axei Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgii Pétursson
Ritstjómarfulltriii: Valdimar H- Jóhannesson
Auglýsingar. Aðalstræti 8. Símar 15610. 11660 og 15099
Afgreiðsla: AOalstræti 8. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 165.00 ð mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. _____________
■■■■HHtHHHr' ' ■'qillWMaWMMMWBMB—
Flokkur,
sem enginn má treysta
þegar vinstri stjórnin fræga valt úr sessi, undir árs-
lok 1958, töldu margir fullreynt að Framsókn gæti
ekki stjórnað landinu. Sú skoðun hafði við gild rök
að styðjast. Stjórnarforusta Framsóknar hafði alltaf
endaö með ósköpum. Stefna flokksins hefur ávallt
reynzt óheppileg og fljótt orðið óvinsæl hjá stórum
meirihluta þjóðarinnar. Samstarf við aðra flokka hef-
ur reynzt erfitt, vegna einstrengingslegrar flokks-
hyggju framsóknarmanna, sem jafnan hafa reynzt
allra flokka óheilastir í samstarfi. Ekkert mál er svo
mikilvægt fyrir þjóðina, að Framsókn virðist ekki
fyrst og fremst hugsa um að hafa af því flokkslegan
ávinning og reyni að haga málalokum í samræmi við
það. Slík afstaða er vitaskuld ekki vænleg til góðs
samstarfs við aðra flokka, en verst er þó, hve illa
hún getur komið niður á þjóðinni sjálfri, þegar um
stórmál er að ræða, sem heill alþjóðar varða.
Þetta er meginástæðan fyrir því, að enginn stjórn-
málaflokkur hefur getað verið í samstarfi við Fram-
sókn nema skamman tíma, og þar er einnig skýring-
in á því, hve lengi flokkurinn hefur nú verið utan
stjórnar og verður það sennilega enn um langa fram-
tíð. Forustumenn flokksins hafa sjálfir dæmt hann
úr leik með óheilindum sínum og einstrengingshætti.
Enginn flokkur mun ganga til stjórnarsamstarfs við
Framsókn, sé annarra kosta völ.
Framsóknarflokkurinn hefur nú verið í stjórnar-
andstöðu rúman áratug. Ætti því að vera fengin full-
nægjandi reynsla af honum í því hlutverki. Verði
stjórnmálasaga þessa tímabils einhvern tíma skráð
og hlutlaust mat lagt þar á allar staðreyndir, getur
ekki hjá því farið að sá dómur verði Framsókn jafn-
vel ennþá óhagstæðari en hinn, sem hún hefur þegar
hlotið fyrir stjórnarstörfin. Þess munu áreiðanlega fá
dæmi í sögunni, að flokkur hafi verið meira en ára-
tug samfellt í sLjóiuarandstöðu án þess að bera
nokkru sinni fram raunhæfa tillögu um lausn á
vandamálum þjóðfélagsins. Forustulið Framsóknar
hefur varið allri orku sinni og hugkvæmni til þess
eins að torvelda ríkisstjórninni að reisa efnahagslíf
þjóðarinnar úr rústunum eftir afglöp vinstri stjórn-
arinnar.
Framsóknarflokkurinn hefur lagzt svo lágt að
mynda bandalag við kommúnista um þessa skemmd-
ariðju, og hann hefur jafnvel oft og tíðum gengið þar
lengra en þeir. Á sama tíma og hann hefur látið blöð
sín og ræðumenn fordæma dýrtíð og verðbólgu, hef-
ur hann af öllum mætti reynt að magna þann draug
og leikið þannig tveim skjöldum þar eins og í öðrum
málum. Hann hefur í nálega öllum efnum gengið í
berhögg við þau boðorð og kenningar, sem hann
sjálfur hélt fram, þegar hann var í stjórn. Lengra
verður vart gengið í loddaraleik og ábyrgðarleysi.
»r
i
íf
K
Sá kvittur er uppi, að Jens Otto Krag hinn danski hafi lagt aö hinum þýzka starfsbróður
sínum Willy Brandt, að hann hindri inngöngu Dana í EBE. Skuli Brandt koma í veg fyrir, að
aðild Dana verði samþykkt í Efnahagsbanda lagi Evrópu, og með því halda lífi í NORDEK.
„N0RDEK milli
heims og heiju"
iiiiniimi
M) MMi
OHHIBIIIBIBI
Umsjón: Haukur Helgason
Erlend hlöb efablandin um langlifi
norræna tollabandalagsins
„Þetta er eins og ef
maður trúlofast stúlku
og heitir annarri tryggð
um leið“. Blöð utan
Norðurlanda eru fremur
svartsýn á, að norræna
tollabandalagið, Nordek
fái staðizt með tilliti til
i... .";nar Norð-
manna og Dana um að-
ild að „stóra efnahags-
bandalaginu“, EBE, og
tengsla Finna og Rússa.
Vestur-þýzka tímaritið „Der
Spiegel" byrjar grein sína um
Nordek á framangreindum um
mælum danska þingmanns-
ins Per Möller. F.r þingmaðurinn
sagður telja, að Nordek beri
dauðann í sjálfu sér frá upphafi.
„í íslenzku leikhúsi“.
Brezka vikuritið „Econom-
ist" segir að síöasti þáttur Nord
ekmálsins hafi, ef vonir Skandi
ava rætist verið „leikinn í ís-
lenzku leikhúsi". Vafasamt sé,
að þetta sé rétt. Segir rtr.ið frá
því að á Haagfundinum í des.
hafi aftur vaknað vonir Norð-
manna og Dana um aöild að
Efnahagsbandalagi Evrópu, EBE.
Þá hafa Finnar skyndilega kippt
að sér hendinni í Nordekmál-
inu. Mauno Koivisto, forsætis-
ráöherra, hafi í fyrstu tekið þá
afstöðu að fresta yrði frekari
umræðum um stofnun Nordek,
þar til aö loknum kosningum í
Finnlandi i marz næstkomandi.
Hinn 12. janúar hafi hann gerzt
ómyrkari f máli. Ef eitthvert
Norðurlanda hæfi viöræður opin
berl. um aðild að EBE þá mundu
Finnar áskilja sér rétt fil að
hætta algerlega umræðum um
Nordek. Þar til þetta geröist,
mundu Finnar hins vegar taka
þátt í undirbúningi að stofnun
Nordek.
Hætta samstarfi „á á-
kveðnum sviðum“.
Viðræöum Norðurlanda var
haldiö áfram og fór svo, að sam-
komulag náöist í Stokkhólmi
hinn 4. febrúar, og gerö voru
drög að samningi. Finnar lýstu
því yfir, að sérhvert aðildarríki
Nordek skyldi hafa rétt til að
rjúfa samstarfiö á þeim sviðum
sem yrðu fyrir áhrifum',af því
að einhver ríki gengju í EBE.
Hins vegar yrði unnt að halda
Nordek í heild sinni til streitu,
þótt til dæmis Noregur og Dan
mörk gengju í Efnahagsbanda-
lag Evrópu.
Economist telur, að Finnar
ætli sér með þessu aö sýna
Rússum fram á, að Nordek sé
ekki hugsað sem tæki, er drægi
öll Norðurlönd og Finna með
inn í EBE. Koivisto sé f raun
inni mjög áhugasamur um nor-
rænt tollabandalag, en vilji ekki
reita Rússa til reiöi.
Spáir Economist, að það muni
leiða til vandræða fyrir nor-
ræna bandalagið, ef einhver
Norðurlanda gengju í hið stærra
bahdalag.
Nordek-hugmyndin
endurvakin
Spiegel segir frá þvi að
Nordekhugmyndin hafi veriö
lögð til hliöar, þegar Danir og
Norðmenn fóru að hugsa til aö-
ildar að EBE. De Gaulle lokaði
hins vegar dyrunum fyrir Bret-
um og hinum norrænu vinum
þeirra. Þá hafi Hilmar Bauns-
gaard, forsætisráðherra Dana,
fengið starfsbræður sína á Norð
uriöndum til að endurvekja hug-
myndina um Nordek.
Hafi norrænir leiðtogar kom
ið sér saman um stofnun Nord-
ek, á sama tíma og Bretar fengu
i fyrsta sinn góðar vonir um
aðild að EBE.
»-> 13. síða
,/Það
tókst'
f,