Vísir - 17.04.1970, Síða 5
VÍ-SIR . Föstudagur 17. apríl 1970.
5
Grobb á Visi
„Skelfing er ég orðinn leiöur
á þessu sífellda grobbi ykkar
V' ismanna af Visi í vikulokin.
i egar ég geröist áskrifandi fyr-
ir tveimur árum, fékk ég þessa
íinu möppu, sem nú er víst orö
in 1300 króna viröi. Að vísu
vantaöi nokkur blöð í hana, en
mér var sagt. aö mjög fljótlega
yrði hafizt handa við að endur
prenta þau, þar sem þau væru
til þurröar gengin.
Látiö nú veröa af efndunum,
og þá fyrst getið þið með.góðri
samvizKU freistaö nýrra vænt
anlegra áskrifenda með Vísi i
vikulokin.
B.H.“
Skýring Vísis
Um það bil ári eftir að Vísir
í vikulokin hóf göngu sína fór
fram víötæk áskrifendasöfnun
hjá Vísi. Hún gekk svo vel, aö
flj,ótlega gengu mörg töiublöö af
Vísj 'í vikulokin til þurrðar. Var
þá nýjum áskrifendum lofaö
þvi, aö hin uppgengnu blöö
skyldu veröa endurprentuð og
að þeir gætu fengið þau sér
að kostnaðarlausu. Þetta lof-
orð var efnt. Þau átta tölublöð,
sem voru uppseld, voru endur-
prentuö. Var þetta auglýst ræki
lega i b.laöinu og menn hvattir
til að afla sér þessara eintaka á
afgreiðslunni. I nokkra mánuöi
var Vísir í vikulokin því til
„complet" á afgreiðslunni. En
þá fóru önnur tölublöð að
ganga ört upp. Þau tölublöö hef
ur aldrei staðiö til aö endur-
prenta, enda hefur síðan hvert
tölublaö veriö til á afgreiðslunni
í meira en ár eftir útkomu þess.
visir getur ekki haft Vísi í viku
lokin á lager árum saman. Hins
vegar var talsvert prentaö af
öllum bessum tölublööum og
gætu safnarar reynt að útvega
sér þau eftir venjulegum leið-
um safnara. Ritstj.
Furðuleg smekkleysa.
„Spyrjiö börnin, þau segja
Egils-appelsín“ hljómar nú án
afláts í auglýsingatímum út-
varpsins. Þarna nægja ekki aug
lýsingar í blöðum. því að aug
lýsingin þarf aö ná til yngstu
barnanna líka og þau eru ekki
læs. Auglýsingar af þessu tagi
eru yfirleitt ekki tíðkaöar hjá
siðuðum mönnum. Mér kemur í
hug sams konar atferli um dag
inn, þegar einhver klúbbur á-
kallaði börnin dag eftir dag í
því skyni, að þau vældu út leyfi
foreldra sinna, til aö sjá Andréa
ar andar-sýningu á vegum
klúbbsins. Þetta viöskiptasið-
ferði er sannarlega ekki á háu
stigi.
Reið móðir.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
Aldursforseti
íslenzkra presta býr
í Yesturheimi
— 60 ár liðin frá prestvigslu séra Alberts
Kristjánssonar i
□ Að Ytri-Tungu á Tjör
nesi í Suður-Þingeyjar-
sýslu fæddiet sá maður,
sem með nokkrum fátæk-
legum orðum á að minnast,
hinn 17. apríl 1877, séra Al-
bert Kristjánsson að Blaine
í Washingtonfylki, auk
þess að eiga 93 ára afmæli
í dag, þá eru 60 ár liðin frá
prestsvígslu hans til
Gunnavatnsbyggðar í
Manitoba.
□ Séra Albert er nú ald-
ursforseti íslenzkra presta,
og þjónar enn hinum ís-
lenzka söfnuði er á „Staf-
holti“ búa, eru það nær ein
göngu íslendingar, sem eru
vistfólk á hinu íslenzka elli
heimili.
1888 fluttist Albert ásamt for-
eldrum sínum vestur til Nýja-ís-
lands, sem fólk hugöi þá, að upp
væri að rísa nýtt ísland, og átti
hann heimili þar til 28 ára aldurs.
Albert útskrifaðist úr presta-
skóla í Pennsylvaníu 1910. 1909
stofnaði hann söfnuð Unitara með-
Washington-fylki
aldrei hafi þeim hjónum orðið
sundurorða.
Heimilj þeirra hefir í nærri sjö-
tiu ár verið annað heimili íslend-
inga, hvort heldur sem þaö hefir
staðið í Manitobafylki eða í Blaine,
íslenzk menning og íslenzk tunga
hafa átt þar öruggt vígi.
Dókasafn áttu þau hjón fágað og
fínt, af ýmsum gullaldarperl-
um íslenzkra bókmennta, sérstak-
lega ljóðasafn.
„En „römm er sú taug“, þau
hjón gáfu bókasafnið sitt heima-
sýslu séra Alberts, Suður-Þingeyj-
arsýslunni, og er það nú varðveitt
á Húsavik.
Eins og að framan greinir, er
prestur frá Ytri-Tungu á Tjörnesi,
og enn á hann allmargt skyld-
menna norður þar. Albert heim-
sótti íslarid 1935.
Eitt af séreinkennum heimilis-
brags þeirra hjóna er, að á heim-
ili þeirra er eingöngu töluð ís-
lenzka, og þau gera það sín á milli.
Börn þeirra lærðu öll i æsku
islenzku, svo sem vænta mátti og
tala hana mjög vel, en börnin
voru 5.
1. Nanna Helga, gift Leó raf-
magnsverkfr. og stórkaup-
manni í Vancouver B. C. Sig-
urðssyni, er hann af Deildar-
tunguætt í Borgarfirði.
2. Hjálmar Albert, flúgmaður,
siðast bókhaldari, d. 1957.
3. Sigrún Soffía læknaritari í
Victoría B.C.
Sr. Albert og kona hans Anna. Myndin er tekin við heimili þeirra í fyrra,
4. Ósk Jóhanna d. 1910.
5. Jóhanna húsfrú í Seattle.
I dag yljar séra Albert sér í
huganum viö yl gamalla minninga,
frá æskuárunum á íslandi og
bernskuárunum í Nýja-íslandi, en
dýrmætast er í huganum.það spor,
er hann eignaðist dýrmætasta
djásn lífsins, árið 1902,- konuna
sína.
Héðan að heiman í dag, berast
þeim hjartanlegustu heillaóskir frá
frændgarði stórum, og fjölmörgum
vinum, sem þakka þeim tryggð og
einlcs^ja vináttu allmargra ára, og
biðja þeim blessunar á ókomnum
æ.vidögum. ...
Helgi Vigiusson,
Bólstaðarhlíð 50.
al íslendinga í Grunnavatnsbyggð,
og vígðist þangað, eins og fyrr seg-
ir fyrir 60 árum, ög var þar prest-
ur næstu átján árin til 1928, er
hann ásamt fjölskyldu sinni flutti
vestur til Blaine, er hann hefir síð-
an búið, og þjónað þaðan ennfrem-
ur hinurn islenzka söfnuði Unitara
: Seattleborg.
í Manitobafylki var hann um
tímabil þingmaður fyrir Bænda-
flokkinn, og lét hann sér á þingi
sérstaklega annt um um hagsmuni
íslendinga.
tjann var á sínum tíma einn af
frumkvöðlum að stofnun Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vestur-
heimi, og forseti þess um tíma
en er nú heiðursfélagi.
Sæmdur var hann árið 1939
stórriddarakrossi hinnar íslenzku
Fálkaorðu.
Albert Kristjánsson hefur verið
talinn í hópj mælskustu og áheyri-
legustu kennimanna íslenzkra
vestanhafs, sakir þekkingar sinnar
og viðsýni.
Og eins og fyrr er sagt er hann
enn að miðla öðrum af sínum and-
ans auði.
Á yngri árum var séra Albert
friður sýnum, eftir myndum að
dæma, og ég minnist enn hins
aldurhnigna glæsimennis er ág
heimsótti þau hjónin frú Önnu og
hann, árið 1963. Þá var Sjón hans
nokkuð farin að daprast, en eld-
heitt var fjör auena hans. Mál-
hreimur var Ijúfur. Minni hans ó-
skert og er enn.
Fyrir nærri 68 árum kvæntist
hann ungrj skagfirzkri blómarós,
Önnu P r-1—bsdóttur frá Dæli í
Sæmundarhlíð, og stendur hún enn
við hlið hans. sem traustas'; vörð-
ur lifs hans, eftir þetta langan
thna, og segja mér kunnúgir, að
Einstaklingar — Félagasamtök — Fjölbýlishúsaeigendur
ÞAU ENDAST V0N ÚR VITI WILT0N-TEPPIN
Eg kem heim til yðar með sýnishorn og geri yður ákveðið verðtilboð á stofuna, á herbergin,
á stigann, á stigahúsið og yfirleitt alla smærri og stærri fleti.
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ HRINGJA í SÍMA 3 1283 EN ÞAÐ BORGAR SIG.
DANÍEL KJARTANSSON
Simi 31283.
kr. 1000. -
kr. 750. - á
út og
mánuði
Nú geta allir gefið nytsamar fermingargjafir.
Seljum á meðan fermingar standa yfir á mjög
“-"m, skatthol, skrifborð, skrifborðs-
o.m.fl.
n Víðir hf.
Laugavegi 166, símar 22222 og 22229