Vísir - 20.07.1970, Qupperneq 3
3
VlSIR. Mánudagur 20. júlí 1970.
I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLÓND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLÖND
(Jmsjón: Haukur Help.ason
Fjöldi bjargaBist af brenrandi
skipi á náttfötuaum eiaum klæða
— Æðruleysi og rósemi áhafnar norska far-
þegaskipsins Fulviu átti sinn stóra jbátt i að
allir bj'órguðust úr miklum bruna
AIls 448 farþegar af hinu
brennandi farþegaskipi
„Fulvia“, sem áður hét
Oslofjord, komu til
Tenerife á Kanaríeyjum
um miðnætti í nótt og
sögðu fréttamönnum
þar frá hinum spenn-
andi björgunaraðgerð-
um norðan eyjarinnar.
Margir farþeganna voru að-
eins klæddir í náttföt eða nátt-
kjóla, því þeim hafði ekki gefizt
tími til að taka með sér föt sín
eða annað. Mikið lof báru far-
þegar á áhöfn skipsins, sem
hafði haldið róseminni og þann-
ig komiö í veg fvrir að ofsa-
hræðsla gripi um sig meðal far-
þeganna.
Farþegarriir og 271 skipsmaö-
ur munu fljúga í dag til Ítalíu
með 5 leiguflugvélum segir UPI.
Talsmaöur Costa Armatori, sem
hafði tekið skipið á leigu til
skemmtisiglinga um Miðjarðar-
haf og við Afríkustrendur, sagði
að fyrsta flugvélin með 150 far-
þega væri væntanleg til Míianó
kl. 11.15. Franska farþegaskipið
„Apeerville“ flutti farþegana og
áhöfnina, eftir að hafa tekið
fólkið úr björgunarbátunum. —
Norskur yfirmaður á skipinu
sagði, að farþegarnir heföu sýnt
aðdáunarverða rósemi, þegar
eldurinn brauzt út í vélarúminu
í fyrrinótt. ítalskur farþegi
sýndi fréttamönnum sólgleraug-
un sín brosandi og sagði: „Ann-
að glerið í gleraugunum mínum
brotnaöi, — minna gat það varla
verið“
Spánskir dráttarbátar eru með
skipið í togi og er mikill eldur
enn um borð. Skipstjórinn C. B.
Fasting og fjórir aðrir yfirmenn
Fulviu eru um borð í einum
TANZANIA:
Hótar að segja sig úr samveldinu
Sir Alec Douglas Home, utanrík-
isráöherra Bretlands, gerir neöri
málstofunni í dag grein fyrir á-
kvöröun stjórnarinnar varöandi
sölu á hergögnum og vopnum til
Suöur-Afríku.
Stjómmálafréttaritarar brezkra
blaða telja að hann muni einkum
leggja áherzlu á að engin vopn
veröi seld nema til varnar siglinga-
leiðinni fyrir sunnan Góðrarvonar-
höfða.
Talið er líklegt að stjórnarand-
stæðingar, jafnaðarmenn, séu til-
búnir að bera fram vantraust á
hina nýju ríkisstjóm íhaldsmanna
vegna ákvörðunar hennar. Er lík-
PIPINELLIS LATINN
Gríski utanríkisráðherr-
ann Panayotis Pipinellis
lézt á sunnudagsmorgun,
en hann veiktist skyndi-
lega á laugardag — fékk
hjartaslag. Þar með hef-
ur herforingjastjórnin í
Aþenu misst einn fremsta
samstarfsmann úr hópi
borgara.
Panayois Pipinellis.
dráttarbátunum og stjórna til-
raunum til að slökkva eldana.
Aðeins þrem dögum fyrir slys
iö var höfð æfing um borð í
skemmtiferðaskipinu á björg-
unaraðgerðum, þar eð fjöldi
nýrra farþega hafði komiö um
borð, sem ekki kunnu skil á
notkun björgunarútbúnaðarins
Hefur þetta ásamt kaldri rósemi
áhafnarinnar örugglega orðiö til
þess aö svo vel gekk að bjarga
fólkinu, sem komið var f björg-
unarbátana á 45 mínútum.
COOKY GRENNIR
Cooky-úðun
í kökuformin
og á pönnuna
Cooky kemur
í veg fyrir að
kakan festist
forminu eða
maturinn á
pönnunni.
Hreint jurtaefni
COOKY i hvert eldhús. Hreinni
eldhús. Auðveldar uppþvott. —
COOKY fyrir þá, sem forðast
fitu.
legt að vantrauststillagan verði
rædd á miðvikudag.
Blað í Dar-es Salaam segir að
ef af hergagnasölunni verði, muni
Tanzanía- >þegar í stað ganga úr
brezka samveldinu. Öryggisráð SÞ
mun koma saman síðar í dag til
að ræða mál þetta.
Þegar fréttin barst um lát Pipin-
ellis kallaði forsætisráðherrann
George Papadopoulus, sem hefur
haldið um stjómartaumana sfðan
í apríl 1967, strax saman ríkisráðs-
fund á skrifstofu sinni og mættu
þar allir helztu ráðherrar hans.
Varnarmálaráðherrann, Odysseus
herforingi, var meðal viðstaddra —
og gaf hann út tilkynningu eftir
fundinn um þriggja daga þjóðar-
sorg, en á þriðjudag veröur Pipin-
ellis jarðaður á kostnað ríkisins.
Stjórnmálafréttaritarar f Aþenu
álíta, að herforingjastjórnin muni
sakna Pipinellis mjög. Hann var
hinn eini af þekktum grískum
stjómmálamönnum, sem starfaði
í þágu stjómarinnar, þó ekki fyrr
en sex mánuðum eftir valdatöku
hennar en þá leit út fyrir styrjöld
milli Grikklands og Tyrklands í
sambandi við Kýpurmálið. Þá sam-
þykkti Pipinellis að taka að sér
utanríkismálin.
Á ríkisráðsfundinum var rætt
um hver skyldi verða eftirmaður
Pipinellis og forsætisráðherranum
falið, að reyna aö finna einhvern
úr röðum almennra borgara.
STOKKABELTI
Gamalt, mjög fallegt og verðmætt stokkabelti (loft-
verk), ásamt sprota, til sýnis og sölu. Uppl. í síma
12326 eftir kl. 6.
BÍLASKÖDUN & STILLING
Skúlagöfu 32
HJÓLASTILLINGAR
MOIORSTILLINGAR : LJÚSASTILLINGAR
Láfið stilla í tima.
Fljót og örugg þjónusta.
13-10 0
Útsala - Útsala
Sumarútsalan hófst í morgun.
Fjölbreytt úrval af ódýrum fatnaði.
Ullarkápur, dragtir, terylenekápur, buxna-
dragtir, leðurjakkar, rúskinnskápur,
rúskinnsjakkar.
Bernhard Laxdal
Kjörgarði,
Laugavegi 59
Sími 14422.
DftGLEGA OPÍO FRA KL. 6 AO MORGNI TIL KL. HALF TÖLF AÐ KUÖL0I
smáréttir
kaffi
kökur
brau
GOTT OG ÖDÝRT
HJft GUÐMUNDI