Vísir - 28.09.1970, Blaðsíða 6

Vísir - 28.09.1970, Blaðsíða 6
6 VISIR . Mánitdagur 28. september 1970. Chelsea sigraði á furðu- legum mistökum dómara! — Öll liðin i 1. deild hafa nú tapað leik i keppninni ENN er dómgæzla í knattspyrnuleikjum háð duttl- ungum og mistökum mannsheilans og það kom berlega í ljós á laugardaginn í leik Chelsea og Ips- wich í Lundúnum. Staðan var 1—1, þegar Alan Hudson, hinn 19 ára innherji Chelsea, lék upp með knöttinn á 68. mín. og spymti í átt að marki. Knött- urinn lenti í járnstönginni í hliðametinu og hrökk út aftur, en öllum til undrunar hljómaði flauta dóm- arans og hann dæmdi mark og það reyndist sigur- mark Chelsea í leiknum. Hudson var ekki síður undrandi en aðrir, því hann vissi, að hann hafði ekki skorað, og leikmenn Ipswich mótmæltu ákaft við dómarann, en hann breytti ekki fyrri ákvörð- un sinni. Á eftir sönnuðu kvikmyndir, svo ekki var um villzt, að dómarinn hafði haft rangt fyrir sér og hinn kunni framkvæmdastjóri Ipswich, Bobby Robson, sagði eftir leikinn, að Ipswich myndi kæra þetta atriði til enska knattspymusambandsins og hann vonaðist til, að leikurinn ýrði éndurtekinn. En nær engar líkur em á að svo verðí, því mistök dómara eru aðeins liður í leiknum, sem við verð- um að samþykkja möglunarlaust. — Fyrra mark Chelsea í leiknum skoraði Peter Osgood, fyrsta mark hans í deildakeppninni í haust. Lið Everton, sem leikur hér á Laugardalsvellinum eftir tvo daga, leikur nú með sömu á- gætum og þegar það varð ensk- ur meistari í vor og sigraði í fjóröa skipti í röð á laugardag- inn. Hin slæma byrjun — hin versta, sem um getur hjá ensku meistaraliði — er nú aðeins orð in eins og slæmur draumur i minningu leikmanna. — Liðið sýndi frábæran leik gegn C Palaoe og þeir John Morrissey, Colin Harway og Joe Royle skoruðu mörkin gegn Palace, en eina mark Lundúnaliðsins skor aði Jim Scott. Staðan var 3 — 1 í leikhléi, en þrátt fyrir næstum stöðuga sókn Everton í síðari hálfleik urðu mörkin ekki fleiri. En áður en lengra er haldið skulum við líta á úrslitin i 1. deild á laugardaginn. Bumley — Wolves 2—3 Chelsea — Ipswich 2—1 Everton — C. Palace 3—1 Huddersfield — West Ham 1—1 Man. Utd. — Blackpool 1—1 Newcastle — Coventry 0—0 Nottm. For. — Leeds 0—0 Southampton — Liverpool 1—0 Stoke — Arsenal 5—0 Tottenham — Man. City 2—0 W.B.A. — Derby County 2—1 Leikmenn Arsenal, sem sýnt hafa mjög góöa leiki að undan fömu, komust heldur betur nið- ur á jörðina í Stoke — töpuðu með fimm mörkum. Þaö var John Ritchie, leikmaðurinn, sem ég sagði ykkur frá í síðasta þætti, og gat ekki skorað mörk með Sheff. Wed., sem lagði homsteininn að hinum mikla sigri Stoke með tveimur frábær um mörkum f fyrri hálfleik. Og í síðari hálfleiknum skoruðu þeir Jimmy Greenhoff, Gerry Conroy og Alan Bloor fyrir Stoke. Ekkert heppnaðist hjá Arsenal og yfirburðir Stoke voru svo miklir, að leikurinn var aðeins spuming um hvað mörg skot Bobby Wilson, mark vörður Arsenal, myndi verja og þrátt fyrir mörkin fimm varði hann vel. Eftir leikina á laugardag hafa nú öll liðin i fyrstu deild tapað leik — Manch. City féll í Lun- dúnum fyrir Tottenham og ,dýrl ingarnir' f Southampton sigr- uðu Liverpool og höfðu mikla yfirburði í leiknum, en til sig- urs þurfti þó sjálfsmark og 10 mfn. fyrir leikslok skallaöi fram vöröurinn Alec Lindsay hjá Liv erpool knöttinn f eigið mark meö slíkum tilþrifum, að sjálfur Ron Davies hefði mátt vera hreykinn af — en þessum bezta miöherja á Bretlandseyjum tókst ekki að finna leiðina í markið f þessum leik. Tottenham lék svo glæsilega knattspyrnu gegn Manch. City að hún minnti á „stórveldis- tfmabil" liðsins fyrir áratug. — Þetta dýrasta stjörnulið Eng- lands náði nú loksins saman - og framlínumennimir fjórir, sem kostuðu hálfa milljón sterl ingspunda, þeir Martin Peters (200 þús. pund), Martin Chivers (125), Roger Morgan (100) og Alan Gilzean (72) - en hann lék hér á Laugardalsyellinum fyrir áratug með Dundee — sýndu frábæran leik. Martin Chivers — nfunda mark hans í haust - og Gilzean skoruöu mörk Tottenbam sitt í hvorum hálfleiknum. En mörkin tvö segja þó ekki nema hálfa sögu um yfirburði Tottenham, knött urinn sleikti hvað eftir annað þverslá og stangir City-marks- ins, auk þess, sem markvörður inn, risinn Joe Corrigan, hæsti maður í enskri knattspymu 195 sm, varði oft glæsilega. Hins vegar áttu leikmenn City aðeins tvö skot á mark Tottenham, sem heitið gátu því nafni — Colin Bell í bæði skiptin, en Francis Lee komst ekkert áleið is gegn Mike Eng'land, mlðveröi Tottenham, sem kominn er í sitt gamla „form“, en hann kost aði Tottenham 90 þúsund pund fyrir nokkrum árum. Lee gekk þó ekki alveg heill til skógar og varö að yfirgefa leikvanginn i síöari hálfleik. Miklar breytingar voru gerð ar á liði Manch. Utd. eftir stór- tapið í Ipswich og Ian Ure og Nobby Stiles settir úr liðinu, en Denis Law var meiddur. En það var ekki til hins betra — aðeins jafntefli gegn Blackpool. Georgie Best skoraði fyrir United í fyrri hálfleik, en Black pool tókst að jafna f þeim síö- ari — og greinilegt, að Manch. Utd. setur ekki merki sitt á deildakeppnina á þessu leiktíma bili. Best virkar mörgum kíló- um of þungur og á „glaumgosa líf“ hans eflaust sinn þátt f því og Brian Kidd nær ekki þeim leik, sem gerðu hann að ensk- um landsliðsmanni f vor. Og þá skulum við Iíta á stöð una í 1. deild. Leeds 10 7 2 1 14-5 16 Manch. City 9 6 2 1 14-5 14 Tottenham 10 5 3 2 15-7 13 Arsenal 10 5 3 2 18-12 13 Chelsea 10 4 5 1 13-10 13 Liverpool 9 3 5 1 12-5 11 South’pton 10 4 3 3 12-7 11 Everton 10 4 3 3 16-13 11 C. Palace 10 4 3 3 8-8 11 Newcastle 10 4 3 3 11-11 11 Stoke 10 3 4 3 15-12 10 Wolves 10 4 2 4 18-22 10 Manch. Utd. 10 3 4 3 9-12 10 Derby 10 4 1 5 15-16 9 Nott. For. 10 2 5 3 10-11 9 W.B.A. 10 3 3 4 8-23 9 Coventry 10 3 2 5 7-10 8 Huddersf. 10 2 4 4 9-13 8 Ipswich 10 2 2 6 10-12 6 West Ham 10 0 6 4 9-16 6 Blackpool 10 2 2 6 6-17 6 Burnley 10 0 3 7 5-17 3 Tveir kunnir leiikmenn meidd- ust illa á laugardag — Johnny Giles hjá Leeds og Alun Evans hjá Liverpool, en hann er mark- hæstur hjá Liverpooil f haust. KVÖLDSKÓLINN Skólinn verður settur mánudaginn 5. október klukkan 20.30 í Laugalækjarskóla (húsinu nær Sundlaugavegi). Getum bætt við nokkrum nemendum. — Innritun og upplýsingar annast Þráinn Guð- mundsson, yfirkennari, sími 33204. Skólastjórnin. Markásinn í Everton-Iiðinu, mtðherjinn Joe Royle, en hann skoraði þriðja markið gegn Palace á laugardaginn. mörk gegn QPR. Einnig meiddist Roger Kenyon hjá Everton — en hann hafði tekið stöðu hins fræga, enska landsliðsmanns Brian Labone á Everton-liðinu. Það verður þvi sennilega Labone sem leikur hér á miðvikudaginn, en ekki hinn ungi Kenyon. í 2. deild er Oxford United nú i efsta sæti með 13 stig — einu stigi meira en Cardiff og HuM City. Og í sambandi við Oxford er ein af þessum skemmtilegu ,öskubuskusögum‘“ ensku knatt spymunnar. Fyrir nokkrum ár- um lék liðið f Suður-deildinni, en var síðan valið f 4. deild á kostnaö Gateshead, 100 þúsund manna borgar gegnt Newcastle við Tyne-fljótið. Og Oxford, sem etkki er firá háskólaborginni frægu, heldur smáborginni Headington í Oxfordshire hafði stutta viðdvöl í 4. deild — og enn styttri í þeirri þriðju, sigr- aðd þar vorið 1968. Og nú stefn- ir liðið sem sagt í 1. deiild — hvort sem það tekst eða ekki — en liðið hefur þó litla mögu- leika — vegna takmarkaðs á- horfendafjölda — að setja vem- legt mark á enska knattspyrnu, þótt hins vegar byrjun þess i dei'ldakeppninnj hafd verið undraverð. Úrslit f 2. deild urðu þessi: Birmingham—Charlton 1—1 Bolton—Oxford 0—2 Bristol City — Blackbum 1—1 Leicester—Portsmouth 2—0 Middlesbro—Q.P.R. 6—2 MfHvall—Sundedand 0—0 Norwich—Huli City 0—2 Orient—Cardiff 0—0 Sheff. Wed.—Carlisle 3—0 Swindon—Luton Town 0—0 Watford — Sheff. Utd. 0—0 Þeir David Clement og Rodney Marsh skoruðu tvö mörk fyrir Q.P.R. fyrstu fimm mdnútumar í MiddJesbro — en þar við sat og Middlesbro skoraði sex sinn- um. John Hickton skoraði þrjú — en hann hefur verið aðal markskorarj Middlesbro undan- farin ár, en lék áður með Sheff. Wed. og komst Þar sjaldan á blað, ekkj frekar en John Ritchie — Hugh Mcllmoyle tvö og Derrick Downing eitt. Og S fyrst við vomm að tala um jj Sheff. Wed. má geta þess, að I þetta er í fyrsta skipti sem | Sheff. Wed. skorar þrjú mörk í $ leik S'fðan 1968 — gegn Carlisle j á laugardaginn. — hsím. '

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.