Vísir - 03.07.1970, Blaðsíða 5
V1SIR . Föstudagur 3. júlí 1970.
5
Heimtum lúðraþyt með
sjússinum
Heyrðu Vísir. Mig lapgar að
koma hér á framfæri við þig,
hvernig framkomu dyraverðir
veitingahússins í Þjóðleikhús-
kjallaranum hafa tamið sér. Það
er sko sannarlega rannsóknar-
efni. Fyrir nokkru kom ég þar
að sem þeir voru að fleygja út
prúðbúinni stúlku og var henn-
ar sök sú ein að vera í tréskóm!
Og eftir því sem mér hefir skil
izt, þá var stúlka þessi á tré-
skóm af heilsufarsástæðum.
Sem varðhundar hússins voru
að vísa þeirri á tréskónum frá,
kom að ung og falleg stúlka og
spuröi um ástæður þess að
þeirri á tréskónum væri vísað
út. Fékk hún greinargóð svör:
Allir sem væru á tréskóm væru
útlægir úr Þjóðleikhússkjallar-
anum. Stúlkan brást hin reið-
asta við og spurði hvers vegna
útkastarar fengju að vera á leð
urskóm? Var henni þá vísað frá
með frekju mikilli. Hálfum mán
uði síðar kom ég aftur þarna að,
og var í fylgd með vinum mín-
um tveim. Ungum mönnum sem
klæða sig eftir ströngustu kröf
um tízkunnar. Þeir voru þvi
með sítt hár, klæddir ljósum
jakkafötum og með fyrirferðar
mikil, skærblá hálsbindi (klædd
ir leðurskóm). Þeir fengu ekki
inngöngu! Skýringin sem dyra
verðirnir gáfu var sú, að þeir
hefðu skipanir um að hleypa
engum nema dökkklæddum
mönnum með mjó hálsbindi inn
í húsið! Hvaða geðveiki er nú
svonalagað? Næst fær maður
sennilega ekki að renna niður
sjúss þama á barnum nema
blásið sé í iúðra á meðan.
Lúðvík.
Meira frí handa
sjónvarpsfólki
„Höfuðverkur" símaði:
„Mikið lifandis ósköp er ég
feginn, að sjónvarpið skuli
vera komið í sumarfrí. Maður
losnar við höfuðverkinn og rass
særið og hefur allt í einu tíma
til að gera alla þá hluti, sem
hafa setið á hakanum í vetur.
Þetta er blátt áfram alveg ynd
islegur friðartími, sem hafinn
er. Ég er löngu hættur að fara
í sumarfrí í júlí, því að þá er
svo gott að vera heima og njóta
sjónvarpsleysisins. í þess stað
fer ég í frí í ágúst til að fram
leneia friðartímann. En tilefni
þess, að ég hringdi, er, að ég
held, að sjónvarpsmenn séu yf
irleitt í svo miklum önnum, að
eins mánaðar frí nægi þeim
ekki. Hvemig væri nú að létta
á þeim og gefa þeim tveggja
mánaða frí? Og hvernig væri
að bæta við einum frídegi í
hverri viku? Og loksins: Þurfa
þeir ekki bráðum árs fri, eins
og kennaramir fá, þegar þeir
era orðnir úttaugaðir?"
íþróttir fyrir allal
ha, ha, ha!
Hvernig i ósköpunum stendur
á því að sundlaugin nýja í Laug
ardal er ekki opin einn af fá-
um dögum á árinu, sem full
not eru fyrir hana, svo sem var
í gær? — Eftir t því sem ég
komst næst var verið að
hreinsa laugina fyrir eitthvert
sundmót. Sér eru nú hver for-
réttindin hjá þessum sundköpp
um. Var auk þess ekki hægt að
fresta þessari hreinsun þar til
um nóttina, þegar spáin var
jafngóð fyrir daginn í gær og
raun bar vitni? Næturvinnu-
kaupið hefði örugglega komiö
margfalt inn í gær í aðgangs
eyri að lauginni. Og áhorfenda
stúkan, serr| tildrað hefur verið
ofan á þessa ágætu laug, hefði
áreiðanlega nýtzt betur i gær,
en hún gerir á sundmótinu, til
vonandi, ellegar yfirleitt nokkru
sundmóti. — En það er kannski
markmið sundlaugaryfirvalda
að ala upp fáeina sekúndustrep-
ara, fremur en gefa fólkí tæki-
færi til svolítillar heilsubótar-
stundar, þegar loksins er veður
til slíks?
Ég Iagði leið mína vitaskuld í
Vesturbæjarlaug, þegar ég kom
að lokuðum dyrum í Laugar-
dalnum. Viti menn, þar var þá
allt oröið yfirfullt og löng bið
röð fyrir utan, og þurfti engan
að undra í þessu dásemdar
veðri. Þess vegna gekk ég snúð
ugt heim aftur og glaður hefði
ég lagt það á mig að ganga
suður í Nauthólsvík, ef hún
hefði verið opin. íþróttir fyrir
alla! ha ha ha.
Jói.
Þykjastlið
Til hvers eru þessir iþrótta
fréttamenn að Ijúga því í al-
menning að lið eíns og þetta,
sem lék við íslenzka iandsliðið
í fyrradag, sé eitt bezta áhuga-
mannalið Þjóðverja, lofa það og
prísa á alla lund? Þannig er
fjöldi fólks plataður á völlinn
til þess að sjá strákana reyna
að standa í kempunum. Svo
kemur bara á daginn að maður
hefði eins getað horft á venju
legt sprikl milli Vals og Vík-
ings eða einhverra álíka. —
I’þróttafréttamenn eiga svo
ekki orð til þess að lýsa
hneykslun sinni á framferði og
frammistöðu þýzka liðsins. Okk
ar strákar voru víst einstök
prúðmenni í leiknum, að
minnsta kosti byrjuðu hinir.
Nei þá er víst skárra að horfa
á okkar menn tapa fyrir svona
skítsæmilegum knattspyrnu-
mönnum heldur en sjá þá vinna
einhver svona þykjast lið. —
PS. Það fór raunar fjandalega
um mig í stúkunni. Lá við að
maður vildi heldur vera í slags
málunum úti á velli.
Stúkugestur.
HRINGID í
SÍMA1-16-60
KL13-15
ALFRÆÐASAFN AB.
□ Fruman
□ Mannslíkaminn
□ Könnun geimsins
□ Mannshugurinn
□ Visindamaðurinn
□ Veðrið
□ Hreysti og sjúkdómar
□ Stærðfræðin
□ Flugið
□ Vöxtur og þroski
□ Hljóð og heyrn
□ Skipin
□ Gerviefnin
□ Reikistjörnurnar
□ Ljós og sjón
□ Hjólið
□ Vatnið
□ Matur og næring
□ Lyfin
□ Orkan
□ Efnið
Verð kr. 450,00 hvert eint.
HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
Undirritaður óskar eftir að kaupa þær
bækur, sem merkt er við hér að ofan.
Undlrritaður óskar eftir að kaupa
SKÁLDVERK
GUÐMUNDAR KAMBANS
í 7 bindum.
□ Gegn staðgreiðslu kr. 4.340,00.
□ Gegn afborgunarskilmálum kr. 4.640,00
Nafn_________________________________
Heimili _____________________________
Sendist til ALMENNA BÓKAFÉLAGSINS,
Austurstræti 18 — Reykjavik-
Símar 19707, 18880, 15920
HUSEI6ANDI!
Þér s«m bygg!8
►ér sem endumýið
DfllNSTORG r Hf.
SELUR ALLT TILINNRETTINGA
Sýaum
Eldhúiinnréttinpir
KI»8Mkáp&
IrnihurSir
Otihurðir
Bylpjuhuríír
yið*rkl*ðiun*ar
Sólbekki
Borðkrókshússöca
EWavéTar
Stilvaska
Isskápa o. m. íl.
ÓOINSTORG HF.
SKÓIAVÖRÐUSTÍG 16
SiMI 14275
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
W PLAST
SALA - AFGREIÐSLA
SUÐURLANDSBRAUT6 SSS,
NITTO
w
h jólbarðar
eru nú fyrirliggjandi í
flestum gerðum og
stærðum.
Aðalútsölustaðir:
Hjólbarðaviðgerð Vestur-
bæjar v/Nesveg
Hjólbarðaviðgerð Múla
v/Suðurlandsbraut
Gúmbarðinn
Brautarholti 10
NITTO-umboðið
Brautarholti 16
Sími 15485
Stóra Borg í
Vestur-Húna-
vatnssýslu. —
Einn bónda-
bæjanna, sem
tekur að sér
ferðamenn á
vegum F.l. —
Þar er hvorki
um að ræða snjó
hús né torfbæ,
eins og útlend-
ingum mundi
kannski koma
fyrst til hug-
ar, heldur ný-
tízkulegt og
snyrtilegt ein-
býlishús.
„Lána þeim meira að
segja bílana sína ..."
ný þjónusta v/ð ferðamenn á vegum F.l.
Nú í sumar hefur Flugfélag ís-
lands tekið upp á þeirri nýbreytni,
að bjóða erlendum feröamönnum
upp á dvöl á íslenzkum sveitaheim
ilum. Eru það sex bóndabæir, sem
taka á móti ferðamönnum á Flug-
félagsins vegum og hafa tíu til
fimmtán útlendingar nú þegar not
ið hinnar íslenzku gestrisni á þeim
bæjum og nokkur fjöldi nýtur
hennar þessa stundina.
„Eftir þeirri miklu eftirspurn aö
dæma, sem við höfum fengið frá er
lendum ferðaskrifstofum varðandi
þessa nýiu þjónustu okkar, mætti
ætla, að miki! framtíð sé í þessu"
sagði Gunnar Hilmarsson, deildar-
stjóri hjá Flugfélagi íslands í við-
tali við Vísi nýlega. „Það hefur líka
COOKY GRENNIR
COOKY í hvert eldhús. Hreinni
eldhús. Auðveldar uppþvott. —
COOKY fyrir þá, sem foröast.
fitu.
verið ákveðið, aö bæta inn f áætlun
ina fyrir næsta sumar um tíu
sveitaheimilum, þar eð fullbókaö er
að mestu í þau sex, sem við höf-
um uppá að bjóða nú í sumar.“
,Þaö eru mest þýzkir og enskir
ferðamenn, sem hafa dvalið á þess
um sveitaheimilum á okkar vegum,
en þó fólk víða að úr Evrópu einn-
ig með“, sagði Gunnar ennfremur.
„Eru bæirnir bæði í Borgarfirði og
Húnavatnssýslu og svo einn fyrir
austan fjall. Á öllum bæjum gefst
gestunum færi á að renna í silung,
fara í útreiðartúra um hið failega
nágrenni bæjanna. Nú og svo eru
flestir bændurnir, sem taka á móti
okkar fólki, svo almenniiegir, að
veita útlendingunum afnot af bíl-
um sínum.“
„Ég er mjög ánægður með að
okkur hafi tekizt að hrinda þessari
hugmynd loksins í framkvæmd,"
sagði Gunnar að lokum. „Þetta er
nokkuð, sem ferðaskrifstofur er-
iendis hafa lengi haft á boðstólum,
en aldrei verið fyrir hendi hérlend
is, en tekst nú vonandi að halda
gangandi í framtíðinni með góðri
samvinnu við bændurna." —ÞJM
STIMPLAGERD
FÉLAGSPRENTSMIDJUNNAR
Skrifstofustúlka
óskast strax. Reynsla í enskum bréfaskriftum æskileg
Verzlunarskóla- eöa hliðslæö menntun skilyrði.
ísl. ameríska, sími 22080.
Húsbyggjendur —
Húseigendur
Innréttingasmíði — Húsgagnasmíði
Viðhald — Breytingar
Höfum opnað trésmiðju okkar aftur og getum bætt vi8
okkur verkefnum. — Valið efnið. Vönduð vinna.
Trésmiðja Austurbæjar
Skipholti 25. Simi 19016.
.„.Llb