Vísir - 20.07.1970, Blaðsíða 1
J
Svona eru heimasæturnar i Dölunum
Þetta er ein sovézka risaþotan, þegar hún kom á Keflavíkurflugvöll á dögunum.
W. árg. — Mánudagur 20. júh' 1970. — 161. tbl.
Þeir í Dalasýslunni völdu sér
feguröardrottningu ársins 1970
á dansleik í Dalabúð í Búðardal,
sl. laugardagskvöld þar sem
hljómsveitin Opus 4 úr Reykja-
vík lék fyrir dansi.
Sú sem fyrir valinu varð heit-
ir Hafdís Gunnarsdóttir, er 19
ára og vinnur öll venjuleg bú-
störf heima í Brautarholti, þar
sem foreldrar hennar Gunnar
Aðalsteinsson og Steinunn Áma
dóttir reka búskap.
Hafdís er 164 cm á hæð, með
málin 88 — 55—88, hefur gráblá
augu og sítt gullbrúnt hár. Hún
iauk skyldunámi frá Laugum
og hyggst fara í húsmæðraskóla
í vetur, en síðar meir langar
hana til að verða sjúkraliöi.
Önnur áhugamál hennar eru
ferðalög, lestur og hljómlist.
Stúikumar tvser, sem kegpte
til úrslita ásamt Hafdísi si. Iaug ,
ardagskvöld herta Lilja Björk
Ólafsdóttir 17 ára og Margrét 1
Guðný Skarphéðmsdóttir 20 ára.
Næsta laugardag verður svo
kjörin ungfrú Austur- og Vestor
Húnavatnssýsla og fer kjörið
^fram á dansleik í Féiagsheim-
ilinu á Blönduósi og mun hljóm
sveitin Náttúra leika fyrir
dansi. — ÞJM |
Rússnesk rísaþota hvarf
— Lagði upp frá Keflavikurflugvelli á laugardag
— Kom aldrei fram — Óttazt oð tuttugu og
þriggja manna áhöfn hafi farizt
ALLT bendir til þess
að rússneska risaþotan
Antonov AN 22 hafi horf
ið sporlaust með 23
manna áhöfn og hlaðin
vamingi og hjálpargögn fy.ri
um sem fara attu til jarð
skjálftasvæðanna í Perú.
— Vélin lagði upp frá
Keflavíkurflugvelli laust
fyrir kl. þrjú á laugar-
daginn og átti að lenda
í Halifax í Nova Scotia
kl. 8,10 um kvöldið.
Barnsmeðlögiit
innheimtast bæði
seint og illa
— Sjá bls. 9
Flugstjórnin í flugturninum í
Reykjavík hafði síöast samband
við vélina klukkan sautján mín.
fyrir klukkan þrjú um daginn og
'fórum mfnútum síðar hvarf vél
in af radarskerminum.
— Það virtist allt meö felldu
þegar haft var samband vð vél
ina síðast, sagði Arnór Hjálmars
son, sem stjómaði leitinni héðan
frá íslandi í morgun. Þetta voru
ósköp hversdagsleg radíóvið-
skipti. Við tókum einmitt til
þess að um borö í þessari vel
voru menn sem virtust mjög
vel enskumælandi.
Véiin var komin 205 sjómilur
SA af landinu, þegar hún hvarf
af radarskerminum og það virt
ist allt með felldu. Vélin flaug
f lægri loftlögunum eins og sagt
er, í 22 þúsund feta hæð og eðli
legt að radarinn næði henni ekki
Iengur.
Þeir voru beðnir að ræra sig
yfir á aðra bylgjulengd, þar sem
örbylgjusambandið var orðið ó-
skýrt.
Eftir það heyrðist ekkert frá
vélinni og um klukkan sjö var
farið að undrast um hana þar
sem ekkert hafði frá henni
heyrzt. Klukkan hálf tólf um
kvöldið var reiknað með að vél-
in ætti að vera eldsneytislaus og
stuttu eftir það var sent út al-
þjóðlegt neyðarkall. Neyðarkall
hefur síðan verið sent út frá öll
um stöðvum í nágrenninu, fyrst
á korters fresti, síðan á hálf-
tíma fresti.
Fjórar til sex kanadískar vél-
ar hafa leitað vélarinnar stanz-
laust frá þvf á laugardag og
tvær vélar frá vamarliðinu á
Keflavíkurflugvelli hafa leitað
á svæðinu SA af landinu.
Veðurskipið Alfa, sem var til
viögerðar í Reykjavíkurhöfn fór
strax út til leitar og rússneskt
eftirlitsskip sem statt var suð-
ur af landinu hefur einnig leit-
að. Auk þess hefur svo fjöldi
skipa, sem stödd voru á þess-
um slóðum, komið við sögu.
Leitin hafði hins vegar í
morgun engan árangur borið.
Vélin, sem hér um ræðir er sú
Sýslumaður ók fyrstur /
fuHum skrúða
— nær 200 bilar i mótmælafór Laxárbænda
■ „Okkur fannst þetta tak-
ast prýðilega og hvergi
kom til árekstra. Við hættum
að vísu við að setja stóra
borðann niður við Laxár-
virkjunina, vegna þess að við
treystum þvi ekki að hann
fengi áð standa þar óáreittur,
þar sém við eigum ekki land
þar/Við settum hann niður
við Einarsstaði, en settum
skilti við Laxá, sem reyndar
var horfið, þegar við komum
til baka,“ sagði Hermóður
Guðmundsson, bóndi í Ár-
,nesi í Þingeyjarsýslu, er
Vísir hafði samband við hann
I í morgun vegna mótmælafar-
ar þingeyskra bænda til Lax-
árvirkjunar og Akureyrar.
„Veöur var slæmt er við lögð-
um af stað á nær 200 bílum,
en batnaði og varð ágætt er til
Akureyrar kom. Geysiiegt fjöl-
menni var þar á götunum og
öll bílastæðj í miöbænum full.
Við afhentum bæiarstjóranum
mótmælaskjal og okkur tókst
að halda áætlun svo til upp á
mínútu.“
„Voru þetta allt Þingeyingar
í förinni?"
„Þetta var meirihluti bænda
á Laxársvæðinu, en auk þess
voru nokkrir utansveitarmenn,
t. d. þeir Jakob Hafstein, sem
var þarna að veiða, og Indriði
G. Þorsteinsson rithöfundur.
Nú, svo ók sýslumaðurinn okk-
ar, Jóhann Skaftason, í farar-
broddi í fullum skrúða. Á öðr-
um bílnum í lestinni var áletr-
að á stórt skilti: „Með lögum
skal land byggja — en með ó-
lögum eyða“. Tveir íslenzkir
fánar voru sinn hvorum megin
við spjaldiö og fyrir ofan var
sýslumerki Þingeyinga, foss-
merkið".
„Hver eru næstu áform ykk-
ar bændanna?"
„Við erum með ýmislegt á
prjónunum, en skaðabótamálið
fer væntanlega f gang á næst-
unni. Við munum krefjast
skaðabóta fyrir hvern einstakan
bónda sem á land á þessu
svæði og er þetta nú i undirbún
ingi hjá lögfræðingi okkar,“
sagði Hermóður að lokum. —ÞS
stærsta í heimi, 1 farþegaflugi
tæki hún um 700 manns. Þessar
vélar hafa þótt öruggar og tals-
verö reynsla er fengin af þeim
I flutningaflugi í Rússlandi.
Önnur vél af sömu gerð lenti
á Keflavíkurflugvelli 55 mínút-
um á eftir þessari og fór síðan
áleiðis til Halifax, þar sem vél-
amar millilenda, en loftbrú er
nú sem kunnugt er milli Rúss-
lands og Perú. — JH
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
íslenzk vél tilkynnti rétt fyrir
klukkan ellefu i morgun, að hún
heföi séö eitthvaö á sjónum all-
langt vestur og suöur af land-
inu, en um þaö var ekkert vit-
að nánar. — Norskt skip fann
einnig eitthvaö grunsamlegt á
floti á sjónum í gærdag á þess-
um slóöum, en þaö reyndist
ekkert, sem bent gat til afdrifa
vélarinnar, þegar til kom. Reynt
hefur verið aö kanna þaö hvort
nokkurs staðar hafi heyrzt til
vélarinnar í radíói eftir aö sam-
band var haft viö hana héöan,
en svo virðist ekki. — JH
<5>-----------------------------
Engar breytingar
a3 sjá á veðrinu
Sunnlendingar munu fá að njóta
sólskinsins enn í dag en spáö er á-
framhaldandi björtu veðri og „ekki
að sjá breytingu", aö þvf er Páll
Bergþórsson, veðurfræöingur tjáöi
blaðinu i morgun.
Þótt sólin skíni, er samt kalt 1
lofti og klukkan niu I morgun var
ekki nema 9 stiga hiti í Reykjavík
í gær varð hlýjast á Kirkjubæjar-
klaustri og i Mýrdal, en þá komst
hitinn upp í 15 stig klukkan þrjú.
Margir urðu til að notfæra sér
góða veðrið um helgina og varð
helgin ein af mestu umferðarhelg-
um sumarsins. Lítið var um óhöpp
í umferðinni. I.ítið var að gera hjá
lögreglunni miðað við umferðar-
þungann en þó varð hún að taka
einstaka ökumann til bæna fyrir
aðgæzluleysi í akstri. Tók einn og
einn ökumaður sig út úr umferðar-
straumnum og jós rykmekki og möl
vfir næsta bfl i framúrakstri.
Bændur notfærðu sér þurrkinn
og mátti víða sjá að unnið hafði
verið að heyskap á Suðurlandi.
Fyrir norðan er veðráttan
verri. Á Norðausturlandi var stinn
ingskaldi og súld í morgun, einnig
norðantil á Austfjörðum og ekki
nema 4 stiga hiti. Þegar vestar'
dregur á Norðurlandi birtir upp
og búizt er við að birti þar enn
meira þegar líður á daginn — SB
Áfram
ísland!
í kvöld kl. 20 leika íslend-
ingar landsleik í knattspymu
við „frændur vora“ Norðmenn.
— Sjá nánar í íþróttafréttum
bls. 5 og 6.
VÍSIR