Vísir - 17.04.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 17.04.1970, Blaðsíða 16
Ný forn- mannatízka í Þjóðleik- húsinu Nýja fornmarmatízkan í leik- riti Þjóðleikhússins „Merði Val- garðssyni“ á eflaust eftir að vekja athygli. „Ég hef stuðzt við nýjustu heimildir, er fram hafa komið hjá fornleifafræðingum og öðr- um fræðimönnum, og bókina „Víkingana". í bókinni koma fram stílhreinar og einfaldar fvr5rmyndir,“ segir Gunnar Bjarnason, leikmynda- og bún- ingateiknari í Merði Valgarðs- syni. „Helztu breytingar, sem eru frá því er almenningur hefur yf- irleitt gert sér í hugarlund um búnað víkinga, eru þær, að bún- ingurinn er a'l'lur mun einifaldari. Skikkjur styttri og ófóðráðar. Kræktar saman á öxl í stað beint að framan. Og hjálmurinn er laus við homin. Megintilgangur- inn hjá mér var að ná fram góð- i um og þægi'legum ieikbúningi t og stólhreinni heildarmynd. Ég legg einnig áherzlu á að ná fram ■ listadýrðinni, sem sagt er að hafi einkennt búninga fommanna ár- ið 1000,“ segir Gunnar ennfrem- ur. -MV- Va/in vegna þess að notaði ekki andUtsfarða Fulltrúi „ungu kynslóðarinnar 1970" valinn i nótt „Ég trúi þessu ekki,“ sagði nýkjörinn „Fulltrúi ungu kyn slóðarinnar“, Guðbjörg Á. Haraldsdóttir, um leið og hún flóði öll í tárum. Stallsystur hennar í keppninni hefðu vart orðið kátari yfir úr- skurði dómnefndar, þótt þær hefðu sjálfar hlotið titilinn. Kysstu þær hina lukkulegu svo hressilega, að stóreflis magnari, er stóð að baki Guð- björgu á sviðinu, féll hrein- lega um koll og nærri lá, að stúlkurnar féllu með honum. Krýningin fór fram klukkan 2,30 ' eftir miðnætti, Kristín Waage, fulltrúi ungu kynslóð- arinnar 1967 sá um það atriði, þar eða fyrirrennari Guðbjargar var stödd erlendis. í dómnefnd áttu sæti: Gísli Sigurðsson rit- stjóri, Örn Guðmundsson dans- kennari,- Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Gunnars- son kennari og Bryndís Schram leikkona og sjónvarpsþula. — Gerði Bryndís grein fvrir störf- um dómnefndar á þenn veg, að kvöldinu áður hefðu stúlkurnar§ verið sóttar heim. „Og við spurö um þær spjörunum úr,“ sagði Bryndfs. „Um. skólakerfið, unga fólkið, þjóðféiagið og stráka. Ali ar voru stúlkurnar ánægðar með lífið og tilveruna og þær voru lfka sammála um annað: „Aö strákar væru ókurteisir og sein- þroska og reikningur værj mjög leiöinlegur." Bryndís sagði ennfremur: „Það sem viö í dómnefndinni áttum aö gera var aö velja þá stúlku, er hefði persónuleika og hæfi- leika, sem geröi hana að verð- ugri fyrirmynd ungs fólks. Ég persónuleg'a valdi Guðbjörgu, þó mest vegna þess, að hún er full- komlega eðlileg og notar til dæmis engan andlitsfaröa. Ég er á móti því, aö það sem er ungt og fallegt, sé skemmt með gerviefnum." Húsfyllir. 700 manns, var' á skemmtuninni, sem hófst klukk- an 11,30 og lauk henni laust fyr- ir klukkan 3,00. Svavar Gests var kynnir og hafði nægar skrýtl ur á takteinum. Auk kosningu „Fulltrúa ungu kynslóðarinnar" voru á dagskránni 5 hljómsveit- ir, tízkusýning á vegum Karna- bæjar og Faco, einnig skemmtu Ómar Ragnarsson og Ríó tríó. Öllum ágóða af þessari skemmtun verður varið til fræðslu á njeðal ungs fólks um skaðsemi fíxnilyfja. Guðbjörg Á. Haraldsdóttir, „Fulltrúi ungu kynslóðarinnar", fær auk titilsins 20.000,00 í pen- ingaverðlaun. Hún er sextán ára gömul nemandi , 3. X í Lauga- lækjarskóla. Skemmtilegasta námsgreinin hennar er landa- fræði. Hún hefur ráðgert í fram- tíðinni, að fara í Handíöa- og mvndlistarskólann, til að læra undirstöðu í teikningu. Ef það gengur vel hyggst hún leggja fyrir sig gullsmfði. Aðaláhuga- mál hennar í frístundum er að safna gömlum húsmunum. „Ég ætla að hafa allt í antik, þegar ég fer að búa,“ segir hún. —MV Stúlkurnar, sex, er þátt tóku í keppninni, taliö frá vinstri: Margrét Hallgrímsdóttir, Kristjana Ól- afsdóttir, „Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1970“ G uðbjörg Á. Haraldsdóttir, Þóra Berg, Elín Gests- dóttir og Ásgerður Flosadóttir. Um 2500 manns rtarfa nú í sveitum Slysavarnaféiagsins Q Fimmtánda landsþing Slysá- varnafélags íslands var sett í Slysavarnafélagshúsinu á Granda- garði í gær. í skýrslu forseta fé- lagsins, Gunnars Friðrikssonar, kom meðal annars fram, að einn merkasti áfanginn i starfi lélags- ins sfðustu tvö árin er starfræksla tilkynningaskyldunnar og fullyrti forseti félagsins aö hún væri einn stærsti áfanginn á leiðinni til auk- ins öryggis sjófarenda við ísland. Tiikynningaskyldan hefur ekki einungis yfirlit vfir ferðir skipa heldur stuðlar einnig að stórbættri fjarskiptaþjónustu hér við land. — Nú munu 675 skip taka þátt f til- kynningaskyldunni. Kostnaðurinn viö hana nemur 886 þúsund, en þar af greiðir ríkið 235 þúsund. Sjötíu og tvær sveitir starfa nú innan Slysavarnafélagsins og eru í þeim um 2500 manns. Vegna þeirr- ar miklu áhættu, sem að jafnaði er samfara starfi björgunarsveit- anna hefur SVFÍ nú keypt trygg- ingu á allar björgunarsveitir félags- 4ns og eru nú allir tryggðir, sem starfa á vegum félagsins, hvar sem er á landinu. Það kom fram í ræðu forseta félagsins varðandi björgun- arsveitirnar, að á síðustu 4 árum hafi eitt hundrað manns verið bjargað úr sjávarháska með flug- línutækjum björgunarsveitanna. Skýli félagsins og björgunarstöðv arhús eru nú 62, auk þess sem ýmsar deildir félagsins hafa komið sér upp tækjageymslu. Björgunar- tæki félagsins eru nú á 155 stoðom, á landinu. Félagið hefur að undanförnu hald ið kennaranámskeiö í skyndihjálp og gefiö út bæklinga til notkunar viö kennslu í þessum efnum. Einn- ig^ hefur verið gefin út bæklingur um akstur dráttarvéla. í vor heldur félagið ráðstefnu með fulltrúum umferðaröryggis- nefndanna í maí eöa júní í vor. Þingið mun fjalla um ýmsa þætti slysavarna, sem hvað mest ríður á um þessar mundir.Má þar til dæm is nefna dráttarvélaslysin, sem Sig- urður Ágústsson mun fjalla um, öryggi smábáta, en um þau mun Þórður Jónsson, Látrum fjalla, til- kynningaskylduna (Þorvaldur Ingi- bergsson),. ölvun við akstur o.fl. —JH— Barnaslysum í i fjölgar • Með aðeins tuttugu mínútna millibili urðu tvær litlar telpur fyrir bifreið í umferðinni á sitt hvorum staðnum f borginni í gær- kvöldi. Önnur, 4 ára, hljóp fyrir bíl á Snorrabraut um kl. 21, en hin, 9 ára, hljóp fyrir bfl á Nesvegi. Hvorug meiddist alvarlega. Nú fer í hönd sá tími, sem.böm leika sér meira og meira úti við. Batnandi veður ræður því og eins gefst þeim meiri tfmi til leikja, þegar kennslu lýkur í skólum. Því miður leika mörg Reykjavíku-rbam anna sér á götunni og við hana. Foreldrum gengur erfðlega að halda börnum sínum frá umferð- in*y og sumir láfca sig það lfka l itlu skipfca. um komið, hvort slys hljótast af þessum götuleikjum barnanna, eða ekki. Flest slys ' börnum í urh- ferðinni verða með þeim hætti, aö barn skýzt framundan kyrrstæðum bíl og út á götuna í veg fyrir bif- reið, sem kemur aðvífandi, og lend ir fyrir henni, þar eð ökumaður er lítt við þessu búinn og nær ekki að stöðva bílinn í tæka tíð.' Það verður því aldrei of oft brýnt fyrir ökumönnum að hafa fulla gát á akstrinum, þegar þeii' aka um ibúðargötur, þar sem þeir sjá að standa mannlausar og yfir gefnar bifreiðir. Það er aldrei að vita, nema skyndilega skjótist fram undan einhverri þeirra lítið barn. GP. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.