Vísir - 20.07.1970, Blaðsíða 16
..
VISIR
Mánudagur 20 júlí 1970.
Stærstu hitoveitu-
frumkvæmdirnur
Stærstu framkvæmdir hitaveit-
unnar um þessar mundir er lagning
nýrra hitaveitustokka frá dælustöð
inni við Stekkjabakka á hitaveitu-
svæðinu neðan við Breiðholt, og í
aðalæð bæjarkerfisins við vega-
mót Grensásvegar og Bústaðaveg-
<r, en hingað til hefur aðeins verið
notazt við bráðabirgðaleiðslur frá
Stekkjabakkastöðinni.
Hér er verið að vinna við að steypa stokkinn þar sem hann tengist aðalæð bæjarkerfisins við
vegamót Bústaðavegar og Grensásvégar.
Vertíð hjá iðnaðarmönnum
— meiri útivinna i sumar en i fyrrasumar
Hörgull er nú á iðnaðar-
mönnum til vinnu, en segja
má að þeirra „vertíð“ sé yfir
hásumarið, þegar bygginga-
framkvæmdir standa sem
hæst. Einnig mun meira vera
um útivinnu fyrir málara og
múrara nú en í fyrrasumar,
en veðráttan í fyrra oiii því
að minna var unnið við úti-
málningu og múrhúðun en
ella. Hafa sum verkefnin ver
ið geymd til þessa sumars, á
því sviði.
Blaðið haföj samband við
Múrarameistarafélagið og fékk
þær upplýsingar, að engir múr-
arar væru atvinnulausir núna.
Bftir að verkfallinu hafi lokið
hafi eftirspurn eftir múrurum
aukizt og núna virðist vera
hörgull á múrurum. Vegna veð-
urfarsins í fyrrasumar hafj ver-
ið lítið um útivinnu, en töluvert
hafi veriö um hana núna.
Hjá Málarameistarafélaginu
fengust þær upplýsingar, að
vinna væri ágæt núna. Fyrst og
fremst sé unniö að útimálningu.
Meiri eftirspurn sé 'eftir málur-
um en hægt sé að sinna.
Jón Sigurjónsson hjá Tré-
smiðafélagi Reykjavíkur sagði,
að hörgull væri nú á trésmiðum.
Beðiö sé um menn í verkstæðis-
vinnu, í mótauppslátt og við-
geröarvinnu. Enginn trésmiður
væri atvinnulaus og væri beðið
um flokka af trésmiðum. — SB.
SYIFFLUG UT
I HÓLMSÁ
• Klukkan hálf sex £ morgun
flaug fólksbíll út í Hólmsá. Þrír
piltar voru £ bflnum á leið £ bæ-
inn. Þeir höfðu verið austur á
Hellu á svifflugmótinu um helg-
ina. Sá sem var við stýrið telur
helzt að hann hafi dottað. þar sem
hanri’vár orðinn talsvert sýfjaður af
keyrslunni. Einn piltanna svaf vært
f aftursætinu og mun hafa vaknað
við vondan draum þegar Hólmsá
gutlaði um hann. Bfllinn fór á hlið-
ina og skemmdist nokkuð en slys
uröu ekki á piitunum £ þessu ó-
heppilega svifflugi út f Hólmsá. JH
Brutu tvennar dyr til
þess að fá að sofa
Tveir leituðu sér hvildar i nýju
verzlunarhúsi við Laugaveginn
aðfaranótt föstudagsins, dauðupp-
gefnir eftir nætursvalliö. Piltar
þessir áttu leið þama um Lauga-
veginn eftir alllanga öldurhúsa-
setu, i þann mund, sem venjulegt
fólk var að hreiðra um sig i hlýj-
um bólum sinum. Þeir ákváðu hins
vegar að leita sér að svefnstaö á
stuttu færi og varð nýja Edin-
borgarhúsið, beint á móti Stjömn-
biói, fyrir valinu. Húsið reyndist
raunar talsvert erfitt inngöngu,
harðlæstar dyr. Höfðu þeir á þatm
háttinn að olnboga sig í gegnum
tvær svellþykkar glerrúður og
hugðust síðan taka á sig náðir.
Lögreglan sá þeim hins vegar fyr-
ir gistingu annars staðar. — JH
jaldið of hátt!
s'ógðu útlendingarnir og slógu vagnstjórann
Bílstjórinn á strætisvagnaleið
númer 8 lenti á laugardag i úti-
stööum við tvo útlendinga, sem
ætluðu upp í vagninn hjá hon-
um. Bílstjórinn benti mönnun-
um vinsamlega á hvað þeir ættu
að borga. Útlendingunum þótti
gjaldið hins vegar svívirðilega
hátt. Pg þvi til árét.tingar bretti
. Á . f. í. . 1 Y ■ £,
annar þeirra upp ermarnar.
Upphófust þarna handalögmál
og barsmíðar í vagndyrunum.
Vagnstjórinn hlaut áverka á
andlit, en það er líka það eina,
sem hann hafði af þeim félög-
um. Til þeirra hefur ekki sézt
síðan. — JH
Meiríhluti farþeganna í
innanlandsflagi eríendir
Listaverk úr sandi, silfurbergi og
marmara ú prenthúsi
Það er fremur sjaldgæft að iðn-
aðarhúsnæði eins og prent-
smiðjur o. fl. þ. h. séu skreytt
listaverkum. Prenthús Hafsteins
Guðmundssonar á Seltjamar-
nesi á eflaust eftir að vekja at-
hygli margra, því að um helgina
var listaverk mikið sett á gafl
prentsmiðjuhússins. Listaverkið
er eftir Gunnstein Gíslason og
er unnið úr ítölskum marmara,
íslenzku silfurbergi og sandi frá
Búðum á Snæfellsnesi.
„Þetta em sjö mávar, sem em
hamingjutákn,“ sagði Hafsteinn
Guömundsson, þegar Visir tal-
aði við hann í morgun. Lista-
maðúrinn hefur um nokkra hrfð
unnið að verkinu, en það var
sett upp um helgina. — GG
Farþegar með flugvélum Flug-
félags Islands á innanlandsleið-
um eru að miklu leyti útlend-
ingar. Hefur mikil breyting orð-
ið á í þessum efnum að undan-
fömu að sögn Sveins Sæmunds-
sonar, blaðafulltrúa F.í. í morg-
un.
Sagði Sveinn að í morgunferð-
unum til Akureyrar væru iðulega
aðeins um 10 íslenzkir farþegar,
en aörir farþegar erlendir, þ. e. 38
ef miðað er við fulla Fokker Friend
ship-flugvél.
Sveinn kvað Flugfélagið nú byrj-
að að dreifa skoðanakönnun með-
al erlendra ferðamanna í flugvél-
um félagsins. Þar er óskað eftir
ýmsum upplýsingum um ferðir
fólksins, hvers vegna það valdi Is-
Iand, hvemig því likaði ferðin,
hvað væri bezt, og hvað vill ferða-
fólkið til úrbóta. Kvað Sveinn þátt-
töku útlendinga mjög góða. Er skoð
anakönnuninni dreift í flugvélun-
j um á ieið til Reykjavíkur.
Um helgina var geysimikið um j
að vera í innanlandsflugi, á 3. þús. |
manns flaug með flugvélum félags-
ins, en með þotunni flugu um helg-
ina um 1170 manns milli landa.
Sveinn Sæmundsson kvað Akur-
eyri hafa mest aðdráttaraflið á út-
lendingana, Vestmannaeyjar kæmu
í öðru sæti og þá Fagurhólsmýri,
en þá kæmu útlendingarnir til baka
frá Homafiröi. —JBP
r