Vísir - 15.07.1970, Blaðsíða 3
V I S I R . Miðvikudagur 15. júlí 1970.
3
í MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Ikveikjur í mótmælaskyni
— tékkneski dómsmálaráðherrann kennir hægri
sinnum um aukningu ikveikja
Rússum
— flugrit gegn
Dómsmálaráðherra
Tékkóslóvakíu Jan Nemec
sagði í gær, að mikil brögð
séu að flugritum með á-
róðri gegn Sovétríkjunum
og stjórn Tékkóslóvakíu.
Þó er enn heill mánuður til
þess dags, þegar tvö ár eru
liðin frá innrás Varsjár-
bandalagsins í landið, en
þá vænta menn nokkurrar
ólgu.
Nemec sagði þetta vera ótvíræða
sönnun þess, að hægrisinnaðir and
stöðuhópar væru í fullu fjöri. Væri
starfsemi þeirra stýrt erlendis frá.
Nemec kenndi þessum hægri sinn
um einnig um það, að íkveikjum
fjölgar í landinu. Eldsvoðar af vöJd
um íkveikju ollu í fyrra tjóni fyr-
ir 413 milljónir tékkneskra króna,
en 168 miiljónir árið áöur.
Ráðherrann hélt því fram, að
þetta ástand væri að mörgu leyti
sök dómstóla. Þeir tækju of létt
á slíkum afbrotum. „Slíkt hátta-
lag brýtur i bága við hagsmuni
þjóðfélagsins — þjóöfélagið vill
aga og reglu“, sagði Nemec.
Ræðu sína flutti Nemec á dóms-
málaráðstefnu, og varð aö ráði að
senda bréf til miðstjórnar tékkn-
eska kommúnistaflokksins, þar sem
þátttakendur, mest dómarar, heita
því að berjast af alefli gegn ríkj-
andi vægð í dómum. Segir í bréf-
inu, aö réttlætið skuli framkvæmt í
anda Marx-Lenínismans.
Ríkisstjórn Tékkóslóvakiu ótt-
ast, að til mikilla mótmælaaðgeröa
munj koma í næsta mánuði, þegar
eitt ár er liðið frá innrásinni. Hafa
umfangsmiklar aðgerðir verið skipu
lagðar til þess að halda fólki í skefj
um. Allt frá tímum innrásarinnar
hefur annað veifið komið til upp-
þots í landinu. Ungt fólk hefur fjöl
mennt á hátíðisdögum og minnzt
Jans Palachs, sem brenndi sig til
bana til að mótmæla hemámi
Rússa.
Af ræðu dómsmálaráðherrans
verður ráðið, að smátt og smátt
verði þyngdar refsingar við brotum
sem talin era af pólitfskum toga
spunnin.
Upplausn á heims-
þingi æskunnar
Frú Bandaranaike hyggst viður-
kenna ríkisstjóm Vietkong.
Ceylon
viðurkennir
kommúnista-
stjórnir
• Stjórn frú Bandaranaike á Ceyl
on hefur viðurkennt Norður-Víet-
nam og nú er búizt við, að hún
muni viöurkenna stjóm þjóðfrels-
ishreyfingarinnar í Suður-Vietnam.
• Áður hafði stjómin veltt viður
kenningu Austur-Þýzkalandi og
Norður-Kóreu.
• Flokkur frú Bandaranike vann
mikinn sigur i þingkosningum á
Ceylon fyrir skömmu, svo sem
kunnugt er.
Nýtt „húlahoppæði
Faraldur fer nú um Belgíu og er að verða jafn öflugur og
„húIahoppæðið“ fræga var forðum daga. Eins og myndin
sýnir, þá er um að ræða eins konar bolta með hring, og
menn hoppa og snúast á þessu út um allar trissur. Ein-
hverjir hafa kallað þetta „sippubo!ta“ — Ef að líkum lætur
mun þessi faraldur fara víðar um lönd innan skamms.
M Algert stjórnleysi ríkir í friö-
arnefnd heimsþings æskunnar í
New York. Fulltrúar hinna ýmsu
hagsmunahópa reyna hvaö þeir
geta til að yfirgnæfa hverjir aðra
í ræöustóli, og engin leið er að fá
menn til jákvæðra umræöna.
í hinum öðrum þremur nefndum
heimsþingsins er ástandið betra. —
Þetta eru nefndir, er fjalla um að
stoð viö vanþróuðu ríkin, menntun
og náttúruvernd. Starfsemi þeirra
gengur samkvæmt áætlun, og er
gert ráð fyrir, að þær komist að
jákvæðri niðurstöðu.
Þetta heimsþing æskunnar er
haldið á vegum Sameinuöu þjóö-
anna.
Heyerdahl safnaði
sýnishornum af mengun
— ræðir við bandariska náttúruverndarnefnd
Á ferð sinni yfir Atlants
hafið söfnuðu Thor Heyer-
dahl og menn hans fj'öl-
mörgum hnullungum, er
þeir fundu í sj'ónum. Voru
þeir stærstu á stærð við
kartöflur, en hinir minnstu
á stærð við baunir. Heyer-
dahl ætlar að afhenda
norsku sendinefndinni hjá
Sameinuðu þjóðunum
þessi sýnishorn mengunar
í hafinu.
Heyerdahl telur, að margir þess
ir hnullungar séu komnir frá olíu-
skipum, sem hafi strandað, en þeir
líkjast asfalti margir hverjir. Hann
telur einnig koma til greina, að þeir
séu komnir úr skipum, sem hreinsi
olfugeyma úti á hafinu.
Hann staðfesti í gær að hann
hefði fallizt á að koma til fundar
með nefnd frá öldungadeild Banda
ríkjaþings um þetta mál. Hann hef
ur einnig verið beðinn að gefa
skriflega skýrslu um mengunina.
Thor Heyerdahl safnaði einnig
sýnishornum um mengun í haf-
inu í hinni misheppnuöu ferð sinni
með Ra 1 á dögunum, og nú hélt
hann þeim rannsóknum áfram á
Ra 2. Ríkisstjórn Noregs hefur
hvatt hann til slíkra rannsökna og
fékk einn í áhöfninni, Madani Oth-
man frá Marokkó, sem er efnaverk
fræðingur, þaö verkefni að skrá
öll merki um mengun.
„Við komumst ekki hjá þvf að
sjá þessar olíuklessur”, segir Hey-
erdahl. „Við sáum þær bæði, þegar
við dýfðum tannbustanum'í vatn-
ið á morgnana og þegar við sóttum
vatn til að þvo okkur. Fyrir kom,
að sjórinn umhverfis papirusbát-
inn var svo óhreinn, að ekki var
viturlegt að þvo sér. Þótt það
heyrði til undantekninga, þá var
það hræðilegt að sjá. hversu marg-
ir hlutir af ýinsu tagi voru á floti
á leiðinnimilli Afríku og Ameríku."
Norskt skip á nú að fara með
Ra 2 á Kon Tiki safniö í Osló. —
Heyerdahl telur, að Ra 2, sem er
16 tonn, muni þola aö liggja í sjó
í einn eða tvo mánuði til viðbótar.
Vinningaskrá
Byggingarhappdrættis Sjálfsbjargar, 6. júlí 1970.
fyrir kr. 25.000
1. Consul Cortina, nr. 21285.
2. Heimilistæki frá „Heimilistæki sf.1
nr. 34080.
3. Mallorcaferð fyrir einn meö „Sunnu“, fyrir kr.
15000 nr. 31532
4. —8. Vöruúttekt hjá „Sportval" eða „Heimilistæki
sf.“ (hver á kr. 5000) nr. 10904 — 25172 — 31082 —
36161 — 38885.
9.—14. Carmén rúllur (hver á kr. 2599) nr. 4915 —
13656 — 14162 — 23688 — 24285 — 35444.
15.—24. Kodak Instamatic 233 (hver á kr. 2418) nr.
2512 — 4743 — 9608 — 11037 — 25344 — 29454 —
30298 — 31777 — 34973 — 38886.
25.—39. Vöruúttekt hjá Sportval (hver á kr. 2000) nr.
197 — 5910 — 11100 — 11554 —- 15975 — 19592 —
22902 — 23001 — 25111 — 25513 — 29549 — 31031
— 33620 — 38243 — 39210.
40.—54. Kodak Instamatic 133 (hver á kr. 1554) nr.
2814 — 3082 — 15540 — 15986 — 15987 — 15988 —
19589 — 22348 — 22600 — 24007 — 25396 — 26719
—28785 — 31092 — 31897.
55.—69. Bækur frá Leiftri hf. (hver á kr. 1000) nr.
1630 — 4175 — 4761 — 7508 — 15726 — 15806 —
18228 — 20978 — 22765 — 26623 — 28530 — 30279
30282 — 31812 — 32173.
70.—84. Vöruúttekt hjá „Sportval“ (hver á kr. 1000)
nr. 1422 — 2828 — 3208 — 4868 — 4927 — 12095 —
13016 — 15674 — 16856 — 20479 — 24259 — 24533
— 25071 — 28307 — 29851.
85.—100. Vöruúttekt hjá „Heimilistæki sf.“ (hver á
kr. 1000) nr. 1766 — 2667 — 3062 — 6404 — 8263 —
10932 — 12294 — 12322 — 16706 — 20192 — 21537
- 30228 — 32215 — 32394 — 34260 — 39746.
Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra.