Vísir - 16.07.1970, Page 7
V í SIR . Fimmtudagur 16. júlí 1970.
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir ógreiddum
tryggingargjöldum til Tryggingarstofnunar
ríkisins, sem greiðast áttu í janúar og júlí s.l.,
svo og öllum gjaldföllnum, ógreiddum þing-
gjöldum og tryggingargjöldum ársins 1970,
tekjuskatti, eignarskatti, námsbókágjaldi, al-
manna tryggingagjaldi, slysatryggingagjaldi,
lífeyrissjóðsgjaldi, slysatryggingagjaldi, líf-
eyrissjóðsgjaldi, atvinnuleysistryggingasjóðs
gjaldi, launaskatti, kirkjugjaldi og kirkju-
garðsgjaldi, iðnlánasjóðsgjaldi og iðnaðar-
gjaldi, sem gjaldfallin eru í Kópavogskaup-
stað. Ennfremur skipaskoðunargjaldi, lesta-
gjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoðunar-
gjaldi bifreiða og slysatryggingargjaldi öku-
manna 1970, vélaeftirlitsgjaldi, svo og ó-
greiddum iðgjöldum og skráningargjöldum
vegna lögskráðra sjómanna, áföllnum og ó-
greiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
söluskatti af skemmtunum, gjöldum af inn-
lendum tollvörutegundum, matvælaeftirlits-
gjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra,
skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti
1. og 2. ársfjórðungs 1970, svo og álögðum
viðbótum við söluskatt auk dráttarvaxta og
lögtakskostnaðar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birt-
mgu úrskurðar þessa, án frekari fyrirvara, ef
ekki verða gerð skil fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
14. júlí 1970.
BÍLASKOÐUN & STILUNG
Skúlagötu 32
HJÓLASTILLINGAR
fflÓT OfiSTILLÍNGAB LJÓSASTILLINGAR
Er alheimurinn óendan-l
legur eða takmarkaður?!
V'isindamenn gera sér vonir um að svarib fáist á þessum áratugi
Vegna útfarar
forsætisráðherrahjónanna verða skrifstofur
okkar lokaðar frá hádegi í dag.
FORD-UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON H/F
Látið stilla í tíma.
Fljót og örugg þjónusta.
13-10 0
p'yrir atbeina þeirra full-
komnustu tækja og tækni,
sem maöurinn hefur nú yfir að
ráða, getur hann „séð“ lengst
um tvö þúsund milljónir ljósára
út í geiminn. Það er að vísu
drjúgur spölur, en líti maður á
himingeiminn sem óendanlega
vídd — þótt enginn geti í raun-
ihni gert sér grein fyrir hvað í
því hugtaki felst — þá verð-
ur sú vegalengd harla skömm.
Enn er svo það, að þótt stærstu
stjarnsjár nútímans séu lang-
drægari og fullkomnari tækni en
nokkur stjörnufræðingur gat
iátið sig dreyma um fyrir svo
sem háifum mannsaldri, þá dreg-
ur það að mun úr virkni þeirra,
að fyrir gufuhvolfið, sem um-
lykur jörðina, má líkja því við
að maður skoði landslag gegn
um þétta þoku, þegar hann
beinir þessum furðuaugum sín-
um út i himingeiminn. Fyrir það
hefur hann leitað alls konar
tæknibragða til að koma stjörnu
Ijósmyndavélum sem fjærst
jörðu og næst takmörkum þessa
þokuhjúps, og öðlast þannig sem
bezt skyggni út í geiminn — til
dæmis er alllangt síðan að bvrj-
að var að senda sjálfvirkar ljós-
myndavélar og önnur mælitæki
með loftbelgjum, og enn síðar
með eldflaugum út í gufuhvolf-
ið. Og þótt sú tækni væri harla
ófullkomin, samanborið við
gervihnettina, sem skotið hefur
verið á loft með allý konar slík
tæki innanborðs á braut fyrir
utan gufuhvolfið, veitti hún
stjörnufræðingunum samt
nokkra hugmynd um hvílíka
óravídd stjamsjár þeirra gætu
spannað, ef gufuhvolfið væri
ekki til að draga úr skyggni
þeirra. Lauslega áætlað mundi
langdrægni þeirra og „skarp-
skyggni‘‘ tffaldast, þannig að
maðurinn gæti séð tuttugu þús-
und milljónir Ijósára út f fíimin-
geiminn, og er þá eingöngu mið-
að við 120 þumlunga stjörnu-
sjónauka, sem þó er talið næsta
frumstætt tæki, miðað við
radíó-stjarnsjárnar, þær sem
þó er talið næsta frumstætt
tæki, miðað við radíó-stjarnsjám
ar þær sem fullkomnastar eru.
Nú að undanförnu hefur nítján
manna samstarfsnefnd stjömu-
fræðinga og geimfræðinga setið
á rökstólum vestur í Bandaríkj-
unum, og rætt nýja tíu ára á-
ætlun varðandi stjarafræði-
Iegar rannsóknir sem fram-
kvæmdar verðj f geimstöðvum,
sem gert er ráð fyrir að komið
verði á braut á því tímabili. Tel-
ur nefndin, að þar gefist tæki-
færi til að afla hinnar víðtæk-
ustu þekkingar, og að þar verði
lagður grundvöllur að nýjum
Þannig hugsar teiknarinn sér geimstöð — hvað sem verður.
rannsóknum, sem ekki mundi
unnt að framkvæma á annan
hátt. ,,Á jörðu niðri verða
stjörnuathuganir einungis gerð-
ar með sjónaukum eða stutt-
bylgju-stiarnsiám, en úti í
geimnum verður hins vegar auö-
ið að hagnýta sér allar viðkom-
andi rafsegulbylgjulengdir. Og
ekkj er ólíklegt að það verði
stjörnufræðin, sem nýtur öðrum
vísindagreinum fremur stór-
bættrar aðstöðu, þegar geim-
stöðvarnar verða að veruleika“.
Nefndin telur jafnvel, að þá
kunnj að nálgast lausnin á sum-
um þeim ráðgátum f sambandi
við alheiminn sem aldrei yrðu
leystar á annan hátt.
Meðal þeirra framkvæmdar-
atriða, sem nefndin leggur á-
herzlu á í áætlun sinni, er að
slík geimstöð verði búin stjörnu-
sjónauka með að minnsta kosti
120 þumlunga spegli en með
honum mætti uppgötva stjörnur
hundraðfalt ógreinilegri en þær,
sem séðar verða í stjörnusjón-
auka frá jörðu. Einnig að
hún verði búin enn fullkomn-
ari tækjum til könnunar á
gammageislum og annarri geisla
virknj úti í geimnum og tækj
um til könnunar á innrauðum
geislum í sambandi við stjam-
fræðilegar rannsóknir. Kannan-
ir með langbylgjutækni, sem
krefst steinloftnets allt að sex
mílur á lengd, sem komið yrði
fyrir annað hvort á braut úti
í geimnum, eða á tunglmu.
Einnig telur nefndin að frá geim
stöð verði unnt að kanna mun
betur áhrif og virkni sólarinn-
ar, en hingað til hefur verið
unnt með vísindatækjum, er
send hafa verið út í geiminn
með gervihnöttum, og sömu
leiðis kosmiska geisla og seg-
ulsvæði.
Og ráðgátunar, sem stefnt
verði að þvi að leysa á þennan
hátt, nefnir 'nefndin einnig, og
virðist þar af nógu að taka. Til
dæmis ráðgátuna varðandi upp
runa, eöli og þróun alheimsins,
þróun og örlög stjarnanna —
þar á meðal hvert verði loka-
stigið f >þróun sólarinnar. Tilvist
annarra sólkerfa, þar sem líkur
eru til að líf megi finnast í ein
hverri mynd — svo nokkuö sé
talið. Þá eru það hinar svo-
nefndu tifstjörnur og leyndar-
mál þeirra, sem mönnum er
enn ráðgáta og leyndarmálið
varðandi þær efniseindir, sem
himingeimurinn búi yfir, en
stjörnufræðingar telja, að enn
hafi ekki verið uppgötvað nema
90—99% af heildarmagni þess.
Loks eru flestir stjörnufræðing
ar nú sammála um að sólkerf-
in fjarlægist stöðugt hvert ann-
að úti í geimnum, þótt ekki sé
unnt að koma við neinum ná-
kvæmum mæiingum á þeirri
hreyfingu með tækjum á jörðu
niðri, en hins vegar ástæða til
að ætla aö það mætti takast
frá geimstöö — og þar með
væri ef til vill unnt aö fá svar
við því hvort að alheimurinn sé
óendanlegur eða honum séu ein
hver takmörk sett.
Það þarf því ekki að kviða
þvf. að ekki verði nóg fyrir á-
höfn geimstöðvarinnar að starfa,
þegar til kemur. Og stjörnu
fræðingarnir og aðrir geimvfs-
indamenn biða þess með ó-
þreyju, að þeir fái svar við þess
um og öðrum spurningum sis-
um á næstu árum.
DAGLEGA OPIO FRA KL. 6 AO MORGNI TIL KL. HALF TOLF AÐ KUOLDf
sftrHré
;ttir
kaffi
kökur
-
GOTT OG ÖDÝRT
HJft GUOMUNDl
I
I