Vísir - 16.07.1970, Side 1
Utförin
kl. 2 í dag
Heiðursvörður ungs fólks
0 Útför forsætisráð-
herrahjónanna frú Sig-
síðar Björnsdóttur og
Bjarna Benediktssonar
og dóttursonar þeirra
Benedikts Vilmundar-
sonar verður gerð frá
Dómkirkjunni klukkan
2 í dag.
£ Áður en athöfnin
hefst mun Lúðrasveit
Reykjavíkur leika sorg-
arlög áv Aústurvelli í
stundarfjórðung og þjóð
söngin'n, er kistumar
hafa verið bomar úr
kirkju.
Athöfnin hefst með því, aö
dómorganisti Ragnar Bjömsson
leikur á orgel. Karlakórinn Fóst
bræður syngur sálminn Hærra
minn guð til þín, biskup íslands
herra Sigurbjörn Einarsson flyt
ur kveðjuorð, þá verður samleik
ur á orgel og selló, Pétur Þor-
valdsson leikur á sellóið. Dóm-
prófastur séra Jón Auðuns flyt
ur minningarorð, þá verður sung
ið Hvað bindur vorn hug við
heimpins glaum, eftir Einar
Benediktsson, þá verður aftur
samleikur á orgel og selló. At-
höfninni Iýkur með þvf að tvö
erindi úr Allt eins og blómstrið
eina, verða sungin greftrunar-
athöfn fer fram og dómorganisti
leikur á orgel.
Ráðherrar, forseti sameinaðs
Alþingis og borgarstjórinn I
Reykjavík bera kistu forsætis-
mðherra úr kirkju, en vjnir og
vandamenn kistur frú Sigríðar
Björnsdóttur og Benedikts Vil-
mundarsonar.
Blómaskreytingum var komið fyrir I Dómkirkjunni í morgun.
Forseti íslands og forsetafrú
og fjöldi erlendra sendimanna
verða viðstödd útförina. í Dóm
kirkjunni verða frátekin sæti
niðri fyrir nánustu ættingja og
venzlamenn hinna látnu, ríkis-
stjórn og alþingismenn svo og
sérstaka fulltrúa erlendra rfkja.
Kirkjubekkir uppi vérða opnaðir
almenningi kl. 13.40. Gjallar-
hornum verður komið fyrir við
Alþingishúsið að Austurvelli og
f anddyri Alþingishússins en
þar verður komið fyrir sætum
fyrir almenning eftir því sem
rými leyfir. Athöfninni verður
útvarpað. Athöfninni verður
ekki sjónvarpað nú, en í upphafi
athafnarinnar tekur sjónvarpið
myndir.
Líkfylgdin mun fara suður
Templarasund, austur Vonar-
stræti, suður Fríkirkjuveg, Sól-
eyjargötu, Hringbraut og Reykja
nesbraut í Fossvogskirkjugarð.
Ættingjar bera kistumar til
grafar. Lögreglumenn munu
standa heiðursvörð við vegg Al-
þingishússins gegnt aðaldyrum
Dómkirkjunnar. Ungt fólk mun
standa heiðursvörð beggja
vegna Fríkirkjuvegár frá gamla
Miðbæjarskólanum.
Vegna útfararinnar verða
skrifstofur Stjómarráðsins lok-
aðar frá hádegi, svo og aðrar
öpinbérár stófnanir, þar sem þvS
verður við komið. Einnig verða
skrifstofur borgarinnar lokaðar
frá hádegi svo og bankar, en
aðrar skrifstofur og verzlanir
munu loka, sumar hluta úr degi
en aðrar eftir hádegi.
Rætt um skipulagningu einbýlishúsa-
hverfis i lar\di Lágafells
Lágafellstúnið er líklega meðal í nágrenni borgarinnar, enda
fallegri einbýlishúsastæðum hér hafa eigendur þessa svæðis,
Maður sleginn í nndlitið með flösku
Til tíðinda dró við Umferðarmið
stöðina klukkan rúmlega fjögur í
nótt, en þar safnast fólk oft aö
sölulúgunni nokkuð fram eftir
nóttu. Maður nokkur var þar sleg
inní andlitið með flösku og hlaut
við það áverka á enni og var það
allmikið sár.
Hann var ’fluttur á slysavarð-
stofuna. Kennsl voru borin á árás
armanninn, og mun lögreglan hafa
ráðstafað honum, en málið er ekki
komið i rannsókn. —JH
sení eru erfingjar Thors heitins
Jensen og konu hans, áhuga á
að skipuleggja þarna einbýlis-
húsáhverfi.
Hefur verið leitað til sveitar-
stjórnar Mosfellshrepps til heim
ildar um að láta skipuleggja slíkt
hverfi þama i túnhallanum, en mál
ið er ennþá á umræöustigi. Getur
skipulagning þessa svæðis tekið
langan tíma og er fyrirhugað að
stofna félagssamtök ef til þessa
kemur. Verða lóðirnar væntanlega
alltstórar og er ætlunin að ein-
göngu einbýlishús verði á þessu
svæöi. — ÞS
Aftur fært
yfir hálendið
— miki! rigning á Suð-vesturlandi i nótt
Aftur er nú fært fyrir stóra bíla
yfir Kaldadal, Sprengisand og
hluta af Kjalvegi, en vegimir eru
illa farnir eftir snjólagið, sem leg
ið hefur yfir þeim undaðfarið.
Uf ekki rignir mikið á næstunni,
ér gert ráð fyrir að allur Kjalveg
urinn verði fær um helgina. Mikið
hefur rignt á Suð-Vesturlandi í
nótt, mest í Vestmannaeyjum, 26
mm. Gert er ráð fyrir aö heldur
fari að þoma seinni hluta dags-
ins, en ekki er útlit fyrir mikið
sólskin á næstunni. — ÞS
Bósa saga leikin fyr-
ir erlenda ferðamenn
Dauðaslys á Suðurlandsbraut
Ekið á mann, sem ætlaði yfir brautina
Fimmtíu og níu ára gamall
maður Iézt í gærkvöldi eftir
umferðarslys, sem varð kl. 18
í gær á horni Suðurlands-
brautar og Langholtsvegar.
Maðurinn varð þar fyrir fram
byggðri sendiferðabifreið.
Maðurinn stóð við Suður-
landsbrautina að sunnanverðu
og ætlaði yfir hana, þegar sendi
ferðabillinn kom aðvifandi fyrir
hornið. Bílstjóri kveðst hafa séð
manninn, en segist hafa reikn-
azt svo til sem maðurinn biði
þarna |?ar til hann yrði kom-
inn fram hjá. Lenti hann á
hægra framhorni bílsins og kast
aðist út af veginum. Hann var
fluttur á slysavarðstofuna og
þaðan á Landakotsspítalann þar
sem hann lézt klukkan rúmlega
níu I gærkvöldi. — JH
Ferðaleikhúsið leikur kafla úr islenzkum verkum
á ensku
9 Bósa saga Herrauðs, Egilssaga
og Djákninn á Myrká eru meðal
þess sem erlendum ferðamönnum
gefst kostur á að heyra flutt á
ensku í Glaumbæ nú á næstunni.
Það er Ferðaleikhúsið sem gengst
fyrir þessari nýstárlegu leiklistar-
starfsémi, en sýningin nefnist einu
nafni „Kvöldvaka“
Hefur Molly Kennedy þýtt ýmsa
kafla úr fornsögunum. ljóðum og
íslenzkum frásögnum frá ýmsum
tímum og þau Kristín Magnús
Guðbjartsdóttir og Ævar Kvaran
flytja efnið. Auk þess kemur fram
tríó er leikur íslenzk þjóðlög. —
Leikstjóri er Mikael Magnússon, sá
hinn sami og í sumar hefur verið
með fréttir á ensku fyrir útlendinga
f útvarpinu. Fyrsta sýningin verður
n.k. mánudagskvöld í Glaumbæ og
hefst kl. 9. —ÞS
%