Vísir - 03.07.1970, Side 6
6
VÍSIR. Föstudagur 3. júlí 1970.
Með því að dreifa á skýjabólstrana silfurjoðíði, hefur tekizt að auka úrkomu á vissu svæði
um alít að 150%.
Tekst mannimim að hafa
áhrif á veðurfarið ?
Tilraunir, sem gerðar hafa verið að undanförnu, vekja vonir
IIT eimiliO — veröld innan
veggja, er táknrænna slag-
oið er margur hvggur. I raun-
inni er það og hefur alltaf ver-
ið tilgangurinn með allri íbúða-
húsagerð að skapa sér veröld
innan veggja, öruggari og hag-
kvæmari en veröldin utan þeirra,
eftir því sem efni hugkvæmni
og tækni leyfa. Með síaukinni
/■11 \
suirg
Tilboð óskast í eftirtaldar framkvæmdir við
byggingu Veðurstofu íslands í Reykjavík.
1. Steypa upp og ganga frá byggingunni
undir tréverk.
2. Pípulagnir.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 5.000.— skila-
tryggingu fyrir lið 1 og 2.000.— króna skila-
tryggingu fyrir lið 2. :iíui<
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 1Ö140
LEIGAN S.F.
Vinnuvélar til leigu
Lltlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
Rafknúnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzfn)
J arðvegsþjöppur Rafsuðutœid
Vibratorar
Stauraborar
Slípirokkar
Hitablásarar
HOFDATUNI A - SÍMI 23480
Hjólastillingar
Lt.!:nsverkstæðíð
Suðurlandsbraut 10 . Sími 81320
þekkingu og verklegri kunnáttu
mætti og ætla að manninum
hefði loks tekizt að skapa sér
þar þá einkaveröld, sem gæti
tryggt honum alla þá ytri vel-
líðan, sem óskir hans standa til.
I rauninni er það líka þannig
— það er að segja, að hann býr
yfir allri kunnáttu og verklegri
tækni til þess. En þá kemur
það til greina, hvað óskir
manna eru margvíslegar og um
leiö mat þeirra á því hvers með
þurfj hið ytra til að skapa vel
líöan og ánægju. Að öllum lík
indum eru sjónarmið manna þar
eins mörg og ólík og menn-
irnir margir. og þótt einn telji
þá veröld, sem hann hefur bú-
ið sér innan veggja, fullnægja
öllum óskum og kröfum, er ekki
ólfklegt að aðrir í fjölskyld-
unni séu á öðru máli.
Eigi að síður eru það vissar
kröfur sem allir geta sameinazt
um til þeirrar veraldar. Kröf-
unar, sem gera beri til veöur-
f^fsins; í þessari, eink$veröld,,ef
svq mætti að orði komast. Þar
eigá sífellt að rfkja stillur, en
þó á þar að vera gott og heil-
næmt loft, þar á að vera hæfi-
iegur raki í andrúmsloftinu. en
aldrei úrkoma, og sföast en
ekki sfzt — þar á að vera hlýtt
og notalegt, og þvi eiga íbúam-
ir að geta • ráðiö, þótt ekki sé
víst að allir geti orðið á eitt
sáttir um hitastigið.
Með öðrum orðum þetta eru
sams konar kröfur og maðurinn
mundi gera til veðurfarsins i
hinni víðu veröld, utan veggja,
ef hann væri þess umkominn
aö hafa þar nokkur áhrif á. Hina
elztu og fyrstu forfeður hans
skorti bæði tækni og þekkingu
til aö geta ráðið veöurfarinu í
þeirri veröld innan veggja, sem
þeir bjuggu sér og sínum, svo
að þar stendur hann þeim ólíkt
framar. En þegar um er að ræða
veðurfarið utan veggja stendur
hann því sem næst á sama stigi
og þeir. Og þó er það sennilega
fátt sem manninum hefur verið
jafn hugleíkið allt frá upphafi
vega og að mega ráða veðrinu.
Víst er um það að tilraunir
hans í þá átt em nokkurn veg-
inn jafngamlar honum. Villi-
maðurinn reyndi að hafa áhriif
á veöurfarið með seiðdansi og
særingar jafnve’ mannfórnum.
Seinna gerðu menn mikla elda
eða skutu af fallbyssum f von
um að geta kallað regn af
himni. Öll gáfust þessi ráð mis
jafnlega eins og vænta mátti.
Nú hafa menn öðlazt mikilvæga
þekkingu á ýmsum þeim öflum,
sem ráða fyrir veðri og fer sú
þekkink dagvaxandi. Og nú
freista menn þess ráðs að strá
vissum efnáblöndum á ský og
stormsveipa í von um að geta
haft áhrif á veðurfarið.
Kunnust er eflaust sú tilraun
vísindamanna á vegum banda-
ríska sjóhersins að „strá salti í
auga fellibylsins", eins og þeir
orðuðu það í gamni. Tilraun sú
byggist á þeirri skoðun að ef
unnt reynist að breyta eitthvað
styrkleikahlutföllunum í ,kjarna‘
fellibylsins, mætti um leið
draga úr hinni gífurlegu orku
hans. í því skyni hefur verið
reynt að dreifa silfur-joðíði úr
flugvélum í 'féllibylji sem að
undanförnu háfa geisað á Mið-
jarðarhafi, þar á meðal felli-
bylinn „Debbie'* 1969. Árang-
urinn hefur verið athugaður af
ýtrustu nákvæmni, og hefurnið
urstaöan orðið sú, að vísinda-
menn telja að nokkuð hafi dreg
ið úr orku fellibylsins.
Þá hefur það löngum verið
ósk manna að geta kallaf. rign
ingu af himni þegar langvar-
andi þurrkar hafa ógnað upp-
skerunni og öllum jarðargróðri
á víöum svæðum. Sama stofnun
í Bandaríkjunum og staðið hef-
ur að áðurnefndum tilraunum
á vegum flotans, hefur og gert
tilraunir í þá átt. Hafa flugvélar
stráð samskonar efni, silfur-
joðíði, á skýjabólstra, sem mynd
ast við viss veöurfræðileg skil-
yrði og hafa þær tilraunir nú
staöið í tvö ár yfir Florídaskaga.
Eru vísindamennirnir harla á-
nægðir með árangurinn, því ao
þeir telja að þannig megi auka
regn við þessar aöstæður um
100% til 150%. Verður þessum
tilraunum nú haldið áfram. Loks
hafa verið gerðar tilraunir til
að strá vissum efnum á sama
hátt í snjóský að vetrarlagi 1
því skyni að ráða stærð og
þyngd snjókornanna, og þykja
þær tilraunir hafa vel tekizt
Að visu hefur maðurinn haft
nokkur áhriif á veöurfarið á viss
um svæöum síðustu áratugina,
en það hefur ekki verið af á-
setningi eða i þeim tilgangi að
breyta veðrinu til hins betra.
Reykurinn sem leggur upp af
stórborgunum, bæði frá verk-
smiðjum og íbúðarhúsum, hefur
mettað loftið uppi yfir efnum,
sem hafa orðið til þess að draga
til muna úr sólskini og auka
þar rigningar. Þá er vitað að
gróðurfarsbreytingar af manna
völdum, svo sem eyðing skóga,
hefur haft í för með sér breytt
veðurfar og yfirleitt í neikvæða
átt.
Það á því enn býsna langt
í land að maðurinn geti ráðið
veöurfarinu i veröldinni utan
veggja, eins og hann hefur kom
izt á lag með að ráða þvl i
einkaveröld sinni innan veggja.
En tilraunir i þá átt spá þó
góðu, og hver veit nema að sá
dagur renni upp að draumur
frummannsins, sem fram kom I
dansi hans og særingum, rætist
að minnsta kosti að einhverju
leyti.
Hjolbarbinn.sem reynst
hefur BEZT á islenzku
vegunum.
Fullkomin þjónusta
miósvæöis i borginni.
LAUGAVEG1171.
YOKOHAMA
HJÚLBARÐAVERKSHEÐI
Sigurjöns Gislasonar
Einstaklingar — Félagasamtök — F jölbýlishúsaeigendur
ÞAU ENDAST VON ÚR VITI WILT0N-TEPPIN
Ég kem heim til yðar með sýnishorn og geri yður ðkveðið verötiiboö á stotuna, á herbergin,
á stigann, á stigahúsið og yfirieitt alla smærri og stærri fletL
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ HRINGJA I StMA 3 1 283 EN ÞAÐ BORGAR SIG
OANlEl KJARTANSSON
Simi 31283
I