Vísir - 29.08.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 29.08.1970, Blaðsíða 1
60. árg. — Laugardagur 29. ágúst 1970 — 195. tbl. „Góð veðurspá í nýja liiisimi" Fyrsta skóflustungan tekin að nýju veðurstofuhúsi „Þaö þarf að halda við rigninguna svo aö hún helli sér ekki yfir“, sagði áhyggju- fullur „veðurspámaður“ um leið og hann leit til lofts, en hann hékk þurr méðan fyrsta skóflustungan var tekin að nýja veðurstofuhúsinu á Golfskálahæð í gærmorgun.' Jarðýta var tilbúin á staðn- um og eftir fyrstu skóflu- stunguna dreif ýtustjórinn hana af stað og fletti upp jarðveginum á því svæði, sem búið var að mæla út fyrir nýja húsinu. Það á að drífa í framkvæmd- um og ef verkið stenzt áætlun < verður fyrsta hæðin tilbúin fyr- ir áramát, en 1. september næsta ár á húsið, sem er jarð- hæð og 3 hæðir, að vera tilbúið undir tréverk. Ingólfur Jónsson ráöherra tók fyrstu skóflustunguna og að því verki Ioknu beindi hann því að veðurstofustjóra og öörum, sem þama voru samankomnir, aö landsmenn reiknuðu með að fá góða veðurspá eftir að húsið væri komið upp. — SB Hann hékk þurr meðan Ingólfur Jónsson, ráð herra, tók fyrstu skóflustunguna. Opinberír starfsmenn fara framáalltað 95% hækkun Tæplega 300 hvalir veiddir Hvalveiðibátamir lágu flestir við land í gærlcvöldi vegna brælu. Hvalvertíðin hefur þó gengið vel fyrir sig í sumar, en nú fer senn að líða að lokum hennar að þessu sinni og gert ráð fyrir að hún verði með öllu um garð gengin um miðjan næsta mánuð. Bvailfengur hefur verið með betra móti í sum- ar, en nú hafa veiðzt 294 hvalir. Viðræður milli kjararáðs BSRB og samninga- nefndar fjármálaráðherra hafnar um nýja kjara- samninga — Farið fram á, að kennsluskylda kenn- ara verði allt niður / IOV2 „vinnustund" i viku Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, hefur nú sent frá sér tillögur um nýjan samn- ing um kjör ríkisstarfsmanna. Verður ekki annað séð en þar sé farið fram á ærið hressileg- ar breytingar frá núverandi samningum. Lagt er til að grunn laun hækki um allt að 95%, svo sem í 20. launaflokki, þar sem lagt er til að grunnlaun hækki úr 21.080 kr. í 40.000 kr. en verðlagsuppbót á laun verði með sama sniði og í almennu samn- ingunum, sem gerðir voru í sumar. Fleiri tilfelli af músa- tau á Suðureyri — öll / sómu fjólskyldunni — heimiHð einangrað Annað tilfelli músataugaveiki hefur fundizt á Suðureyri. Auk þess leikur grunur á, að tvær persónur aðrar hafi tekið veik- ina. Öll tilfellin eru innan sömu fjölskyldu og er nú reynt að einangra heimilið, sem veikin kom upp á. Héraðslæknirinn á Isafirði, Atli Dagbjartsson, skýrði blaðinu frá þessiu í gær. Af þessum fjórum, sem hafa tekiö veikina hefur fund- izt jákvæð ræktun frá tveim, kon- unni frá Reykjavík, sem legið hef- ur á sjúkrahúsinu á ísafirðj og systur hennar á Suðureyri, en ræktun frá hinum tveim, m. a. Droður systranna sem fyrstur veiktist, var neikvæð. Hins vegar er taiið trúlegt, að um músatauga- veiki hafi einnig verið að ræða í þeim tilfellum. Það, sem hefur verið fengið af svörum frá öðru fóiki hefur hingað til reynzt nei- kvætt. Rannsókn heldur enn áfram á upptökum veikinnar, en smitberi hefur ekki enn fundizt og óljóst hvemig hún hefur komið upp. Er beðið eftir fleiri svörum við rækt- un á sýnurn. Einnig hafa veriö send sýnishorn af mjóik frá ísa- firði og vatni á Suðureyri til rann- 4/5 sóknar. Sýni hafa verið tekin frá fjölda manns. Einnig hefur verið athugað hva-ða matvæli fólk hefur borðað og hvaðan þau komu. - SB Bandalagið leggur til, að fyrstu 6 launaflokkarnir verði felldir nið ur. Neösti flokkur veröi því 7. launaflokkur, þar sem byrjenda- laun verði 14.000 kr. — í elzta aidurshópi (12 ára starfsaldur) í 28. launaflokki er lagt til, að grunn- launin verði 65.513 kr. Miðað viö 9 ára starfsaldur er gert ráö fyr- ir, að opinber starfsmaður fari yfir 30 þús. kr. í grunnlaun í 14. flokki yfir 40 þús kr. í 18 fl., yfir 50 þús. kr. í 23. flokki og yfir 60 þús. kr. í 27. fl. Lagt er til, að vinnuvika þeirra, sem nú vinna 44 stundir styttist í 40 og 38 stundir, en aimennt er lagt til að vinnuvikan styttist veru lega. Þannig er t. d. lagt tii, aö kennarar menntaskóla, framhalds- deilda gagnfræðaskóla, kennara skóla, sérskóla fyrir kennara og stýrirhanna- og vélskóla verði 21— 24 kennslustundir, sem fækki í 19 stundir, þegar kennarinn veröur 55 ára og styttist aftur í 14 stundir þegar kennarinn verður 60 ára. Lengd hverrar kennslustundar skal vera 45 mínútur, en samkvæmt því ætti sextugur kennari að skila 10V2 „vinnustund“ á viku þá ca. 7 mán- uði, sem kennt er á árinu. Lagt er til, að söngkennarar og kennarar vangefinna og afbrigðilegra hafi af kennsluskyldu almennra kennara. Þeir síðasttöldu ættu samkvæmt ofangreindu að skila rúmum 8 „vinnustundum” á vi'ku eða náiægt 250 vinnustundum á ári, eif miöað er við, að kennt sé í um 7 mánuði á árinu (frátalin sumarlfrí, jódafrii, páskafrí og ýmis önnur skólafri). Bandalagiö gerir enga tillögu um kjör stanfsmanna Háskóla Islands, sem eru á annað hundrað. Hins veg- ar er lagt til að gerður verði sér- staklega samningur við bilstjóra Sjúkrasamlags Reykjaviíkur (þeir eru tveir) um vinnutiíma. Af ýmsu öðru nýmæli í tillöguip BSRB má nefna, að lagt er tíl, að' dagvinnu kennara ljúki á hádegi, etf skóli hefur starf fyrir kl. 9 að- morgni, að dagvinnutímakaup kenn, ara skal fundið meö því að deila. árlegum kennslustundafjölda í árs launin, en á það að á aö greiöa' 100% álag, aö greiöa skal a. m. k. fjórar klukkustundir sé starfsmað' ur kallaður til vinnu, sem ekki er' í beinu framhaldi af venjuiegri vinnu hans, að vaktaálag og föst1 yfirvinna greiðist í veikindaforfödl um. Viðræður milli kjararáðs BSRB- og samninganefndar ríkisins af hálfu fjármálaráðherra eru þegar hafnar, en náist ekki samkomu- lag milli þessara aðila, veröur þvr vísað til sáttasemjara, sem mun. hafa það ti’L meðferðar í oiktóber og náist ekki samningar við það, verö ur því endanlega vísaö til kjara- dóms, sem á að skila úrskurði fyrir lok nóvember og munu ný kjör, hver sem þau verða, veröa greidd frá 1. júií sl. — VJ SjávarútvegsráBherra bjargar tveimur mannslífum ■ Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsráðherra, bjarg- aði í fyrradag öldnum manni og ungum dreng frá drukkn- un í höfninni í Visby á Got- landi. Sjávarútvegsráðherra hefur að undanförnu setið norræna sjávarútvegsráð- stefnu í Visby. Ráöherra var á gangi niðri við höfn, þegar hann sá fullorð- inn mann stinga sér í höfnina. Síðan heyrði hann að kallað var á hjálp. Sá hann hvar lítill drengur og gamail maöur mör- úðu í kafi og bar þá frá bryggj- unni en drengurinn hafðj fallið í höfnina og maðurinn ætlað aö bjarga honum. Báðir voru ósynd ir. Sjávarútvegsráðherra stakk sér óöara í sjóinn og lenti á miíli þeirra tveggja. Náði hann taki á þeim báðum og synti með þá aö bryggju en þar voru komnir fleiri tl aöstoðar. Voru þeir þrekaðir nokkuð, en náðu sér fljótlega. Eggert hefur sjálf- sagt notið þess, að hann iökar mikið sund í Sundlaugunum í Reykjavík. Þar að auki viður- kennt hraustmenni, eins og frændur hans fleiri. — JH •1 •r «

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.