Vísir - 09.09.1970, Side 16
VISIR
Miðvikudagur 9. sept. 1970.
Nýtt frímerki í
tilefni afmælis
Sameinuöu þjóðanna
Nýtt frímerki veröur gefið út
hinn 23. október í tilefni þess, að
í ár eru 25 ár frá stofnun Sam-
einuðu þjóðanna.
Þetta er marglitt tólf krónu frí-
merki með mvnd af íslandi og
merki Sameinuðu þjóöanna og á-
letrað: Friður og framfarir.
Haukur Halldórsson hefur teikn-
að. — HH
VERDUR HANH ÁKÆRD■
UR FYRIR MAHHDRÁP?
Ölvaði árásarmaðurinn i gæzlu — Niðurstöðu
krufningar beðið, en á henni veltur, hvaða
málsmeðferð maðurinn fær
Læknar á Rannsóknar-
stofu Háskólans krufðu
í gær lík Gunnars Gunn-
arssonar, 75 ára gamals
manns, sem lézt svip-
lega á laugardaginn eft-
ir handalögmál við
drukkinn mann.
Engir áverkar fundust á
gamla manninum við fyrstu sýn,
en niðurstöðu krufningarinnar
sem ekkj liggur fyrir ennþá, er
beðið því að áframhaid rann-
sóknarinnar og máísmeðferðar
veitur miikið á henni.
Það liiggur l'jóst fyrir, að hinn
látni hafi verið maður ekki heili
fyrir hjarta, því að fyrir nokkr
um árum fékk hann kransæða-
stíflu. En leiðj krulfningin í ljós
að átökin sem hann lenti í hafi
flýtt fyrir dauða hans á laugar-
daginn, getur gæzlufanginn (á-
flogamaðurinn hefur verið úr-
skurðaður í ailt að 30 daga
gæziuvarðhald) átt yfir höfði
sér málshöfðun fyrir manndráp.
Gæzlufanginn hefur verið yfir
heyrður, og segir hann, að hon-
um og konunni er hann heim-
sótti í hús Gunnars Gunnarsson
ar að Ránargötu, hafi lent sam
an, þegar hún vildi reka hann
út, en hann vildii ekkj fara. Mis-
kliíð þeirra kallaði Gunnar heit
inn niður í fbúðina, og skipaði
Gunnar honum að verða á brott.
Þegar hann þverskallaöist enn,
var haft á orðj að tilkalla lög-
regluna. Eftir því sem gæzlu-
fanginn segir, ætlaði hann sér
þá að fara, en þá vildu konan
og Gunnar hindra hann i að yfir
gefa húsið. og kom þá til hörð-
us-tu rimmunnar, sem lyktaði
með því að hann skildi Gunnar
heitinn eftir meðvitundarlaus-
ann á gólfinu.
Sá framburður gæzlufangans
er ekki f samræmi við það, sem
konan hefur s;ký-rt frá. En hún
segir, að gæzlufanginn hafi
ærzt þegar minnzt var á lög-
regluna og hert tökin. Þess skai
að lokum getið að hér var efcki
um ættingja fóiksins að ræða.
— GP
LEIÐ TIL
SNÚIÐ VIÐ
FLUGVEL A
HAFNAR VAR
Leitað að sprengju i SAS-vél
$ Flutningaflugvél frá SAS tafð-1 Bourget-flugvellinum við Paris og
ist f morgin f átta stundir, þegar kvaðst vita, að sprengja væri f
lögreglan gerði leit að sprengju í flugvélinni.
vélinnf. Óþekkt persóna hringdi í Flugvélin hafði hafið sig til flugs
nótt til flugmálastjórnar á Le | en var skipað að snúa við. Var
Fasteignaskattar
hækki
— og verði stærri hlutur af heildartekjum
sveitarfélaga — tillaga nefndar
Þriggja manna nefnd á vegum
Sambands íslenzkra sveitarfélaga
leggur til að sveitarfélögin fái í
framtíðinnl meiri tekjur af fast-
eignasköttum. Verði fasteignaskatt
ar stærri hlutur af heildartekjum
sveitarfélaganna en verið hefur,
það er þejr hækki í samanburðj við
útsvör og aðrar tekjur kaupstaða
og hreppa.
t
Ólafur Davíðsson, hagfræöingur
gerðd grein fyrir tillögum nefnd-
arinnar á landsþingi Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga í gær. Nýtt
fasteigamat mun væntaniega verða
lagt fram innan skarnms og taka
gildj fyrri hfatia næsta árs. Þess
vegna hefur Samband M. sveitanfé-
laga tflkið fateignaskatta tiil sér-
' stakrar meöferðar.
Aðrar niðurstöður nefndarinnar
eru þessar: Almennu fasteignaskatt
ur veröur áfram lagður á sem sjálff
stæöur tekjustoifn sveitanfólaga. —
Híutur skattsins d tflkjum sveitar-
1 félaga mdðast við útgjöld þeirra
vegna fasteigna og framkvaemda, I
sem eru tengdar fasteignum. — j
Verði fasteignaskattur yifirieitt lagð j
ur á með sömu prósentu á fast-
eignamat allra fasbeigna. —HH
hún ffatt á afvikinn stað á flugvell-
inum, meöan lögreglan leitaði hátt
og lágt. Engm sprengja fannst, og
hélt flugvélin til Kaupmannahafn-
ar í morgun. — HH
Eldur í
sumarbústað
og bifreið
Slökkviliöiö var kvatt upp að
Rauðavatni í gærdag um kl. 14.20,
en þar hafði kviknað í sumarbú-
staö við 2-götu nr. 7. í bústað
þessum er þó búið allt árið. Ná-
búakona varð reyks vör í húsinu,
en íbúar voru fjarstaddir. Gerði
hún slökkviliðinu viövart og var
eldurinn fljótlega slökktur, áður en
spjöli hlytust af, sem nokkru
næmi. Hafðj kviknað í eldhúsi út
frá rafmagnshellu.
Einnig var slökkviliðiö kallað
til, vegna elds, sem kom upp í
sendibíl, er stóö á bifreiðastæöinu
að baki Tjarnarbúðar. Var slökkvi-
liðinu símleiðis gert viðvart um
það, að reyk legði frá vélarhúsi
I bifreiðarinnar, en eldurinn var ekki
I magnaðri en svo, aö kolsýrings-
j handslökkvitæki dugði til þess að
I kæfa hann. Urðu skemmdir heldur
| ekki miklar. — GP
Sækja fast inn á Völl-
inn til hermannanna
ÁSÓKN íslenzkra stúlkna inn
á Keflavíkurflugvöll hefur
verið töluverð að undanförnu
og um síðustu helgi hafði
lögreglan afskipti af 6 stúlk-
um, sem fundust vegabréfa-
lausar á Veilinum.
Bandaríska herlögreglan hef-
ur oft og tíðum komið að þess-
um stúlkum í búðum hermann-
anna, og framselt þær íslenzku
lögreglunni, sem hefur vísað
þeim af Vellinum, ef þær hafa
verið vegabréfslausar og ekki
virzt eiga neitt brýnt erindi.
Meira hefur borið á því síð-
ustu mánuði, aö þarna væru á
ferli komungar stúlkur — und
ir lögaldri. Sumar stúlkurnar,
sem lögreglan hefur haft af-
skipti af, hafa verið allt niður
í 14 ára gamlar. Og er barna-
verndarnefndum í heimahögum
stúlknanna jafnan gert viðvart
um atferii stúlknanna, sem eink
um koma úr Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnarfirði og Keflavík.
Oftast eru þetta sömu stúlk-
urnar, sem sækja á Völlinn til
hermannanna aftur og aftur og
eru Iögregluþjónarnir farnir aö
þekkja þær í sjón og nöfn
þeirra. vegna tíðra afskipta af
þeim. Stundum slæðast með
þeim nýjar vinkonur, sem þær
hafa lagt lag sitt við. — GP
Girðing er komin umhverfis bústaðinn ö Vtfilsstöðum, þar sem
stúlkumar fjórar dveijast < sóttkví.
GIRT f KRING-
UM SÓTTKVÍNA
— „Þetta er alveg stórfint núna". segir ein
stúlknanna sem eru farnar að venjast jbvi að
vera i sóttkvi
# Girt var hringinn í ring um bú-
staðinn á Vífilsstöðum, þar sem
stúlkurnat í sóttkvínni dveljast,
í gær Þetsar auknu varúðarráð-
stafanir voru gerðar til þess að
fólk kæmi ekki á gluggann, en
smitun bólusóttar getur verið
svokólluð loftsmitun.
# Vísir talaði í morgun við eina
stúíkuna Höllu Guðmundsdótt-
ur, sem lét vel af líðan þeirra
stallsvstra. „Þetta er alveg stór-
fínt núna Viö erum farnar að
veniast einangruninni og hættar
að taka inn pillur. Það hefur ekk
ert komið út á okkur og við fá-
um að fara heim annaðhvort á
sunnudag eða á mánudaginn.“